Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Blaðsíða 26
42
íslendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_________________________
Guömundur Gunnarsson,
Stóragerði 19, Hvolsvelli.
Sigurður Friðfinnsson,
Ketilseyri, Þingeyri.
80 ára_________________________
Árnína Guðjónsdóttir,
Einilundi 8a, Akureyri.
Hanna Jónsdóttir,
Stekkjardal, Austur-Húnavatnss.
75 ára_________________________
Björg Andrésdóttir,
Steinholtsvegi 5, Eskifiröi.
Christina Kjartansson,
Fróöengi 10, Reykjavík.
70 ára_________________________
Hermann J.E. Þórðarson,
Álfaskeiöi 117, Hafnarfirði.
Jón Andrésson,
Hjallabrekku 39, Kópavogi.
50 ára_________________________
Eygló Jóna Gunnarsdóttir,
Seljavegi 4, Selfossi.
Guðjón Sævar Jónsson,
Flötum 16, Vestmannaeyjum.
Gunnólfur Árnason,
Hrannarbyggö 13, Ólafsfirði.
Símon Ægir Gunnarsson,
Krosshömrum 1, Reykjavík.
50 ára_________________________
Anna Aifreðsdóttir,
Grundartúni 12, Akranesi.
Ólafía Andrésdóttir,
Grjótaseli 6, Reykjavík.
Símon Sverrisson,
Breiöuvík 16, Reykjavík.
40 ára_________________________
Birna Katrín Sigurðardóttir,
Smárarima 16, Reykjavík.
Guöný Soffía Marinósdóttir,
Langholtsvegi 105, Reykjavík.
Hafey Lúðvíksdóttir,
Borgarsíöu 10, Akureyri.
Helgi Sigurðsson,
Haðalandi 16, Reykjavík.
Unnur Óladóttir,
Grundarbraut 46, Ólafsvík.
allan solarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Sverrir Olsen Sverrir Einarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Su«urhlfö35 • Slmi 581 3300
Persónuleg,
alhliöa útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Andlát
Kai Emil Lorange lést á Landspítalanum
í Fossvogi fimmtud. 22.3.
Lóa S. Kristjánsdóttir, Skúlagötu 40,
lést á Landspítala Landakoti föstud.
23.3.
Óskar Guðjónsson, Hringbraut 50,
Reykjavík, er látinn. Útförin hefur fariö
fram í kyrrþey.
Petrúnella A. Kristjánsdóttir, Lönguhlíð
3, áöur Bergstaöastræti 32b, Reykjavík,
lést fimmtud. 22.3.
Emilía Jóhannesdóttir, Eyjabakka 6,
andaöist á heimili sínu föstud. 23.3.
Elísabet Sveinsdóttir, Álftalandi 12,
Reykjavík, lést á Landspltalanum viö
Hringbraut föstud. 23.3.
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
I>V
Margrét Kristín Sigurðardóttir,
deildarstjóri fjárhagseftirlits Land-
spítala-háskólasjúkrahúss, Laugarás-
vegi 12, Reykjavík, verður sjötug á
morgun.
Starfsferill
Margrét fæddist i Reykjavík. Hún
lauk prófum frá VÍ 1949, einkaritara-
prófi frá St. Godrich's Secretarial Col-
lege í London 1950, leiðsögumanna-
prófi 1970, stúdentsprófi frá MH 1983
og prófi í viðskiptafræði frá HÍ1991.
Margrét var ritari hjá Ríkisspítöl-
unum 1949,1951-53 og 1954, og í hluta-
starfi 1959-66, var leiðsögumaður hjá
Kynnisferðum ferðaskrifstofanna
Ferðaskrifstofu Zoéga og Ferðaskrif-
stofu ríkisins 1970-78, deildarstjóri
launadeildar Rikisspítalanna 1991-95,
deildarstjóri fjárreiðudeildar þar frá
1995 og er deildarstjóri íjárhagseftir-
lits Landspítala-háskólasjúkrahúss
frá síðustu áramótum.
Margrét var gjaldkeri i stjórn Inn-
er-Wheel 1972-74, útbreiðslustjóri þar
1976-80, varaforseti 1995-96 og forseti
1996-97, sat í stjórn Félags leiðsögu-
manna 1988-92, i stjórn Félags há-
skólakvenna og Kvenstúdentafélags-
ins 1992-95 og varaformaður 1995-97,
gjaldkeri frá 1997, sat í atvinnu- og
jafnréttismálanefnd Bandalags
kvenna í Reykjavík 1994-96 og vara-
formaður frá 1998, í stjórn Sjálfstæð-
iskvennafélagsins Hvatar frá 1994 og
formaður þess 1995-98, gjaldkeri í
stjórn Landssambands sjálfstæð-
iskvenna frá 1997 og gjaldkeri í stjórn
Hverfafélags sjálfstæðismanna Lang-
holti frá 1997.
Fjölskylda
Margrét giftist 11.9. 1953 Ragnari
Stefáni Halldórssyni, f. 1.9. 1929, for-
stjóra og síðar stjórnarformanni ís-
lenska álfélagsins hf. Hann er sonur
Halldórs Stefánssonar, f. 26.5. 1877, d.
1.4. 1971, alþm., fræðimanns og for-
stjóra Slysatrygginga ríkisins og
Brunabótafélags íslands, og s.k.h.,
Halldóru Sigfúsdóttur, f. 26.6. 1909,
húsmóður.
Börn Margrétar og Ragnars eru
Kristín Vala, f. 27.3. 1954, prófessor i
umhverfisjarðefnafræði við háskól-
ann í Bristol, gift Bernhard John
Wood, jarðfræðingi og jarðfræðipró-
fessor og eiga þau tvö börn; Halldór
Páll, f. 28.5. 1955, verkfræðingur og
framkvæmdastjóri Phil og Son í
Kaupmannahöfn, kvæntur Jóhönnu
Huldu Jónsdóttur, efnaverkfræðingi
og viðskiptafræðingi, og eiga þau tvö
börn; Sigurður Ragnar, f. 10.6. 1965,
verkfræðingur og framkvæmdastjóri
Forverks í Reykjavík, kvæntur Krist-
inu Magnúsdóttur rekstrarhagfræð-
ingi og eiga þau tvö börn; Margrét
Dóra, f. 8.4. 1974, BA í sálfræði, í MS-
námi i tölvunarfræði og framleiðslu-
stjóri hjá Oz.com í Reykjavík, en
unnusti hennar er Hjálmar Gíslason
tæknistjóri.
Bræður Margrétar: Hannes Þor-
steinn, f. 3.7. 1929, fyrrv. deildarstjóri
hjá Sjóvá; Axel, f. 29.8. 1933, fyrrv.
póstfulltrúi í Reykjavík.
Foreldrar Margrétar voru Sigurður
Jónas Þorsteinsson, f. 10.5. 1901, d.
16.4. 1946, stórkaupmaður og iðnrek-
andi í Reykjavík, og k.h., Kristín
Hannesdóttir, f. 12.7.1899, d. 17.5.1992,
húsmóðir.
Ætt
Sigurður var sonur Þorsteins,
smiðs, kennara, organista, fræði-
manns og oddvita á Eyjólfsstöðum í
Vatnsdal, bróður Eggerts, hreppstjóra
í Haukagili, fóður Hauks, stofnanda
Plastprents. Þorsteinn var sonur Kon-
ráðs, b. á Mýrum í Hrútafirði, Kon-
ráðssonar, og Guðrúnar Þorsteins-
dóttur. Móðir Sigurðar var Margrét
Oddný Jónasdóttir, b. á Eyjólfsstöð-
um, bróður Jóhannesar íshússtjóra,
föður Sigurðar Nordals, fóður Jó-
hannesar Nordals, fyrrv. seðlabanka-
stjóra. Systir Jónasar var Steinunn,
móðir Jónasar Kristjánssonar, læknis
og alþm. á Sauðárkróki, afa Jónasar
Kristjánssonar, ritstjóra DV. Jónas á
Eyjólfsstöðum var sonur Guðmundar,
b. á Kirkjubæ í Norðurárdal, bróður
Frímanns, afa Valtýs Stefánssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, afa Stefáns
Thors skipulagsstjóra ríkisins. Systir
Valtýs var Hulda skólastjóri, móðir
Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts.
Kristín var dóttir Hannesar, b. í
Stóru-Sandvík í Flóa, Magnússonar, b.
í Stóru-Sandvík, bróður Gunnars,
langafa Sigurðar, vígslubiskups í
Skálholti og fréttamannanna Gissurar
og Ólafs Sigurðssona. Magnús var
sonur Bjarna, b. á Valdastöðum, Jóns-
sonar, b. í Grimsfjósum, Bjamasonar,
bróður Eyjólfs, langafa Guðjóns, afa
Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings.
Móðir Hannesar var Kristín Hannes-
dóttir, b. í Stóru-Sandvík, Guðmunds-
sonar, og Vigdísar Steindórsdóttur,
ættfóður Auðsholtsættar, Sæmunds-
sonar.
Móðir Kristínar var Sigríður Krist-
ín Jóhannsdóttir, b. á Stokkseyri,
bróður Guðríðar, langömmu prófess-
oranna Bjama og Jóns Guðnasona.
Jóhann var sonur Adolfs, hreppstjóra
í Steinskoti á Stokkseyri, Petersens.
Móðir Jóhanns var Sigríður yngsta
Jónsdóttir, hreppstjóra í Vestri-Mó-
húsum, Þórðarsonar. Móðir Jóns var
Guðlaug Jónsdóttir, b. á Grjótlæk,
Bergssonar, ættfóður Bergsættar,
Sturlaugssonar. Móðir Sigríðar Jó-
hannsdóttur var Sigríðm• Jónsdóttir,
b. á Vestri-Loftsstööum, Jónssonar, og
Sigríðar Jónsdóttur elstu, systur Sig-
ríðar yngstu.
Margrét og Ragnar taka á móti gest-
um í Ásmundarsafni við Sigtún á
morgun, milli kl. 17.00 og 19.00.
Attrædur
Sverrir Guðbrandsson
fyrrv. bóndi á Klúku
Sverrir Guðbrandsson, verslunar-
maður hjá Kaupfélagi Steingrims-
fjarðar á Hólmavik, Hafnarbraut 31,
Hólmavík, er áttræður í dag.
Starfsferill
Sverrir fæddist á Heydalsá í
Kirkjubólshreppi í Strandasýslu og
ólst þar upp. Hann var bóndi á
Klúku í Kirkjubólshreppi 1946-71 og
síðan pakkhúsmaður hjá Kaupfélagi
Steingrímsfiarðar. Sverrir er ritari
Félags aldraðra á Hólmavík.
Fjölskylda
Sverrir kvæntist 27.12.1946 Sigur-
rósu Guðbjörgu Þórðardóttur, f. 3.2.
1924. Hún er dóttir Þórðar Þórðar-
sonar, bónda á Klúku i Kirkjubóls-
hreppi, og Guðrúnar Finnbogadótt-
ur húsfreyju.
Böm Sverris og Sigurrósar Guð-
bjargar eru Guðbrandur, f. 20.7.
1946, bóndi á Bassastöðum, kvæntur
Lilju Jóhannsdóttur og eiga þau sex
böm; Þórður, f. 11.10. 1947, bifreið-
arstjóri á Hólmavík, kvæntur Ingi-
björgu Fossdal og eiga þau fiögur
böm; Matthildur, f. 30.12. 1948, hús-
móðir í Reykjavík, gift Ingimundi
Benediktssyni smið og eiga þau þrjú
böm; Aðalbjörn, f. 9.2.1954, vélstjóri
á Hólmavík og á hann eitt bam;
Bjöm, f. 16.4. 1955, bifreiðarstjóri á
Hólmavík, kvæntur Helgu Gunnars-
dóttur og eiga þau þrjú böm; Ragn-
ar Rúnar, f. 8.3. 1957, strætisvagn-
stjóri í Reykjavík; Heiðrún, f. 15.9.
1958, ritari í Reykjavík, gift Ragnari
Gunnarssyni, tæknimanni hjá RÚV
og eiga þau tvö börn. Langafabörn
Sverris eru nú ellefu talsins.
Systkini Sverris: Guðmundur, f.
26.11.1915, d. 7.12.1950, bóndi á Hey-
dalsá; Björn, f. 8.8.1917, d. 7.12.1950,
bóndi á Heydalsá; Sigrún, f. 18.9.
1918, d. 18.5. 1978, húsmóðir í
Reykjavík; Torfi, f. 22.3. 1923, fyrrv.
skólastjóri á Finnbogastöðum; Matt-
hildur, f. 26.8. 1926, húsfreyja að
Smáhömrum; Vigdís, f. 24.5. 1929,
húsmóðir á Homafirði; Aðalbjörg, f.
10.11. 1930, nú látin, húsmóðir í
Reykjavík; Bragi, f. 21.9.1933, bóndi
á Heydalsá; Sigurgeir, f. 13.5.1936, d.
10.4.1989, bóndi á Heydalsá.
Foreldrar Sverris voru Guð-
brandur Bjömsson, f. 14.5. 1889, d.
2.7. 1946, oddviti og útgerðarmaður
á Heydalsá, og Ragnheiður Sigurey
Guðmundsdóttir, f. 24.8. 1894, d.
24.10.1972, húsfreyja á Heydalsá.
Ætt
Guðbrandur er sonur Björns,
hreppstjóra á Smáhömrum, Hall-
dórssonar, b. á Níp á Skarðsströnd,
Jónssonar. Móðir Björns var Vigdís
Björnsdóttir, b. á Stóra-Fjarðar-
homi, Guðmundssonar. Móðir Guð-
brands er Matthildur Benediktsdótt-
ir frá Bæjum á Snæfiallaströnd, af
Ormsætt.
Ragnheiður Sigurey var systir
Torfa, föður Sigurrósar, ekkju Þor-
steins Bjömssonar frikirkjuprests.
Hálfsystir Ragnheiðar var Jensína,
langamma Sigmundar Rúnarssonar
fréttamanns. Ragnheiður var dóttir
Guðmundar, b. á Ófeigsstöðum, ætt-
fóður Ófeigsstaðaættarinnar Péturs-
sonar, b. á Dröngum, Magnússonar,
hreppstjóra á Finnbogastöðum,
Guðmundssonar, b. á Finnbogastöð-
um og ættfóður Finnbogastaðaætt-
arinnar, Bjamasonar. Móðir Guð-
mundar var Hallfríður Jónsdóttir,
b. á Melum, Guðmundssonar. Móðir
Ragnheiðar var Sigrún Ásgeirsdótt-
ir, hreppstjóra á Heydalsá, Sigurðs-
sonar og Guðrúnar Sakariasdóttur,
b. á Heydalsá, Jóhannssonar, prests
á Brjánslæk, Bergsveinssonar. Móð-
ir Guðrúnar var Ragnheiður Ein-
arsdóttir, dbrm. í Kollafiarðarnesi
og ættföður Kollafiarðarnesættar-
innar, Jónssonar.
Sverrir er að heiman.
LIIBMiaWIM
Steindór S. Gunnarsson, prentsmiðju-
stjóri i Steindórsprenti, fæddist 26. mars
1889. Hann var sonur Gunnars Bjömsson-
ar, skósmiðs í Reykjavík, og Þorbjargar
Pétursdóttur húsmóður. Meðal bræðra
Steindórs voru Þorleifur, stofnandi Fé-
lagsbókbandsins, Jón, skrifstofustjóri í
Hamri, Gunnar, yfirkokkur á Borginni
og Pétur heildsali, afi Péturs Blöndal.
Steindór hóf prentnám í Félags-
prentsmiðjunni 1903, stundaði fram-
haldsnám í Teknisk Selskabsskole í
Kaupmannahöfn og var prentsmiðju-
stjóri Félagsprentsmiðjunnar 1916-1933.
Hann stofnaði Steindórsprent 1934 og var
forstjóri þess síðan. Steindórsprent var fyrst
til húsa i Aðalstræti 4, síðan i Kirkjustræti 4,
Steindór S. Gunnarsson
lengi í Tjarnargötu 4, og loks í Ármúla 5 frá
því á sjöunda áratugnum.
Er Steindór lét af störfum tók tengda-
sonur hans við, Hálfdán Steingrimsson,
en hann var framkvæmastjóri Stein-
dórsprents um áratugaskeið. Undir
hans stjóm festi Steindórsprent kaup á
Gutenberg og síðan Prentsmiðju Árna
Valdimarssonar. Steindórsprent var
lengi ein öflugasta prentsmiðja lands-
ins ög vel búin tækjum. Hún var að
lokum seld Odda nú á síðasta ári.
Auk þess að vera mikilhæfur prent-
smiðjueigandi gaf Steindór út fiölskyldu-
blaðið Vikuna og Viðskiptaskrána um ára-
bil. Þá var hann helsti hvatamaður að stofn-
un Prentskólans. Steindór lést 29. mars 1948.
Jarðarfarir
Júlíus Guöjón Oddsson, Sóltúni, Garði,
lést á sjúkrahúsinu í Keflavík föstud.
16.3. Útför hans fer fram frá Útskála-
kirkju þriðjud. 27.3. kl. 14.00.
Friðrik F. Wathne, Sævargöröum 22,
Seltjamarnesi, veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánud. 26.3. kl. 15.00.
Höröur Björnsson byggingatæknifræö-
ingur, Skólatröð 2, Kópavogi, veröur
jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju mið-
vikud. 28.3. kl. 13.30.
Jens Þóröarson vélfræðingur, Tryggva-
götu 6, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá
Seltjarnarneskirkju 27.3. kl. 15.00
Thea Davidsen (Dóróthea Marteins-
dóttir) Vitastíg 17, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Rladelfíu, Hátúni 2,
þriðjud. 27.3. kl. 13.30.