Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Blaðsíða 24
40
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
Tilvera DV
Fergie
huggar
særðan
dreng
Hertogaynjan af Jórvík,
Sara okkar Ferguson, brá
sér í gervi hins líknandi eng-
ils um daginn þegar hún
heimsótti íjórtán ára gamlan
dreng sem slasaðist alvar-
léga í sprengingu í breskri
herstöð í síðasta mánuði.
Pilturinn missti sjónina í
slysinu og einnig aðra hönd-
ina. „Þetta er alveg hræði-
legt. Við verðum að veita
birtu inn í líf hans,“ sagði
hertogaynjan góðhjartaða.
Stráksi hefur mikinn
áhuga á aö hitta gúmmí-
karlinn Jim Carrey og hef-
ur Fergie lofað að redda
því.
HYunoni .
1 BESTU KAUPIN í USA utnt ■ m
Fitness eru bragðgóðar og
stökkar heilhve/tiflögur.
Hver 30 g skammtur gefur þér
um 50% af daglegri vítamín-
og jarnþörf og er jafnframt
ríkur af kalk/. Fitness er góður
kostur til að byrja daginn á,
eða sem hollur og fljótlegur
biti á milli mála.
Streymi
Rokkríó - gitaríeikarí, bassaleikarí og trommarí.
Þriöja músíktilraunakvöldið 2001
Misöflugar rokkhljómsveitir
og rappgengi í góðum fílingi
Trenikin
Svalir rapparar meö fullt af flottum hugmyndum.
«r y. ' .
m
■ -:v'i I 5 y
Lime
Tölvarinn Emil H. Petersen úr Kópavogi.
Þriðja músíktilraunakvöld ársins
2001 fór fram í Tónabæ síðasta fóstu-
dagskvöld. Það voru menn vikunnar,
Jagúar, sem voru nýbúnir að opinbera
nýja plötusamninginn, sem hituðu
upp og voru mjög þéttir að vanda.
Fyrsta tilraunasveitin að þessu
sinni var skipuð meðlimum úr Mos-
fellsbæ og Stykkishólmi. Það var
hljómsveitin Bölverkur. í henni eru
söngvari, gitaristi, bassisti og
trommari sem spila þungt rokk. Þeir
byrjuðu frekar luralega en hresstust
heldur þegar á leið. Annað lagið þeirra
var óður til klámmyndanna og skart-
aöi viðlaginu hábókmenntalega „Ég
vil bara drekka bjór og ríða“. Þriðja
lagið fjaliaði svo um leitina að hinni
fullkomnu konu. Kynhormónarokk
sem sagt, en frekar slakt þrátt fyrir
sæmilega punkta.
Menn framtíðarinnar.
Næstir á sviðið voru yngstu strák-
amir þetta árið, allir á 12. og 13. ári.
Hljómsveitin Natar er skipuð söngv-
ara, sem spilar á bassa, gítarista,
hljómborðsleikara og trommara sem
hafði verið kallaður til á síðustu
stundu þegar gamli trommarinn for-
fallaðist. Það er alltaf flott sjón að sjá
svona litla stráka með hljóðfæri sem
auðvitað em í fullri stærð. Þeir fengu
sviðsmann tO að stilla gítarinn áður
en þeir byrjuðu, rétt eins og U2 eða
Stones myndu gera. Lögin þeirra þrjú
vom ágæt, sérstaklega annað lagið, en
í því einbeitti söngvarinn sé að söngn-
um og sleppti bassanum. Það var tölu-
verður byrjendabragur á Natar og það
vantaði herslumuninn í samæfing-
unni en þetta eru auðvitað menn fram-
tíðarinnar.
Þriðja atriðið á dagskránni var
hljómsveitin Andlát sem skipuð er
meðlimum úr Reykjavík og Kópavogi.
Það er skemmst frá því að segja að
þarna var komin kraftmesta rokk-
hljómsveitin í keppninni hingað til.
Þetta var frekar þungt hjá þeim og
mikO keyrsla. Andiát er skipuð tveim-
ur gítarleikurum, bassaleikara,
trommara og söngvara sem er í harð-
kjamadeOdinni. Þeir stóðu sig aOir
vel en bassaleikarinn fær aukastig fyr-
ir flott tilþrif. Lögin þrjú vora öll yfir
meðaflagi en annað og þriðja lagið
vora enn þá betri en það fyrsta. Það
sem gerir tónlist Andláts svona flotta
er kannski helst að þrátt fyrir lætin og
kraftinn þá nær hún að anda - hljóð-
færin njóta sín hvert og eitt.
Hugmyndir og úrvinnsla.
Fyrsta hljómsveit eftir hlé var
Streymi frá Reykjavík. Þetta er rokk-
ríó: gítarleikari, bassaleikari og
trommari. Fyrsta lagið hennar var
instrúmental rokklag og hljómaði
ágætlega þrátt fyrir smámistök
trommarans. I öðru laginu, sem var
áberandi besta lagið, fékk hljómsveit-
in tO liðs við sig gestarappara með
mjög sérstaka og flotta rödd og ótrú-
legt flæði. Þriðja lagið var svo
kassagitar-instrúmentalstykki. Það
góða við svona sveit er hvað hún er
opin fyrir ólíkum hlutmn og hug-
myndarík.
Næstur var á sviðið tölvarinn EmO
H. Petersen frá Kópavogi en hann
kemur fram undir nafninu Lime.
Hann var lengi í gang vegna tækni-
legra vandamála sem hafa vfljað loða
við tölvutónlistarmennina á músíktO-
raunum. Hann spOaði einhvers konar
teknó. Uppbyggingin á lögunum var
mjög ómarkviss - það var yaðið úr
einu í annað án samhengis og lögin
virtust næstum endalaus. Það var heU-
ingur af hugmyndum í gangi hjá hon-
um og margar góðar en hann þarf að
vinna mikið í þessu áöur en þetta
verður boðlegt.
Rappgengi í góðum fílingi
Næstsíðasta atriðið var rappsveitin
TrenUdn sem skipuð er fimmmenn-
ingum af Reykjavíkursvæðinu. Þeir
eru aUir á 15. aldursári. Þetta er al-
vöra rappsveit, með tvo rappara, for-
ritara, hljómborðsleikara, skratsara
og trommara innanborðs. Það tók þá
smátíma að koma sér í gang en þegar
þeir vora komnir af stað heyrði mað-
ur að þetta var ágætlega samsett rapp
í rólegri kantinum og flæddi vel. Þeir
vora líka afslappaðir og svalir á svið-
inu. Bítin og grúvin hjá þeim vora oft
flott og skratsið og ýmsir hljóðeffektar
bragðbættu útkomuna enn frekar.
Þriðja lagið var salsa-rappafbrigði sem
var brotið upp með mjög flottum
ásláttarköflum. Það vantaði kannski
aðeins upp á finstiUinguna hjá þeim,
en þetta era greinUega strákar með
fuUt af flottum hugmyndum.
Síðasta sveitin í keppninni þetta
kvöld var svo hljómsveitin Dice frá
Hveragerði og Reykjavík. Hún spOaði
rokk sem er svolítið í takt við nu
metal hljómsveitir eins og Limp Bizkit
og Kom. Þetta var svona tO skiptis ró-
legt og lágstemmt og hratt og hávært.
Hún var ágætlega spUandi og söngvar-
inn þeirra er einn af fáum í keppninni
sem er með sinn eigin stíl. Þeir fengu
finar undirtektir í salnum.
Það var svo óvænt hljómsveitin
Miðnes sem spUaði í lokin þegar at-
kvæðin vora talin og dómnefndin
gerði upp hug sinn. Delphi, sem hafði
verið áður auglýst, klikkaði á því að
mæta og Miðnesiö var því kaUað tU og
mætti með engum fyrirvara. Niður-
staða kvöldstns var sú að salurinn
kaus Dice en dómnefndin ákvað að
tvær hljómsveitir færa áfram í þetta
skiptið, Andlát og Trenikin. Síðasta
tUraunakvöldið er í Tónabæ á fimmtu-
daginn og svo er úrslitakvöldið á
fóstudaginn.
Trausti Júlíusson