Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.2001, Blaðsíða 32
*
%
Bflhelmar
f/ •
n
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 26. MARS 2001
Leiguflug ísleifs Ottesens:
Slæmt umtal
aldrei gott
- segir sonur eigandans
„Við merkjum þetta á rekstrin-
um. Slæmt umtal er aldrei gott,“
sagði Friðrik Már Ottesen, flugmað-
ur hjá Leiguflugi ísleifs Ottesens og
sonur eigandans, um þær ávirðing-
ar sem fram hafa komið á félagið í
kjölfar skýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa um flugslysið í Skerjafirði
Lelguflug ísleifs
Samningar um sjúkraflug í hættu
í ágúst síðastliðnum. Bæði heil-
brigðis- og samgönguráðuneyti hafa
beint fyrirspum til Flugmálayfir-
valda um hvort ástæða sé til að end-
urskoða samninga sem gerðir hafa
verið við félagið um sjúkraflug á
Vestfjörðum og Suðurlandi.
„Ég hef ekki séð nein bréf frá
ráðuneytunum í þessa veru,“ sagði
Friðrik Már en ísleifur faðir hans er
staddur erlendis í einkaerindum.
Leiguflug ísleifs Ottesens er með
þrjár flugvélar í rekstri og þar af
eru tvær notaðar í samningsbundið
sjúkraflug. Ekki hefur verið keypt
ný vél í stað þeirrar sem fórst í
Skerjafirðinum í sumar. Hjá félag-
inu eru fjórir fastráðnir flugmenn
auk annarra lausráðinna. Félagið er
með aðstöðu á Reykjavíkurflugvelli,
á bak við Hótel Loftleiðir. -EIR
- Sjá nánar á bls. 2.
Lampar til fermingargjafa
m $$if
--
Rafkaup
Ármúla 24 • sími 585 2800 m
tllbo6aver6 kr. 2.750,-
Merkilega heimilistækióS
Nú er unnt aö "o
merkja allt á o
heimilinu, ^
kökubauka,
spólur, skóla-
dót, geisla-
diska o.fl.
Nýbýlavegi 14 Slmi 554 4443
Veffang: www.it.is/rafport
Rafport
Sorg í Grindavík vegna drukknunar stúlku í skólasundi:
Afallahjálp fyrir
börn og fullorðna
- samverustund með nemendum í grunnskólanum í morgun
„Það hvílir sorg yfir bænum og
bæjarstjómin mun gera alit sem í
hennar valdi stendur til að lina þján-
ingar þeirra sem nú eiga um sárt að
binda,“ sagði Pálmi Ingólfsson, kenn-
ari og bæjarfulltrúi í Grindavík, um
ástandið sem ríkir í Grindavík eftir
að stúlka á sjöunda ári drukknaði þar
í skólasundi á fóstudaginn. Stúlkan
hafði aðeins verið búsett í Grindavik
í nokkra mánuði ásamt foreldrum
sínum sem era frá Nepal. „Við verð-
um með samverustund með nemend-
um grunnskólans á mánudagsmorg-
un þar sem við ræðum málið sem
snertir fiölda fólks hér í bænum,“
sagði Pálmi.
Lögreglan í Reykjanesbæ hefur
rannsakað tilurð slyssins og hafa
starfsmenn, kennarar og nemendur
verið yfirheyrðir. Að auki hafa allir
sem málið snertir fengið áfallahjálp
frá sérfræðingum úr Reykjavík sem
kvaddir voru á staðinn. Þá hófst leit
að túlki svo hægt væri að ræða við
foreldra stúlkunnar sem drukknaði
en þeir tala mjög takmarkaða ensku
og enga íslensku:
„Það tókst að finna túlka í Sand-
gerði og einnig kom kona frá Reykja-
vík sem er gift manni frá Perú,“ sagði
Jón Gröndal, kennari í Grindavík,
sem eins og aðrir bæjarbúar er djúpt
snortinn af þeirri sorg sem ríkir í
bænum. „Hér leggjast allir á eitt og
samhugurinn er alger,“ sagði Jón
Gröndal.
Hermann Guðmundsson, forstöðu-
maður íþróttahússins og sundlaugar-
innar í Grindavík, segir að farið verði
yfir alla öryggisþætti í starfsemi
sundlaugarinnar þó menn sjái ekki í
fljótu bragði að neitt hafi farið úr-
skeiðis:
„Sundkennarinn var á laugarbakk-
anum hjá bömunum en sá ekki hvað
hafði gerst fyrr en of seint. Við verð-
um að gera allt sem hægt er til að
þetta endurtaki sig ekki,“ sagði Her-
mann Guðmundsson.
Sundlaugin í Grindavik er 25
metra löng útilaug, aðeins nokkurra
ára gömul og þar er aðstaða og aðbún-
aður allur hinn besti. Ekki verður
ástandi sundlaugarinnar um kennt
þegar leitað er skýringa á því hörmu-
lega slysi sem varð í skólasundi bam-
anna síðdegis á fóstudaginn. -EIR
Fyrstu Schengen-farþegarnir komu í gær:
Útsendarar Rússamafíu hefðu ekki komist í gegn
- segir Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og fagnar gagnabanka
„Útsendarar rússnesku mafíunn-
ar, sem fóru um Reykjavík með rán-
um á rafbúnaði í siðustu viku,
hefðu ekki komist inn í landið ef
upplýsingabanki Schengen hefði
verið í notkun þá,“ sagði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra eftir
gildistöku Schengen-samkomulags-
ins í gær.
Samfara gildistöku samkomulags-
ins var tekinn í notkun gagnabanki
með nöfnum eftirlýstra einstaklinga
og annarra sem taldir eru óæskileg-
ir í aðildarlöndum Schengen.
Islendingar urðu tilfinnanlega
varir við vöxt alþjóðlegra glæpa-
samtaka á dögunum þegar þrír lit-
háískir útsendarar rússnesku
mafíunnar voru staðnir að þaul-
skipulögðum ránsferðum í versl-
anir vandaðra raftækja i Reykja-
vík. Mörgum hrýs hugur yfir
kostnaði Islendinga vegna yfirvof-
andi fangelsunar mannanna sem
metin hefur verið á 9 milljónir
króna á ári. Hefði gagnabanki
Schengen verið i notkun þegar Lit-
háamir komu til landsins fyrir
rúmri viku hefði
þeim ekki verið
hleypt inn i
landið, með til-
heyrandi sparn-
aði.
Gagnabank-
inn var prufu-
keyrður á Kefla-
Halldór víkurflugvelli í
Ásgrímsson fyrrakvöld og
utanríkisráð- Var þá þegar vís-
herra aö þremur frá á
grundvelli upplýsinga hans. Hall-
dór segir erfitt mál hafa komist í
höfn í gær.
„Ég er búinn að vinna í þessu
árum saman og oft verið mikið í
fangið. Schengen-samkomulagið er
mikilvægt og nauðsynlegt skref
fyrir íslendinga og ég tel að það sé
meiri skilningur á því nú en oft
áður. Baráttan gegn glæpasamtök-
um og útbreiðslu fíkniefna er al-
þjóðleg og hana heyjum við ekki
nema í samvinnu við aðrar þjóð-
ir,“ segir Halldór utanríkisráð-
herra. -jtr
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4