Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001 Préttir DV Borgarstjóri bjartsýnn á áframhaldandi R-lista: Markmiðið að allir flokkar starfi saman - sem eru vinstra megin við Sjálfstæðisflokkinn „Ég lít svo á að hér eftir sem hingað til sé markmiðið það að allir þeir flokkar sem eru vinstra megin við Sjálfstæðisfokkinn starfl saman í Reykjavíkurlistanum. Ég sé engar vísbendingar um annað en að það geti gengið,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, aðspurð um álit á áframhaldandi samstarfi R-lista í komandi borgarstjórnar- kosningum. í nýlegri könnun, sem stjóm Framsóknarfélags Reykjavíkur lét fara fram meðal félagsmanna, kom í ljós að mikill meirihluti þátttak- enda, eða tæp 84 prósent, voru fylgj- andi áframhaldandi samstarfi R- lista. Jafnframt kom fram í máli formanns félags- ins að það væri í raun Vinstri grænna að segja til um hvort af áframhaldandi samstarfi yrði. í framhaldi af þessu sagði Ög- mundur Jónas- son, þingmaður VG, hlutaðeigendum og áhuga- mönnum um stjórnmál í Reykjavík „að draga andann djúpt“. Reykja- vikurfélag VG væri að vinna að málefnavinnu sem lyki ekki fyrr en með vorinu. Hugsanlegt samstarf myndi ráðast af málefnum og hvað það yrði sem menn myndu samein- ast um. Ingibjörg Sólrún sagði að menn væru farnir að ræða möguleika á áframhaldandi R-listasamstarfí en engin formleg vinna væri komin í gang. Málið þyrfti að vera orðið skýrt fyrir haustið. Aðspurð um hvort einhver vís- bending hefði borist frá Vinstri grænum um að þeir myndu fara fram undir eigin merkjum, kvað borgarstjóri svo ekki vera. Fleiri framboð þýddu minnkandi líkur á að halda borginni, en ekkert væri sjálfgefið í þeim efnum. Sigríður Stefánsdóttir, formaöur Reykjavíkurfélags VG, sagði að þrír hópar ynnu nú að gerð málefna- skrár í borgarmálefnum. Það væri hópur um lýðræði, annar um vel- ferðarmál og þriðji um umhverfís- mál. Þriggja manna borgarnefnd héldi utan um starf hópanna ásamt stjóm Reykjavíkurfélagsins. I henni væru Sigríður sjálf, Tryggvi Frið- jónsson og Kolbeinn Proppé. Ekki náðist í Áma Þór Sigurðs- son, borgarfulltrúa VG í R-lista, í gær vegna veikinda. -JSS Ingibjörg Sólrún Gísladóttlr. Linda Pé kemur í veg fyrir stórbruna DV. ÓLAFSVÍK: Það var síamskötturinn Linda Pé sem kom í veg fyrir að stórtjón yrði í brana í Ólafsvík í siðustu viku. Eins Flugmálastjórn óskar eftir iög- reglurannsókn Flugmálastjóm hefur óskað eftir lögreglurannsókn á flugi sem vél Leiguflugs ísleifs Ottesens ehf. er sögð hafa fariö í ágúst siðastliön- um, sama dag og önnur vél flugfé- lagsins hrapaði í Skerjafjörð. Flug- vélin er sögð hafa farið frá Vest- mannaeyjum með tvo farþega sem ekki voru sæti fyrir og er annar þeirra sagður hafa setið óspenntur á gólflnu en hinn í fangi annars farþega. Jafnframt er óskað eftir þvi að rannsókn verði hraðað eftir föngum. Flugmálastjórn hefur frestað útgáfu umsagnar sinnar um LÍO, en samgönguráðuneytið og heilbrigöisráðuneytið hafa óskað eftir henni. -SMK og fram kom í DV á föstudag kom upp eldur í Hjólbarðaverkstæði Sig- urjóns í Ólafsvík kvöldið áður. „Ég var að horfa á sjónvarpið í íbúð minni um miðnættið og var einn heima ásamt síamskettinum mínum, henni Lindu Pé,“ sagði Sig- urjón Eðvarðsson, eigandi verkstæð- isins. „Þá tók ég eftir því að köttur- inn var alltaf að hlaupa upp og niður stigann í íbúðinni. Ég hélt að hann vildi komast út og fór á eftir honum niður og ætlaði að opna. Þá sá ég að hjólbarðaverkstæðið var orðið fullt af reyk,“ sagði Sigm-jón í samtali við DV. Hann greip duftslökkvitæki og beindi að eldinum en fékk ekki við neitt ráðið. Hann hafði þá samband við Neyðarlínuna og slökkvilið Ólafs- víkur sem kom strax á vettvang og réð niðurlögum eldsins. Mikill elds- matur er á verkstæðinu, bæði hjól- barðar og olíur, en Sigurjón rekur einnig smurstöð i sama húsnæði og stórtjón hefði getað orðið í þessum bruna. Ekki leikur á þvi nokkur vafi að Linda Pé hefur fengið mjög gott að borða hjá eiganda sínum eftir afrekið sem hún vann. -PSJ DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON Unda Pé í miklum metum Sigurjón Eðvarösson heldur hér á síamskettinum Lindu Pé, sem heitir í höf- uðið á hinni einu og sönnu og fegurstu fegurðardrottningu okkar íslendinga, Lindu Pé. Kisa kom í veg fyrir stórtjón. Lægir með kvöldinu Gert er ráð fyrir norðlægri átt, víða 15-20 m/s, og snjókoma eða él á norðanverðu landinu, en 10-15 og léttskýjaö sunnanlands. Lægir smám saman í kvöld og nótt og rofar til norðanlands. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 20.08 19.54 Sólarupprás á morgun 06.56 06.46 Síðdegisflóð 20.36 12.42 Árdegisflóö á morgun 08.53 01.39 Skvrituíar á veðui'tálrtnrm VINDÁTT 10 tSl -io °< HITI o nvindstyrkur í metnim á wköndu FROST HEJÐSKÍRT €3 O LETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ 'W’ RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA *w & ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Færft Snjór nyröra, greiöfært syðra Greiöfært er í nágrenni Reykjavíkur. Einnig er greiöfært um Árnes- og Rangárvallasýslu sem og um Borgarfjörö. Snjóflóö féll á Súðavíkur- hlíð i nótt eöa morgun og lokaðist vegurinn líkt og í gær. Fólk þarf því að hafa allan vara á sér á Vestfjöröum og norður um til Austfjaröa. Víöa er talsverður snjór og því vissara aö vera vel búinn til vetraraksturs. BYGGT A UPPLVSiNGUM FRA VEGAGERD RIKISINS C=)SNJÓI) ■hpungfært n ÓFÆRT Skýjað með köflum Lægir smám saman í kvöld og nótt og rofar til noröanlands. Austlæg átt, 5-10 og skýjaö með köflum á morgun. Frost 1 til 6 stig síðdegis en 6 til 11 aö næturlagi. Fóstuda m Vindur: //> 8-13 m/* Hiti -0° tii -6° Laujgard m Sunnutl Vindur: ^ 8-13 m/s Hiti 0° til 5° 'T^’í m Vindur: 8—13 m/% Hiti 0° til 5" Austlæg átt, 8-13 m/s og dálitll él með suöur- og austurstróndlnni en annars hægarl, skýjað og úrkomulítlö. Frost 0 tll 6 stlg. Austan- og norðaustanátt, viða 8-13 m/s og slydda eða snjókoma með kóflum en rlgning vlð suður- og austurstróndlna. Hlti 0 tll 5 stig. Austan- og norðaustanátt, víða 8-13 m/s og slydda eða snjókoma með köflum en rlgnlng vlð suður- og austurströndlna. Hltl 0 til 5 stlg. DV-MYND JÚLÍA IMSLAND Loönan á Djúpavogi Loðnuskipið Örn er hér að landa loðnu á Djúpavogi og vonast er eftir góðri viöbót. Góð loönuvertíö á Djúpavogi DV, DJÚPAVOGI: ~ Loðnubræðslan Gautavík á Djúpavogi hafði í síðustu viku tekið á móti nítján þúsund tonnum af loðnu og tvö þúsund tonnum af síld það sem af er vertíðinni. Að sögn Steins Friðrikssonar verksmiðju- stjóra er þetta aðeins meira en á allri vertiðinni í fyrra. Loðnuskipin Öm og Þórshamar sjá bræðslunni fyrir hráefni. Útgerðir Arnar og Þórshamars voru sameinaðar um síðustu áramót og eru þær eigendur bræðslunnar. Steinn vonast eftir góðri viðbót af loðnu þar sem út- gerðin hefur yfir að ráða, eftir sam- eininguna, 6,7% af loðnukvótanum. -JúUa Imsland Vændi rætt á Alþingi Rætt var um vændi á Alþingi i utandagskrárumræðu í gær og komu þar fram þau sjónarmið að sænska leiðin svokallaða yrði farin. Með henni er átt við að hlutverka- skipti yrðu í löggjöf um vændi. Eins og lögin eru nú má lögsækja aðila sem selur blíðu sina en gerandinn er laus allra mála. Svíar hafa hins vegar snúið þessu við þannig að refsivert er þar að kaupa blíðu. Sól- veig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra sagði um sænsku leiðina að lítil reynsla væri komin á hana og hún hefði verið afar umdeild. Guðrún Ögmundsdóttir hafði framsögu í málinu og kom fram í máli dómsmálaráðherra að búið væri að skipa nefnd um framtið þessara mála. Ýmsir kvöddu sér hljóðs og meðal annars Soflia Gísla- dóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins á Norðurlandi eystra. Hún sagði nýlegar skýrslur um vændi á ís- landi vera sláandi en einna brýnast væri nú að koma i veg fyrir að börn leiddust út í vændi. Kynferðislegur lögaldur er 14 ár en Soffia telur rétt að hækka lögaldurinn upp í 16 ár. -BÞ i AKUREYRI alskýjað -4 BERGSSTAÐIR snjókoma -5 BOLUNGARVÍK snjóél -5 EGILSSTAÐIR -4 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö -4 KEFLAVÍK skýjað -4 RAUFARHÖFN skafrenningur -1 REYKJAVÍK snjðél -4 STÓRHÖFÐI léttskýjaö -5 BERGEN hálfskýjaö -6 HELSINKI Jjokumóöa -6 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 0 ÓSLÓ léttskýjaö -7 STOKKHÓLMUR -7 ÞÓRSHÖFN alskýjaö 0 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -9 ALGARVE léttskýjaö 11 AMSTERDAM þokumóða 4 BARCELONA þokumóöa 10 BERLÍN skýjaö -3 CHICAGO heiöskírt -4 DUBLIN þokumóöa 1 HAUFAX léttskýjað -2 FRANKFURT rigning 1 HAMBORG skýjaö -2 JAN MAYEN skýjaö 0 LONDON skýjaö 7 LÚXEMBORG þokumóöa 3 MALLORCA þokumóöa 8 MONTREAL alskýjaö -1 NARSSARSSUAQ heiðskírt -5 NEW YORK heiðskirt 2 ORLANDO heiðskírt 11 PARÍS skúr á síö. kls. 8 VÍN skýjaö 0 WASHINGTON heiöskírt -4 WINNIPEG alskýjaö -1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.