Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001
11
DV
Útlönd
Grunur um gin- og klaufaveikitilfelli í Danmörku:
Norðmenn trúa á lausn
á fiskinnflutningsbanni
Sjávarútvegsráðherra Noregs
sagði í gær að deilan um innflutn-
ingsbann Rússa á fiski yrði best
leyst á vettvangi dýralækna.
„Það eru engin fagleg rök fyrir
innflutningsbanni Rússa á norskum
fiski,“ sagði Otto Gregussen sjávar-
útvegsráðherra við norska blaða-
menn í Tokyo þar sem hann er í op-
inberri heimsókn ásamt fleiri
norskum fyrirmennum.
Rússar hafa bannað innflutning á
matvælum frá Evrópu, þar á meðal
flski og sjávarafurðum, af ótta við
gin- og klaufaveikifaraldurinn.
Gregussen sagði að Norðmenn
ætluðu að rannsaka í þaula rökin
fyrir innflutningsbanninu. Hann
útilokaði jafnframt að Rússar hefðu
sett bannið á af tillitssemi við rúss-
neskan fiskiðnað.
„Þeir þurfa sjálfir á fiskinum að
halda,“ sagði ráðherrann.
Grunur leikur nú á að gin- og
klaufaveikin hafi skotið sér niður í
Sótthreinsandi sprautað á hræin
Maöur úöar sótthreinsandi efni á kindahræ nærri Great Salkeld í Cumbriu á
Englandi þar sem herinn aöstoöar við aö farga þúsundum dýra. Nick Brown
landbúnaðarráðherra sagöi á breska þinginu í gær aö faraldurinn í Bretlandi
ætti sér ekki fordæmi og hann ætti enn eftir aö ná hámarki.
Danmörku. Að sögn danskra yfir-
valda hafa þrjár kýr nærri Vejle
sýnt einkenni sem gætu stafað af
þessum sjúkdómi. Sýni hafa verið
tekin úr kúnum og send til rann-
sóknar.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, ætlar að leggja á það
þunga áherslu í dag að óhætt sé fyr-
ir ferðamenn að leggja leið sína til
Bretlands, þrátt fyrir gin- og klaufa-
veikifaraldurinn. Sjúkdómurinn
breiðist nú hraðar út í Bretlandi en
nokkru sinni fyrr. Ný tilfelli í gær
voru 59 og hafa aldrei verið fleiri á
einum degi frá því sjúkdómurinn
kom upp fyrir fimm vikum. Veikin
hefur einnig borist til Frakklands,
Hollands og írlands.
Breski herinn hefur veriö kallað-
ur til aðstoðar við slátrun sýktra
dýra og dýra sem grunur leikur á að
séu sýkt. Rúmlega 270 þúsund dýr
bfða slátrunar en þegar er búið að
farga 423 þúsund dýrum.
Christine Todd Whitman
Varaöi Bush viö aö brjóta kosninga-
loforö.
Bush hafði að
engu ráð um-
hverfisstjóra
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hunsaði viðvörun yfirmanns
umhverfismálastofnunar ríkisins
þegar hann braut kosningaloforð
sitt um að krefjast takmörkunar á
losun koldíoxíðs. Bandaríska dag-
blaðið Washington Post greindi frá
því í gær að Christine Todd Whit-
man, sem Bush skipaði sjálfur í
embætti, hefði varað forsetann við
og sagt að trúverðugleiki Bandaríkj-
anna myndi bíða hnekki efndi hann
ekki loforðið. Þrátt fyrir viðvaranir
yfirmanns umhverfismálastofnun-
arinnar ákvað Bush 14. mars síðast-
liðinn að ekki eigi að skylda fyrir-
tæki til að takmarka losun koldí-
oxíðs. Þar með braut hann loforð frá
því í baráttunni fyrir forsetakosn-
ingarnar i nóvember síðastliðnum.
Fylgst með klifri upp á Kínamúrinn
Kínverskir hermenn fyigjast meö klifri upp á Kínamúrinn mikia nærri Peking til aö sýna stuðning sinn viö tilraunir yfir-
valda til aö fá aö halda Óiympiuieikana áriö 2008. Tíu þúsund námsmenn og alþýðuhermenn klifruðu upp á Kínamúr-
inn í morgun og átti klifrið aö sýna alþjóölegu Ólympíunefndinni hvers Kínverjar væru megnugir.
Wahid í þinginu
Indónesíuforseti flutti ræöu í þinginu
í morgun þar sem hann svaraöi
þingheimi sem vildi ávíta hann.
Indónesíuforseti
biðst afsökunar
Abdurrahman Wahid Indónesíu-
forseti, sem berst fyrir pólitísku lífi
sínu, hafnaði í morgun ákúrum
þings landsins vegna tveggja fjár-
málahneykslismála en baðst jafn-
framt í fyrsta sinn afsökunar hafi
hann hegðað sér á óviðeigandi hátt.
Þingmönnum sýndist sitt hverj-
um um afsökunarbeiðni forsetans.
Þeir voru þó íjölmargir sem sögðu
að hann hefði ekkki gert nóg til að
koma í veg fyrir að vítur á hann
yrðu bornar upp aftur í apríl. Þar
með yrði tekið enn eitt skrefið í átt
til málaferla til embættismissis.
Ekkert bar á mótmælaaðgerðum
stuðningsmanna eða andstæðinga
Wahids á meðan hann flutti ræðu
sína í þinginu. Öryggissveitir voru
hins vegar við öllu búnar.
Eitraðir þörungar
ógna laxeldinu
Eitraðir þörungar í sjónum und-
an suðurströnd Noregs ógna þús-
undum tonna af laxi í eldiskvium,
að því er norskir embættismenn
greindu frá í gær. Þörungarnir kæfa
fiskinn og gera hann óhæfan til
manneldis.
Olav Lekve, talsmaður norska
sjávarútvegsráðuneytisins, sagði
fréttastofu Reuters að þörungarnir
hefðu þegar drepið sjö hundruð
tonn af laxi við suðurodda Noregs
siðustu daga. Norðmenn framleiða
um fjögur hundruð þúsund tonn af
eldislaxi á ári hverju, meira en
nokkur þjóð önnur. „Þetta er hugs-
anlega versta þörungainnrásin fyrir
norskt fiskeldi," sagði Lekve.
Svíþjóð:
Kveikt í aðal-
stöðvum nasista
Eldur kom upp í þremur bygging-
um í aðalstöðvum nýnasista sunnan
við Hallsberg í Svíþjóð í nótt. Lög-
regluna grunar að um íkveikju hafi
verið að ræða. Eigandi húsanna er
leiðtogi hreyfingar þjóðernissósí-
alista í Örebro. Lögreglan hefur
fylgst með starfseminni í bygging-
unum og lagt hald á ýmsa muni. í
september í fyrra lét lögreglan til
skarar skríða við tónleikahald og
lagði hald á fána með nasistatákn-
um. Leiðtoginn var þá gripinn
vegna gruns um kynþáttaáróður.
Frakkland:
Játar morð á sjö
ungum konum
Guy Georges, 38 ára gamall
Frakki, játaði fyrir rétti í gær að
hafa nauðgað sjö ungum konum í
París og myrt þær á tíunda áratugn-
um. Hann var handtekinn í mars
1998. í réttarsalnum sneri Georges
sér að fjölskyldum fórnarlambanna
og baðst fyrirgefningar.
Konumar sjö fundust skomar á
háls á árunum 1991 til 1997. Svo
virtist sem þær hefðu hleypt Geor-
ges inn í íbúðir sínar þar sem hann
réðst svo á þær. DNA-rannsókn
tengdi hann við fjögur morðanna.
Hann játaði fljótlega eftir handtöku
en sagði svo fyrir rétti að hann
hefði verið neyddur til að játa. í gær
játaði hann sekt sína á ný.
FBI boðiö að skoða
umdeilt höfuðlaust lík
Yfirvöld í Úkraínu hafa
boðið bandarísku alríkis-
lögreglunni, FBI, að senda
sérfræðinga aftur til Kiev
til að skoða höfuðlaust lík
sem fullyrt hefur verið að
sé af blaðamanni, Georgf
Gongadze, sem gagnrýnt
hafði forseta landsins, Le-
onid Kútsjma.
Hópur sérfræðinga FBI
fór til Kiev í þessum mán-
uði en sneri aftur vegna
deilu milli ríkissaksóknara
Úkraínu og móður blaða- ”
mannsins sem hvarf í september
síðastliðnum. Því hefur verið haldið
fram að höfuðlaust lík, sem fannst i
nóvember i skógi, sé af
blaðamanninum.
Á segulbandsupp-
töku, sem lífvörður
Úkraínuforseta afhenti
stjórnarandstöðunni,
má heyra rödd, sem lík-
ist rödd forsetans, og
raddir háttsettra emb-
ættismanna ræða rán á
blaðamanninum. For-
setinn viðurkennir að
rödd sín sé á hluta seg-
ulbandsupptökunnar en
— heldur því fram að átt
hafi verið við hana. Krafist hefur
verið afsagnar forsetans vegna
málsins.
Forseti Ukraínu
Fyrirskipaöi rán á
blaðamanninum.
Subaru Impreza GT TURBO,
2000 cc, 09/00, ek. 7 þús. km,
grænn, beinskiptur, ABS, sídrif,
leður, geislasp., litað gler,
vindskeið, álfelgur, rafdr. o.fl.
Verð kr. 2.490.000 - ATH. skipti
Bíldshöfða 5 • S. 567-4949
bilahollin.is