Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Blaðsíða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001
Fréttir
I>V
Forsetadóttir býr leigulaust í embættisbústað forsetans við Laufásveg:
Dalla er húsvörður
- segir forsetaritari - ríkisendurskoðandi segir forsetans að ákveða hvernig hússins sé gætt
Embættisbú-
staðurinn við
Laufásveg er skil-
greindur með
sama hætti og
Bessastaðir. Þeg-
ar húsið var þeg-
ið að gjöf fyrir
um það bil 20
árum var sú kvöð
á að húsið skyldi
notað sem for-
setasetur í höfuð-
borginni," sagöi
Stefán L. Stefánsson forsetaritari
um búsetu Döllu Ólafsdóttur for-
setadóttur í embættisbústað forset-
ans við Laufásveg 72. Það var Sigur-
liði Kristjánsson (Silli & Valdi) sem
afhenti forsetaembættinu húsið að
gjöf á sínum tíma og hefur það ver-
ið nýtt fyrir gestamóttökur á vegum
forsetans.
„Dalla býr ekki í gestaíbúðinni
sjálfri heldur í kjallaranum. Hún
hefur eftirlit með húsinu því þar
eru ekki gestir að staðaldri og ein-
hver þarf að vera þarna,“ sagði for-
setaritari.
Dalla
Ólafsdóttir
Býrí
kjallaranum.
- Er Dalla þá
húsvörður í emb-
ættisbústaðnum?
„Já, það má
segja sem svo.
Það er ekki gott
að húsið standi
autt.“
Forsetaritari
Sigurður segir hefð fyrir
Þóröarson því að börn for-
Forsetans aö Seta Islands búi á
ákveöa. Bessastöðum
með foreldum
sínum og því sé ekkert við það aö
athuga aö dóttir forsetans búi í emb-
ættisbústaðnum við Laufásveg.
Dalla Ólafsdóttir greiðir ekki húsa-
leigu fyrir kjallaraíbúðina í bú-
staðnum og er litið svo á að hús-
varsla hennar komi þar á móti.
„Ég geri ekki athugasemdir við
það að hússins sé gætt og það er for-
setans að ákveða hvernig þeirri
gæslu er háttað," sagði Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi sem
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
málið. -EIR
Bústaður forsetaembættisins við Laufásveg
Þörf á húsgæslu - forsetadóttirin tók aö sér verkiö.
Sáttur
Halldór Friörik Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi Sequrity Inc. í New York, segir að vel hafa gengiö aö höndla
meö verðbréfí Mekka fjármálastarfsemi veraldar. Hann reiknar meö aö starfsmenn veröi orönir 10 innan árs.
íslenskt verðbréfafyrirtæki í Mekka fjármálanna:
Kaupþing heldur
sjó á Manhattan
- fær fullt starfsleyfi á næstu dögum
Vestmannaey j ar:
Sjúkrahúsið
endurbætt
Vestmannaeyjabær hefur skrifað
undir samning viö ríkið um endur- I
bætur á Sjúkrahúsinu í Vestmanna-
eyjum og er samningurinn upp á
150 milljónir króna. Hlutur Vest-
mannaeyjabæjar er 15%. Gagngerar
breytingar verða gerðar á efstu
hæðum sjúkrahússins og verða
handlæknis- og lyfjadeildirnar sam-
einaðar við þetta tækifæri. Áætlað-
ur framkvæmdatími er tvö ár. f
Samningurinn var undirritaður af ;
Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráð- ;
herra fyrir hönd Ingibjargar Pálma- ;
dóttur heilbrigðisráðherra og Guð-
jóni Hjörleifssyni bæjarstjóra.
í bigerð hefur verið breytt rekstr-
arform á sjúkrahúsinu og þar
nefndur sérstaklega samrekstur
Hraunbúða, dvalarheimilis aldr-
aðra, og Sjúkrahússins sem leiða
ætti til bættrar þjónustu og hag-
kvæmni í rekstri. Niðurstaða þeirr- :
ar umræðu varð sú að sameina 1
deildirnar tvær í eina og fá með því
aukna þjónustu við sjúklinga og
hagkvæmni í rekstri. -GG
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Bíða með lýsiö
Á myndinni er veriö aö færa lýsi úr
tönkum Síldar- og fiskimjölsverk-
smiöu HB yfir í Kyndil sem siglir
meö þaö i Hvalfjörö i geymslu þar til
fragtin lækkar.
Lýsið geymt í
Hvalfirði þar til
fragtin lækkar
OV. HVALFIRÐI:
Kyndill var í Akraneshöfn á dögun-
um að taka við lýsi úr tönkum frá
Síldar- og fiskimjölsverksmiðju HB
hf. á Akranesi og fer hann með lýsið
til geymslu í tanka upp í Hvalfjörð.
Að sögn Sturlaugs Haraldssonar sölu-
stjóra eru um 600 tonn af lýsi geymd
í tönkunum í Hvalfirði og er það allt
selt. Hann segir jafnframt að HB ætli
að bíða með að setja það í annað skip
þar til fragtin lækkar. -DVÓ
DV. NÉW YQRK:
„Við erum búnir að stofna tvö
fyrirtæki Kaupþings í New York.
Annars vegar er um að ræða Kaup-
thing-New York, sem er eignar-
haldsfélag um starfsemi Kaupþings
í Bandaríkjunum. Hins vegar rek-
um við Kaupthing-Sequrity sem er
verðbréfafyrirtæki," segir Halldór
Friðrik Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri hjá Kaupþingi Sequrity Inc. í
New York. Hjá dótturfyrirtækjun-
um í New York starfa alls sex
manns en Halldór sagðist reikna
með að þeir væru orðnir 10 innan
árs.
Hann segir vel hafa gengið að
höndla með verðbréf í Mekka fjár-
málastarfseminnar í veröldinni.
„Viö höfum verið að selja íslensk-
um fjárfestum bandarísk hlutabréf
auk þess að fjárfesta fyrir svokallað-
an Vogunarsjóð Kaupþings. Þá hef-
ur okkur gengiö ágætlega að selja
íslensk skuldabréf hér auk þess að
hafa milligöngu um sölu banda-
rískra hlutabréfa," segir hann.
Halldór Friörik segir enga ástæðu
til annars en bjartsýni og bendir á
að fyrirtækin hafi komist vel af
þrátt fyrir að hlutabréf á Nasdaq
hafi hriðlækkað frá því rekstur
Kaupþings hófst fyrir ári. Nasdaq-
markaðurinn hefur verið á stigi
sem kennt er við „bear market" sem
þýðir að hann er meira en 20 pró-
sentustigum undir hæstu vístölu.
„Þegar við byrjuðum starfsemina
var Nasdaq-vísitalan í 5000 en er nú
i 1900. Við erum enn á lífi og gott
betur þannig að við þurfum ekki að
kvarta," segir hann.
„Við höfum verið inni á öðru fyr-
irtæki frá því við hófum rekstur
okkar en nú erum við að fá fullt
starfsleyfi á næstu dögum og þá
styttist í að við verðum með eigin
aðstöðu hér á Manhattan. Áform
okkar hafa gengið eftir og við telj-
um okkur hafa nokkuð góðan til-
verugrundvöll héma. Með því að
hafa viðveru hér náum við sam-
böndum sem annars myndu ekki
nást. Viö sjáum fyrir okkur ýmis
verkefni hér,“ segir Halldór Friðrik
sem telur víst að Nasdaq eigi eftir
að hjarna við eftir dýfuna.
„Viö erum fyrsta íslenska fjár-
málafyrirtækið sem haslar sér völl
hér; komum-þúsund árum á eftir
Leifl heppna og það eru engin merki
um annaö en að við munum spjara
okkur,“ segir Halldór Friðrik. -rt
Trúboöapólitík
Hinn stöðugi nún-
ingur sem er uppi í
samskiptum framsókn-
armanna og vinstri
grænna virðist engan
enda ætla að taka. Ung-
ir framsóknarmenn sem skrifa á vef
sinn Maddömuna
senda Steingrími J.
og Ögmundi
Jónassyni pillur sem
eru mjög í þeim anda
sem samræður þess-
ara stjómmálafylkinga |
hafa verið í. Ungu
ffamsóknarmennimir
gera það að umtalsefhi I
að vinstri grænir virð-
ast famir að titla alla sem „trúboða" -
stóriðjutrúboðar, Evróputrúboðar,
einkavæðingartrúboðar er meðal þess
sem þeir Maddömumenn nefna. Hins
vegar segjast þeir hafa tekið eftir því að
Steingrímur J. hafi ekki kunnað að
meta það að Halldór Ásgrimsson talaði
um að í VG væm saman komnir allir
„gömlu kommamir". Ungir framsókn-
armenn segjast tilbúnir til að endur-
skoða nafngift Halldórs - til að þóknast
VG - og taka upp nafn sem sé meira í
anda rauð-grænna - nefnilega nafngift-
ina „fjallagrasatriiboðar“! í pottinum
biða menn nú eftir andsvari VG við
slíkum tillögum...
Þórir í framboð?
Ljóst þykir að breytingar verði á list-
um flestra flokka í bæjarstjórnarkosn-
rnm í Árbotg á næsta
ári. Þegar hefúr hér
í heita pottinum
verið sagt frá þvi að
sjálfstæðismaðurinn
Bjöm Gislason
muni að öllum lik-
indum hætta - og
einnig að Margrét
Frímannsdóttir muni
hugsanlega leiða
lista félagshyggjufólks sem bæjarstjóra-
efni. 1 ranni framsóknarmanna gætu
líka orðið ýmsar vendingar og nú horfa
menn til þess að Selfyssingurinn Þórir
Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðis-
ráðherra, helli sér í slaginn. í heimabæ
sínum nýtur hann þeirra vinsælda sem
þarf til að ná góðum árangri í kosning-
um en einnig þykir hann í erfiðu ráðu-
neyti hafa sýnt þá röggsemi sem þarf -
til dæmis ef hann yrði bæjarstjóri...
Hemtboð
Samfylkingin gaf út herútboð á
mánudaginn og sendi tölvupóst til
þeirra sem em á skrá flokksins um að
láta ekki sitt eftir
liggja. Tilefnið var að
minna fólk á kosningu
sem nú stendur yfir á
Pressu Hrafhs Jökuls-
sonar þar sem „Nú
stendur yfir kosning á
Pressunni, Strik.is þar
sem spurt er: Hvern
viltu sem forsætisráð-
herra eftir kosningamar 2003? Þeir sem
kosið er um eru formenn flokkanna auk
Guðna Ágústssonar og Geirs H. Haarde.
Allir eru hvattir til að fara inn á Press-
una og kjósa formann Samfylkingarinn-
ar,“ segir í póstinum, sem minnir á að
baráttuaðferðir stjómmálaflokkanna era
í æ ríkari mæli að fara í þennan farveg.
Er þar skemmst að minnast þess þegar
stuðningsmenn Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar sendu tölvupóst á mikinn fjölda
fólks þar sem fólk var hvatt til þess að
tilefha hann sem borgarstjórakandídat
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik í sam-
bærilegri kosningu og valinu á forsætis-
ráðherra sem Hrafhinn efnir nú til á vef
sínum...
Valgerður ekki Ingibjörg
Eins og fram kom í pottinum í gær
hefur Flugmálastjóm verið að kanna,
samkvæmt beiðni Tryggingastofhunar,
hvort forsvaranlegt
sé að Leiguflug ís-
leifs Ottesens annist
áfram sjúkraflug
fyrir ríkið í kjölfar
skýrslunnar um
slysið í Skerjaflrði.
Veltu menn því fyrir
sér hvort það gæti
ekki reynst óþægi-
legt fyrir Ingibjörgu
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra að
svipta ísleif leyfmu er til kæmi, þar
sem þau eru skyld í annan lið. Þær
áhyggjur era þó óþarfar þvi Ingibjörg
sagði sig frá málinu strax er það kom
upp að ráðuneytið myndi hugsanlega
eiga viðskipti við ísleif og það er Val-
gerður Sverrisdóttir sem geröi alla
samninga við Isleif um sjúkraflug...