Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2001, Page 22
42
MIÐVIKUDAGUR 28. MARS 2001
Islendingaþættir
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
90 ára________________________________
Guðrún Geirdal,
Vallarbraut 9, Akranesi.
85 ára________________________________
Aðalbjörg Stefánsdóttir,
Kirkjuvegi 10, Keflavík.
Sigmundur Magnússon,
Frakkastíg 17, Reykjavík.
80 ára________________________________
Ágúst Helgason,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ.
Ingeborg Einarsson,
Hæöargarði 35, Reykjavík.
75 ára________________________________
Ásta Kristín Guðmundsdóttir,
Borgarlandi 3, Djúpavogi.
Einar Jónsson,
Móabarði 18, Hafnarfirði.
Elín Jónsdóttir,
Borgarholtsbraut 45, Kópavogi.
Guðbjörg Valgeirsdóttir,
Hlíðarvegi 3, ísafirði.
Karl Brynjólfsson,
Háabarði 10, Hafnarfirði.
70 ára________________________________
Benedikt Kristján Alexandersson,
Vtri-Bakka, Akureyri.
Sigurjón Sigurbergsson,
Hamrahlíö, Varmahlíö.
60 ára________________________________
aGylfi Sigurðsson
stýrimaöur,
Bogabraut 12,
Skagaströnd.
Eiginkona Gylfa er Guðrún
Guðbjörnsdóttir verslunar-
maður. Þau taka á móti
gestum í félagsheimilinu Fellsborg á
Skagaströnd laugard. 31.3. kl.
16.00-20.00;
Gunnar Árni Ólason,
Efstasundi 39, Reykjavík.
Gylfi Hallgrímsson,
Fannafold 22, Reykjavík.
Þorsteinn Hallsson,
Ásgötu 16, Raufarhöfn.
50 ára________________________________
Birgir Elínbergsson,
Skarösbraut 4, Akranesi.
Bragi Ragnarsson,
Bergholti 5, Mosfellsbæ.
Guðríður S. Hermannsdóttir,
Bollagöröum 43, Seltjarnarnesi.
Gunnar Þórir Þórmundsson,
Bakkatjörn 10, Selfossi.
Ingi Jón Sverrisson,
Frostaskjóli 105, Reykjavík.
Þorbjörn Ágústsson,
Sporði, Hvammstanga.
40 ára________________________________
Ásrún Hauksdóttir,
Fellasmára 2a, Kópavogi.
Einar Hólm Guðmundsson,
Norðurgötu 10, Seyðisfiröi.
Gunnar Pétur Héöinsson,
Túngötu 17, Patreksfiröi.
Hjörtur Hjartarson,
Grundargötu 8, Siglufirði.
Jóhannes Guðmar Vignisson,
Skólavegi 8, Fáskrúðsfirði.
Jón Sigurðsson,
Dalbraut 6, Höfn.
Samaporn Pradablert,
Efstasundi 71, Reykjavík.
Wieslawa Vera Lupinska,
Ástúni 10, Kópavogi.
Þorkell Þórðarson,
Mið-Görðum, Snæfellsnesi.
jjrval
- hefur þú lesið það nýlega?
Andlát
Björgvin Schram lést laugard. 24.3. sl.
Bjöm Ágúst Sigurðsson, Baldursbrekku
15, Húsavík, lést á heimili sínu 25.3.
Birgir Jóhannsson kaupmaður, Lauga-
vegi 133, Reykjavík, lést fimmtud. 22.3.
Guðríður Gísladóttir lést á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi fimmtud.
15.3. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Erlingur Eyjólfsson, Brattholti 6A, Mos-
fellsbæ, andaðist á Landspítalanum í
Fossvogi fimmtud. 15.3. Útför hans fór
fram í kyrrþey að ósk hins látna frá
Lágafellskirkju. Jarðsett var aö Mosfelli.
Dóróthea Jónsdóttir, Grundargötu 9,
Siglufiröi, lést á Heilbrigðisstofnuninni,
Siglufiröi laugard. 24.3.
Ingi Karl Jóhannesson, Birkimel 8a, lést
aðfaranótt sunnud. 25.3.
DV
Hundrað ára
Þorgerður Einarsdóttir
fyrrv. húsfreyja í Þórisholti í Mýrdal
Þorgerður Einarsdóttir, fyrrv.
húsfreyja í Þórisholti í Mýrdal, nú á
Dvalarheimilinu Hjallatúni í Vik í
Mýrdal, er hundrað ára í dag.
Starfsferill
Þorgerður fæddist að Reyni í
Mýrdal og átti þar heima til 1921.
Hún gekk í Reynisskóla í fjóra vet-
ur. Kötluveturinn 1917-18 var hún
vinnukona hjá Þorsteini Þorsteins-
syni, kaupmanni í Vík, og Helgu,
konu hans.
Þorgerður giftist og flutti að Þór-
isholti 1921 en þau hjónin stóðu þar
fyrir búi 1922-54. Þá missti maður
hennar heilsuna en sonur þeirra,
Einar, og kona hans, tóku við búi.
Þorgerður bjó í Þórisholti til 1995,
er sonur hennar og tengdadóttir
brugðu búi. Núverandi ábúendur
þar eru sonarsynir Þorgerðar, Grét-
ar og Guðni Einarssynir. Þorgerður
hefur verið heimilsmaður í Hjalla-
túni frá 1995.
Þorgerður hefur verið í Kvenfé-
laginu Ljósbrá frá stofnun og er
heiðursfélagi þess, starfaði um ára-
bil með kirkjukór Reyniskirkju og
er félagi í Samherjum, félagi eldri
borgara í Mýrdalshreppi. Hún er ið-
in að sækja mannfagnaði í seinni
tíð og lét sér ekki muna um að
sækja þorrablót að Eyrarlandi nú
fyrir skemmstu, enda vel ern.
Fjölskylda
Þorgerður giftist 20.11.1921 Kjart-
ani Einarssyni, f. 21.8. 1893, d. 28.7.
1970, bónda í Þórisholti. Hann var
sonur Einars Finnbogasonar, f. 26.6.
1863, d. 17.8. 1944, hreppstjóra í Þór-
isholti, og k.h., Vilborgar Andrés-
dóttur frá Kerlingadal, f. 21.11. 1865,
d. 28.10. 1945, húsfreyju.
Börn Þorgerðar og Kjartans:
Borghildur, f. 23.9. 1922, maki Ólaf-
ur Jóhannesson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Vöruhappdrættis
SÍBS, þau eiga þrjú böm og fimm
barnabörn; Einar Sigurður, f. 3.3.
1925, d. 18.12. 1970, vörubílstjóri í
Vik, maki Halldóra Sigurjónsdóttir
sem lést 1999 og eru dætur þeirra
tvær, barnabömin sex og eitt bama-
barnabarn; Ingveldur Guðríður, f.
2.8. 1929, d. 9.9. 1999, maki Sigurður
Ágúst Hafsteinn Jónsson, fyrrv.
sendibílstjóri í Reykjavík, börn
þeirra eru fimm, bamabömin ellefu
og eitt barnabarnabam; Einar, f.
3.12. 1930, fyrrv. bóndi í Þórisholti,
maki Sigurbjörg Pálsdóttir og eiga
þau sex börn og sautján bamabörn;
Sigurgeir, f. 7.3.1938, skurðlæknir í
Reykjavík, kvæntur Höllu Sigur-
jóns, tannlækni og dósent, og eiga
þau tvö börn og flmm bamabörn;
Kristinn Matthías, f. 28.11.1942, loft-
skeytamaður og kerfisfræðingur í
Reykjavík, maki Guðrún Helgadótt-
ir bankamaður, þau eiga þrjú börn
og sex barnaböm; Kjartan, f. 1.11.
1944, verslunarstjóri í Reykjavík,
maki Alda Guðlaug Ólafsdóttir
bankamaður, þau eiga þrjú böm og
tvö barnabörn.
Fjölskylda
Þorgerðar telur
alls 121 en af
þeim eru beinir
afkomendur 86
talsins.
Þorgerður er
yngst og ein eft-
irlifandi átta
systkina. Systk-
ini hennar: Sig-
ríður, f. 10.2.
1887, húsfreyja
í Vik; Kristín, f.
20.4. 1888, hús
freyja í Prests-
húsum; Brand-
ur, f. 6.8. 1889,
bóndi á Suður-
Götum í Mýr-
dal og síðar tómthúsmaður í Vik;
Brynjólfur, f. 2.8. 1890, bóndi á Dyr-
hólum í Mýrdal; Einar, f. 18.1. 1892;
Sveinn, f. 1895, bóndi á Reyni; Mar-
grét, f. 4.9. 1896, húsmóðir í Reykja-
vík.
Foreldrar Þorgerðar voru Einar
Brandsson, f. 18.3. 1858, d. 28.2. 1933,
bóndi á Reyni, og k.h., Sigríður
Brynjólfsdóttir, f. 15.11. 1857, d. 31.3.
1935, húsfreyja.
Ætt
Einar var sonur Brands, b. á
Reynishjáleigu, Einarssonar, b. þar,
Eiríkssonar. Móðir Brands var Mar-
grét Brandsdóttir.
Móðir Einars á Reyni var Kristín
Einarsdóttir, hreppstjóra í Þóris-
holti, Jóhannssonar, og Ragnhildar
Jónsdóttur frá Höfðabrekku.
Sigríður var dóttir Brynjólfs frá
Skammadal, Guðmundssonar, Guð-
mundssonar. Móðir Brynjólfs var
Guðrún Hallgrímsdóttir frá Neðra-
Velli í Gaulverjabæjarhreppi.
Móðir Sigríðar var Þorgerður
Jónsdóttir frá Flögu Þorlákssonar,
og Sigriðar Sturludóttur frá Þóru-
stöðum í Mosfellssókn.
Þorgerður tekur á móti gestum í
tilefni af afmæli sínu í dag, mið-
vikudag 28. febrúar, á Hótel Höfða-
brekku frá kl. 16.00-19.00.
EEE
Gunnar Þorsteinsson
forstöðumaður Krossins
Fimmtugur
Ólafur Örn Jónsson
prentsmiður í Hafnarfirði
Gunnar Þorsteinsson,
forstöðumaður Krossins,
Laugalind 3, Kópavogi, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Gunnar fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
i foreldrahúsum. Hann
lauk landsprófi og stund-
aði nám við MH. Gunnar
lagði síðan stund á guðfræðinám
við Christ Gospel Bible Institude í
Bandaríkjunum.
Gunnar starfrækti verslunarfyr-
irtæki um skeið í Vestmannaeyjum.
Auk þess hefur hann starfrækt
verktakafyrirtækið Þakklæðningu í
Reykjavík. Hann stofnaði Krossinn
1978 og hefur verið forstöðumaður
safnaðarins frá stofnun.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 25.12. 1971 Ingi-
björgu Guðnadóttur, f. 11.2. 1952,
bankastarfsmanni. Hún er dóttir
Guðna Guðmundssonar, sem er lát-
inn, forstjóra, og Jóhönnu F. Karls-
dóttur, fyrrv. starfsmanns hjá Skatt-
stofu Reykjanesumdæmis.
Börn Gunnars og Ingibjargar eru
Guðni, f. 11.8.1972, sem nú hefur aft-
ur eignast og tekið við rekstri Bilkó
í Kópavogi, fyrirtæki sem hann
starfrækti áður fyrr, búsettur í
Reykjavík og er sonur hans Daníel
Gunnar Guðnason, f. 1.7. 1999; Sig-
urbjörg, f. 2.8. 1974, skrifstofumað-
ur, búsett í Hafnarfirði, maður
hennar er Aðalsteinn
Scheving rafeindavirki;
Jóhanna, f. 1.1.1976, skrif-
stofumaður 1 Reykjavík
og eru dætur hennar
Camila, f. 2.9. 1994, og
Ingibjörg Laila, f. 14.12.
1997; Gunnar Ingi, f. 23.1.
1989, í foreldrahúsum.
Systkini Gunnars; Ás-
dís, f. 22.5. 1948, fram-
kvæmdastjóri, Reykjavík; Einar
Þorsteinn, f. 3.10. 1949, fram-
kvæmdastjóri, Reykjavík; Þórstína
B., f. 8.9.1956, kaupkona, Reykjavík.
Foreldrar Gunnars voru Þor-
steinn Oddsson, f. 25.11.1919, d. 27.7.
1994, prentmyndasmiöur og siðar
verktaki í Reykjavik, og k.h., Sigur-
björg Einarsdóttir, f. 24.6. 1919, d.
3.12. 1999, húsmóðir.
Ætt
Þorsteinn var sonur Odds frá
Leirá í Leirársveit Ólafssonar, sjó-
manns Halldórssonar. Móðir Þor-
steins var Þuríður Jónsdóttir, b. á
Kalastöðum á Hvalfjarðarströnd,
Þorsteinssonar.
Sigurbjörg var dóttir Einars, mat-
sveins og verkamanns í Borgarnesi,
Ólafssonar, frá Stóru Fellsöxls,
Jónssonar. Móðir Sigurbjargar var
Þórstína Gunnarsdóttir, b. í Fögru-
hlíð á Djúpavogi, Þorsteinssonar.
Móðir Þórstínu var Þórunn Björk
Jakobsdóttir, b. á Eiríksstöðum.
Gunnar er í útlöndum um þessar
mundir.
Ólafur Örn Jónsson
prentsmiður, Breiðvangi
50, Hafnarfirði, er fimm-
tugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í
Reykjavík en ólst upp í
Hafnarfirði. Hann lauk
gagnfræðaprófi frá Flens-
borg 1969, lauk námi í
handsetningu frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1974, námi í filmuskeyt-
ingu og plötugerð í offsetiðn 1980,
stundaði nám í teikningu við Mynd-
listarskólann í Reykjavík og Hand-
iða- og myndlistarskóla íslands og
sótt námskeið í olíumálun í Svíþjóð.
Ólafur hóf nám í handsetningu
hjá Gunnari Einarssyni í Leiftri. Að
loknu sveinsprófi starfaði hann hjá
Blaðaprenti. Þaðan fór hann i nám í
fllmuskeytingu hjá Prentmiðjunni
Grafík í Síðumúla. Hann var síðan
verkstjóri hjá Prentsmiðju Áma
Valdimarssonar um nokkurra ára
skeið og hjá SAM-útgáfunni og
Prentsmiðju G. Ben.
Ólafur og fjölskylda hans fluttu til
Váxjö í Svíþjóð 1990 þar sem hann
starfaði við sína iðn hjá SMP-trykk,
hjá Smálandsposten og loks hjá
Grafiska Punkten.
Eftir að Ólafur og fjölskylda hans
sneru aftur heim hóf hann störf hjá
Prentsmiðjunni Odda 1995 þar sem
hann hefur starfað siðan.
Ólafur hefur gegnt trúnaðar- og
trúnaðarráðsstörfum í Félagi bóka-
gerðarmanna og situr í
stjórn Félags bókagerðar-
manna frá 1997.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 26.1.
1974 Hafdísi Jónsteins-
dóttur, f. 22.8. 1951, fjár-
málastjóra hjá EGG ehf.
Hún er dóttir Jónsteins
Haraldssonar forstjóra og
Halldóru Helgu Kristjánsdóttur
sjúkraliða.
Börn Ólafs og Hafdísar eru Rósa
Ólafsdóttir, f. 31.7. 1973, d. 24.8.1973;
Halldóra Ólafsdóttir, f. 10.11. 1974,
verslunarstjóri, búsett í Hafnarfírði
en dóttir hennar er ísóld Braga
Halldórsdóttir, f. 11.8. 1996; Ólafur
Örn Ólafsson, f. 19.10.1986, nemi.
Systur Ólafs eru Sigrún Jónsdótt-
ir, f. 19.7. 1953, verslunarmaður í
Hafnarfirði, gift Halli Vilhjálms-
syni, f. 20.5. 1954; Hrafnhildur Jóns-
dóttir, f. 27.5. 1959, skrifstofustjóri í
Hafnarfirði, gift Guðjóni Grétars-
syni, f. 6.6. 1955; Áslaug Jónsdóttir,
f. 16.7.1964, verslunarmaður í Hafn-
arfirði, gift Magnúsi Magnússyni, f.
5.11. 1964.
Foreldrar Ólafs eru Jón Gestur
Jónsson, f. 26.9. 1926, bátasmiður í
Hafnarfirði, og Rósamunda Alda
Arnórsdóttir, f. 30.6. 1929, hár-
greiðslukona.
Ólafur og Hafdís taka á móti ætt-
ingjum og vinum í Hraunholti,
Dalshrauni 15, Hafnarfírði, milli kl.
19.00 og 22.00.
Merkir Isfendingar
Jón Jónsson frá Ljárskógum fæddist á
hinu þekkta tónlistar- og menningar-
heimili, Ljárskógum í Dölum, 28. mars
1914. Hann var sonur Jóns Guðmunds-
sonar, bónda, refaskyttu, Ijósmyndara
og silfursmiðs í Ljárskógum, og k.h.,
Önnu Guðrúnar Hallgrímsdóttur hús-
freyju. Systir Jóns Jónssonar var Jó-
fríður, móðir Jóns, sóknarprests á
Mosfelli. Jón kvæntist Jónínu Krist-
jánsdóttur leikstjóra en sonur þeirra er
Hilmar matreiðslumeistari.
Jón stundaði nám við MA, lauk stúd-
entsprófum 1934 og stundaði nám í guð-
fræðideild HÍ. Hann kenndi um skeið á
ísafirði og fékkst nokkuð við þýðingar.
Jón var prýðilegt skáld. Tvær ljóðabækur
Jón Jónsson frá Ljárskógum
komu út eftir hann á meðan hann lifði: Syng-
ið strengir, 1941, og Hörpuljóð, 1942. Þá
kom út bókin Gamlar syndir og nýjar,
1947, og ljóðasafn hans, Ljóð Jóns frá
Ljárskógum, 1976. Auk þess birtust eft-
ir hann ljóð og smásögur í Rauðum
pennum og öðrum tímaritum.
Jón var stofnandi og félagi í vin-
sælasta söngkvartett sem sungið hefur
á íslandi, MA-kvartettinum, sem
skemmti með söng sínum á árunum
1932-1942. Hinir söngfélagar Jóns voru
Jakob Hafstein framkvæmdastjóri, sem
lést 1982, og bræðurnir Steinþór, fyrrv.
lþm., og Þorgeir læknir Gestssynir frá
Hæli sem báðir eru á lífi. Jón lést úr berkl-
um langt fyrir aldur fram, 7. október 1945.
Jaröarfarir
Árni Sigurösson, Vallarbraut 6, Ytri-
Njarðvík, verður jarðsunginn frá Keflavík-
urkirkju miðvikud. 28.3. kl. 14.00.
Arnar Jóhann Magnússon, Löngumýri
26, Garöabæ, lést á Landspítalanum
viö Hringbraut fimmtud. 15.3. Útför
hans fer fram frá Fossvogskirkju mið-
vikud. 28.3. kl. 13.30.
Edda Þórey Guölaugsdóttir, til heimilis
að Stórateigi 21, Mosfellsbæ, verður
jarösungin frá Lágafellskirkju í Mosfells-
bæ miðvikud. 28.3. kl. 13.30.
Heiöar Theodór Ólason, Skúlagötu 44,
Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Há-
teigskirkju miövikud. 28.3. kl. 15.00.
Jarðsett veröur í Gufuneskirkjugarði.
Svava Guðmundsdóttir frá Heiði,
Nestúni 23, Hellu, verður jarðsungin frá
Keldnakirkju á Rangárvöllum fimmtud.
29.3. kl. 14.00.