Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Page 7
frjálslegt (sumir vilja meína smekklaust) fataval. Við kíktum með nýstúdentinum tilvonandi í smábúðaráp tíl að láta dressa hann upp. Tískuþáttur gáfnaljóssins „Ég á sjö lit- rikar skyrtur | og hef aldrei , verið í sömu ,j skyrtunni tvisvar þegar ég er að keppa. Hvítu buxurnar nota ég mikið og ‘ á reyndar ÆSt tvennar alveg mm eins,“ segir Hjalti sem er feg- inn því að hafa farið með sigur af hólmi í síðustu keppninni sinni en hann útskrifast í vor og þar með hverfa líklega hvítu buxurnar og skræpóttu skyrturnar af skjánum. „Það er aldrei að vita nema ég geti sannfært einhvern nýjan liðsmann um að halda hefðinni og i það í minnsta klæðast hvítum buxum,“ segir Hjalti. „En það munaði minnstu að ég mætti ekki vera í gk skyrtunni í keppninni. Ég hafði « geymt Ijótustu skyrtuna mína fram á úrslitakeþpnina en svo stóð til að rífa mig úr henni þar sem litadýrðin gæti truflað við- kvæmar myndavélar Ríkissjón- varpsins. Sem betur fer varð ofan á að ég fékk að vera i henni.“ í Gallerý Sautján á Laugaveginum var vel tekið á móti MR-ingnum og hann fljótt dressaður upp í grá jakkaföt, bleika skyrtu, og bindi í stíl. „Ég nota jakkaföt mjög sjaldan, bara í einhverjum flnum veislum. Þetta eru flott föt en sjálfur er ég meira fyrir svona kiassísk svört jakkaföt, hvíta skyrtu og svart bindi. Ég myndi ekki klæðast svona fótum nema ég fengi að vera með byssubelti líka.“ ★★★ Hjalti var dressaður upp i ofurtrendy fot úr herradeild Top Shop. Bolur, peysa, köflóttar buxur og skór sem minntu helst á skóna sem maður er neyddur í ef maður vill fella keilur í Keiluhöllinni. „Þetta eru svolítið skemmtilegar buxur og skórnir eru skrýtnir en þeir ganga upp við þessa múnderingu og þá sérstaklega buxurnar. Mér finnst þetta svolítið breskt lúkk og einhvers konar millistig milli þess að vera gamaldags og wild. Ég myndi kannski ganga í svona föt- um á eldri árum.“ í Gallabuxnabúðinni fer Hjalti í svartan og hvítan bol, ljósar flauelsbuxur með belti og í skó sem Birgitta Haukdal myndi selja sál sína fyrir. En Hjalti er ekki eins hrifinn af dressinu: „Ef ég myndi sjá fólk í svona fötum úti á götu, dytti mér strax í hug að það hefði aldrei litið í spegil.“ Hjalti efast um að hann myndi ganga sjálfur í svona fötum. „Ef mér byðist hlutverk í endurgerð á kvikmyndinni Empire Strikes Back og þyrfti að klæðast svona föt- um myndi ég kannski láta mig hafa það en ekki í Reykjavík nútímans. Skómir eru reyndar mjúkir, hlýir og þægilegir, þeir mega eiga það.“ ★★★★ „Ég held ég hafl fundið MH-inginn í mér,“ segir Hjalti og skoðar sig gaumgæfilega í speglinum í versluninni Spútnik þar sem hann var klæddur í litríka skyrtu, bindi, gallabuxur, sandala og með sólgleraugu. „Þetta eru föt sem ég flla mjög vel og lang- besta múnderingin sem ég hef fengið. Veit samt ekki með sandalana." Hjalti er svo hrif- inn að hann kaupir skyrtuna, bindið og jakk- a að auki og prúttar meira að segja fimm hundruö kall af verðinu. Næst var ferðinni heitið í verslunina Brim á Lauga- veginum þar sem algjörlega var breytt um stíl. Víðar gallabuxur, gul hettupeysa, sólgleraugu, derhúfa og hvítir skór með gulum reimum. „Þetta eru föt sem ég myndi aldrei ganga í,“ segir Hjalti um leið og hann sér sig í speglinum. „Þau eru samt þægileg og víð en Gettu Betur-átfittið hefur meiri einstaklingssjarma. Það er meira sígilt og gengur við svo margt á meðan þetta er bara ákveðin tiska. Ég leyfi mér að vitna í kvikmynd- ina Boogie Nights og segi bara wear what you dig.“ Uppinn Haukdal lúkkið Skeitarinn MR-íngurinn Hjalti Snær /Egisson er ekki bara þekktur fyrir að vera einn þremenninganna sem naumlega unnu Borghyltinga í úrslitakeppni Gettu betur síðustu helgi heldur líka fyrir mujuj.this.is/shortcut Kvikmyndasjóður islands Stuttmyndadagar í Reykjavík auglvsir eítir myndum a hátiðina og er öllum heimil þatttaka Umsóknareyðublöð er hægt aö nálgast á skriístofu Kvikmyndasjóðs íslands, Túngötu 14. 101 R , einníg a slóðmni vvwyv. this.is/shortcut eöa ó vísir.is fyrir 6. maí næstkomandi. Frekari fyrirspurnir eru á email iff@iff.is |M{ l ÍÁSKÓLABIÖ Rcy kja v íkutbovú 6. apríl 2001 f Ókus 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.