Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Qupperneq 2
22 MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 Sport DV Vigdís Sigurðardóttir, fyrirliði ÍBV: Maður getur ekki alltaf unnið „Viö klúðruðum þessu sjálfar, vorum að missa boltann allt of oft í hendurnar á þeim en reyndar var vörnin hjá þeim mjög góð. Þetta var í heildina séð góður vetur en hann hefði getað oröiö enn betri og ég var ekki sátt við spilamennsku okkar í lokaúrslitunum en maður getur víst ekki alltaf unnið,“ sagði Vigdís Sigurðardóttir, hinn frábæri markvörður ÍBV. Síðustu fimmtán mínúturnar erfiðar í öllum leikjunum „Þær eru með meiri breidd en við og í mjög góðu formi og við lentum í erfiðri rimmu gegn Fram. Við náðum ekki að klára þessa leiki og síðustu fimmtán mínútumar í öllum leikjunum voru okkur mjög erfiðar. Maður er aldrei alveg sáttur með það að taka á móti silfurpening en í heildina séð getum við vel viö unað. Haukamir eiga þennan titil svo sannarlega skilið og ég óska þeim til hamingju,“ sagði Sigbjörn Óskarsson, þjálfari ÍBV. -SMS Haukastúlkur á góðri sigurstund eftir leikinn á laugardag. Haukar unnu alla sjö leiki sína í úrslitakeppninni og 26 af 29 leikjum vetrarins og eru óumdeilanlega með langbesta kvennaliö landsins í handbolta. DV-mynd E.ÓI. 12, Sonja Jónsdóttir 6, Sandra Anulyte 4 og Hjördís Guömundsdóttir 1. Berglind Hafliðadóttir varði 3 skot og Guðný Agla Jónsdóttir 1 en Jenný var með 99. Haukastúlkur settu met í úrslitaeinvíg- inu með því að skora 27 mörk að meðal- tali í venjulegum leiktíma. Stjarnan skoraði 86 mörk í þremur leikjum 1999 en þar af voru 9 mörk skoruð í framleng- ingu og þvi var Stjaman með 25,7 að meðaltali það ár á hinum venjubundnum 60 minútum. -ÓÓJ um þremur sigurliðum. Inga Fríða var að verða íslandsmeistari i fjórða sinn á ferlinum líkt og Heida Erlittgsdóttir sem vann þrjá titla með Víkingi 1992-1994. Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Hauka, varði 99 skot í úrslitakeppninni, eöa 14,1 að meðaltali í leik. Jenný varði 49,5% þeirra skota sem á hana komu sem er frábær markvarsla hjá þessari ungu stelpu sem var að leika sitt fyrsta tíma- bil í meistaraflokki í vetur. í úrslitaleikj- unum þremur gegn ÍBV varði Jenný 48 skot, eða 16 að meðaltali í leik, og 47% þeirra skota sem á hana komu. Haukar skoruðu 21 hraðaupphlaups- mörk í leikjunum þremur gegn ÍBV á meðan Eyjastúlkur gerðu 7. í úrslita- keppninni gerðu Haukastúlkur 49 mörk úr hraðaupphlaupum eða 7 að meðaltali í leik. Hanna G. Stefánsdóttir skoraði flest þessara marka, alls 15, en Thelma B. Árnadóttir kom næst með 9. Mótherjar Haukanna náðu aftur móti aðeins að skora 21 mark úr hraðaupp- hlaupi, 28 færri en Haukaliðið. Ellefu leikmenn skoruðu mörkin fyrir Islandsmeistara Hauka í úrslitakeppn- inni. Auður Hermannsdóttir gerði flest mörk, eða 33, Hanna G. Stefáns- dóttir gerði 24 og Brynja Steinsen 22. Aðrar sem skoruðu voru: Harpa Mel- sted og Tinna B. Halldórsdóttir 18, Thelma B. Árnadóttir 17, Inga Fríða Tryggvadóttir 16, Heiða Erlingsdóttir ------------ t jk ' J . . . Stórkostlegt afrek hjá stelpunum „Þetta er stórt og gott félag og það er frábæran stuðning við stelpumar að finna hér og sést það best á aðsókninni í dag; þetta gerist einfaldlega ekki betra og það er stórkostlegt afrek hjá stelpunum að fara taplausar í gegnum heila úrslitakeppni," sagði Lúðvík Geirsson, formaður Hauka á sigurstund að Ásvöllum á laugardag. -SMS Maður leiksins: Auður Hermannsdóttir, Haukum 0-2,3-2,4-3,4-6, 7-6, 7-7,9-7, 9-8, 11-8, 11-9, 14-9, (14-10), 14-13, 15-13, 15-16, 19-16, Haukar-IBV 28-22 (14-10) Haukar: Mörk/víti (skot/viti); Auður Hermanns- dóttir 8/6 (13/6), Hanna Guðrún Stefáns- dóttir 6 (9), Thelma B. Ámadóttir 4 (6), Harpa Melsted 3 (5), Tinna B. Halldórsdótt- ir 2 (3), Brynja Steinsen 2/1 (5/2), Sonja Jónsdóttir 1 (1), Heiða Erlingsdóttir 1 (1), Inga Fríða Tryggvadóttir 1 (1), Sandra Anulyte (1). Varin skot/víti (skot á sig): Jenný Ás- mundsdóttir 14 (34/4,41%, eitt víti í stöng, 10 af 12 langskotum, 0 af 5 hraðaupphlaup- um, 0 af 1 úr homi, 2 af 7 gegnumbrotum, 2 af 5 af línu, 0 af 4 vítum), Berglind Haf- liðadóttir 1 (3,33%, 0 af 1 langskotum, 1 af 2 hraðaupphlaupum). Mörk úr hraðaupphlaupum: 9 (Thelma 4, Hanna 3, Brynja, Auður). Skotnýting eftir leikstööum; Langskot: 12/3, 25% Gegnumbrot: 5/4, 80% Horn: 7/4, 57% Lina: 1/1, 100% - Skot úr stöðum: 25/12, 48% - Hraðaupphlaup: 12/9, 75% Vitaskot: 8/7, 88% Önnur tölfræði: Stoðsendingar: 18 (Brynja 5, Harpa 5, Auður 4, Thelma 2, Sonja, Hanna). Fiskuð víti: 8 (Brynja 2, Inga Fríða 2, Harpa, Tinna, Sonja, Hanna). Sendingar sem gáfu viti: 4 (Auður 2, Brynja, Thelma). Stolnir boltar: 11 (Thelma 3, Harpa 2, Hanna 2, Brynja, Sonja, Sandra, Auður). Fiskaðir brottekstrar: 5 (Brynja 2, Auður, Hanna, einn á leiktöf). Fráköst af skotum: 7 (1 í sókn, 6 i vörn, Hanna 3, Brynja, Thelma, Harpa, Auður). Varin skot í vörn: 1 (Brynja). Samanburður 62% Skotnýting 58% 7 Fráköst frá marki 5 15 Tapaöir boltar 19 41% Markvarsla 36% 1 Varin skot í vörn 2 8/7 Vítanýting 5/4 9 Hraðaupphlaupsmörk 6 6 Refsimínútur 10 Dómarar (1-10): Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson (7). Gœði leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 300. Sóknarnýting: Fyrri hálfleikur: Haukar . . 58% (24/14) ÍBV . . 42% (24/10) Seinni hálfleikur: Haukar . . 44% (32/14) ÍBV . . 38% (32/12) Samtals: Haukar . . 50% (56/28) ÍBV . . 39% (56/22) 19-17, 24-17, 24-18, 25-18, 26-20, 27-20, 28-21, 28-22 ÍBV Mörk/víti (skot/viti): Tamara Mandizch 6/2 (11/2), Anita Andreassen 5 (5), Gunnley Berg 3 (4), Amela Hegic 3/2 (8/3), Edda B. Eggertsdóttir 2 (2), Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir 2 (3), Andrea Atladóttir 1 (5). Varin skot/viti (skot á sig): Vigdís Sig- urðardóttir 16 (44/7, 36%, eitt víti í slá, 5 af 8 langskotum, 4 af 13 hraðaupphlaup- um, 3 af 7 úr horni, 2 af 6 gegnumbrotum, 2 af 3 af línu, 0 af 7 vitum). Mörk úr hraóaupphlaupum: 6 (Anita 3, Edda, Gunnleyg). Skotnýting eftir leikstööum: Langskot: 13/3, 23% Gegnumbrot: 7/5, 71% Horn: 2/1,50% Lina: 4/3,75% - Skot úr stöðum: 26/12, 46% - Hraðaupphlaup: 7/6, 86% Vitaskot: 5/4, 80% Önnur tölfræði: Stoðsendingar: 15 (Tamara 6, Anita 3, Andrea 2, Edda 2, Amela, Vigdís). Fiskuð viti: 5 (Anita 2, Gunnleyg 2, Tamara). Sendingar sem gáfu viti: 4 (Tamara, Amela, Anita, Vigdís). Stolnir boltar: 10 (Tamara 3, Gunnleyg 2, Andrea 2, Anita, Vigdís, Edda). Fiskaðir brottekstrar: 3 (Anita 2, Gunnleyg). Fráköst af skotum: 5 (1 í sókn, 4 í vöm, Tamara 3, Vigdís, Ingibjörg). Varin skot í vörn: 2 (Gunnleyg, Anita). — — NI55AN teliM kveríM Haukar urðu um helgina íslandsmeist- arar í þriðja sinn en í hin tvö skiptin, 1996 og 1997, unnu stúlkumar Stjömuna í æsispennandi úrslitleikjum, án þess að hafa heimavallarréttinn. Ekkert lið hef- ur síðan unnið úrslitaeinvígið án þess að vera með heimavallarrétt. Tveir leik- menn í tapliöi ÍBV i ár voru með Hauk- um þessi ár, Vigdis Sigurðardóttir markvörður bæði árin og Andrea Atla- dóttir síðara árið. Þriðja árið í röð vannst úrslitaeinvígiö í kvennaflokki 3-0 og eru það vonbrigði fyrir marga að aðeins hafa farið fram þrír leikir því þrjú árin á undan, 1996- 1998, fóru öll einvígin alveg fram í odda- leik. Úrslitakeppni kvenna fór nú fram i tíunda sinn, úrsliteinvígið hefur fjórum sinnum farið í oddleik, eða jafnoft, og sama lið hefur unniö alla leikina. Haukar urðu þriója liðið í sögu úrslita- keppni kvenna til að fara taplaust í gegn- um úrslitakeppnina, það er að vinna alla sjö leiki sína. Stjarnan náði einnig þess- um árangri 1995 og 1999. Inga Friða Tryggvadóttir hefur verið í öllum þess- Harpa Melsted, fyrirliði Hauka: Hungrið „Við vorum ákveðnari og hungr- aðri en þær allt frá byrjun úrslitanna og við ætluðum ekki aö láta þær taka af okkur annan bikar í vetur. Mér fannst úthaldið og krafturinn vera meiri hjá okkur í heildina séð en þó sérstaklega þegar virkilega reyndi á. Þessi lið lið eru þau langbestu i dag og í hreinskilni sagt þá bjóst ég ekki við að vinna 3-0,“ sagði hinn eitilharði fyrirliði Haukanna, Harpa Melsted. Mikill munur á formi liðanna Ragnar Hermannsson tók við liði Hauka á miðju síðasta keppnistíma- bili og er óhætt að segja að framfarir hafi verið miklar hjá liðinu siðan þá og árangurinn í vetur er frábær. Þetta hafði hann að segja eftir leikinn: „Ég held að flestir hafi tekið eftir hversu gríðarlega mikill munur er á formi þessara tveggja liða sem voru að spila hér í dag, okkur í hag. Við erum með breiðari leikmannahóp en, eins og Sigbjörn benti á í frægu viðtali fyrir bikarúrslitaleikinn, þá spila bara sjö í einu en okkar sjö eru einfaldlega í betra formi en þeirra sjö. Það er hægt að tapa einum leik inni í Laugardals- höll og það er ekki hægt að undirbúa lið fyrir slíkan leik kerfisbundið en þegar komið er út í svona úrslita- keppni þá skiptir það bara öllu máli. Þetta lið í dag hefur staðið gríðarlega vel saman og æft samviskusamlega, hver ein og einasta stelpa, og það er það sem hefur gefið okkur ákveðið forskot á hin liðin og við erum að upp- skera í samræmi við það.“ Frábær tilfinning Það er ailtaf jafn gaman að verða ís- landsmeistari og frábær tilfmning og sérstaklega í svona góðu félagi eins og Haukar eru. Við erum í frábæru formi og með góða breidd og náum því að halda hraðanum vel og það hefur mikið að segja þegar líður á leikina," sagði Heiða Erlingsdóttir sem var að hampa íslandmeistaratitlinum með öðru félagi sínu en áður lék hún með Víkingi. Alltaf Ijúf tilfinning „Ég hef unnið titilinn þrisvar áður með Stjörnunni og þetta er alltaf jafn ljúf tilfinning. Þó að við höfum farið taplausar í gegnum úrslitakeppnina þá voru allir þessir leikir mjög erfiðir og tóku virkilega á en það sem gerði útslagið var mikil breidd hjá okkur, sem og gott úthald, og við getum þess vegna keyrt á fullu allan leikinn. Það sem virkilega ýtti við okkur var tapið í bikarúrslitunum og síðan hefur allt verið á uppleið," sagði Inga Fríða Tryggvadóttir, línumaður Hauka. Hugarfarsbreyting eftir Valsleikinn „Við tókum okkur virkilega á eftir annan leikinn á móti Val þar sem við spiluðum illa. Eftir þann leik varð hugarfarsbreyting og við náðum vörninni i gott lag. Eftir leikina gegn Stjörnunni var sjálfstraustið komið í hæstu hæðir og það fleytir manni mjög langt í keppni sem þessari. Við áttum harma að hefna eftir sárgræti- legt tap gegn ÍBV í bikarúrslitaleikn- um og þetta er góð sárabót,“ sagði Brynja Steinsen sem kom frá Val fyr- ir keppnistímabilið og var að hampa sínum fyrsta íslandsmeistaratitli. -SMS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.