Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 15
* MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 Sport Á Arnarvatnsheiðinni Það er fátt skemmtilega en skoða ný vötn og ár eins og þessir veiðimenn gerðu síðasta sumar þegar þeir fóru á Arnarvatnsheiðina. DV-mynd Jóhann Loft. íslensku skila veiðimönnum yfirleitt góðri veiði en eru kannski ekki mikið stunduð af stangaveiðimönnum Þau eru mjög mörg, veiðivötnin á íslandi. Líklega eru um 1600 vötn sem hafa að geyma fiska og stærðin er auðvitað misjöfn á fiskinum eins og gengur og gerist í veiðiskapnum. Til eru veiðivötn sem fáir íslend- ingar hafa komið að til að veiða fisk enda vita menn ekki hvar öll vötnin er að finna á landinu. Það sem er best við þessi vötn er að ódýrt er að veiða í þeim og jafnvel er frítt að veiða í þeim sumum. „Þau eru mörg, veiðivötnin og ámar á Tvídægru, og góð veiði í þeim flestum. Við ætlum að fara þama aftur í sumar með veiðimenn, en við byrjuðum með þessar ferðir í fyrra,“ sagði Arinbjörn Jóhannsson á Brekkulæk í Miðfirði í samtali við DV-Sport, en hann byrjaði í fyrra- sumar að bjóða upp á göngu- og veiðitúra þar sem veiðimenn urðu að hafa verulega fyrir veiðitúm- um. „Þau eru mörg, vötnin og lækirn- ir, sem fáir hafa veitt í þarna, enda er þetta skemmtilegt svæði og fjöl- breytt mjög. Fuglalífið er líka stór- brotið eins og landslagið,“ sagði Ar- inbjörn í lokin. Eitthvað hefur verið um að veiði- menn hafa hópað sig saman og far- iö í vötn sem lítið er veitt í, en þetta á auðvitað mest við um Amarvatns- heiðina og úti á Skaga. Fræg er veiðiferðin á Skagann þar sem veiðimennirnir fóru á næsta bæ og spurðu hvort þeir mættu renna í vatnið ofan við bæ- inn. Bóndinn sagði að þeir mættu það auðvitað en veiðivonin væri ekki mikil. Þeir fóru í vatnið og veiddu 250 bleikjur sem þeir hirtu en líklega hafa þeir veitt um 400 sil- unga og margir af þeim voru vel vænir. Víöa hægt aö veiöa góðan silung „Ég hef farið víða til veiða og þá mikið í þau vötn sem fáir veiða í. Þessi heimur er stórkostlegur og veiðin getur oft verið mjög góð,“ sagði veiðimaður sem hefur mikið stundað fjallavötnin víða um landið og oft veitt mjög vel. „Ég hef farið í vötn á Ströndum, vestur á fjörðum, norður í landi og í vötnin þar á heiðunum, út á Skaga og austur á firði. Veiðin er misjöfn; stundum veiðir maöur vel, eins og þegar ég fór út á Strandir síðasta sumar. 1 einu vatninu veiddi ég fyrir nokkrum árum 50 silunga og voru stærstu fiskarnir um 5 pund. Þarna haföi enginn veitt í mörg ár. Það vissi bara enginn um þetta vatn. Úti á Skaga hef ég veitt mikið og þar eru víða góð vötn,“ sagði veiðimaðurinn. -G.Bender 35 f Fjögur met hjá Erni Örn Arnarson, SH, setti um helgina fjögur íslandsmet í sundi á opna Sjálandsmótinu í Greve í Danmörku. Auk þessa vann hann til þrennra gullverðlauna og tvennra silfurverðlauna. Fyrsta met- ið setti Örn á laugardag í 100 m skrið- sundi þar sem hann varð fyrstur á 51,45 sekúndum. Gamla metið átti Magnús Már Ólafsson, 51,62 sekúnd- ur, sett á Evr- ópumeistaramótinu i Aþenu. í 50 m flugsundinu varð Örn í 2. sæti á nýju íslandsmeti, 25,15 sekúndum, en gamla metið átti Friðfinnur Kristinsson, 25,38 sekúndur. Annað gull Arnar kom í 200 m baksundi þar sem hann synti á 2:02,28 mínútum en en til saman- burðar synti hann á 1:58,99 mín- útum á Ólympíuleikunum í Sydney. í gær hélt Örn uppteknum hætti. Hann varð í 1. sæti í 100 m baksundi á 56,46 sekúndum og bætti eigið met frá Moskvu 1999, og í öðru sæti í 50 m skriðsundi, á 23,59 sekúndum, og bætti með þvi met Ríkarðs Ríkarðssonar frá EM fyrra sumar um 0,20 sek- úndur. Orn Arnarson Unglingarnir í góöum gír Unglingalandslið íslands keppti einnig á mótinu og stóð sig vel, krækti í þrjú gull, þrjú silfur og tvö brons. Á laugardag varð Jón Oddur Sigurðsson í 1. sæti í 100 m bringusundi á 1:06,72 mínútum, Hjörtur Reynis- son í 2. sæti í 200 m flugsundi á 2:12,36 mínútum og Berglind Bárðardóttir i 2. sæti í 200 m bringusundi á tímanum 2:40,85 mínútur. Þess má geta að Berg- lind Ósk Bárðardóttir náði lág- marki á Evrópumeistaramót unglinga með tíma sínum. Sunnudagurinn var ungling- unum einnig góður. Heiðar Ingi Marinósson varð í 1. sæti í 50 m skriðsundi á 24,59 sekúndum en í undanrásum í gærmorgun setti hann nýtt piltamet í greininni á timanum 24,42 sekúndur. Hjört- ur Már krækti í 1. sæti í 100 m flugsundi á tímanum 57,79 sek- úndur og var aðeins 16/100 úr sekúndu frá piltameti sínu. Jón Oddur náði í önnur verð- laun sín þegar hann varð í 2. sæti í 50 m bringusundi á tíman- um 30,19 sekúndur og þau þriðju þegar hann náöi 3. sæti í 200 m bringusundi með tímann 2:27,80 mínútur. Berglind Ósk varð síð- an í 3. sæti í 100 m bringusundi á 1:17,02 mínútum. Þá varð boðsundssveitin í 8x50 m blönduðu boðsundi í 3. sæti. -ÓK Bara fluga í sumar í Flekkudalsánni „Við ætlum að reyna að hjálpa ánni aðeins því veiðin hefur minnkaö síðustu árin og við munum því eingöngu leyfa flugu. Maðkurinn getur verið sterkur til að byrja með og veiðir oft vel þá fiska sem koma snemma," sagði Jón Ingi Ragnarsson, einn af leigutökum Flekkudalsár á Fellsströnd, í samtali við DV-Sport. Þeim fjölgar dag frá degi, laxveiðiánum, þar sem flugan er eingöngu leyfð og ekkert annað. „Við gerðum þetta auðvitað í fullu samráði við bændur. Það hefur gengið vel að selja veiðileyfl hjá okkar og við eigum ekki eftir nema fá holl, enda mik- ið sömu veiðimennimir sem renna hjá okkur ár eft- ir ár, þó auðvitað komi alltaf nýir líka í hópinn,“ sagði Jón Ingi að lokum. -G.Bender Þaö voru margir sem kíktu í heimsókn þegar Sportvörugerðin flutti í Skipholtið, en á myndinni ræðir Ásgeir Halldórsson framkvæmdastjóri við Þorstein Ólafs, stjórnarmann í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, og eiginkonu hans, Láru Kristjánsdóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.