Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001
31
Sport
DV
„Þetta er fyrsti aðalfundur Félags
hrossabænda þar sem málefni eru ofar
erjum,“ segir Kristinn Guónason, for-
maður félagsins, um síðasta aðalfund-
inn sem var haldinn í síðustu viku.
„Mikið var rætt um sæðingar og sam-
þykkt að hvetja opinbera aðila til að efla
rannsóknir á fósturvísum og djúpfryst-
ingu stóðhestasæðis. Einnig var sam-
þykkt að kanna áhrif útflutnings á sæði
á markaðinn," segir Kristinn.
Hestamannafélögin Faxi i Borgarfirði
og Grani á Hvanneyri héldu hestamót
síðastliðinn laugardag í tengslum við
Skeifukeppni Morgunblaðsins. Rúmlega
fjörutíu knapar voru þátttakendur. 1 A-
flokki sigraði Jóliann Þorsteinsson
(Grani) á Gunnvöru frá Miðsitju en
hann er að kenna við hrossabrautina á
Hvanneyri. í B-flokki sigraði Ólafur
Þórisson (Grana) á Stjörnufáki frá
Miðkoti, í barnaflokki Björgvin Fjeld-
sted á Stjörnufákifrá Þorkelshóli og í
unglingaflokki Elisabet Fjeldsted á
Mjöll frá Skáney. I Skeifukeppni Morg-
unblaðsins sigraði Erlendur Ingvars-
son á Kjarki frá Skarði og fyrir best
hirta hrossið fékk Oddný Steina Vals-
dóttir Eiðfaxaverðlaunin á Þrœtu frá
Úthlíö. Ásetuverðlaun FT fékk Mar-
grét Friðriksdóttir á Gul frá Hrafn-
kelsstöðum.
Punktamót Smára var haldið í Torfdal
við Flúðir um helgina. Keppendur voru
um þrjátíu. 1 töltkeppni fullorðinna
sigraði Ása M. Ásgeirsdóttir á Gretti
frá Hólmi. í ungknapaflokki sigraði
Guðriður E. Þórarinsdóttir á Funa
frá Gunnarsholti og vetrargæðingur
Smára var valinn Sunna frá Vorsabte
sem Unnur L. Schram sýndi.
Á vetrarmóti Sleipnis á Selfossi sigraði
Ástgeir Sigmarsson á Fáki frá Hárlaugs-
stöðum, i unglingaflokki Kristinn Lofts-
son, í áhugamannaflokki Haraldur
Arngrimsson á Sindra frá Selfossi, i
atvtnnumannailokki Hrafnkell Guðna-
son á Fjalarifrá Glóru og í 150 metra
skeiði Páll B. Hólmarsson á Frosta
frá Fossum í miklu siabbi á 15,0 sek.
Steinn Skúlason sigraði í unghrossa-
keppninni á Lindfrá Ármóti.
Eftir að stigakeppni framhaldsskól-
anna lauk, þar sem Ármúlaskóli sigraði
annað árið í röð, tók við keppni ein-
staklinga. Karen Líndal Marteinsdótt-
ir og Manni frá Leirárgörðum gerðu
sér lítiö fyrir og sigruðu í tölti, fjórgangi
og íslenskri tvíkeppni og voru auk þess
valin glæsilegasta parið. Einnig var
Karen stigahæst. Davíð Matthiasson
sigraði í fimmgangi á Trallafrá Kjart-
ansstöóum og Sigurður St. Pálsson í
skeiði gegnum höllina með fljótandi
starti. Sigurður var á Eldi frá Valla-
nesi og fór sprettinn á 5,806 sek.
- viö konurnar á kvennatöltmóti Kvennadeildar Gusts í Kópavogi og Eiðfaxa
Kvennatöltmót KvennadeMar
Gusts i Kópavogi og Eiðfaxa er kom-
ið til að vera ef marka má móttök-
urnar á fyrsta mótinu í reiðhöllinni
í Kópavogi síðastliðið laugardags-
kvöld.
72 kvenknapar voru skráðir til
leiks í tveimur flokkum og komu
víða af landinu. Konurnar nutu þess
að láta karlana dúlla við sig. „Stytta
í ístöðunum, góði“ og fleira í þeim
dúr. Ekkert var gefið eftir í úrslit-
um, keppni var geysihörð og voru
bráðabanar algengir.
I áhugakvennaflokki voru And-
varakonurnar Oddrún Sigurðardótt-
ir á Náttfara frá Egilsstöðum og
Gréta Boða á Kolgrímu frá Ketils-
stöðum í efstu sætunum. Örmjótt
var á mununum en Oddrún hafði
sigur. Gréta kom upp úr B-úrslitum
og hreppti annað sætið. í þriðja sæti
var Hulda G. Geirsdóttir (Gusti) á
Dimmu frá Skagaströnd, í fjórða
sæti Þórunn Eyvindsdóttir (Fáki) á
Gæfu frá Keldnakoti, í fimmta sæti
Freyja Þorvaldsdóttir (Gusti) á Kópi
frá Reykjavík og í sjötta sæti Vigdís
Gunnarsdóttir (Snæfellingi) á Jarl-
hettu frá Neðra-Ási.
Birgitta vann
í atvinnukvennaflokki sigraði
Birgitta Kristinsdóttir (Gusti) á
Birtu frá Hvolsvelli, Fríða H. Stein-
arsdóttir (Fáki) var i öðru sæti á
Húna frá Torfunesi, Marjolyn
Tiepen (Geysi) í þriðja sæti á Gyrði
frá Skarði, Sylvía Sigurbjörnsdóttir
(Fáki) í fjórða sæti á Garpi frá
Krossi, Edda R. Ragnarsdóttir
(Fáki) í fimmta sæti á Gyðju frá
Syðra-Fjalli og Ásta D. Bjarnadóttir
(Gusti) í sjötta sæti á Eldi frá Hóli.
-EJ
Skemmtun og tilþrif
Grimutöltmót, sem haldið var i
reiðhöUinni á Hólum síðastliðið
föstudagskvöld, tókst vel og var
töluverður fjöldi fólks mættur til að
fylgjast með. Stemning var mikil og
skemmtileg tilþrif i reiðhöllinni.
Keppt var i einum flokki og sigraði
Heimir Gunnarsson á Trausti frá
Akureyri. Anton Níelsson var annar
á Þotu frá Hólum og Aníta M.
Aradóttir þriðja á Sunnu frá
Reykjum. Eysteinn Steingrímsson
hlaut hin eftirsóttu tilþrifaverðlaun
og Gróa Sturludóttir var verðlaunuð
fyrir besta búninginn.
Hekla vann
Á þriðja og síðasta vetrarmóti
Geysis sigraði í barnaflokki Hekla
K. Kristinsdóttir á Töru frá Lækjar-
botnum en hún sigraði einnig sam-
anlagt á mótunum þremur. í
unglingaflokki sigraði Laufey G.
Guðnadóttir á Gnótt frá Höfða-
brekku en samanlagt Jóhanna
Magnúsdóttir á Ófeigi frá Reykja-
vík. í áhugamannaflokki sigraði
Heiðar Þormarsson á Skeggja frá
Búlandi en samanlagt Björg Svav-
arsdóttir á Gullmola frá Bólstað. í
atvinnumannaflokki sigraði Erling-
ur Erlingsson á Fold frá Grindavík
en samanlagt Kristjón Kristjánsson
á Mirru frá Gunnarsholti. í ung-
hrossaflokki sigraði Naty Zimmer á
Von frá Árbæ.
/ apríl verða stóðhestasýningar á
þremur stöðum ef veður verður gott og
þátttaka nægileg. 20.-21. apríl verður
sýnt á Sauðárkróki, 26.-27. apríl á Gadd-
staðaflötum og 1.-2. maí í Víðidalnum í
Reykjavík. Stefnt er að því að bestu
stóðhestamir verði sýndir og kynntir ít-
arlega og með nýstárlegum og spenn-
andi hætti á árvissri sýningu í Reiðhöll-
inni í Reykjavík í maíbyrjun. Skráning
á þessar sýningar fer fram hjá BÍ í
síma 5630307/5630346. Gerð hefur verið
sú breyting á fyrirkomulagi kynbóta-
dóma að framvegis er umsjónarmönn-
um allra hrossa frjálst að koma með
hross sín í yfirlitssýningu en áður fyrr
gilti yfirleitt lágmarkseinkunn inn í yf-
irlitssýningu.
Gereon Wirnmer verður landsliðsein-
valdur Austurríkismanna á heims-
meistaramótinu í Austurríki í ágúst.
Harriet Loidl verður honum til aðstoð-
ar. Gereon er reyndur knapi og þjálfari.
Gin- og klaufaveiki hefur valdið mikl-
um usla í landbúnaði í Evrópu og nú
þegar hefur komið upp spurningin
hvort hægt verði að halda heimsmeist-
aramótin.
Fáksmenn héldu opið mót um helgina.
í nýhrossakeppni var keppt í Qórgangi
og fimmgangi, í tölti var keppt í fimm
flokkum, auk þess sem keppt var í gæð-
ingaskeiði. Mótið var haldið í samvinnu
við framkvæmdaraðila og þátttakendur
á alþjóðlegri dómararáðstefnu sem hald-
in var í Víðidal og dæmdu þeir mótið að
hluta. Skráningar voru 125. f fjórgangi
nýhrossa sigraði Friódóra Friðriks-
dóttir (Herði) á Trostanfrá Sandhóla-
ferju, í fimmgangi nýhrossa sigraði
Sigurður V. Matthiasson (Fáki) á
Qfeigi frá Tóftum, í töltflokki I sigraði
Sigvaldi Ægisson (Fáki) á Gylli frá
Engihlið, í töltflokki II sigraði Guðrún
E. Bragadóttir (Fáki) á Blökk frá
Syðra-Skörðugili, í töltflokki III sigr-
aði Sigrún Sveinbjörnsdóttir (Fáki) á
Hrefnufrá Ölfusholti, í tölti 19 ára og
yngri sigraði Bylgja Gauksdóttir (And-
vara) á Smelli frá Hrafnskelsstöðum, í
slaktaumatölti sigraði Sigurbjörn
Bárðarson (Fáki) á Hirtifrá Hjarðar-
haga og í gæðingaskeiði sigraði Sigur-
björn Bárðarson (Fáki) á Neista frá
Miðey. -EJ
Stofnað fyrirtæki
- um landsmót hestamanna, segir formaðurinn
Sífellt berast fréttir
af nýjungum innan
hestageirans. Þaö nýj-
asta er fyrirkomulag
landsmóta næstu árin.
„Við breyttum rekstar-
formi landsmótanna og
stofnuðum um það fyr-
irtækið Landsmót
hestamanna ehf.,“ segir
Jón A. Sigurbjörnsson,
formaður Landssam-
bands hestamannafé-
laganna.
„Það verður alltaf
sama fyrirtækið sem
heldur landsmót og eru
eigendur þess nú
Landssamband hesta-
mannafélaga og Bænda-
samtök íslands. Hugs-
anlega koma aðrir eig-
endur að því síðar. Fyr-
irtækið ber fjárhags-
lega ábyrgð á landsmót-
um og tryggir að allar
upplýsingar færist
milli staða og móta. Til
þessa hefur hver rekst-
araöili haldið sitt mót
og önnur félög tekið
við. Ráðin verður fram-
kvæmdanefnd í hvert
skipti og hefur nefnd
sem sér um landsmótið
á Vindheimamelum
2002 verið valin.
Framkvæmdanefnd-
ina skipa: Hjörtur Ein-
arsson, Anna Sif Ingi-
marsdóttir, Eyþór Ein-
arsson, Guðbjörg Guð-
mundsdóttir, Hinrik
Már Jónsson, Rafn Am-
björnsson og Stefán
Reynisson. Við verðum
að nýta þá velli sem
fyrir hendi eru og finna
rekstrargrundvöll fyrir
þá milli móta. Það þýð-
ir ekki að eyða tugum
eða hundruðum millj-
óna króna í velli ef þeir
eru ekki notaðir nema
örsjaldan.
Aðalvellimir nú eru
á Gaddstaðaflötum og í
Reykjavík á Suðurlandi
og á Melgerðismelum
og Vindheimamelum á
Noröurlandi en vissu-
lega koma Austurland
og Vesturland til greina
einnig. Stjórn Lands-
móts hestamanna ehf.
hefur verið skipuð og
er stjórnarformaður
Sveinbjöm Sveinbjörs-
son en hann er stjórn-
armaður í Landssam-
bandi hestamannafé-
laga. Hinir stjórnar-
mennirnir eru Sigur-
geir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bænda-
samtaka íslands, og
Pétur J. Eiríksson
framkvæmdastjóri
Flugleiða-Fraktar ehf.
Búið er að opna heima-
síðuna
www.landsmot.is,“ seg-
ir Jón Albert.
-EJ