Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 27 DV Sport Oddaleikur aö Varmá - eftir sigur Gróttu/KR á Aftureldingu i gær Grótta/KR knúði fram oddaleik gegn Aftureldingu í 8 liða úrslitum íslandsmótsins í handknattleik en liðið sigraði í annarri viðureign liðanna, 21-20, á Seltjamarnesi í gærkvöld. Það var allt annað Gróttu/KR-lið sem mætti til leiks í gærkvöld og greinilegt að ieikmenn höfðu tekið sig saman i andlitinu frá fyrsta leiknum. Það sem ööru fremur skóp sigur Seltirninga í þessum leik var frábær varnarleikur og þá alveg sérstaklega í fyrri hálfleik. Afturelding átti í hinu mesta basli með að finna smugu á vörn heimamanna sem skoruðu aðeins átta mörk í fyrri hálfleiknum. Sú staðreynd er athyglisverð að þrátt fyrir góða stöðu Gróttu/KR í fyrri hálfleik varði Hlynur Morthens markvörður fyrsta skot sitt þegar 20 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Aleksandrs Petersons fór fyrir Gróttu/KR-liðinu í fyrri hálfleik, skoraði þá öll sex mörkin í leiknum en í síðari hálfleik var hann tekinn úr umferð. Sóknin riðlaðist Leikmenn Aftureldingar ætluðu að gera allt sem i þeirra valdi stóð til að taka leikinn í sínar hendur í upphafí síðari hálfleiks. Auk Petersons var Hilmar Þórlindsson einnig klipptur út og sóknarleikur liðsins var riðlaðist um tíma en það lagaðist aftur. Um tíma var Grótta/KR með fimm marka forystu en gestirnir minnkuðu muninn í eitt mark og lokakaflinn var spennandi. Grótta/KR stóðst álagið en Afturelding fékk gullið tækifæri til að jafna metin en tókst ekki. Ef Grótta/KR leikur með sama • hætti í oddaleiknum á þriðjudagskvöld má búast við fjörugri viðureign. Hilmar Þórlindsson var mjög beittur hjá Gróttu/KR og Petersons var einnig öflugur. Eins og áður sagði var það geysilega öflugur varnarleikur sem færði Seltirningum þennan sigur. Það býr margt gott í liðinu og liðið hefur alla burði til að standa uppi í hárinu á Aftureldingu annað kvöld. Afturelding var ekki eins beitt í þessum leik og i þeim fyrsta og því fór sem fór. Vörnin var að standa fyrir sínu en sóknin varð liðinu að falli. Lykilmenn náðu sér ekki á strik í sókninni og munar um minna í þessari baráttu. Fjögur vítaköst fóru forgörðum og þau skiptu svo sannarlega máli þegar upp var staðið. Magnús Már Þórðarson línumaður lék að nýju með liðinu en hann var fjarri góðu gamni í fyrsta leiknum. „Það var eins og menn væru hræddir í fyrsta leiknum en voru staðráðnir að bæta fyrir það í þessum leik og það tókst bara bærilega. Menn voru ákveðnir í því að leggja sig fram og uppskeran var eftir því. Það skiptir öllu máli að menn hafi trú á því sem þeir eru gera. Getan er til staðar til að standa sig vel. Nú blasir við oddaleikurinn annaö kvöld og hann er allt eöa ekkert," sagði Ólafur Björn Lárusson, þjálfari Gróttu/KR, eftir leikinn á Nesinu í gærkvöld. Gestirnir slakir Afturelding og Grótta/KR mætt- ust í fyrsta leik sínum á föstu- dagskvöl á Varmá og unnu heima- menn nokkuð auðveldan sigur, 25-17. Yfirburðir Aftureldingar voru umtalsverðir allan leikinn en samt sem áður sýndi liðið ekki sinn besta leik. Mótspyrna Gróttu/KR var afar litil og þurftu heimamenn ekki mikið að hafa fyrir þessum sigri. Hilmar Þórlindsson var tek- inn stíft í sókninni og fyrir vikið stóð ekki steinn yfir steini í sóknar- leik Seltiminga og það kom sannast sagna mjög á óvart hvað Gróttu/KR- liðið var slakt í þessum leik. -JKS Markús Máni Michaelsson reynir hér línusendingu á þjálfara sinn, Geir Sveinsson, í sigurleik Valsmanna á Fram á Hlíöarenda í gær. Hjálmar Vilhjálmsson er til varnar. Valsmenn eru komnir ( undanúrslit eftir tvo sigra. DV-mynd E.ÓI. „Þetta eru vissulega vonbrigði en við vorum einfaldlega að spila við betra lið og í raun langbestu vörn á landinu í dag. Það er erfitt að skora hjá þeim og ég er ekki sammála því að þetta hafi verið neitt vandræðalegt hjá okkur. Þeir eru bara engum líkir. Við lögðum okkur allir fram og geröum allt sem viö gátum en það bara gekk ekki. Þeir voru einfaldlega sterkari," sagði Sebastian Alexandersson, markvöröur og fyrirliði Fram. „Rauöa spjaldið á þjálfarann var kapítuli út af fyrir sig og við munum láta heyra frá okkur á næstunni um dómgæsluna nú þegar tímabilið er búið hjá okkur. Við höfum gengið í gegnurn ótrúlegt mótlæti á þessu tímabili en það sem skiptir máli er að tímabilið í heild var gott. Við vorum mjög stöðugir en tímabilið fer einfaldlega í síðasta deildarleik þegar við heíðum getað orðið deildarmeistarar, fengið auðveldari andstæöing í 8 liða úrslitum og kannski verið komnir í undanúrsfit núna. Þá hefði verið allt önnur stemning í liðinu. Við erum á uppleiö, áttum góðan leik fyrir tveimur dögum en ég tek fulla ábyrgð á því tapi því þar var ég að spila minn versta leik á ferlinum og ég bið aUa afsökunar á frammistöðu minni í þeim leik, sérstaklega liðsfélaga mína. Ég vil meina að víð séum að skríða saman aflur núna og ef við ættum núna 2-3 leiki eftir værum aftur komnir á svipaöar slóðir og í byrjun mótsins.“ -HI Valsmenn eru komnir áfram í undanúrslit íslandsmótsins með fjögurra marka sigri á Fram, 24-20, á Hlíðarenda. Það sem gerði útslagið var frábær vöm með Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson og Sigfús Sigurðsson í fararbroddi og voru Framarar í bullandi vandræðum í sóknarleiknum allan tímann. Það var jafnræði framan af en Valsmenn náðu síöan smátt og smátt frumkvæðinu. 6-0 vöm Valsmanna var geysisterk og Framarar voru í miklum vandræðum. Sóknarleikur þeirra snerist fyrst og fremst um að Gunnar Berg Viktorsson næði sér á loft og skoraði og þó að það gengi nokkrum sinnum er ekki hægt að bera uppi sóknarleik eingöngu á því. Ekki bætti úr skák að Anatolí Fedioukine, þjálfari Fram, fékk rautt spjald í stöðunni 9-7 fyrir að mótmæla brottvisun kröftuglega og Framarar þurftu því að leika fjórir í tvær mínútur. Valsmenn komust í 11-7 þegar rúmar þrjár mínútur vora eftir af fyrri hálfleik en þá kom góður kafli hjá Fram. Sebastian hrökk í gang og varði oft snilldarlega og Framarar nýttu sér þaö með þvi aö skora fjögur mörk í röð, tvö í fyrri hálfleik og tvö i þeim síðari. En í stöðunni 13-13 hrökk allt í baklás hjá Fram aftur og ekki bætti það úr skák að þeir létu dómarana oft á tíðum fara í taugarnar á sér og þó að sá pirringur hafi stundum verið skiljanlegur eyddu þeir fullmiklu púöri í það. Valsmenn geröu sex mörk gegn einu á níu mínútum og eftir þaö var í raun aldrei spuming hvoram megin sigurinn lenti Framarar gáfust fljótlega upp og þó að reynt hefði verið að taka tvo úr umferð og síðan maður á mann vöm undir lokin var það meira gert af vilja en mætti. „Við höfum nú átt tvo mjög góða leiki. Fyrri leikurinn gaf okkur smábragð og við vorum staðráðnir í að klára þetta í kvöld. Við glötuöum forskoti i miðjum leiknum, misstum einbeitingu og gerðum nokkur klaufaleg mistök en það var mjög sterkt að koma til baka eftir það og þegar við vorum komnir með fjögurra marka forskot um miðjan hálfleikinn var ljóst hvert stefndi, Við ætlum okkur lengra í keppninni," sagði Júlíus Jónasson, fyrirliði Vals, eftir leikinn. „Við lögðum upp með að hafa gaman af þessu og þegar svona gengur eykst stemningin enn meira. Hún hefur veriö frábær frá því að það var ljóst að við myndum lenda í úrslitakeppninni og líka meðal áhorfenda. Mér líst vel á að mæta Haukum en það skiptir ekki miklu máli hverjum við mætum því ef við ætlum okkur alla leið verðum við að taka alla mótherjana." Sigfús Sigurðsson átti mjög góðan leik bæði í vöm og sókn, Geir og Júlíus báru frábæra vörn uppi og Valdimar, Roland og Daníel léku einnig vel. Sebastian varði vel í leiknum og Gunnar Berg átti góða spretti. Það hljóta að vera mikil vonbrigði fyrir liðið að falla svona snemma út en sóknarleikurinn hefur verið vandamál þeirra í vetur og þaö verða þeir að leysa fyrir næsta tímabil. Valdimar meö stórleik Valsmenn unnu fyrsta leikinn 20-26 í Framhúsinu á fóstudag. Fyrri hálfleikurinn i fyrstu rimmu Fram og Vals i Framheim- ilinu var í heildina nokkuð jafii. Framarar byrjuðu betur en þegar Valsmenn fundu svar við fram- liggjandi vöm þeirra tókst þeim aö taka frumkvæðið. Framarar náðu hins vegar að jafna með góðum endaspretti, sérstaklega hjá Vil- helm sem gerði þrjú síðustu mörk Fram í hálfleiknum, þar af það síö- asta beint úr aukakasti. Fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik voru í jámum og enduðu 11 af fyrstu 12 sóknunum með marki. Það voru þó Framarar sem sprungu þá á limminu, Valsmenn geröu fjögur mörk í röð og eftir það var sigurinn aldrei í hættu og Framarar misstu trúna á að þeir gætu náð þeim. Valdimar Grímsson átti stórleik fyrir Valsmenn og nýtti færi sín úr horninu vel. Sigfús var öflugur á línunni og Pedkevicius átti skemmtilega innkomu í markiö. Hjá Fram vora það helst Vilhelm Gauti og Hjálmar sem sýndu góö tilþrif en í heild virkaði liðið áhugalaust, baráttulaust og and- laust. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.