Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2001, Qupperneq 16
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 2001 t36 _ Söört dvsport@ff.is Islandsmeistaramót í listhlaupi á skautum: Sigurlaug sterk íslandsmeistaramót í listhlaupi á skautum fór fram í Skautahöllinni í Reykjavík um helgina. Keppendur á mótinu voru 31, allt stúlkur, og komu frá þremur félögum, Birninum, Skautafélagi Akureyrar og Skautafé- lagi Reykjavíkur. Keppt var í þremur flokkum á mótinu, novice, junior og senior. Á laugardag var keppt í styttri æfingum þar sem þarf að upp- fylla nokkrar skylduæfingar og í gær var keppt í lengri æfingum sem eru frjálsar æfmgar. Styttri æfingamar gildu 1/3 af lokaeinkunn og lengri æfingarnar 2/3. Mótið var glæsilegt og af fjölda keppenda að dæma er ljóst að mikill uppgangur er í íþrótt- inni um þessar mundir. Novice-flokkurinn, sem er nokkurs konar keppni lengra kominna byrjenda, var stærsti flokkurinn á mótinu en þar tóku 20 stúlkur þátt og voru margar ungar og efnilegar stúlkur á meðal þátttakenda, sannkallaðar skauta- drottningar framtíðar- innar. í þessum flokki mega keppendur vera 14 ára og yngri. Audrey Freyja Clark frá SA var efst eftir styttri æfing- arnar og þeirri forystu hélt hún seinni daginn líka og vann þvi Novice-flokkinn en þetta er í fyrsta skipti sem keppt er í honum á íslandsmeistaramóti. Hildur Ómars- dóttir úr SR var örugg með annað sætið á mótinu en öllum á óvart varð svo Kristín Helga Hafþórsdóttir SA í þriðja sæti en hún var í fimmta sæti eftir fyrri keppnisdag og vann sig upp um tvö sæti í lengri æfingunum og náði 3. sætinu. 1 junioraflokki mega þátttakendur vera á aldrinum 13-19 ára en þar þarf að gera erfiðari æftngar en í novice- flokknum. í þessum flokki var það systir hennar Audrey, Helga Margrét Clarke, sem vann, en hún var í fyrsta Sigurlaug Arnadóttir varö íslandsmeistari í listhiaupi á skautum um helgina. sæti eins og systir hennar eftir fyrri keppnisdag og var ákveðin í því að halda því sæti seinni daginn. „Ég kom alls ekki hingað með það i huga að sigra, ég vildi bara vera með og hafa gaman af þessu. En auðvitað breyttist allt eftir fyrri daginn og þá var ég staðráðin í að halda fyrsta sætinu. Ég þorði varla að horfa á hin- ar,“ sagði Helga. í öðru sæti varð Halla Karí Hjaltested úr SR en hún hafði sætaskipti við stöllu sina, Söru Helgadóttur, sem var önnur eftir fyrri keppnisdag en varð að sætta sig við 3. sætið í heildarkeppninni. Alltaf að veröa skemmtilegra í flokki seniora voru aðeins tveir keppendur, Sigurlaug Árnadóttir og Linda Viðarsdóttir, báðar úr SR. Þessar tvær stúlk- ur báru höfuð og herðar yfir aðra keppendur á mótinu, enda voru þær einu keppendurnir í seni- oraflokki en það er erfið- asti keppnisflokkurinn á mótinu. Þessar stúlkur hafa mikla keppnis- reynslu hér heima og er- lendis og voru æfingar þeirra allt í senn skemmtilegar, erfiðar og með mikið flæði. Nú, eins og undanfarin ár, var það Sigur- laug sem fór með sigur af hólmi. „Þetta er alltaf að verða skemmti- legra og skemmtilegra. Það eru alltaf að bætast fleiri iðkendur í hópinn og aðstaðan er allt önnur í dag en þegar ég var að byrja. Nú eru komin tvö yf- irbyggð hús á landinu og stefnir í það þriðja þannig að ég er bjartsýn á framtíðina,“ sagði Sigurlaug glöð og sæl með árangur sinn á mótinu. „Æf- ingatiminn er að visu oft erfiður," sagði hún einnig. Stúlkurnar mæta á æfingar klukkan 6 á morgnana, „en það venst eins og hvað annað," sagði Sigurlaug að lokum. -AIÞ Galdramaðurinn Galin gaf tóninn. Það má segja að Galin Raditchkov, besti leikmaður ÍS í úrslita- leiknum, hafi geftð tóninn um það sem koma skyldi þegar flautað var til leiks í Hagaskólanum á laugar- daginn, en ÍS tryggði sér íslandsmeistaratitilinn eftir 3-0 sigur á Þrótti. Hrinurnar enduðu 25-20, 25-21 og 25-23 en með sigrinum tryggði ÍS sér þrennuna annað árið í röð. Það var sama hvar gripið var niður I leikinn; yflrleitt var Galin sá leik- maður sem leikmenn Þróttar áttu ekkert svar við. Þeir réðu ekkert við skelli hans, hvorki úr fram- né afturlínu, og aðeins einu sinni tókst þeim að stöðva hann í há- vörninni. Sigur ÍS var sanngjarn þar sem flestir leikmenn Íiðsins lögðu lóð á vogar- skálamar. Davíð Búi Hall- dórsson var sterkur í sókninni og skilaði ágæt- lega og Óskar Hauksson, einn af minni spámönnun- um, kom verulega á óvart með góðum leik. Þess utan stjórnaði upp- spilarinn Martin Raditchkov leik ÍS mjög vel en enginn var þó betri en bróðir hans, Gaíin, sem sýndi og sannaði af hverju hann var valinn besti leik- maður vetrarins. Of mlklar væntingar „Við vorum kannski búnir að gera okkur of miklar væntingar fyrir leikinn. Við lögðum upp með það að pressa upp- gjaflmar stíft og gera ÍS erfttt fyrir í sókninni en það gekk ekki eftir þar sem móttakan hjá ÍS hélt allan leikinn. Þetta snerist hins vegar á móti okkur þar sem við klikkuðum á of mörgum uppgjöfum sjálfir. Sóknin hjá ÍS var sterk og liðið náði að vinna marga tvísýna bolta upp úr gólfinu og skora stig á okkur en þess utan áttu leikmenn ÍS mjög góðan dag og því fór sem fór,“ sagði Jón Árnason, þjálf- ari Þróttar, eftir leikinn, en hann lék með liðinu í fjölda ára. Lékum allir vel ,Ég átti von á því að fá meiri mótspyrnu frá Þrótti en við lékum allir mjög vel og þetta var langt frá því að vera eins og bik- arúrslitaleikurinn þar sem við náðum aldrei að sýna okkar rétta andlit. Við stjómuðum leiknum frá upphafi til enda og þeir bræður, Galin og Martin, vora náttúrlega í sérflokki hjá okkur og Is- mar var duglegur á miðj- unni og létti á kantsmöss- urum. Ég er samt ánægð- ur í dag þar sem við höf- um uppskorið ríkulega eftir mikla vinnu undan- farinna ára og þar sem allir leikmenn liðsins hafa lagt sig fram og fórnað einhverju til þess að ná árangri en það er einmitt lykilatriðið ef árangur á að nást,“ sagði Zdravko Demirey, þjálfari og leik- maður ÍS, en hann hefur leikið með liðinu síðan 1993 og fékk íslenskt rikis- fang í lok síðasta árs. A 'V> Aðalfundur Aðalfundur íslenskra aðalverktaka hf. verður haldinn þríðjudaginn 10. apríl n.k. á Grand Hótel Reykjavik, Sigtúni 38 og hefst fundurínn kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins 2. Tillaga um kaup félagsins á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga 3. Önnur mál, löglega upp borin Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofum félagsins á Keflavíkurflugvelli og að Suðurlandsbraut 24, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aógöngumiðar og fundargögn veróa afhent á fundarstað í fundarbyrjun. Stjórn íslenskra aðalverktaka hf. Mexíkómaðurinn Marco Antonio Barrera gerði sér lítiö fyrir og sigraði „Prinsinn" Naseem Hamed í fjaðurvigtarbardaga kappanna í Las Vegas á laugardag. Þessi fyrsti ósigur Bretans kom eftir 12 lotu bardaga og þurfti stigaskor dómara aö ráöa um úrslitin en engum duldist að Barrera stóö bet- ur að vígi, ekki einu sinni Hamed: „Hann boxaði betur en ég í kvöid og þannig var þaö.“ Barrera sótti nær allan bardagann og strax í fyrstu lotu rið- aði „Prinsinn" þrisvar en kom síöan örlítið til baka síðar í bardaganum en það var ekki nóg til að hrífa Mexíkóbúann. „Hann lemur ekki eins fast og hann heldur að hann geri,“ sagði Barrera í viötali eftir bardagann. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.