Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2001, Blaðsíða 3
ifókus Vikan 18. maí til 2 4, m a í 1±LL£l EFTIR VINNU J3 Ég Cr roCxJ ^ voncf^r $xétí/ fa S/ifnáu (tOtÍ'írnsr en* pxw 3 rv»tzitír 3t aríí3Vcísluniú On Qóð e,f / ktT77 /L /T** A£r* vtUðcu, y&ti ekkt Vjz-k# in vildi viö mælum meö „Undirbúningurinn hefur staöiö í um þaö bil ár,“ segir Messíana Tómasdóttir. „Síöasta lítil sýning sem ég notáöi til að prófa mig áfram.“ var í raun æfing fyrir þessa; Messíana Tómasdóttir opnar á morgun tvær sýningar í Hafnarborg. Báðar tengjast þær Ijósinu og hinu gegnsæja. • Loftkenndir tónar Skrifanlegum diskum Það er svo þægi- legt að geyma alls kyns gögn á geisla- d i s k u m . Gögn úr diskasafni vina sinna eða gögn um allsbert fólk af Inter- netinu, gögn sem taka of mikið rými á harða disknum. Að skrifa heilan geisladisk af tónlist er t.aan. mun ódýrara en að kaupa hann beint úr búð, hægt að sía frá allt krappið og fá þaö sem máli skiptir í æð. Biblíunni Biblían hefur allt sem góð met- sölubók þarf aö hafa til brunns að bera - hún er eins og góð íslend- ingasaga. Ættartölur, ástir og af- brýði, hólmgöngur og flotta dauð- daga, kryddað með vísum og speki. Best af öllu er að hetjan deyr og skiiur eftir margræðan endi fyrir lesendur. Menn eru enn að bíða eftir síðasta bindinu í tríiógíunni. Messíana Tómasdóttir hefur komið víða við í íslensku listallfl. Hún hefur haldið átta myndlistar- sýningar og hefur gert nær sextíu leikmyndir fyrir leikhús og sjón- varp, bæði hér á landi, í Danmörku, Færeyjum og Finnlandi. Hún hefur einnig flutt fyrirlestra um litafræði og brúðuleikhús víða um lönd. Sýningin í Hafnarborg er tví- skipt. Annars vegar er um að ræða plexískúlptúra í Sverrissal og hins vegar myndir, búninga, grímur og brúður úr barnaóperunni Skugga- leikhús Ófelíu. Plexískúlptúrarnir eru unnir á japanpappír og plexí- gler með akrúlitum. Launhelgi og gegnsæi í Sverrissal eru sýnd sjö verk undir heitinu Selló. „Ég leyfl mér á eigin sýningum að hafa hljóð líka,“ segir Messíana, „enda er þriðja verkið reyndar ekki skúlptúr heldur hljóðverk sem hljómar á meðan sýningargestir skoða hin verkin.“ Hún segist heilluð af hljóðfærinu. „Það er eitthvað við selióið; einhver launhelgi og gegnsæi. Það er eitt- hvað mystískt við sellótónana. Og mér þykir vænt um sellóið. Þrátt fyrir að hljóðfæriö virki þunglama- legt sjálft þá gefur það frá sér loft- kennda tóna. Þeir hljóma i gegnum mann.“ Ljósvaki í verkunum Messiana hefur unnið mikið með plexí og muna eflaust marg- ir eftir leikmynd hennar í leik- ritinu um Litla-Kláus og Stóra- Kláus sem sýnt var í Þjóðleik- húsinu fyrir fáum árum. „Ég hef fikrað mig áfram með notkun efnisins. Þetta er það stærsta í myndlistinni sem ég hef gert til þessa." Hvaö er þaö sem heillar þig vió plexíió? „Það er líkast til gegnsæi efn- isins og léttleiki. í plexíinu er hægt að tefla saman litum og gegnsæi. Ljósvaki er hugtak sem heillar mig. Ég reyni að höndla eitthvað eterískt, einhvern ljós- vaka með verkunum. í verkum mínum í Sverrissal stefni ég saman dagsljósi og rafmagns- ljósi.“ Messiana tekur undir það að vera kunni að sýningin Selló sé dálítið leikhúsleg. „Ég gerði þessi verk sérstak- lega fyrir þetta rými. Og þegar maður stendur inni i salnum er að sumu leyti eins og að vera staddur inni I leikmynd." „Eg stend í búferlaflutningum mestalla helg- ina, það er orðið svo helviti dýrt að búa í borginni að maður er að spá í að prófa að gerast dreifbýlismaður i sumar. Þó maður verði að flytja mestalla helgina og þetta sé nú ekki eins og best verður á kosið getur nú meira en verið að maður kíki eitthvað út á lífið með strákunum. Ætli við dettum ekki í hefðbundinn pakka, kíkjum eitthvað millifint út að éta í byrjun kvölds, rúll- um svo í eitthvert partí og svo bara bær- inn. Þá fer maður væntanlega þennan venjulega rúnt, Rex, Apótek, Skuggi og svo smá Sex on the Beach tjútt á Astró. Sunnu- dagurinn fer svo líklegast bara í aö klára flutningana og rólegheit heima fyrir.“ Þorgils Jónsson, háskólanemi og tónlistar- maöur. Nekt Það borgar sig greinilega að vera nakinn um þessar mundir, að minnsta kosti í Hafnarfirði. Herra Hafnarfjörður færði nokkrum nöktum viðskiptavinum jakkafot að gjöf. Það væri nú fint ef Skatt- stofan myndi efna til svipaðrar samkeppni og maður gæti hlaupið þangað inn á typpinu (eða píkunni) og fengið skattaafslátt fyrir vikið. Skuggar og Ijósverur Messíana sýnir í Apótekinu, við hlið Sverrissalar, ýmislegt úr barnaóper- imni Skuggaleikhús Ófelíu. „Ég hef um nokkurt skeið unnið að barnaóperu," segir Messíána. „Mér þótti upplagt aö sýna hluti úr henni núna. Öperan verður myndræn. Ég sem sjálf óperutextann sem er byggður á bók Michaels Ende, Skugga- leikhús Ófeliu. Ég las bókina fyrir nokkrum árum og heillaðist af henni. Núna er loksins útlit fyrir að ég geti sett verkiö upp. Frumsýningin verður væntanlega í íslensku óperunni í haust.“ Tónlistina í óperuna gerir Lárus Halldór Grímsson, söngvarar eru Sverrir Guðjónsson og Marta Halldórs- dóttir og Auður Bjarnadóttir gerir dansa. Það er Strengjaleikhúsið, litla leikhúsið hennar Messíönu sem setur verkiðupp. Á sýningunni í Hafnarborg eru sýndar frummyndir af skyggnum sem Messíana notar sem bakmyndir í óperunni, brúður, búningar og grimur. Tvær brúður eru Ófelía ung og gömul. Búningar og grímur tilheyra fimm skuggum sem breytast að lokum í ljós- verur. Betri en sú síðasta Sýning Messíönu hefur verið lengi í undirbúningi. „Undirbúningurinn hefur staðið í um það bil ár. Síðasta sýning min, í Stöðlakoti, var í raun æfmg fyrir þessa; litil sýning sem ég notaði tii að prófa mig áfram.“ Og er þessi sýning betri en sú fyrri? „Hún er beint framhald af henni." Sýning Messíönu stendur til þriðja júní. y \ \ 4 l Hvar í fjandanum fær maður diet-viskí?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.