Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2001, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2001, Blaðsíða 11
I Ifókus Vikan 18.maí til 24. maí .3-.I.I..3-...if^ii.......&.......Fii.il. itr..I.T.B L-J-.hL.fcL 19 Tónlist sem runnin er undan harsdar- krikum rauðhálsa frá syðri Banda ríkjunum hljómar ekki eins og góð for- múla að vinsælli afþreyingu. Samt er það nú svo að fjöldi fólks grætur ekki að hengja mójóið um hálsinn og herða kúrekastígvélin til að línudansa við kán- trímúsík. Sönnun þess er Kántríhátíðin sem nú stendur yfir á Broadway og skartar meðal annarra dívunni Önnu Vilhjálmsdóttur. Ekki bara köntrí heldur líka vestern „Það er nú bara mikill heiður að fá að syngja með þessu unga fólki af því að þetta eru þvílíkir listamenn. Það lá nú bara við að ég færi heim að lúlla þegar ég heyrði fyrst í þeim en maður reynir frekar að læra af þeim.“ Þær eru vissulega margar lagvísar og fagrar drottningarnar sem troða upp á Kántríhátíð Broad- way, í hver annarri þrengri galla- buxum. En engin þeirra kemst með tærnar þar sem Anná' Vilhjálms- dóttir hefur sporana hvað frama varðar í kántríbransanum. Segja má að Anna sé drottningarmóðir ís- lenskrar sveitatónlistar og hún hrærir enn í pottunum eftir þrjátíu ára afkastamikla viðveru enda seg- ir hún kántríið aldrei hafa verið jafn vinsælt. Hnattvæðing Hall- björnsins „Dagskráin er mjög fjölbreytt," segir Anna. „Það eru bæði sungin gömlu góðu lögin og líka lög eftir nýrri listamenn eins og Shaniu Twain og Leanne Rimes, auk nokk- urra íslenskra laga.“ Með Önnu á sviðinu verða margir góðir kántrí- barkar. Konungur krampans með brosið frá Svalbarða, Geirmundur Valtýsson, treður upp. Einnig tveir aðrir konung- bornir kántríkappar sem skipt hafa með sér land- svæðum og kvenhylli, Viðar Jónsson að sunnan og Hallbjörn Hjartarson að norðan. „Hallbjörn er sérstakur heiðursgestur og við viljum gjarnan hylla hann með þessari hátíð,“ útskýrir Anna. Tímasetningin er vel við hæfi nú þegar Hallbjörn er orðinn sveitamaður á landsvísu, með einkaút- varpsstöð sem fangar hlustir meirihluta lands- manna og eina vinsælustu útihátíð síðasta sumars. Með þessu áframhaldi verður Hallbjörninn lík- lega hnattvæddur innan skamms og gerður skerfari heimsþorpsins. Anna segir hann hafa átt mikinn þátt í uppgangi kántrítónlistarinnar hérlendis en neyðist til að játa á sig þá synd að hafa ekki komið í heimsókn til Hallbjörns í Kántrýbæinn. Hún hyggst bæta ráð sitt með sumrinu. Að sögn Önnu tekur kántríið ekki tillit til aldurs og nokkrir söngvar- ar af ungu kynslóöinni taka þátt. Þriggja stiga júróvisjónfarinn Kristján Gíslason er þar í broddi fylkingar með Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur, Hjördísi Elínu Lárus- dóttur og Ragnheiði Hauksdóttur sér við hlið. Vildi ekki útlitsbreyting- ar Sjálf er Anna bæði vel sjóuð í sveitasælumúsíkinni og sigld. Hún fékk fyrst að bragða á henni þegar hún kveikti á Kanasjónvarpinu í æsku. Söngferilinn hófhún líka hjá Kananum á Keflavikurvelli í upp- hafi áttunda áratugarins og söng sig inn í eyru og eitla dátanna. Hún var ekki búin að fá nóg af USA og hélt vestur um haf. Árið 1973 vann hún söngkeppni i Maine-fylki og söng lagið Stand by Your Man inn á plötu. Fyrr en varði var plötuút- gáfan MGM búin að beina sjónum sínum að stúlkunni og vildi bjóða henni samning. „Samningurinn átti að gilda til 50 ára en ég guggnaði og fór heim. Það átti að breyta mér heilmikið í útliti og ég var ekki til- búin að fórna svo miklu," segir Anna og bendir á að hún sé ekki eins norræn i útliti og ætlast var til. Þó Anna sé enn létt á fæti verða með henni og hinum söngvurunum línudansarar undir stjórn Jóhanns Arnar danskennara. „Þetta er dúndursýning og ég á von á að næstu skipti verði jafn vel sótt og tvö síðustu," segir Anna að lokum. Okeypis smáauglýsingar! ►I Gefins alltaf á miðvikudögum ►I Tapað - fundið -alltaf á þriðjudögum Smáauglýsingar 550 5000 Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍV.ÍS nýtt í b í ó Regnboginn er í sumarskapi og frumsýnir sumar-unglingamyndina Get Over It Gella græðir ástarsorg Það er ekki að því að spyrja. Sumarið er í nánd og þá rennur upp tími unglingamyndanna, ástir og örlög og hvað-það-allt-heitir, unglinga. í stuttu máli, myndir um unglinga fyrir unglinga, á öllum aldri. Ein af þessum toga er Get Over It. Sagan er í stuttu máli um það að Berke Landers nokkur er á föstu með Allison, stelpunni sem hann hefur verið skotinn í síðan þau voru komabörn. Hann sér fram á bjarta framtíð með blóm í haga og beljur á beit. Allt þangaö til Alli- son dömpar honum fyrir annan. Ó kvöl og pína. Ástarsorg unglings- stráka er átakanleg, reyndar karl- manna yfirleitt, og vinir Berke sjá engin ráð til að ná honum upp úr þessu. Þá kemur Kelly til sögunn- ar, yngri systir besta vinar Berke. Kirsten Dunst fer með annað að- alhlutverkið í myndinni. Það þarf í sjálfu sér ekki að kynna stúlk- una. Hún sló svo rækilega í gegn í Viðtali við vampíru þar sem hún lék óseðjandi ungvampíru með miklum glæsibrag. Nú er hún hins vegar vaxin úr grasi og vel það þar sem leikhæfileikar hennar einir þurfa ekki einu sinni að vera aðal- ástæðan fyrir því að ungir karl- menn kíkja í kvikmyndahús, eitt- hvað sem sást best í Bring It On. Berke er leikinn af Ben Foster sem er að mestu óþekktur leikari. Glamúr hipphopparinn Sisqó læt- ur ljós sitt skína í fyrsta skipti á hvíta tjaldinu. Síðast en ekki síst birtist svo Martin Short sem ófáir hafa hlegið yfir í myndum eins og Three Amigos og Inner Space, auk kynbombunnar Carmen Electra. Leikstjóri myndarinnar er Tommy O’Haver sem á eina bíómynd i fullri lengd á ferilsskránni, Billy’s Hollywood Screen Kiss. Gcður bíUtjcri 4 j er dlltalj í j i gcðum gir Eins og þú vilt að hinir aki skalt þú og sjálfur aka ’ UMFERÐAR -- RAÐ www urnferd.is .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.