Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001 Fréttir I»V Hekla kallar inn hundruð Pajerobíla til sérstakrar skoðunar á stýrisarmi: Stýrið allt í einu úr sambandi - ekki galli heldur einhvers konar tæring, segir framkvæmdastjóri þjónustusviðs Heklu hf. „Maöurgæti sætt sig viö aö nánast allt annaö en að stýriö bili í bíl, því líf getur legið viö ef þaö gefur sig, “ sagði Kristján L. Möller alþingismaöur. „Það er gott að heyra, þá er til- ganginum náð,“ sagði Kristján L. Möller, þingmaður á Siglufirði, og fagnaði því að Hekla hf. hefði ákveð- ið að kalla inn nokkur hundruð bíla til sérstakrar skoðunar. Þegar Pajero-jeppi Kristjáns varð allt í einu stjórnlaus núna í vor vegna þess að stýrið fór úr sambandi var það lán í óláni að þetta gerðist á besta stað sem hugsast gat; á sléttu bílastæði. „Já, manni hrýs hugur við ef þetta hefði gerst einhvers staðar í keyrslu. En daginn eftir haföi fjölskyldan öll ætlað að aka suður í þessum bíl, sem síðustu tvö árin hefur verið langmest notaður til að þeysa hér á milli Siglufjarðar og Reykjavíkur," sagði Kristján L. Möller, alþingismaður á Siglufirði. Áður hafði hann ekki fundið neitt að stýri bílsins. Ekki aðvaraður í ljós kom að pittmanarmur í stýri hafði farið í sundur og stýrið þar með úr sambandi. Kristján fékk nýjan arm og fór með þann brotna til Heklu hf. sem að hans ósk var síðan farið með í Iðntæknistofnun til skoðunar. Krist- jáni var þó ekki alveg rótt, ekki síst eftir að hann í síðustu viku hitti tvo aðra Pajero-eigendur á Norður- og Austurlandi sem höfðu af svipaðri reynslu að segja. Slíkt gæti tæpast verið hrein tilviljun heldur hlyti að vera um galla að ræða í þessari bíl- tegund - og hann mjög alvarlegan. Kristján, sem fór með bílinn í sér- staka skoðun hjá Heklu í síðustu viku, tjáði mönnum þar óánægju sína yfir að umboðið hefði mánuðum sam- an setið á vitneskju um samsvarandi atvik án þess að hann og aðrir væru varaðir við. Hent í 5 bílum hér í ljósi skýrslu Iðntæknistofnunar hefur Hekla hf. í samráði við Mitsu- bishi í Japan ákveðið að kalla inn til skoðunar ákveðna Mitsubishi Pajero bOa framleidda á árunum 1994-1997 ásamt einhverjum gerðum af Mitsubis- hi L-200. „Þetta hefur bara hent í fáum bílum. Við vitum um 5 bíla hér á landi og hlutfallið á heimsvísu er mjög lágt,“ svaraði Jón Trausti Ólafsson, fram- kvæmdastjóri þjónustusviðs Heklu hf., sem bendir á að allir hlutir geti bilað. Enginn galli en... „í raun og veru hefur enginn galli komið fram, hvorki í skýrslu Iðn- tæknistofnunar né í rannsóknum framleiðenda. Hins vegar kemur fram einhvers konar tæring í arm- inum sem í rauninni er ómögulegt að segja af hverju er. Við erum að fá þá hluti sem um er að ræða og mun- um skipta um þá í þeim bílum sem þörf reynist á. Þetta ætti að geta gengið hratt fyrir sig.“ Jón Trausti segir arminn bara brotna við veru- legt átak og í bílum sem hafa verið keyrðir eina 100-150 þús. km og framleiddir á ákveðnum tímabilum. Þannig sé hægt að einskorða þetta við ákveðinn fjölda bíla, kannski í kringum 300 hér á landi. Kristján telur ákaflega mikilvægt að þessir bilar verði skoðaðir sem allra fyrst. -HEI Lausnir á f járhagsvanda íþróttafélaganna á Akureyri: Félögin sjá um 66 mil|jóna króna langtímaskuldir Stóru íþróttafélögin þrjú á Akur- eyri, KA, Þór og Golíklúbburinn, eru skilin eftir með 66 milljóna króna lang- timaskuldir samkvæmt tillögum frá starfshópi um skuldir íþróttafélaganna í bænum sem kynntar hafa verið í bæj- arráði. Þótt því verði ekki á móti mælt að bæjaryfirvöld komi nú hressilega til aðstoðar félögunum hafa margir áhyggjur af því að þau muni ekki ráða við það sem eftir er skilið og málin þokist smátt og smátt í sama farið aft- ur. Langtímaskuldir Golfklúbbsins verða samkvæmt tillögum starfshóps- ins 17 milljónir, hjá Þór 20 milljónir og hjá KA 29 milljónir. Akureyrarbær Niðurgreiðslur til Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að auka veru- lega niðurgreiðslur vegna dvalar bama hjá dagmæðrum í bænum. Nið- urgreiðslur hafa ekki verið í sama mæli á Akureyri og í sumum sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ásgeir Magnússon, formaður bæj- arráðs, segir að nú verði greidd niður dvöl barna hjá dagmæðrum frá eins kaupir eignir af félögunum þremur fyrir 145 milljónir króna og bætir á annan hátt verulega rekstrarumhverfí þeirra, t.d. með auknum rekstrarfram- lögum. „Við erum í sjálfu sér ekki í neinni aðstöðu til að vera með yflrlýsingar um óánægju og ég tel t.d. að auknir rekstrarstyrkir, sem lagðir em til, eigi eftir að breyta rekstrarunhverfl deilda hjá okkur. Það er hins vegar of mikið að mínu mati að skilja félagið eftir með 20 milljóna króna langtímalán," segir Jón Heiðar Ámason, formaður Þórs. Hann segir að árið 1997, þegar gerð árs aldri. „í raun og veru erum við að gera miklu betur ef horft er á málið í heild sinni. Dagheimilisþjónustan á Akureyri er miklu betri en hún er í þeim bæjarfélögum sem verið er að miða við. Við erum t.d. ekki með neina biðlista eftir dagheimilisrým- um fyrir börn sem eru yngri en tveggja ára,“ segir Ásgeir. -gk voru skuldaskil hjá Þór, hafi félagið verið skilið eftir með 12 milljóna króna langtímaskuldir en að vísu hafl bæst við þá upphæð og skuldirnar hafl ver- ið um 28 milljónir króna. Síðan þá, tO ársins 2000, hafi um 75% af skulda- aukningu félagsins verið vegna fjár- námskostnaðar eða um 10,4 milljónir króna. „Ég sé enga breytingu frá árinu 1997 sem segir að við séum betur í stakk búnir núna til að takast á við skuldir og það er mitt mat að 15 millj- ónir í langtímaskuldum nú hafl verið algjört hámark fyrir okkur en ekki 20 milljónir eins og nú er lagt til,“ segir Jón Heiðar. „Ég get ekki annað en verið ánægð með þær tillögur sem starfshópurinn leggur fram en ég er skiljanlega ekki ánægð með þá stöðu sem félagið er í,“ segir Helga Steinunn Guðmundsdóttir, formaður KA. Akureyrarbær kemur til móts við KA með því að kaupa hlut félagsins í íþróttahúsinu og greiðir fyr- ir það 95 milljónir króna en KA fær einnig aðra aðstoð eins og hin félögin. Um það hvort ásættanlegt sé að fé- lagið sé skilið eftir með 29 milljóna króna langtímaskuldir segir hún að fé- lagið verði að ráða við þá upphæð, varðandi það sé ekkert val. „Ég er bara þakklát fyrir þá aðstoð sem ég fæ og við verðum bara að vinna úr því sem eftir er og standa okkur.“ Helga Steinunn segir að undanfarin þrjú ár hafi verið unnið að lausn á fjár- hagsvanda félagsins og ekki hafi nein leið verið sjáanleg önnur en að selja hlut félagsins í íþróttahúsinu. „Við eig- um þó eign fyrir þessari skuld og eftir stendur félagsheimilið sem við eigum skuldlaust. Við höfum aukið mjög að- hald með öllum rekstri félagsins og þannig ætlum við að standa okkur,“ segir Helga Steinunn. Önnur atriði í tillögum starfshóps- ins en þau sem snúa beint að fjármál- unum eru að skipaður verði samstarfs- hópur sem ætlað er að vinna tillögur um mun nánari samvinnu Þórs og KA en nú er. Þá er lagt til að félögin þrjú breyti lögum sínum þannig að ekki verði hægt að skuldsetja þau nema með samþykki aðalstjómar, sérstök Qárhagsráð verði sett á fót innan félag- anna. fþróttabandalag Akureyrar vinni að tillögum vegna reksturs íþróttaskóla ÍBA og verði þær tillögur lagðar fram ekki síðar en vorið 2002. -gk dagmæðra auknar Umsjón: Höröur Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Heimsmet Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, er sannar- lega óheppnasti maður íslandssög- unnar. í kjölfar. kolsvartrar | skýrslu stofnunar- innar um slæmt | ástand botnfisk- stofna við landið I hafa linnulausar I athugasemdir og I gagnrýni dunið á [ Jóhanni og fiski-1 fræðingum stofnunarinnar. Er ýms- um nóg boðið og meira að segja sá hæglætisdrengur, Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, telur ekki annað fært en krefla stofn- unina skýringa á hvað hafi gerst í allri uppbyggingunni undir 17 ára kvótastjórn. í heita pottinum þykir ljóst að Jóhann og hans menn séu komnir með heimsmet sem erfitt verði að jafna. Engum hafi áður tek- ist að týna 600 þúsund tonna þorsk- stofni á aðeins tveim árum... Vellíðan Björgvin G. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar, hefur á síðustu j dögum verið i læri hjá forvígis- mönnum Verka- mannaflokksins í Bretlandi, þar sem hann hefur fengið að fylgjast með kosningaundirbún- ingi þeirra. Gár- ungamir telja að vellíðan Björg- vins fari ekki með veggjum í landi Tonys Blairs og Gordons Browns, enda hefur sigurvissa vinstri manna sjaldan eða aldrei verið meiri i nokkru landi. Brosið mun vart hafa farið af Björgvini þar sem hann þeysist um í kosn- ingarútunum og er talið allsendis óvíst að hugur hans snúi aftur heim - þar sem ekkert tekur við nema baráttan við yflrburði ís- lenskra íhaldsmanna. Það er eng- inn spámaður í eigin föðurlandi... Hvað gerist í Eyjum? KR-ingar hafa verið fremur nið- urlútir það sem af er köldu sumri enda gengi þeirra í kanttspyrnu langt frá þeim væntingum og kröf- um sem gerðar eru í vesturbæn- um. Á laugardag sækja þeir Eyja- menn heim og þykir ljóst að þar muni framtíð Pét- urs Péturssonar, sem þjálfara ráð- ast. í heita pottin- um hafa veriö miklar vangaveltur um ástæður þess að hvorki gengur né rekur hjá þessu dýrasta liði landsins og eru skýringarnar marg- ar. Fáar leiðir virðast hins vegar út úr erfiðleikunum aðrar en þær að fyrir skömmu fjárfesti KR í 30 fótboltum fyrir meistaraflokk á 15 þúsund krónur stykkið. Nú bíða og sjá hvort fjárfestingin skili sér í Eyjum... Ekkert þarf að veiða Árni M. Mathiesen sjávarút- vegsráðherra taldi i fjölmiðlum, í kjölfar kolsvartrar skýrslu Hafró, að málið væri kannski ekki eins djöfullegt og það liti út í fyrstu. Þótt þorskurinn væri að mestu týndur væri þetta kannski ekki svo slæmt þvi við gengislækkun krónunnar fengist meira fyrir hvert kíló. Af þessu tilefni orti Ólafur Stefánsson á Syðri-Reykjum: Hugmynd Árni hefur fengið, hér komst þjóðin loks ifeitt. Ef að sígur áfram gengið, ekki þarf að veiða neitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.