Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Síða 11
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001
I>V
11
Hagsýni
Ráð fyrir þá sem
vilja koma sér
upp safnkassa
* Komið kassanum fyrir á skjól-
góðum stað og gætið þess að undir-
lagið sé gras eða möl svo að ána-
maðkar eigi greiða leið upp í kass-
ann.
* Aðgengi að kassanum þarf að
vera gott til að auðvelt sé að setja í
hann úrgang og einnig til að tæma
hann þegar jarðgerðinni er lokið.
* Setjið gróft efni eins og greinar
í botninn á kassanum til að auö-
velda loftun.
■k Best er að setja úrganginn í
lögum í kassann og gæta þess að
hafa sorpið eins fint og hægt er. Til
þess að ná lagskiptingu má setja
mold eða annan garðaúrgang á milli
laga.
•k Rotnunarhvatar geta hjálpað
til en þá má búast við að ánamöðk-
um fækki.
•k Loftun með reglulegu millibili
er forsenda þess að niðurbrotið
gangi vel fyrir sig. Loftunarstafir
sem reknir eru ofan í kassann eru
mjög gagnlegir til að auðvelda loft-
unina.
k Þegar matarleifar eru settar í
kassann er nauðsynlegt að hylja
þær svo að flugur komist ekki í
þær.
* Gott er að nota þurrt efni, eins
og kurl og þurr laufblöð, til að hylja
matarleifarnar og þurrka blautasta
úrganginn.
•k Jarðgerð tekur um 8-10 mán-
uði en það fer þó eftir aðstæðum.
-Kip
Trúlofunar-
hringir
Gott verð,
mikið úrval
im Sipunllssðii
Skartgripaverslun,
Laugavegi 5,sfmi 551 3383.
Spönginni.Grafarvogi, sími 577 1660.
einungis 40 aðilar hafa fengið vott-
un frá vottunarstofunni Túni. Um
er að ræða 30 bændur og 10 vinnslu-
fyrirtæki sem vinna úr hráefnum
og markaðssetja vöruna sem líf-
ræna. íslendingar eru langt á eftir
nánast öllum Evrópuþjóðum í þess-
um efnum, einungis eru 0,2% land-
búnaðarlands vottuð lífrænt en það
er oft notað sem mælikvarði á
hversu langt þjóðir eru komnar í
slikri framleiðslu. Ef tekið er meðal-
tal Evrópu sem heildar er hlutfallið
setja núverandi framleiðslu sem
vistvæna. Það hefur dregið úr sókn-
armöguleikum lifrænnar fram-
leiðslu, ruglað neytendur í ríminu
og gefið framleiðendum óraunhæfar
væntingar um virðisauka á vöruna.
í öðru lagi skortir mikla þekk-
ingu á hvað lífrænar vörur eru og
kostum lífrænnar framleiðslu fyrir
umhverfið, byggð í landinu, heilsu-
far og ekki síst fjárhag fyrirtækja og
framleiðenda. Þessi þekkingaskort-
ur nær líka til neytenda. íslenskir
Gunnar A. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Túns:
„Flestar þjóöir hafa markaö sér stefnu um aö styrkja og efla tífræna fram-
leiöslu á sínu svæöi en ekkert slíkt hefur veriö gert hér. “
Æ fleiri neytendur velja lifrænar
vörur þegar þess er kostur og er
framboð slíkra vara sifellt að
aukast. íslendingar eru þó mjög aft-
arlega á merinni í þessum efnum sé
miðað við aðrar Evrópuþjóðir. Líf-
rænar aðferðir eiga rætur sínar að
rekja til landbúnaðar þar sem þessi
þróun hófst en í dag ná aðferðirnar
yflr mun breiðara svið framleiðslu.
Þróaðar hafa verið aðferðir fyrir
mörg svið náttúrunytja og fram-
leiðslu náttúruafurða. Vegna mik-
illa breytinga hefur vottunarstofan
Tún gefið út nýjar reglur um líf-
ræna framleiðslu þar sem íslenskar
reglur hafa verið færðar til sam-
ræmis við alþjóðlega staðla og birt
eru ákvæði um lífrænar aðferðir í
ýmsum nýjum greinum. Vottunar-
stofan Tún er eina faggilta vottunar-
stofan fyrir þetta svið hér á landi og
fékk neytendasíðan Gunnar Á.
Gunnarsson framkvæmdastjóra til
að segja okkur frá því helsta sem er
að gerast í þessum málum hér.
íslendingar langt á eftir
„Lífræn framleiðsla er komin
mjög skammt á veg hér á landi en
11 sinnum hærra eða 2,2%. Ná-
grannaþjóðir okkar eru síðan miklu
hærri, t.d. er hlutfallið í Danmörku
6-7% og í Svíþjóð 11-12%. Flestar
þjóðir hafa markað sér stefnu um að
styrkja og efla lífræna framleiðslu á
sínu svæði en ekkert slíkt hefur
verið gert hér. Miklar breytingar
eru að eiga sér stað í Evrópusam-
bandinu, þar er verið að leggja drög
að stefnumörkun fyrir sambandið í
heild og hafa ráðherrar landbúnað-
armála í Bretlandi og Þýskalandi
tekið mjög djúpt í árinni um nauð-
syn þess að efla lífræna framleiðslu.
Hér á landi er ekkert sem heitið get-
ur fyrir slíka stefnumörkun enn
sem komið er.“
Þekkingarskortur ríkjandi
„Þrjár samhangandi ástæður eru
fyrir því að stefnumörkunin er
svona stutt á veg komin. í fyrsta
lagi er það hreinleikaímyndin sem
við höfum verið að þróa með okkur,
íslendingar virðast halda að hrein-
leiki landsins og núverandi fram-
leiðsluaðferðir nægi. Hluti af þeirri
hreinleikaímynd eru tilraunir ís-
lensks landbúnaðar til að markaðs-
Framboö lífrænna vara eykst
Þó flestir tengi lífræna framleiöslu viö hvers konar landbúnaöarvörur, eins og
t.d. grænmeti, ná lífrænu aöferöirnar yfir sífellt breiöara sviö framleiöslu.
Framboö þessara vara eykst því stööugt.
neytendur hafa enn sem komið ér
afskaplega takmarkaða þekkingu á
kostum lífrænnar framleiðslu. Þessi
þekkingarskortur nær líka til
stjórnsýslu og stjórnmálamanna.
í þriðja og síðasta lagi skortir hér
stuðning hins opinbera við lífræna
ræktun en nær allar Vestur-Evrópu-
þjóðir hafa komið sér upp ákveðinni
stefnumörkun um umhverfisgreiðsl-
ur til þeirra sem taka upp lífrænar
aðferðir fyrstu árin vegna þess hve
kostnaðarsamt það er að breyta úr
hefðbundnum aðferðum yfir í líf-
rænar.“
Breyttur hugsunarháttur
„Mjög mismunandi er eftir grein-
um hvort flókið sé að taka upp líf-
ræna framleiöslu en hún útheimtir
mikið önnur vinnubrögð og annan
hugsunarhátt en tíðkast í hefðbund-
inni framleiðslu. Miða þarf allt
starfið við þá kröfu að farið sé sem
best með umhverfið á öllum svið-
um, halda þarf vörunni aðgreindri
frá öðrum efnum og afurðum allt
þar til henni hefur verið pakkað i
neytendapakkningar. Á frumstigi
útheimtir þetta einnig breytta hugs-
un, fara þarf öðruvísi með landið og
búféð, svo dæmi séu nefnd. Fyrir
nýja aðila er þetta töluverður lær-
dómur en þó fer það eftir aðstæðum
á hverjum stað hversu langt menn
eiga í land með að uppfylla þessar
kröfur. Sums staðar hagar þannig
til í íslenskri framleiðslu að menn
þurfa ekki að stíga mjög mörg skref
til að uppfylla þær. Að því leyti eig-
um við íslendingar mjög mikla
möguleika á að ná langt á þessu
sviði miðað við aðrar þjóðir, en
erum samt langt á eftir.“ -ÓSB
Óboðinn gestur í eldhúsrúllu
Starfsmönnum margmiðlunarfyr-
irtækis hér í bæ brá í brún í fyrra-
dag þegar þeir voru að nota bréf af
eldhúsrúllu og í ljós kom að ekki var
einungis pappír í henni. í ljós kom
ókennilegt skorkvikindi sem greini-
lega hafði lent í pappírnum þegar
honum var rúllað upp í verksmiðj-
unni. Skordýrið hafði reynt að grafa
sig út úr rúllunni en gefist upp og
dáið eftir um það bil 2-3 cm leið. Um
er að ræða einhvers konar vespu
sem er um 2 cm á lengd og í aftur-
enda hennar má greinilega sjá sting
eða brodd. Éftir ítarlega leit blaða-
manna á skordýrasíðum Netsins
fannst þessi tegund, eða a.m.k. ein
sem er náskyld, og er um að ræða
svokallaða trjávespu sem lifir í skóg-
um og gerir sér holur í trjám.
Reyndi að grafa sig út
Eins og sjá má á myndinni hefur vespan reynt aö grafa sig út en „göngin“
eftir hana eru um 5 cm löng. Dýriö sjálft er tæpir 2 cm á lengd.
^0, Lífræn framleiðsla:
Islendingar aftar-
lega á merinni
- miðað við aðrar Evrópuþjóðir