Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2001, Síða 28
NISSAN ALMERA
www.ih.is
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú Sbendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ 2001
Norðurland:
Lömb drápust
í kuldakasti
Eitthvað var um að lömb dræpust
í Mývatnssveit í kuldakastinu sem
nú er gengið yfir. Linnulausa stór-
hríð gerði i sveitinni sem stóð yfir í
á annan sólarhring og segir Gylfi
Yngvason, bóndi á Skútustöðum, að
menn muni varla annað eins á þess-
um árstíma. „Þetta var einn versti
hvellur sem við höfum séð hér í
júní,“ sagði Gylfi í samtali við DV í
morgun.
Tvö lömb drápust á Skútustöðum
en Gylfi vill ekki fullyrða um orsak-
ir þess . Hann segir að á Skútustöð-
um hátti þannig til að vatnið hafi
gleypt mestan hluta skafrennings-
ins en víða annars staðar séu tölu-
verðar líkur á að fé hafi fennt. Óvíst
er þvi um afdrif hluta búQárstofns
Mývetninga.
Andavarp er ekki talið hafa skað-
ast að ráði, enda lítt farið af stað, en
öðru máli gegnir um aðra fugla.
„Það er búið að sjá fyrir mófuglun-
um en þeir verða bara að byrja upp
á nýtt,“ segir Gylfi.
Þá hefur DV spurnir af því að í
það minnsta fimm lömb og tvær ær
hafi drepist i Kelduhverfi. -BÞ
Landakort
drykkjumannsins
í Fókusi morgundagsins finnur
þú ítarlega úttekt á börum og
skemmtistöðum Reykjavíkur. Skoð-
að er verð á börunum og þeim gefn-
ar stjörnur eftir ágæti sínu. Hljóm-
sveitin Jagúar segir frá nýrri plötu
sinni, stuttmynd sem hún hefur gert
og væntanlegri hringferð um landið
og rætt er við Davíð Þór Jónsson
sem er að hætta sem ritstjóri tíma-
ritsins Bleikt og blátt. Ný teikni-
myndasaga litur dagsins ljós, sagt
er frá nýjustu viðbótinni í skyndi-
bitaflóru borgarinnar og í Lífinu eft-
ir vinnu færðu að vita allt um við-
burði helgarinnar.
DV-MYND GVA
Kjarabaráttusúpa
Þroskaþjálfar buöu upp á heita súpu viö Ráöhús Reykjavíkur í gær til aö vekja athygli á kjarabaráttu sinni.
Vaxandi kergja milli aðila vegna stækkunar Norðuráls:
Engin flýtimeð-
ferð er tiltæk
- útilokað að jarðhitinn geti knúið stækkun álversins
Alver Noröurals
Enginn flýtimeöferö til stækkunar er til.
Þorsteinn Hilmarsson,
upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar, segist ekki sjá að
hægt sé að flýta fyrir
stækkun Norðuráls miðað
við fyrri hugmyndir. Búist
er við að stækkun geti orð-
ið að veruleika árið 2004 en
forráðamenn Norðuráls
hafa sett vaxandi þrýsting á
stjórnvöld vegna málsins.
Heimildir DV herma að
vaxandi kergja sé milli að-
ila í málinu vegna þess að
stjórnvöld hafi „dregið
lappimar" eins og það var orðað af
kunnugum aðila.
i gærkvöld fór fram fundur milli
Landsvirkjunar og forráðamanna
Norðuráls um' málið og kom þar
fram ósk Norðurálsmanna um að
mál færu að skýrast. Hins vegar
stendur á að hægt sé að uppfylla
orkuþörfina. Þorsteinn segir að eina
raunhæfa leiðin til að geta haldið
tímamörk sé að byggja upp Búðar-
hálsvirkjun og Norðlingaölduveitu.
„Það hafa ekki komið fram neinar
aðrar raunhæfar leiðir. Jarðhiti hef-
ur verið neftidur en þetta
er það stórt í sniðum og
þarf að gerast á svo
skömmum tima að slíkar
hugmyndir eru ekki raun-
hæfar,“ segir Þorsteinn.
Hann bendir á að Lands-
virkjun eigi ekki mann í
viðræðunefnd ríkisins
gagnvart eigendum Norð-
uráls og segir það ráðu-
neytisins að svara fyrir
samskiptin almennt. Ekki
náðist í iðnaðarráðherra
vegna málsins i morgun en
í DV í dag kemur fram í viðtali við
utanríkisráðherra að hann telur
þörf Islendinga fyrir stóriðju sér-
staklega mikla sem stendur, ekki
sist í ljósi minnkandi aflaheimilda.
-BÞ
Sjá bls. 4
Heilbrigðisáætlun til ársins 2010:
20 tennur minnst
- í helmingi aldraðra
í heilbrigðisáætlun ríkisins sem
gildir til ársins 2010 er gert ráð fyr-
ir og að því stefnt að helmingur
landsmanna 65 ára og eldri verði
með minnst 20 tennur í biti.
„Markmiðið er að fólk haldi tönn-
unum lengur,“ segir Bolli Valgarðs-
son, framkvæmdastjóri Tannlækna-
félagsins. „Með þessu eru heil-
brigðsyfirvöld að sýna aö þau ætla
að einbeita sér i auknum mæli að
tannheilbrigði eldra fólks.“
Barátta heilbrigðisyfirvalda fyrir
Fallegar tennur
Prýöi og vellíðan þeirra sem vel hiröa.
bættri tannheilsu ungs fólks hefur
þegar skilað góðum árangri en eldra
fólk hefur setið á hakanum. Úr þvi
skal bætt með Heilbrigðisáætlun
2010.
Bætt tannheilsa þjóðarinnar hef-
ur leitt til aukinnar samkeppni
tannlækna um viðskiptavini og
vinna tannsmiða hefur dregist veru-
lega saman.
Eða eins og einn þeirra orðaði
það: „Innan tíðar verður leitun að
manni með góm.“ -EIR
Rey k j avíkurborg:
Þroskaþjálfar
bíða
- eftir atkvæðagreiðslu
„Það gerist ekkert fyrr en at-
kvæðagreiðslu um samning þroska-
þjálfa og sveitarfélaga er lokið,“
sagði Þóroddur Þórarinsson, vara-
formaður Þroskaþjálfafélags ís-
lands, við DV í morgun um stöðu
samningaviðræðna Þroskaþjálfara-
félagsins og Reykjavíkurborgar.
Samningur Þroskaþjálfafélagins
og launanefndar sveitarfélaga er til
kynningar og atkvæðagreiðslu í dag
og á morgun. Samninganefnd borg-
arinnar hefur boðist til að hækka
sitt tilboð að því leyti að hún býður
launanefndarsamning sveitarfélag-
anna óbreyttan. Sá samningur felur
m.a. í sér rúmlega 36 prósent hækk-
un á grunnlaunum strax, breytt
vinnufyrirkomulag þroskaþjálfa
sem vinna í skólum og flæðifyrir-
komulag sem gerir fólki auðveldara
að hækka milli flokka, auk þess sem
hækkunin verður meiri milli þrepa.
„Þroskaþjálfar geta náð sæmilegum
launatöflum þar,“ sagði Þóroddur.
Hann kvað þroskaþjálfa hjá borg-
inni biða niðurstöðu talningar um
sveitarfélagasamninginn.
Þroskaþjálfar hjá sjálfseignarstofn-
unum hafa samþykkt verkfall 15. júní
nk. og um helgina munu þroskaþjálf-
ar sem starfa hjá ríkinu greiða at-
kvæði um verkfallsheimild. JSS
Selfoss:
Mikiö slasaður
Dráttarvél og fólksbíll rákust
saman á Skálholtsvegi um hálfsex-
leytið í gærkvöld. Ökumaður bif-
reiðarinnar var að fara fram úr
dráttarvélinni þegar hún sveigði
skyndilega í veg fyrir hann. Að sögn
lögreglu á Selfossi slasaðist öku-
maður bílsins nokkuð og var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild Landspít-
alans í Fossvogi. Ökumaður dráttar-
vélarinnar og farþegi í bílnum
sluppu ómeiddir. Bíllinn er töluvert
skemmdur eftir áreksturinn. -aþ
Ævisaga Björgvins
„Þetta er eins konar
I ævisaga og unnin i
fullu samráði við við-
fangsefnið," segir Gisli
Rúnar Jónsson leikari
sem vinnur nú að því
I að rita sögu Björgvins
Halldórssonar, eins
ástsælasta söngvara
þjóðarinnar. „Upphaf-
lega áttu þetta bara að vera fleygar
sögur af kappanum en þróaðist í ann-
að og meira." Það er bókaútgáfan Ið-
unn sem gefur út ævisögu Björgvins
og er ráðgert að hún verði ein af jóla-
bókum þessa árs. „Vinnuheiti bókar-
innar er Bo Bedre en sá titill verður
að sjálfsögðu ekki notaður," segir
Gísli Rúnar Jónsson. -EIR
Björgvin
Halldórsson
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • simi 588 1560
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4