Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
Jóhann Óli Guðmundsson, umdeildur hluthafi í Lyfjaverslun íslands:
Náttúrlega skap-
mikill huldumaður
Fullt nafn: Jóhann Óli Guðmundsson • Fæðingarár: 1954
Hjúskaparstaða: Kvæntur Guðnýju Ólafsdóttur, fjögur börn
Menntun: Gagnfræðapróf • Starf: Athafnamaður • Búseta: Gíbraltar
Athafnamaðurinn Jóhann Óli
Guðmundsson hefur verið í fréttum
undanfarið vegna umsvifa sinna,
ekki síst þeim sem tengjast átökun-
um í stjóm Lyfjaverslunar íslands,
þar sem hann situr. Hann er um
margt sérstakur frumkvöðull. Byrj-
aði með tvær endur tómar á
menntaskólaárunum í eins manns
skrifstofu í húsi Egils Vilhjálmsson-
ar í Reykjavík. Skömmu síðar var
Jóhann búinn að gera öryggisþjón-
ustuna Securitas að stórveldi og síð-
ar hefur hann látið mikið að sér
kveða í viðskiptalifinu. M.a. hefur
hann tengst íslenska útvarpsfélag-
inu, Delta og Lyfjaverslun íslands.
Þá er hann fyrrverandi formaður
Víkings og vann þar brautryðjenda-
starf.
Björn Þorláksson
blaðamaður
Vinir og samstarfsmenn Jóhanns
segja hann beinlínis fjölmiðlafælinn
og því hefur fátt verið vitað eða rit-
að um hans innri mann. í ljósi þess
hve Jóhann hefur kosið að láta fara
lítið fyrir sér, kusu þeir nafnleynd á
„Hann labbaði út af Stöð
2 með mikinn hagnað og
stóð algjörlega uppréttur.
Auðvitað urðu þar átök
eins og oft verða þegar
Jón Ólafsson er annars
vegar en það er engin
spuming að ákvörðun
Jóhanns var hárrétt á
sínum tíma.“
bak við upplýsingarnar með þó
einni undantekningu. Hér á eftir fer
lausleg mynd af samtölum DV við
félaga Jóhanns.
Fyrst og fremst frumkvöðull
„Hann er frumkvöðull öðru frem-
ur - svokallaður self-made maður
upp á enska tungu - hefur skapað
sín örlög sjálfur. Hann er harður í
horn að taka þegar því er að skipta
og kappsfullur," segir Hallur Halls-
son, sem þekkt hefur Jóhann frá þvi
að þeir voru unglingar í Smáíbúða-
hverfinu.
Hallur segir Jóhann afskaplega
kappsaman og einbeittan í öllu því
sem hann taki sér fyrir hendur og
„náttúrlega skapmikinn" eins og
fylgi oft öflugum einstaklingum.
Þeir þurfi slík karaktereinkenni til
að geta látið mikið að sér kveða.
Hallur og Jóhann tengdust náið í
gegnum starf Víkings, enda báðir
fyrrverandi formenn. Jóhann lyfti
grettistaki þegar flutningurinn fór
fram úr Hæðargarði í Fossvogi í
Víkina og gerði að sögn Halls mjög
farsæla samninga við borgina sam-
hliða mikilli uppbyggingu félagsins.
Hætti í skóla
Upphaf velgengninnar má sem
fyrr segir rekja til hugmyndar Jó-
hanns um að sinna öflugri öryggis-
þjónustu. „Hann hefur ætið verið
maður stórra hugmynda og verið
ákaflega farsæll í allri ákvarðana-
töku. Það er athyglivert hve ein-
beittur hann er í því að ná mark-
miðum sínum fram. Hann er afar
næmur á viðskipti og tækifæri,"
segir Hallur.
Undir þetta taka fleiri og benda á
að Jóhann hafi verið á undan sínum
tíma. Fyrirtæki hans hafi farið inn
á nýjar brautir og hann hafi haft
sýn til að fylgja því eftir. „Það má
segja að hann sé holdgervingur am-
eríska draumsins. Þessi strákur
gekk með vasaljós um götur Reykja-
víkur og setti námið á hilluna á
meðan viö lukum menntaskólanum
og fórum hina hefðbundu leið,“ seg-
ir einn félaga hans.
Ekki drenaöur úr skóla
Jóhann lauk ekki menntaskóla og
„Það má segja að hann
sé holdgervingur amer-
íska draumsins. Þessi
strákur gekk með vasa-
Ijós um götur Reykjavík-
ur og setti námið á hill-
una á meðan við lukum
skólanum og fórum hina
hefðbundu leið.“
hefur ekki frekari skólagöngu á bak
við sig. Sagt hefur verið að munur
sé á sjálfmenntuðum viðskipta-
mönnum og hinum háskólagengnu
og í tilviki Jóhanns telja kunnugir
að þessi staðreynd sé honum í vil
„Það er afar sjaldgæft að þú finnir
viðskiptafræðing sem er jafnframt
frumkvöðull. Skólinn sér um að
drena frumkvöðulsgenin úr mönn-
um en hann slapp við það. Hann er
mjög fljótur að greina aðalatriði frá
aukaatriðum, sjá skóginn fyrir
trjánum. Þegar aðrir sjá ekkert
nema flækjur, sér hann einfaldar
línur,“ segir maður sem starfað hef-
ur lengi með Jóhanni. Sami maður
segir að enginn taki alltaf hárréttar
ákvarðanir en stórfjárfestingar Jó-
hanns hafi allar reynst góðar,
þ.e.a.s. Securitas, Stöð 2, Lyfjaversl-
unin og Delta.
Þekkir sín takmörk
„Ég er viss um að honum er ekki
stórkostlegur greiði gerður með
svona nærmynd af honum. Hann er
beinlínis fjölmiðlafælinn og það
kann að vera hluti af hans vel-
gengni,“ segir annar. „Hann nær
því sem svo margir aðrir klikka á
að hann nær að koma viðskiptahug-
myndinni til raunveruleika, ekki
síst með því að fá með sér rétta
menn. Margir frumkvöðlar halda að
þeir sé bestir í öllu en svo hefur
aldrei verið með Jóhann. Það er
hluti velgengni hans að átta sig á
mörkum eigin styrkleika. Svo hefur
honum tekist að fá mjög gott fólk
með sér,“ segir samstarfsfélagi og
segir mjög gott að starfa með hon-
um.
Sigur á Stöð 2
Sennilega hefur stærsta uppþotið
á ferli Jóhanns orðið þegar hann
gekk út með skömmum fyrirvara á
Stöð 2. Hallur Hallsson segir fráleitt
að líta svo á að þar hafi Jóhann orð-
ið undir. „Hann labbaði út af Stöð 2
með mikinn hagnað og stóð algjör-
lega uppréttur. Auðvitað urðu þar
átök eins og oft verða þegar Jón
Ólafsson er annars vegar en það er
engin spurning að ákvörðun Jó-
hanns var hárrétt á sínum tíma. Jó-
hann var keyptur út úr þessu fyrir-
tæki og hann hefur sjálfur sagt við
mig að það hafi verið ein besta
ákvörðun sem hann hefur tekið,“
segir Hallur.
Fjögurra barna faðir
Jóhann er fæddur árið 1954 og
verður þvi 47 ára í september nk.
Eiginkona hans er Guðný Ólafsdótt-
ir og eiga þau 4 börn saman. Sam-
kvæmt þjóðskránni eru þau búsett á
Gíbraltar en a.m.k. eitt af fjórum
börnum þeirra er búsett á íslandi.
Yngsta barn þeirra hjóna er 5 ára
gamalt og segja kunnugir að fjöl-
skylduliflð hafi verið sérlega farsælt
ekki síður en starfsferillinn. Jóhann
er ennfremur auðugur maður af
veraldlegum gæðum á íslenskan
mælikyaröa.
í nánasta vinahópi Jóhanns má
finna menn eins og Þorstein Pálsson
sendiherra og Ólaf G. Einarsson,
fyrrverandi ráðherra. Vinir hans
vilja ekki svara þeirri spurningu
hvort Jóhann hafi mikil pólitísk
völd en viðurkenna að undir niðri
blási stundum. „Auðvitað á hann
andstæðinga og öfundarmenn. Allir
sem eiga velgengni að fagna lenda í
því.“
Veðrið í kvöld
Skýjað meö köflum
NA 5-8 m/s norðvestan til en annars hæg
breytileg átt eða hafgola. Dálítil rigning eöa
skúrir á Suðausturlandi og á Austfjörðum en
annars skýjaö með köflum og víða
síödegisskúrum. Hiti 2 til 7 stig í nótt.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 24.01 24.04
Sólarupprás á morgun 02.56 02.532
Síödegisflóö 17.53 22.26
Árdeglsflóö á morgun 06.05 10.38
Skýringar á veðurtáknum
' r^VWDÁTT '^SVÍNDSTYRKUR í metrum á sekundu 10V-H|TI ■10° S.FR0ST HBÐSKÍRT
"fe ^3 <£> SO
lETTSKYJAÐ HALF- SKÝJAO SKYJAÐ ALSKÝJAÐ
‘Q & | ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
4*
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA
Færð
Góð færð
Eins og búast má viö á þessum
árstíma er góð færð á flestum vegum
landsins. Vegurinn yfir Kjöl er opinn en
lokaö er um vegi á miðhálendinu
austan Hofsjökuls. Þá eru
Fjallabaksleiðirnar syðri og nyrðri enn
lokaðar. Allur akstur utan vega er aö
sjálfsögðu bannaður, enda gróður á
hálendinu mjög viðkvæmur á þessum
árstíma.
Breytileg átt NA 5-8 m/s norövestan til en annars veröur hæg
breytileg átt eða hafgola. Dálítil rigning eöa skúrir á Suðausturlandi og á
Austfjörðum en annars skýjað með köflum og víða er spáð
síödegisskúrum. Hiti 7 til 14 stig aö deginum, hlýjast suðvestan til.
Sunnuda Pí
Vindur: 5—8 m/* Hiti 7° til 12°
Manudagur
Vindur:
5-8 m/*
Hiti 5° til 15°
Fremur hæg NA 5-8 m/s
eða breytlleg átt, víöa
skúrlr og hltl 7 tll 12 stlg
yfir daglnn.
Fremur hæg NA 5-8 m/s
eöa breytlleg átt. Viöa
hafgola, og skúrlr á stöku
staö. Hltl 5 tll 15 stig.
Þriðjudaj
A- og NA-átt, rlgning eöa
skúrir um sunnan- og
austanvert landlö, en
annars skýjaö meö köflum.
Hlti 5 tll 14 stlg.
! Veðrið kl. 6
AKUREYRI skýjaö 4
BERGSSTAÐIR léttskýjað 5
BOLUNGARVÍK hálfskýjað 5
EGILSSTAÐIR 3
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 5
KEFLAVÍK úrkoma 6
RAUFARHÖFN skúrir 3
REYKJAVÍK léttskýjaö 5
STÓRHÖFDI skýjaö 7
BERGEN léttskýjaö 8
HELSINKI léttskýjaö 13
KAUPMANNAHOFN skýjað 13
0SLÖ léttskýjaö 12
STOKKHÓLMUR 14
ÞÓRSHÖFN skýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR rigning 8
ALGARVE heiöskírt 22
AMSTERDAM skúrir 15
BARCELONA þokumóöa 19
BERLÍN alskýjaö 12
CHICAGO skýjaö 21
DUBLIN rigning 12
HALIFAX skýjað 14
FRANKFURT léttskýjaö 16
HAMBORG skýjaö 12
JAN MAYEN úrkoma 0
LONDON skýjaö 14
LÚXEMB0RG skýjað 15
MALLORCA heiöskýrt 20
MONTREAL heiðskýrt 23
NARSSARSSUAQ léttskýjaö 11
NEWYORK þokumóöa 21
ORLANDO þokumóöa 23
PARÍS skýjaö 15
VÍN léttskýjaö 17
WASHINGTON skýjaö 23
WINNIPEG 13
liiFMj.iiiiht.fmiHMii.ia