Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
I>V
Fréttir
Margrét Frímannsdóttir um tjónþola eftir Suðurlandsskjálftana:
Ótrúlegur seinagangur
- tiltölulega lítiö eftir, segir Árni Johnsen
„Þetta er alveg ótrúlegur seina-
gangur þvi það er langt síðan um-
fang tjónsins lá fyrir. Fólk hefur
fengið bætur vegna íbúðarhúsnæðis
þótt það sé eftir það ekki jafn vel
sett og að var stefnt en það sem lýt-
ur að útihúsum hefur alveg setið á
hakanum,“ segir Margrét Frí-
mannsdóttir, þingmaður Samfylk-
ingarinnar á Suðurlandi, um þann
seinagang sem orðið hefur á því að
tjónþolar vegna jarðskjálftanna á
Suðurlandi fyrir ári hafi fengið af-
hroð sitt bætt - bætur sem stjórn-
völd beinlínis lofuðu þeim.
„Það hefur ekki náðst samkomu-
lag um það með hvaða hætti skal
standa að bótagreiðslum á því sem
Margrét Árni Johnsen.
Frímannsdóttir.
er utan viðlagatrygginga en pening-
arnir hljóta að eiga að koma úr sam-
eiginlegum sjóðum landsmanna.
Það þarf reyndar að endurskoða lög-
in um viðlagatryggingu, menn hafa
séð gallana á þeim lögum allt frá
Vestmannaeyjagosi en það gerist
ekki neitt. Ég þekki til fólks sem
varð fyrir tjóni í jarðskjálftanum
fyrir ári og er mun verr sett fjár-
hagslega en áður. Það er hreinn og
klár slóðaskapur af stjórnvöldum að
hafa ekki gengið frá þessu máli og
yfirvöld hafa ekki staðið við þau orð
sem sögð voru strax eftir skjálftana
um aðstoð við þá sem þá urðu fyrir
tjóni,“ segir Margrét.
Hef beðið um úttekt
„Ég hef ekki nákvæmar upplýs-
ingar um hversu mikið það er sem
eftir er að gera upp en skilst að það
sé tiltölulega lítið. Ég hef beðið um
úttekt á stöðunni,“ segir Árni John-
sen alþingismaður um stöðu tjón-
greiðslna vegna jarðskjálftanna á
Suðurlandi í fyrra.
„Ég held að aðalvandamálið sé að
það er mismunandi brunabótamat
sem liggur til grundvallar og það
raskar öllu þegar ekki er samrými í
því. Uppgjör miðast við það mat
sem sem liggur fyrir og þegar mis-
ræmi er á matsupphæðum skapar
það stöðu sem er grunnvandamálið.
Jú, það má segja að þetta sé orð-
inn nokkuð langur tími. Þegar
svona mál koma upp þarf kerfið að
vera mjög skilvirkt og það virðist
sem grunnkerfiö hjá okkur þyrfti að
vera betra en það er varðandi þessi
mál,“ segir Ámi. -gk/BÞ
Fjórir menn í Vesturbyggð ákærðir fyrir líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll:
Brutust inn og gengu í
skrokk á húsráðendum
- fóllcið féll í
Þrir ungir menn í Vesturbyggð
hafa verið ákærðir fyrir líkamsárás,
húsbrot og eignaspjöll með því að
hafa brotist inn í hús á Patreksfirði að
næturlagi og gengið þar i skrokk á
ungum húsráðendum. Fjórði maður-
inn er ákærður fyrir að hafa farið
heimildarlaust inn í sömu íbúð að
húsráðendum fjarstöddum og kastað
þar til húsgögnum. Þeir sem fyrir
árásunum urðu fara fram á að menn-
irnir fjórir greiði þeim tæpar 1,2 millj-
ónir króna í skaðabætur.
Bolli Kristinsson:
Sautján ekki
til sölu
„Verslanir mínar eru ekki tU sölu.
Ég rek þetta eins og fjölskyldufyrir-
tæki, er ekki á leið á markað og ætla
að eiga þetta
áfram, hvað svo
sem pískrað er í
viðskiptalifinu,“
segir Bolli Krist-
insson í Sautján
um orðróm þess
efnis að verslun-
arveldi hans sé til
sölu. „Menn eru
að dreifa þessu á
Netinu og láta
fylgja með að ég hafi boðið Baugi allt
til kaups. Það yrði nú einhver hvell-
ur ef Baugsmenn myndu kaupa. Þá
ættu þeir allt.“
Bolli rekur nú níu verslanir i
Kringlunni undir ýmsum nöfnum og
að auki íjórar í verslunarsamstæðu
sinni við Laugaveg. Hann segir rekst-
urinn ganga vel - eins og alltaf. -EIR
gólfið og árásarmenn létu spörk og högg dynja á því
Að morgni sunnudagsins 6. ágúst á
síðasta ári ákváðu þrír af mönnunum,
sem eru um og yfir tvítugt, að fara að
húsi á Patreksfirði þar sem par bjó
sem þeir áttu eitthvað sökótt við.
Mennirnir eru ákærðir fyrir þá sök að
hafa brotið útihurð upp með því að
sparka i hana. Rúðugler brotnaði og
hurðarspjald hrökk úr. Síðan ruddust
mennirnir inn í íbúðina, sem er á 2.
hæð, og spörkuðu upp svefnherbergis-
hurð sem skemmdist.
Fóru nú þremenningarnir inn í
svefnherbergið. Við aðfarirnar féllu
húsráðendur í svefnherbergisgólfið.
Veittust innrásarmennirnir þrír allir
að parinu. Létu þeir spörk og högg
dynja á fólkinu, í höfuð, líkama og
handleggi, samkvæmt ákæru lög-
reglustjórans á Patreksfirði.
Við árásina hlaut karlmaðurinn
sem bjó í húsinu áverka á handlegg, á
gagnauga aftur fyrir eyra, á enni, háls
og herðar. Konan hlaut áverka á báð-
um fótleggjum, olnboga, úlnlið og
framhandlegg.
Lögreglustjórinn ákærir einnig
ijórða manninn i málinu. Honum
eru gefin að sök húsbrot og eigna-
spjöll með því að hafa farið heimild-
arlaust inn í íbúðina, taka þar bor-
stofuborð og kasta því frá sér
þannig að fætur þess gáfu sig. Hús-
ráðendur voru fjarstaddir.
Ákæruvaldið heldur fram kröfu
fyrir hönd parsins í málinu að fiór-
menningarnir greiði því 1.190 þús-
und krónur í skaðabætur.
-Ótt
DVJvlYND GVA
Baöströndin gerö klár
Verkamennirnir liggja ekki á liöi sínu í Nauthólsvíkinni þar sem veriö er aö leggja lokahönd á frábæra baö- og sólbaðs-
aöstööu í sandi og heitu vatni. Búningsklefar rísa og heitir pottar taka á sig mynd. Loks veröur hægt aö liggja á
strönd i Reykjavík.
Rændu soluturna i sex skipti
- hótuðu sex manns með hnífum og bareflum - yngstu fórnarlömbin 13 ára
Tveir liðlega tvítugir piltar hafa
viðurkennt að hafa í sex skipti ráðist
grímuklæddir og vopnaðir hnífum
inn í söluturna á höfuðborgarsvæðinu
í vetur þar sem þeir komust yfir sam-
tals tæplega 300 þúsund krónur sem
þeir segjast hafa verið að greiða fikni-
efnaskuldir með og til að fiármagna
meiri neyslu. Atburðirnir áttu sér
stað á tæplega mánaðartímabili, frá
14. janúar til 11. febrúar.
Mennirnir, sem setið hafa i gæslu-
varöhaldi frá 12. febrúar, vegna aug-
ljósrar hættu á að þeir héldu iðju
sinni áfram, komu fyrir dóm í gær.
Þeir játa allt sem þeim er gefið að
sök.
Þannig fóru þeir fyrst inn í sölu-
turn við Iðufell 14, veittust þar að 17
ára afgreiðslustúlku, hótuðu henni
með hnífum og bareflum og neyddu
hana til að afhenda sér 62 þúsund
krónur úr peningakassa. Þetta var 1
eina skiptið af sex þar sem ungu
mennirnir segja að ránsstaðurinn hafi
verið fyrir fram ákveðinn. í hin skipt-
in var kylfa látin ráða kasti en hlið-
sjón höfð af hvort viðskiptavinir voru
inni í sjoppunum eða ekki.
Rúmri viku eftir Iðufellsránið fóru
mennirir inn í söluturninn á Dalvegi
16c í Kópavogi, veittust þar að 24 ára
afgreiðslustúlku sem var ein á staðn-
um, hótuðu henni hvor með sínum
hnífnum og neyddu hana til að af-
henda sér 10 þúsund krónur. Tveimur
dögum síðar fóru mennirnir inn í
söluturninn á Grundarstíg 12, veittust
þar að 28 ára karlmanni, sem var einn
við afgreiðslu, hótuðu honum með
hnífunum og neyddu hann til að af-
henda sér 60 þúsund krónur úr pen-
ingakössum verslunarinnar.
Viku síðar fóru mennirnir, enn á
ný grímuklæddir vopnaðir hnifum,
inn í söluturninn á Háaleitisbraut 66
þar sem tvær stúlkur, 13 og 14 ára,
voru við afgreiðslu. Þeir hótuðu hin-
um barnungu stúlkum, eins og öðr-
um fómarlömbum, með hnífunum
tveimur og neyddu þær til að af-
henda sér 75 þúsund krónur úr pen-
ingakössum.
Mennirnir hafa viðurkennt að
hafa síðan farið á ný að söluturnin-
um á Grundarstíg 12 í þeim tilgangi
að ræna peningum. í það skiptið varð
afgreiðslumaður þeirra var og læsti
útidyrum áður en mennirnir hörfuðu
af vettvangi.
Að síðustu fóru mennirnir, annar
úr Kópavogi en hinn úr Reykjavík, í
sjötta skiptið á tæpum mánuði inn í
söluturn, nú að Grandavegi 47, veitt-
ust að afgreiðslukonu um fertugt sem
var þar ein við afgreiðslu, hótuðu
henni með hnífum sínum og neyddu
hana til að afhenda sér poka með
uppgjöri dagsins - 27.500 krónum í
peningum og 57.108 krónum í
greiðslukortakvittunum.
-Ótt
Kvótakerfi hvað...?
Það má með sanni segja að and-
skotinn hafi hitt ömmu sína þegar
Þorsteinn Vilhelmsson lét ýmis
spakmæli eftir sér hafa í Moggavið-
tali 24. maí. Skaut hann þar föstum
skotum á Vest-
firðinga en þar
hafa menn ákveð-
ið að spila ekki
með kvótakerfinu
góða eins og Sam-
herjafrændur.
Kristinn H.
Gunnarsson,
þingmaður Vest-'
firðinga, er kallaður kommúnisti af
Þorsteini og hann svarar fyrir sig í
Mogga í gær. Kristinn fletti Mogga
allt aftur til 14. desember 1983 og
fletti um leið illilega ofan af Þor-
steini kvótasinna. í viðtali frá 1983
bölvar Þorsteinn kvótakerfishug-
myndum, sem þá var verið að
hrinda í framkvæmd, í sand og
ösku. Kristinn bætir um betur því
að i Degi í janúar 1984 fann hann
sams konar virðhorf Þorsteins
Más Baldvinssonar til fiárans
kvótakerfisins...
Bara klár gæi...!
Davíð Oddsson forsætisráðherra
var hreint yfir sig hissa eftir að
hafa hitt Bandarikjaforseta á
Natófundi úti í Evrópu. Karlinn
væri bara röskur, kæmi vel fyrir
og væri bara
ágætlega skýr.
Pottverjar velta
fyrir sér við
1 hverju Davíð hafi
eiginlega búist.
Reyndar minnast
menn látlausra
skota bandarískra
grínara á forseta
sína sem á annað fólk. Er þeim þar
ekkert heilagt. Jay Leno, sem sýnd-
ur er á' Skjá einum, sýnir Bush for-
seta ekki beint sem einhverja
mannvitsbrekku og í raun sem
nautheimsku fyrirbrigði. Telja pott-
verjar því víst að Davíð taki full-
mikið mark á Jay Leno á Skjá ein-
um...
Mögnuð flughræðsla
Fram kemur á vefsíðu íþróttafé-
lagsins Leifturs á Ólafsfirði að
vegna ofsa-flughræðslu muni meist-
araflokkur félags-
ins ekki fljúga til
Hornafiarðar
vegna bikarleiks-
ins við Sindra á
fostudaginn. Þess
i stað er ætlunin I
að aka til Horna-1
fiarðar og gera
Leiftursmenn ráð *
fyrir að ferðin taki sjö klukku-
stundir, hvora leið. Ástæða þessa
er sú ofsaflughræðsla greip menn
þegar flogið var í leik Sindra og
Leifturs 1999. Þann leik unnu
Sindramenn og slógu Ólafsfirðinga
út í bikarnum. Síðan segir: „Sumir
urðu svo hræddir að þeir verða föl-
ir ef minnst er á flug, til dæmis
Santos, hann verður hvítur...!“
Keppni eða heppni
íslendingum gekk ekki sérlega
vel i Evróvisjón-
sönglagakeppnini
síðustu og voru
slegnir út úr_
keppni. Þótt ís-
lendingar séu
frægir fyrir að
vera mikil happ-
drættisþjóð þá
dugir heppni
skammt í þessu til-
viki þvi þarna sé um keppni aö
ræða en ekki heppni. Nú séu líkur
á að risaálver verði komið á Aust-
firði þegar íslendingar taka þátt í
Eurovision eftir tvö ár með tilheyr-
andi ósoneyðingu. Af þessu tilefni
orti Hörður Valdimarsson á Höfn:
Ekki má aftur henda
að menn stóli á heppnina
íslendingar œttu að senda
ósonlag í keppnina.
Umsjðn: Hörður Kristjánsson
netfang: hkristOff.ls