Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Qupperneq 9
9 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 PV__________________________________________________________________________________________________Neytendur Bensínsláttuvélar: Spúa krabbameinsvaldandi efnum út í umhverfið - segir í niðurstöðum sænskrar rannsóknar „Seljendur eiga þó rétt á því að gera við hluti sem reynast gallaðir. Ef þær lagfæringar eru árangurs- lausar fer réttur kaupanda til úr- bóta eftir eðli gallans. Úrbæturnar geta t.d. verið í formi endurgreiðslu, afsláttar eða nýrrar afhendingar.“ Ef fyrirtæki neitar að bæta tjón eftir að viðgerð hefur verið full- reynd getur kaupandi leitað til Neytendasamtakanna eða fengið lögfræðing sér til aðstoðar. Þeir sem vilja kynna sér lögin nánar er bent á heimasíðu Alþingis www.alt- hingi.is en þar má finna þau í heild sinni. -ÓSB Allar gerðir festinga fyrir palla og grindverk á lager C Ármúll 17, lOB Reykjavík 5ími: 533 1334 fax-. 55B 0499 Skemmtistaður Stórdansleikur Danshljómsveit Geirmundar Valtýssonar með stórdansleik Odd-vitinn • pub-skemmtistaður • Strandgata 53 • Akureyri • Sími 462 6020 • GSM 867* 4069 að stofnunin hafi ekki skoðað út- blástur frá bensínvélum sérstaklega en innan Evrópusambandsins og i Bandaríkjunum séu í gildi sérstak- ar reglur um litla mótora og að inn- an þeirra séu sláttuvélar. „Hins vegar gilda þessar reglur eingöngu um nýrri sláttuvélar en ekki hinar eldri. Það er ekkert eftirlit með gömlu vélunum, nema þær séu orðnar vinnuvélar. Þá gilda almennar ör- yggisreglur vinnuvéla." Þór segir ekki margt sem hægt sé að gera til að minnka magn skaðlegra efna í útblæstrinum en þó geti verið að einhverjir þjónustuaðilar slíkra tækja geti stillt þau þannig að þau mengi minna. En hann bendir á að áhættan af notkun vélanna sé ekki mjög mikil þar sem þær eru ekki notaðar mjög oft, í mesta lagi í klukkustund á viku á flestum heim- ilum. „Ég ráðlegg fólki að leggja bensínsláttuvélinni og fá sér eina handknúna eða rafmagnsvél. Við ættum að hvetja til notkunar á slík- um tækjum.“ Eins og kemur fram hjá Þór Tómassyni þykir ekki mikil hætta stafa af notkun bensínsláttuvéla í heimilisgörðum þar sem þær eru einungis notaðar í fáa tíma árlega. Það vekur þó upp spurningar um áhrif þeirra á þá unglinga sem starfa í svokölluðum sláttuhópum bæja og sveitarfélaga þar sem þeir eru að stjórna, eða í nálægð við sláttuvélar knúnar bensíni í nokkra tíma á dag allt sumarið. CE-merking ákveðin trygging „Við höfum markaðseftirlit með sláttuvélum," segir Steinar Harðar- son, umdæmisstjóri hjá Vinnueftir- liti Ríkisins. „Það er fólgið í því að við skoðum hvort þær vélar sem til sölu eru á markaðnum séu CE- merktar. CE-merking er ákveðin trygging fyrir því að lágmarksör- yggisstaðlar séu uppfylltir, þ.e. að þær séu framleiddar eftir þeim regl- um sem gilda á Evrópska efnahags- svæðinu. Inni í þessum öryggis- stöðlum eru mengunarkröfur en þegar tæki eldast og slitna geta þau farið að menga meira en þá er það á ábyrgð þess sem á og rekur tækið að fylgjast með því að tækið uppfylli kröfur." segir Steinar. -ÓSB BYGGINGAVINKLAR Nú er sá tími þegar þessar sláttu- vélar eru einna mest notaðar. Allir þekkja leiðindin sem af þeim hljót- ast þegar ailir í hverfinu slá garð- inn hjá sér, annaðhvort snemma á sunnudagsmorgni eða akkúrat þeg- ar þú ert að halda grillveislu í garð- inum. En það er ekki bara hávaðinn sem angrar því mjög margir nota bensínsláttuvélar og þær spúa frá sér miklu magni af efnum sem eru skaðleg umhverfmu og þar að auki krabbameinsvaldandi. Það er sænskur efnafræðidósent við Stokk- hólmsháskóla sem heldur þessu fram en hann birti nýverið niður- stöður rannsókna sem hann hefur gert á útblæstri bensínsláttuvéla. Hann segir að sláttuvélarnar séu óþekkt umhverflsógn og að menn sem eru í mesta sakleysi að slá garðinn hjá sér án þess að hafa hug- mynd um áhrif þess á heilsuna. Dós- entinn fann 26 tegundir af Qöl- hringja arómatískum vetniskolefn- um í útblæstri vélanna. Margar þeirra hafa reynst krabbameins- valdandi í dýratilraunum og eru flokkaðar sem mögulegir krabba- meinsvaldar hjá fólki. Meðal annars fannst efnið benzoapyren, sem myndast við bruna og er talið vera krabbameinsvaldandi í tóbaksreyk. Ein sláttuvél gefur frá sér álíka mikið af þessum efnum á einni klukkustund og bíll gerir í 15 klukkustunda akstri. Úr sláttuvél- unum koma einnig annars konar óhreinindi, svo sem kolmonoxíð, kolvetni, metan og mengandi agnir af öðru tagi. Nýjar og haröari reglur Niðurstaða dósentsins er að allar bensínsláttuvélar ættu að vera bún- Er garðslátturinn hættulegur heilsunni? Ein bensínsláttuvél getur gefiö frá sér álíka magn af mengandi efnum á einni klukkustund og bíll gerir í 15 klukkustunda akstri. ar mengunarvarnarbúnaði eins og krafist er að sé til staðar í nýjum bílum. Þegar hann prófaði að setja slíkan búnað á sláttuvélarnar minnkaði magn krabbameinsvald- andi efna sem kom frá þeim um 80% og annarra óhreininda um 30-50%. Því vill hann að stjórnmálamenn setji nýjar og harðari reglur um út- blástur frá sláttuvélum og öðrúm tækjum sem knúin eru bensíni, svipað og gert hefur verið með bíla. Notum handknúnar sláttuvélar Þór Tómasson, efnaverkfræðing- ur hjá Hollustuvernd ríkisins, segir Hélt viðgerðarmann- inum í gíslingu - þar til hún fékk nýja uppþvottavél Bresk húsmóðir komst í frétt- irnar um daginn þegar hún tók til sinna ráða og hélt viðgerðar- manni, sem staddur var á heim- ili hennar til að gera við upp- þvottavél,' í gíslingu. Konan, sem heitir Diana Plant, hafði beðið í 15 mánuði eftir að nýja uppþvottavélin hennar virkaði sem skyldi og þegar enn einn viðgerðarmaðurinn frá fyrir- tækinu sem seldi henni vélina sagðist ekki vita hvað væri að henni, var henni nóg boðið og læsti aumingja manninn inni. Hún neitaði að hleypa honum út þar til búið væri að gera við uppþvottavélina, sem var af gerðinni Zanussi. Diana sleppti manninum þegar fyrirtækið gaf henni loforð um að hún gæti valið nýja vél, sér að kostnaðarlausu. „Ég er venjulega seinþreytt til vand- ræða,“ sagði Diana í viðtali við breska blaðið Daily Mail. „En ég var búin að standa í þrasi og veseni í langan tíma og að lokum brast þol- inmæði mín og ég sá að ég yrði að gripa til róttækra aðgerða til að koma málum mínum í gegn.“ Þessi saga er að mörgu leyti fróð- leg, ekki síst vegna þess að öll þekkjum við atvik, annaðhvort hjá okkur sjálfum eða einhverjum sem við þekkjum, þrr sem hlutur sem keyptur er uppfyllir ekki þær vænt- ingar sem til hans voru gerðar og erflðlega gengur að fá fyrirtæki til Flestar kvartanir vegna heimilistækja og tölva 534 kvartanir bárust til Neytendasamtak- anna í fyrra vegna þessara hluta. Mikilvægt er að neytendur þekki rétt sinn þegar þeir lenda í því ab kaupa gallaöa vöru en ný lög um lausafjárkaup tóku gildi 1. júní sl. að uppfylla skyldur sínar. í slíkum tilfellum getur verið afar hjálplegt að vita hver réttur sinn er því þá er mun erfiðara fyrir fyrirtæki að draga lappirnar í því að leysa mál- in. Þrjár tilraunir til viðgerða Þann l. júní sl. tóku í gildi ný lög um lausafjárkaup og segir Geir Marelsson, lögfræðingur hjá Neyt- endasamtökunum, að samkvæmt þeim beri kaupanda að tilkynna galla á vöru innan tveggja ára frá því að hún er keypt. „Það þýðir í raun að ábyrgðartíminn er tvö ár við á svo til öllum kaupum," segir Geir. ..það sem fagmaðurinn nntar!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.