Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Side 14
14
Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
A&sto&arritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson
Fréttastjóri: Birgir Guömundsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvik, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Plötugerö: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Byggðastefna fólksins
Ný samtök voru stofnuð í vikunni sem er að liða og bera
þau heitið Landsbyggðin lifi. Fyrirmynd þeirra er sótt til
dreifðustu byggða Skandinavíu, einkum til þess langa
lands sem Noregur er, en þar í nyrstu héruðum er vandi
byggðanna áþekkur því sem þekkist á íslandi. íslensku
samtökunum er ætlað það stórvirki að snúa byggðaþróun
við og minna á mikilvægi þess að mestur hluti landsins
haldist í byggð. Samtökin ætla sér með öðrum orðum að
standa undir nafni.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, flutti
ávarp við stofnun samtakanna norður á Akureyri á mið-
vikudag og fór nokkuð mikinn um nauðsyn þess að landið
héldist vel í byggð. Hún sagði efnislega í viðtali að það yrði
leiðinlegt ef stór svæði landsins legðust í eyði og kvaðst
vart skilja af hverju fólk kysi að yfirgefa fallega og víð-
feðma náttúru landsins í skiptum fyrir þröngar götur í út-
hverfum höfuðborgarinnar. Hún talaði á nótum tilfinning-
anna, en skeytti minna um tölfræði stofnana.
Nú er það svo að fjöldi fyrirmenna og fræðinga hefur á
síðustu áratugum flutt úr pontu firnin öll af fegurð lands-
ins. Þessar ræður eru einsleitar og klisjur koma einatt í
stað mikillar hugsunar. Gjarna er sagt að íslendingar búi
í fallegu landi og harðduglegum landsmönnum láti vel að
vinna verk sín til sjávar og sveita. Það er dregin upp róm-
antísk mynd af veruleikanum, sem er allt annar þegar að
er gáð og snýst meira um nauðsyn þess að komast á bíó en
að blása í strá uppi í fjallshlíð.
Raunveruleg byggðastefna er í huga fólks. Hana er ekki
að finna í stofnunum og hana er því síður að finna í hug-
skoti fólks sem hefur meira gaman af að ferðast um land-
ið en að búa þar. Eina raunverulega byggðastefnan er sú
ákvörðun sem hver maður tekur um það hvar hann vill
búa. Byggðastefna er með öðrum orðum huglæg og snýst
um tilfinningar fólks sem langar að sér og sínum líði vel á
stöðum sem svara þörfum þess fyrir ögrandi atvinnu og
fjölbreyttar fristundir.
Fólk sækir í fjölbreytni. Fólk sækir í ögrun. Þetta tvennt
hefur stefnt þjóðinni úr dreifðum byggðum til þröngra
gatna í uppsveitum Reykjavíkur. Þetta tvennt hefur mestu
skipt í búsetuþróun landsins í eina öld. Þessi þróun hefur
ekkert með fallegar kyrralífsmyndir úr þröngum fjörðum
og víkum landsins að gera. Fólk flýr einhæft atvinnulíf og
afþreyingu af því það kýs það besta í þessum efnum. Það
vill njóta jafnræðis á við aðra. Það vill koma, sjá og sigra
heiminn.
Byggðastefnan er fólkið sjálft. Stjórnmálamenn og kjör-
dæmapot hafa að líkindum hert á byggðaflóttanum fremur
en hægt á honum. í aldarfjórðung hefur verið horft til veik-
ustu byggðanna og þeim hjálpað með ölmusu, í stað þess að
styrkja sterkustu byggðirnar úti á landi og gera úr þeim
raunverulegt mótvægi við Reykjavíkursvæðið. Akureyri er
besta dæmið, staður sem nú er í sókn og hefði dregið til sín
margar þúsundir ef sveigt hefði verið af villu vegar.
Akureyri ætti að vera 50 þúsund manna bær. Bærinn
við fjörðinn hefur vissulega tekið stakkaskiptum á síðustu
árum hvað fjölbreytni i atvinnulífi og afþreyingu snertir.
Hann er enda farinn að laða til sín fólk að nýju. Háskólinn
á Akureyri er glæsilegt dæmi um stóriðju nýrra tíma og
kannski eina rétta byggðastefnan sem stjórnmálamenn
hafa lengi tekið. ísland þarf á sterku mótvægi við Reykja-
víkursvæðið að halda. Það þarf jafnvægi í byggð. Það þarf
hins vegar ekki allt landið í byggð.
Sigmundur Ernir
+
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001
19
DV
Skoðun
Aftur í Alþjóða hvalveiðiráðið
Ríkisstjórnin hefur sam-
þykkt að ísland gerist aftur
aðili að Alþjóða hvalveiðiráð-
inu. Aðildinni að alþjóðasátt-
málanum um skipan hval-
veiða var sagt upp árið 1991 á
þeim forsendum að ráðið
starfaði ekki í samræmi við
sáttmálann.
Löglegar veiðar Japana
En þótt ísland hafí sagt sig
úr ráðinu á þeim forsendum
að veran í því kæmi í veg fyr-
ir sjálfbæra nýtingu hvala-
stofna, og þrátt fyrir tilraun til að
skapa möguleika á að hefja að nýju
hvalveiðar í samtökum með Norð-
mönnum, Grænlendingum og Færey-
ingum, NAMMCO, hafa hvalveiðar
ekki hafist. íslenskir vísindamenn
hafa þó lengi talið aö hvalastofnar
við ísland væru í vexti, enginn í út-
rýmingarhættu og einhverjir þyldu í
raun sambærilegar veiðar og voru
stundaðar fram að gildistöku hval-
veiðibannsins.
Þegar ísland sagði sig úr ráðinu á
sínum tíma var álitið að fleiri ríki
fylgdu þvl fordæmi.
Það gerðist ekki. Noregur, sem er
Svanfríður
Jónasdóttir
þingmaöur
Samfylkingar
eina fullvalda ríkið
ásamt okkur í NAMMCO,
hefur haldið áfram að
starfa innan Alþjóða
hvalveiðiráðsins og
stundar hrefnuveiðar í
skjóli þess. Japanir
stunda einnig veiðar í
vísindaskyni.
Þær veiðar fara fram
þrátt fyrir veru þeirra i
Alþjóða hvalveiðiráðinu
og eru löglegar sam-
kvæmt sáttmálanum rétt
eins og vísindaveiðar
okkar á sínum tíma.
Þrátt fyrir veru utan ráðsins
Þrátt fyrir að við höfum staðið utan
ráðsins og höfum þar með ekki verið
formlega bundin af ákvörðunum þess
um veiðibann, þrátt fyrir að vísinda-
menn, bæði á Hafrannsóknastofnun og
á vegum NAMMCO, telji að líffræði-
legar forsendur séu ákjósanlegar varð-
andi veiðar og sjálfbæra nýtingu
hvalastofnanna og þess vegna sé hægt
að hrinda stefnu íslands í framkvæmd,
þrátt fyrir skýrslur á skýrslur ofan
með fyrirheitum um hvalveiðar, ef
ekki í ár þá á næsta ári, og þrátt fyrir
„Rökin fyrir því að standa utan ráðsins voru því harla
léttvæg í Ijósi þess að við allar ákvarðanir varð að taka
tillit til stefnumótunar þess, hversu óvísindaleg sem hún
kunni að vera. - Hvalveiðiráðstefna á íslandi árið 1991.
umræður og heitingar á Alþingi og
þrátt fyrir ályktun Alþingis frá mars
1999 þar sem segir að „hefja skuli hið
fyrsta hvalveiðar hér við land“, en sú
tillaga gerði upphaflega ráð fyrir því
að hvalveiðar yrðu hafnar árið 1999,
þá hefur hvalur ekki verið veiddur.
Það er því augljóst að þrátt fyrir
meinta ástæðu úrsagnar okkar úr Al-
þjóða hvalveiðiráðinu, að afstaða ráðs-
Bush í Undralandi
Bush Bandaríkjaforseti, sem nú er
f fyrstu ferð ævinnar um meginland
Evrópu, gerir Evrópumenn smeyka.
Þeir hafa ekki verið jafntortyggnir í
garð neins forseta síðan Reagan var
og hét. Bush hefur ekki sýnt Evrópu
mikinn áhuga. Hans forgangsmál
hafa verið Rómanska Ameríka, sem
hann vill efla viðskiptatengsl við, og
Asía, þar sem hann lítur á Kína sem
hættulegan hernaðarlegan og við-
skiptalegan keppinaut. Hann vill
flytja þriðjung þess herliðs sem er í
Evrópu til Kyrrahafssvæðisins og
losna frá Balkanskaga, auk þess sem
veruleg ágreiningsmál eru komin
upp varðandi NATO.
ðhætt er að segja að flestallar rík-
isstjórnir í Evrópu hafi heldur viljað
demókrata á valdastóli en repúblík-
ana, enda flestar núverandi
ríkisstjórnir álfunnar
vinstri miðjustjórnir. Það er
ekki tilviljun að Bush kaus
að hefja förina á Spáni. Þar
getur hann nýtt spænsku-
kunnáttu sína, þar er líka
eina hægristjórnin innan
ESB og Spánverjar hafa sér-
stök tengsl við Rómönsku
Ameríku. En hvar sem
hann fer, líka á Spáni, eru
tugþúsundir að mótmæla
stefnu hans, m.a. í umhverf-________
ismálum, vígbúnaðarmál-
um, gagnvart erfðabreyttum matvæl-
um, kjarnorkuverum, höfnun á lög-
sögu Alþjóðadómstólsins í Haag og
ekki síst dauðarefsingum. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum lítur al-
Gunnar
Eyþórsson
biaöamaður
„Bush Bandaríkjaforseti, sem nú er í fyrstu ferð œvinn-
ar um meginland Evrópu, gerir Evrópumenn smeyka.
Þeir hafa ekki verið jafntortyggnir í garð neins forseta
síðan Reagan var og hét. “ - Bush forseti og kona hans
koma til Spánar sl. miðvikudag.
menningur víða í Evrópu
Bush sem fávísan og tillits-
lausan kúreka sem sé eins
og fiskur á þurru landi
utan Texas.
Dauðarefsingar
En það sem mest mót-
mæli vekur þessa dagana
eru dauðarefsingar. Evr-
ópumenn skilja ekki fast-
heldni Bandaríkjamanna á
dauðarefsingar. 41 Evrópu-
_____ riki hefur skrifað undir
"" mannréttindasáttmála Evr-
ópu og bannað líflátsdóma. Þetta
hittir Bush sérstaklega fyrir því að
sem ríkisstjóri Texas samþykkti
hann 152 dauðadóma. Hann kemur
til Evrópu á sama tíma og McVeigh,
sem myrti 168 og særði yfir 600 í
Oklahomaborg, var líflátinn, og til
Spánar sama dag og spænskur ríkis-
borgari, sem dæmdur hafði verið til
dauða í Flórída, kom heim eftir að
safnað hafði verið nægu fé til að fá
mál hans tekið upp á ný og hann
sýknaður.
Evrópskir fjölmiðlar eru yfirleitt
undrandi á bandarísku réttarfari,
þar á meöal þvi að ef forsetadóttirin
Jenna verður tekin aftur fyrir að
panta vín áður en hún verður 21 árs
fer hún sjálfkrafa í fangelsi í hálft ár.
Bush kom þeim lögum á í Texas að
við þriðja brot fari allir í fangelsi.
Þvi er hugsanlegt þar að fá ævilangt
fangelsi fyrir þrjá smáþjófnaði.
Bandaríkin taka fleiri af lífi en nokk-
urt annað land, að undanskildu
Kína, Kongó, Saudi-Arabíu og íran.
Það er ekki álitlegur félagsskapur.
Auk þess er hlutfall refsifanga í
Bandarikjunum það hæsta sem
þekkist í hinum iðnvædda heimi,
meginhlutinn fyrir fikniefnabrot.
Alls bíða nú 3711 menn lífláts í 38
rikjum - öllum nema 12 - nógu marg-
ir til að taka einn af lífi á hverjum
degi í tíu ár. Auk þess eru börn und-
ir 16 ára réttuð sem fullorðnir í sum-
um ríkjum. Einn þingmaður í Texas
vildi lögfesta að lífláta mætti ung-
menni allt niður í 11 ára.
Einstefna
Bandaríkin og Evrópa eru nátengd
á ótal sviðum en æ fleiri brestir í
samskiptum eru aö koma í ljós. Sér-
staklega þykir Bush hafa farið offari
þegar hann einhliða lýsti Kyotobók-
unina, sem Clinton undirritaði,
dauða og marklausa og um leið
óraunhæfa, því aö Kina og Indland,
tvö fjölmennustu ríki heims, eru
ekki aðilar að henni. Ennfremur er
mikil andstaða við fyrirætlanir hans
um að ógilda sáttmálann við Sovét-
ríkin frá 1972 um bann við gagneld-
flaugum (ABM) sem Rússar neita að
endurskoða og Kínverjar segja að
þýði nýtt vigbúnaðarkapphlaup.
ABM-sáttmálinn er eina lagalega
hindrunin fyrir því að Bush geti sett
í gang stjömustríðsáætlun sína sem
enginn utan Bandaríkjanna veit
hverjum á að beinast gegn, auk þess
sem tæknin sem til þarf er ekki til.
Framtíðin veltur á því hvemig Pútín
Rússlandsforseti bregst við þegar
Bush hittir hann í Slóveníu Ef ekki
næst samkomulag þeirra á milli um
ABM og Bush situr fastur við sinn
keip eru samskipti Bandaríkjanna
og Rússlands i uppnámi, þar með
einnig samskiptin við Evrópu og
þróun heimsmála yfirleitt.
Gunnar Eyþórsson
Spurt og svaraö
Eru skattsvik einstaklinga og fyrirtcekja ahnennari en
Pétur Bjamason
framkvœmdastj. Fiskifélags ísl.:
Engin
aukning
„Ég held að árátta íslendinga
til skattsvika sé ærin og al-
mennt hafi íslendingar aldrei
litið á skattsvik sem nægjanlega alvarlegt mál
þó þarna séu menn að koma sér undan því að
taka þátt í samfélagsneyslunni. En ég held að al-
mennt hafi menn gert sér fulla grein fyrir því
um langan tíma. Þvi er þetta á svipuðum nótum
og hingað til hefur verið talið og því tel ég að
skattsvik séu ekkert að aukast. En kannski má
auka eftirlitið.“
Sigurjón Benediktsson
bœjarfulltrúi og tannlœknir:
Svakaleg virðis-
aukaskattsvik
„Með lækkun tekjuskatta hef-
ur örugglega dregið úr undan-
skotum til skattgreiðslna en á
móti kemur að ég held að virðisaukaskattsvik
séu orðin allsvakaleg. En það kann að vera mis-
skilið að ég sé að segja þetta því tannlæknar eru
undanskildir virðisaukaskatti. En ég held ekki
að hækka eigi viðurlögin við skattsvikum, því
ég hef skömm á aukinni refsigleði, en fésektir á
skilyrðislaust að auka og láta menn þannig
finna fyrir þessum lögbrotum. Menn eiga að
reyna að vera sanngjarnir og réttlátir í sínu lífl.
Það gildir einnig gagnvart þessu.“
Haukur Már Sigurðarson
forseti bæjarstj. Vesturbyggðar:
Þjóðaríþrótt
íslendinga
„Nei, alls ekki. En þetta er
„þjóðaríþrótt“ íslendinga svo ég held
að það viti allir hvað er að gerast í
þessum málum og hvemig er spilað á kerfið. Gallinn er
sá að fólk lítur ekki á skattsvik sem lögbrot þrátt fyrir
að landslög taki af allan vafa. Það er því miður litið á
þennan verknaö sem sjálfsagðan hlut, því miður. En
það er hins vegar ekki til staðar nægur mannskapur hjá
skattayfirvöldum til að taka á því. Þú verður var við
þetta i ýmissi smáþjónustu sem þú ert að þiggja hér og
þar, svartri atvinnustarfsemi, sem verið hefur til staðar
svo lengi sem slík starfsemi hefur þrifist, t.d. hjá bif-
vélavirkjum og garðyrkjumanninum. En það er erfiðara
að átta sig á því hvernig þessi stóm mál liggja.“
ins til hvalveiða byggðist ekki á vís-
indalegum forsendum heldur pólitísk-
um, þá hefur pólitísk afstaða ráðsins
einnig ráðið ákvörðunum og gerðum
okkar utan ráðsins. Rökin fyrir því að
standa utan ráðsins voru þvi harla
léttvæg í ljósi þess að við allar ákvcmð-
anir varð að taka tillit til stefnumótun-
ar þess, hversu óvísindaleg sem hún
kunni að vera. Við virtumst bundin af
ákvörðunum þess, hvort sem við stæð-
um utan ráðsins eða innan.
Mikilvægur vettvangur
Möguleikar til að hafa áhrif á
stefnu ráðsins eru augljóslega mestir
ef við eigum þar sæti því að ráðið er
og verður um fyrirsjáanlega framtíð
helsti vettvangur umræðu um hval-
veiðar og baráttu fyrir því að hval-
veiðar verði hafnar á ný. Þar sitja
enn fulltrúar helstu hvalveiðiþjóð-
anna og einnig þeirra þjóða sem
hafna hvalveiðum í atvinnuskyni og
þar er baráttan háð um þessi mál.
Á þessum forsendum hef ég í þrí-
gang ftutt um það tillögur á Alþingi
að ísland ger-ist aftur aðili að Alþjóða
hvalveiðiráðinu. Ég fagna því þess-
ari ákvörðun ríkisstjórnarinnar.
Svanfríður Jónasdóttir
Ummæli
Árangurslaus
byggðastefna
„Iðnaðarráðherra
hefur lagt fyrir Al-
þingi skýrslu sína
um framkvæmd
þingsályktunar um
stefnu i byggðamál-
um 1999-2001. Skrif-
að markmið þeirr-
ar byggðaáætlunar er að að treysta
búsetu á landsbyggðinni. Það hefur
ekki gengið eftir. Þvert á móti er
það skoðun flestra að byggðin sé
viða enn að veikjast og kemur
margt til. Áætlunin hefur ekki
gengið og sum atriði eru þess eðlis
að ekki er sýnt að þau hafl neitt
með styrkingu byggðar um landið
að gera.“
Svanfríður Jónasdóttir þingmaöur
á heimasíðu sinni.
Stigminnkandi
starfslok
„Á nokkrum ára-
tugum hefur að-
staða aldraðra ver-
ið bætt umtalsvert.
Fyrir fáeinum ára-
tugum þekktust
ekki sérhæfðar
byggingar, þjón-
ustukjarnar eða félagsmiðstöðvar
fyrir eldri borgara. Á sama tíma
hefur rými á hjúkrunarheimilum
aukist og heilbrigðisþjónusta við
aldraða batnað að sama skapi. Sú
venja þyrfti að komast á að starfs-
lok kæmu sem stigminnkandi
vinnuálag samfara því að ábyrgð og
verkþekking flyttist til þeirra sem
taka við.“
Árni Ragnar Árnason þingmaður
á heimasíðu sinni.
Ef maður drepur
óbreytta borgara
í lofti...
... er það
hernaðar-
áœtlun
Jóhannes Gunnarsson
form. Neytendasamtakanna:
Algengara en
margan grunar
„Ég á erfltt með að dæma um
það en held þó að þetta sé algeng-
ara en margan grunar. Það hafa
komið fram fullyrðingar um að það sé mikið um
skattsvik og þau fari vaxandi. Ég held áð það sé al-
veg hárrétt. Það hefur því miður loðað við okkur Is-
lendinga að það ætti að vera fínt að svíkja undan
skatti og of fáir átta sig á því að þar með kemur of
lítið i sameiginlega sjóði. Ef fyrirtæki eru einnig að
stunda þetta eru þau að skekkja verulega sam-
keppnisstöðu annarra fyrirtækja við sig. En ein-
staklingar eiga orðið takmarkaðri möguleika á að
stunda „íþróttina“ í seinni tíð. En skattayfirvöld
þurfa stöðugt að vera á verði.“
Efmaður drepur
þá óvart...
Ef maður árepur
þá af ásetningi...
... er það
eitthvað sem
við viUum ekki
vita um!
Með bjartsýni og
von að vopni
Umfangsmesta skattsvikamál seinni ára er nú til skoðunar hjá rannsóknarlögreglu.
Davíð Oddsson var í sjónvarpinu í
fyrrakvöld í góðum félagsskap
meints forseta Bandaríkjanna og aft-
ur á forsíðu Moggans í gær og loks í
DV. Það fór vel á með þeim Bush og
Davíð og stutt í hláturinn. Davíð er
engum íslenskum stjórnmálamanni
líkur, hreinn og beinn, jákvæður og
uppörvandi, og allt að því skyggir á
erlenda höfðingja. Auðvitað fannst
mér Davíð okkar miklu geðslegri en
Bush, að ég tali ekki um enska for-
sætisráðherrann sem kom of seint í
myndatökuna. Og á sunnudaginn
munum við sjá Davíð í návígi á
Austurvelli. Þar mun hann án efa
stappa stáli í þjóð sína á 57 ára af-
mælisdegi lýðveldisins. Það er vel
því hugarfarið skiptir ævinlega
miklu máli. Vonleysisraus og nei-
kvæðni eru af hinu illa en slíkt hug-
arfar hefur ekki einkennt feril Dav-
íðs og hans rikisstjórn.
Áratugur munaöar
Líklega viðurkenna flestir að þjóð-
inni hafl að flestu leyti liðið vel und-
anfarin tíu ár undir stjórn Davíðs
Oddssonar. Alveg frá því kvöldið
góða þegar hann aflétti hallæri og
boðaði góðæri í beinni sjónvarpsút-
sendingu. Síðan hafa menn lifað með
vonina og bjartsýnina að vopni. Allt
okkar líf byggist á bjartsýni, áræði
og von en íslendingar hafa
oft þótt svartsýnir um of
og gjarnir á niðurrif. Síð-
ustu tíu ár hafa verið þau
gylltustu í íslandssögunni.
Davíð sagði verði sól og
það varð sól.
Þetta hefur verið merki-
legur tugur ára. Peninga-
áhyggjur hafa verið und-
arlega víðs fjarri hluta
þjóðarinnar og þjóðin fór
að tala í milljörðum en
ekki milljónum. Fínheit
fólks eru mikil, enda erum
við mestu eyðsluklær á
jarðríki. íslendingar eru
famir að slátra fínum ein-
býlishúsum til að byggja
sér ný á sama stað, bara
svona rétt sisona til að
gera smábreytingar. Eng-
inn alvörumaður ekur
lengur á almúgalegum
ökutækjum, risastórir og
öflugir jeppar súpa elds-
neytið og bryðja í sig göt-
urnar. Jeppum hefur fjölg-
að í réttu hlutfalli við al-
vöruvegi sem lagðir hafa
verið um eyjuna þvera og
endilanga. Ekkert var óyfir-
stíganlegt. íslendingar létu
sér ekki nægja að ausa
auðnum yfir eyjuna sína,
þeir fóru líka í öfugan vlk-
ing til útlanda, stráðu pen-
ingum og keyptu allt sem
fyrir varð, meira að segja
fornfrægt og rykfallið
knattspyrnufélag í
Englandi.
Jákvæöni Davíðs
Davíð er óumdeilanlega
jákvæðurmaðurogjákvæð- ““““”
ir kraftar allt í kringum hann. Ráð-
herrar hans, hvort sem það voru
kratar eða frammarar, ljúka lofsorði
á Davíð. Aðeins nánasti samstarfs-
maður hans í Viðeyjarstjórn, Jón
Baldvin Hannibalsson, átti það til að
vera neikvæður, stríðinn og ósvífinn
og kannski eilítið öfundsjúkur út í
sinn góða vin. Milli þeirra urðu vin-
slit af þessum sökum. Halldór Ás-
grímsson er allt annarrar gerðar og
afar sanngjarn og góður samstarfs-
maður.
Skuldaskil aö nálgast?
Eftir sólrík ár hefur blikur þó
óneitanlega dregið á loft í islenskum
Jón Birgir
Pétursson
blaöamaöur skrífar:
veruleika. Um það verður
ekki deilt þó Davíð geri lít-
ið úr slíku. Vörslusvipting-
ar á bílum eru að verða ein
helsta iðja lögreglumanna á
nóttunni. Þá seilist laganna
armur viða og sækir van-
skila jeppabíla heim að hús-
um fólks. Skuldaskilin eru
fram undan. íslendingar
hafa áreiðanlega gengið of
hratt um gleðinnar dyr. Það
er komin svolitið þunglyndi
i þá sem eyddu ógætilega.
Fiskurinn í sjónum er
minni en ætlað var, iðnað-
“““““—'■” ur í kringum tölvur hefur
ekki gengið eins og til var ætlast. Og
svo stórhækka verðtryggð lán heim-
ilanna um milljarða. Neikvæðu frétt-
irnar eru fleiri en hinar. Góðu tíð-
indin eru líka að birtast - stærra ál-
ver á Grundartanga, áhugi á stækk-
un álversins í Straumsvík og mikil
velgengni Baugs í verslun hjá öðrum
þjóðum.
Ekki stjórna stjórnmálamenn him-
intunglunum. Veröldin heldur áfram
sinn gang. Efnahagsleg veðrátta er
óútreiknanleg. En við skulum vona
að Davíð Oddssyni og hans mönnum
reynist kleift að búa borgurum góða
tíð áfram og blási bjartsýni í mann-
lífið.
„Ekkert var óyfirstíganlegt. íslendingar létu sér ekki nœgja að
ausa auðnum yfir eyjuna sína, þeirfóru lika í öfugan víking til
útlanda, stráðu peningum og keyptu allt sem fyrir varð, meira
að segja fornfrœgt og rykfallið knattspymufélag í Englandi. “