Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Síða 22
26 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2001 - Islendingaþættir DV Umsjón: KJartan Gunnar Kjartansson 90 ára_________________________________ Sigurður Gíslason, Suðurgötu 15-17, Keflavik, verður níræður laugard. 16.6. Eiginkona hans er Sigurlaug Anna Hall- mannsdóttir. Þau hjónin munu taka á móti gestum í félagsheimilinu Mána- grund við Sandgerðisveg á afmælisdag- inn milli kl. 15.00 og 19.00. 80 ára_________________________________ Haraldur V.H. Egilsson, Grettisgötu 45, Reykjavík. Jakob Sveinbjörnsson, Stóragerði 12, Reykjavík. 70 ára ________________________________ Jagbjört Ólafsdóttir, Álandi 7, Reykjavík. tinar Ingólfsson, Faxabraut 32c, Keflavik. Margrét Stefánsdóttir, Kleppsvegi 136, Reykjavík. 80 ára_________________________________ Friðfinnur Friðfinnsson, Sæbóli 13, Grundarfirði. 50 ára_________________________________ Konráð Ásgrímsson, Huldubraut 16, Kópavogi, verður fimmtugur þriöjud. 19.6. Eiginkona hans er Elín Siggeirsdóttir. Af því tilefni ætla þau hjónin að gleðjast með vinum sín- um, opna hús sitt og garð laugard. 16.6. ki. 17.00-19.00. ens Karel Þorsteinsson, /esturbergi 28, Reykjavík. Jað veröur heitt á könnunni á afmælis- Jaginn frá kl. 15.00-18.30. Amalía Sigrún Guðmundsdóttir, Þverá 2, Varmahlíð. Dröfn Björnsdóttir, Brúarási 12, Reykjavík. Guðmundur Guðmundsson, Melbæ 12, Reykjavík. Henry Berg Johansen, Prestbakka 1, Reykjavík. Jóna Kolbrún Halldórsdéttir, Flúöaseli 91, Reykjavík. Júlíus R. Hafsteinsson, Fifuseli 11, Reykjavík. Karl Sigurðsson, Bjarkargrund 45, Akranesi. Kristín Árný Sigurðardóttir, Egilsbraut 28, Þorlákshöfn. Lilja Jónsdóttir, Fjarðarseli 7, Reykjavík. María Magnúsdóttir, Langholtsvegi llOa, Reykjavík. Sigríður Hallgrímsdóttir, Grímstungu 2, Mývatni. Valur Steingrímsson, Seljavegi 5, Reykjavík. Þorsteinn Þorsteinsson, Logafold 108, Reykjavík. 40 ára_________________________________ Birgitta Rósmundsdóttir, Arahólum 2, Reykjavík. Bjarni Jóhannesson, Sólvöllum, Varmahlíð. Rnnur Tómasson, Móholti 6, Bolungarvík. Ingunn A. Guðmundsdóttir, Kleppsvegi 66, Reykjavík. Jean Eggert Hjartarson, Skildingan., Reynisnesi, Reykjavík. Laufey Ástríður Ástráðsdóttir, Nóatúni 30, Reykjavík. Margrét Elfa Jónsdóttir, Eyrarlandsvegi 8, Akureyri. Ragna Ingibjörg Eysteinsdóttir, Grenimel 1, Reykjavík. Vivienne Ruth Högnason, Nesbakka 21, Neskaupstað. Júlíus Vífill Ingvarsson framkvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf. og borgarfulltrúi Júlíus Vífill Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri og borgarfulltrúi, Hagamel 2, Reykjavík, verður fimm- tugur á mánudaginn. Starfsferill Júlíus fæddist í Reykjavík og ólst þar upp hjá fósturforeldrum sínum, Helga Sivertsen, f. 20.11. 1901, d. 29.12. 1969, forstjóra í Reykjavík, og k.h., Áslaugu Sívertsen, f. 14.12. 1897, d. 18.2. 1992, húsmóður. Júlíus lauk stúdentsprófi frá MR 1972, embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1979, stundaði nám við Tónlistar- skólann í Reykjavík 1973-76, við Söngskólann í Reykjavík 1976-77, við Tónlistarháskólann í Vínarborg 1977 og Conservatorio G.B. Martini í Bologna á Ítalíu 1979-82. Júlíus hefur verið framkvæmda- stjóri Ingvars Helgasonar hf. frá 1982. Þá stundaði hann lögfræðistörf um skeið og hlaut hdl.-réttindi 1993. Júlíus söng á árunum 1982-87 í óperum og óperettum í Þjóðleikhús- inu og íslensku óperunni, með Sin- fóníuhljómsveit íslands og íslensku hljómsveitinni. Meðal söngverka sem hann söng aðalhlutverk i má nefna Meyjarskemmuna eftir Schubert; Berté, Mikado eftir Gil- bert og Sullivan; Rakarann frá Seville eftir Rossini; Leðurblökuna, eftir Jóhann Strauss, og Carmina Burana eftir Carl Orff. Auk þess söng hann í Töfraflautunni eftir Mozart og Dido Aeneas eftir Henry Purcell. Hann vann til verðlauna i söngvakeppni sem kennd er við A. Pertile í Bologna 1980 og hefur hald- ið fjölda tónleika hérlendis og á ítal- íu, einsöngstónleika og með öðrum, söng í útvarp og sjónvarp og inn á hljómplötur og diska. Júlíus skipaði fjórða sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórnarkosninganna 1998, situr í borgarráði, skipulags- og byggingarnefnd og menningarmála- nefnd, sat í stjórn og var ritstjóri Hundrað ára Vöku 1974-75, framkvæmdastjóri Úlfljóts 1976-77, situr í stjórn félags sjálfstæðismanna í Nes- og Mela- hverfi frá 1997, einn af stofnendum félagsins Ítalíu 1985 og í stjórn þess í nokkur ár, formaður Félags óperu- söngvara 1986-89, formaður söngv- arasjóðs óperudeildar Félags ís- lenskra leikara í nokkur ár, í leik- listarráði 1986-91 og í framkvæmda- stjóm þess um skeið, í stjórn ís- lensku hljómsveitarinnar 1988-89, sat í nefnd menntamálaráðuneytis- ins um framtíðarskipan óperumála á íslandi 1988-90, i stjórn Styrktar- sjóðs Önnu Nordal 1989-2001, vara- formaður Óperusmiðjunnar 1991-93, í stjórn Bílgreinasambandsins 1989-94, í stjórn Verslunarráðs is- lands 1992-98, í stjórn Bifreiðaskoð- unar íslands hf. 1992-94, situr í stjórn íslenska hlutabréfasjóðsins hf. frá 1993 og i stjórn íslensku óper- unnar frá 1998. Fjölskylda Júlíus kvæntist 28.6. 1986 Svan- hildi Blöndal, f. 16.1. 1957, heilsu- gæsluhjúkrunarfræðingi og guð- fræðinema. Foreldrar hennar eru Kjartan Ragnarsson Blöndal, f. 28.9. 1935, fyrrv. framkvæmdastjóri Sauð- fjárveikivarna, og k.h., Þóra Sigurð- ardóttir Blöndal, f. 26.7. 1936, hús- móðir. Börn Júlíusar og Svanhildar eru Helgi Vifill, f. 15.5. 1983, mennta- skólanemi; Gunnar Snær, f. 5.10. 1988, nemi; íris Þóra, f. 5.10. 1988, nemi. Sonur Júlíusar og Jóhönnu Hall- dórsdóttur er Halldór Kristinn, f. 30.7. 1973, verkfræðinemi í Kaup- mannahöfn. Systkini Júlíusar eru Helgi, f. 9.4. 1949, framkvæmdastjóri; Guðmund- ur Ágúst, f. 13.4.1950, framkvæmda- stjóri og formaður HSÍ; Júlía Guð- rún, f. 7.8. 1952, sérkennari; Áslaug Helga, f. 21.6.1954, kennari; Guðrún, f. 20.7. 1955, sölustjóri; Elísabet, f. Gunnar Árnason fyrrv. skrifstofustjóri Gunnar Árnason, búfræðikandídat og fyrrv. skrifstofustjóri og gjaldkeri hjá Búnaðarfélagi íslands, Grundar- stíg 8, Reykjavík, er hundrað ára í dag. Starfsferill Gunnar fæddist að Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Hann lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hólum 1921, bú- fræðikandídatsprófi frá Konunglega landbúnaðarháskólanum í Kaup- mannahöfn 1925 og stundaði fram- haldsnám í Noregi í mjólkurfræði og nautgriparækt 1925-26. Gunnar var aðstoðarráðunautur hjá Búnaðarfélagi Islands 1926-40 og skrifstofustjóri og gjaldkeri félagsins 1940-71. Gunnar var formaður Islandsdeild- ar NJF 1958-67, sat lengi í húsráði Templarahallarinnar, starfaði með barnastúkunni Svövu nr. 23, stúkunni Framtíðinni nr. 173, Umdæmisstúku 20.7. 1955, d. 24.6. 1958; Elísabet, f. 5.9. 1957, fram- kvæmdastjóri; Ingvar, f. 5.6. 1960, læknir. Foreldrar Júli usar: Ingvar Júlí us Helgason, f 22.7. 1928, d. 18.9 1999, stórkaup maður og for stjóri í Reykja vík, og k.h., Sig ríður Guðmunds dóttir, f. 19.6 1926, fram kvæmdastjóri. Ætt Faðir Ingvars var Helgi, yfir- læknir á Vífils- stöðum, bróðir Sofííu, ömmu Sveinbjarnar I. Bald- vinssonar rithöfundar. Helgi var sonur Ingvars, pr. á Skeggjastöðum, Nikulássonar. Móðir Ingvars var Oddný, systir Páls, langafa Megas- ar. Bróðir Oddnýjar var Jón, langafi Jónatans, föður Halldórs, fyrrv. for- stjóra Landsvirkjunar. Oddný var dóttir Jóns dýrðarsöngs i Hauka- tungu Pálssonar. Móðir Helga var Júlia, systir Páls, langafa Sigríðar, móður Jóhanns Sigurjónssonar, for- stjóra HAFRÓ. Annar bróðir Júlíu var Jón, afi Jóns Helgasonar, skálds og prófessors. Systir Júlíu var Ingiríður, langamma Sigurðar, afa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Júlía var dóttir Guðmundar, ættföður Keldnaættar, Brynjólfssonar, b. í Vestur-Kirkju- bæ, Stefánssonar, b. í Árbæ, bróður Ólafs, langafa Odds, föður Davíðs forsætisráðherra. Stefán var sonur Bjarna, ættföður Víkingslækjarætt- ar, Halldórssonar. Móðir Ingvars var Guðrún, systir Páls, föður Lárusar leikara. Guðrún var dóttir Júlíus Vífill Ingvarsson Júlíus vann glæsilegan sigur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík 1998. Auk þess syngur hann tangbest allra stjórnmálamanna flokksins og er þá mikið sagt því t.d. Geir Haarde og Davíð Oddsson syngja báðir vel. Lárusar, smáskammtalæknis í Reykjavik, Pálssonar, b. í Arnar- dranga í Landbroti, Jónssonar. Móðir Páls var Guðný Jónsdóttir eldprests Steingrímssonar. Sigríður er dóttir Guðmundar, bifreiðarstjóra í Hafnarfirði, Jóns- sonar, b. í Nabba í Flóa, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Guðfinna Helgadóttir, b. í Hellukoti í Stokks- eyrarhreppi, Snorrasonar, b. á Rauðalæk í Holtum, Árnasonar. Móðir Sigríðar var Elísabet, systir Sigurjóns, forstjóra Hrafnistu, fóður Báru, kaupmanns. Elísabet var dótt- ir Einars, stýrimanns i Gestshúsum í Hafnarfirði, Ólafssonar, bróður Kristbjargar, langömmu Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur mannfræð- ings. Móðir Elísabetar var Sigríður Jónsdóttir, systir Sigurðar skóla- stjóra, fóður Steinþórs jarðfræðings, fóður Sigurðar prófessors. Júlíus Vífill og Svanhildur taka á móti gestum í húsakynnum Ingvars Helgasonar hf. að Sævarhöfða 2 fóstud. 15.6. kl. 18.00-20.00. og gjaldkeri Suðurlands, Stórstúku íslands, með Bindindisfélagi ökumanna og sat um skeið í Áfengisvarnaráði, i stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags og starfaði með Framsóknarfélaginu í Reykjavík. Hann er m.a. heiðursfélagi í Búnaðarfélags íslands, Stórstúku ís- lands, Bindindisfélagi ökumanna, Hinu íslenska náttúrufræðifélagi og Framsóknarfélagi Reykjavíkur. Gunnar var ritstjóri blaðsins Bún- aður sunnanlands 1930 og skrifaði um landbúnað í blöð og tímarit. Fjölskylda Gunnar kvæntist 3.9. 1927 Olgu Jenny Nygard, f. 24.11. 1900, d. 7.4. 1981, húsmóður. Hún var dóttir Ole Sogard liðsforingja, og k.h., Lisu Mikkelsen, í Austurdal í Noregi. Börn Gunnars og Olgu eru Árni, f. 17.7. 1929, kennari í Reykjavík, og á hann fimm börn; Helga Lísa, f. 26.4. 1933, bankastjóri í Seattle i Bandaríkj- , unum, og á hún eitt barn; Sólveig, f. 10.8. 1935, bankaritari hjá íslands- banka, og á hún þrjú börn; Gunnar, f. 3.9. 1939, framkvæmdastjóri, kvæntur Elínu Jónu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn. Gunnar átti sjö systkini sem öll eru látin. Þau voru Guðbjörg, lengi mat- ráðskona; Ingiríður, amma Árna Harðarsonar söngstjóra; Þuriður, hús- freyja á Gunnarsstöðum; Jóhannes, afi Steingríms Sigfússonar, fyrrv. landbúnaðarráðherra; Davíð, faðir Aðalsteins orðabókarhöfundar; Sig- ríður, móðir Bjarna ráðunautar og amma Björns Teitssonar, skólameist- ara á ísafirði; Margrét, kona Gísla Guðmundssonar, ritstjóra og alþm. Foreldrar Gunnars voru Árni Davíðsson, f. 15.10.1855, d. 15.11. 1912, bóndi á Gunnarsstöðum, og k.h., Arn- björg Jóhannesdóttir, f. 9.1. 1861, d. 24.11. 1908, húsfreyja. Ætt Árni var sonur Davíðs, b. á Heiði á Langanesi, Jónssonar og Þuriðar Árnadóttur, systur Jóns á Skútustöð- um, langafa Jónasar Jónssonar bún- aðarmálastjóra og Hjálmars Ragnars- sonar tónskálds. Þuríður var dóttir Árna, b. á Sveinsströnd í Mývatns- sveit, bróður Kristjönu, móður Jóns Sigurðssonar, alþm. á Gautlöndum. Arnbjörg var dóttir Jóhannesar, b. á Ytra-Álandi, Árnasonar og Ingiríðar Ásmundsdóttir. Fjölskyldan kemur saman í Blóma- sal Hótel Loftleiða kl. 15.30.-17.30. Vigfús Einarsson, Smáratúni 20, Sel- fossi, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjud. 12.6. Hreinn Páimason, Laugateigi 8, Reykja- vík, lést á heimili sínu þriðjud. 12.6. Kolbeinn Guðnason, Engjavegi 10, Sel- fossi, lést föstud. 1.6. Utförin hefur far- iö fram. -t Árni Kristinsson, Blönduhlíö 2, er lát- inn. fVTerkir Islendingar Benedikt G. Waage fæddist í Reykjavík 14. júní 1889, sonur Guðjóns Einarsson- ar prentara og k h , Guðrúnár Otinu Bene- diktsdóttur Waage. Hann stundaði nám við Verslunarskóla íslands. Benedikt stofnaði verslunina Áfram 1919, ásamt Einari, bróður sínum, og starfrækti hana í Reykjavík fram yflr miðja öldina. Benedikt var einn helsti frumkvöð- ull og forystumaður íþróttahreyfmgar- innar í Reykjavík og á landsvísu á tutt- ugustu öld. Hann æfði og keppti i ýms- um íþróttagreinum á Melunum í Reykja' vík í byrjun aldarinnar, sigraði m.a. ís landssundið 1911, sigraði í stangarstökki á Þjóðhátíðarmótinu fræga á hundrað ára af- Benedikt G. Waage mæli Jóns Sigurðssonar í Reykjavík 17. júní 1911, og var i KR-liðinu sem sigraði á fyrsta knattspyrnumóti íslands 1912, svo eitt- hvað sé nefnt. En afrek Benedikts voru ekki síður hin margvíslegu trúnaðar- og skipu- lagsstörf hans fyrir iþróttahreyfinguna um áratugaskeið. Hann þýddi m.a. lög The International Board, fyrstu knatt- spymulögin sem komu út á íslensku 1916, sat í stjórn ÍSÍ frá 1915, var lengi varaforseti þess og forseti ÍSÍ 1926-1962 eða lengur en nokkur annar. Þá var hann formaður KR, ÍR og íþróttasam- bands Reykjavíkur, sat í Alþjóða Ólympíu- nefndinni og var íþróttaráðunautur Reykja- vikur í tíu ár. Hann lést 8. nóvember 1966. Jarðarfarir Kristinn Gunnlaugsson, fyrrv. verkstjóri, Ásgarði 11, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju 15.6. kl. 14.00. Halldóra Margrét Guðjohnsen Reimann verður jarðsett frá Grafarvogskirkju föstud. 15.6. kl. 10.30. Einar Jónsson, Tjarnarbraut 27, Hafnar- firöi, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarð- arkirkju 15.6. kl. 13.30. Margrímur Gísli Haraldsson húsasmið- ur, Gunnarsbraut 36, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstud. 15.6. kl. 15.00. Stefán Siggeir Þorsteinsson frá Norö- firði veröur jarðsunginn frá Bústaöa- kirkju föstud. 15.6. kl. 13.30. Páll Á. Finnbogason, prentmyndasmiður og ritstjóri frá Velli, Þverholti 28, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstud. 15.6. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.