Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Page 4
4
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001
J3V
Hundur, nýkominn úr tveggja mánaöa einangrun, trylltist á þjóðhátíð:
Beit nær kinn af barni
- móðirin komin 7 mánuði á leið fékk samdráttarverki
„Þaö var allt fullt af hundum
þama á Víðistaðatúninu en þessi
var sérstaklega æstur enda nýkom-
inn úr tveggja mánaða einangrun
eftir ferðalag frá Los Angeles,“
sagði Fjóla Þorleifsdóttir sem fór
með fjögurra ára dóttur sína á þjóð-
hátiðarskemmtun á Víðistaðatúnið
í Hafnarfirði 17. júní. Sú skemmtun
endaði með því að umræddur
hundur réðst á dótturina og beit sig
fastan í kinn barnsins. Þurfti Fjóla
að eyða því
sem eftir
lifði þjóðhá-
tíðardags-
ins á slysa-
deild þar
sem læknar
þurftu að
sauma kinn
barnsins
saman. AU-
ur dagurinn
og nóttin,
sem fylgdi,
fóru í þetta og tók það mjög á Fjólu
sem er komin sjö mánuði á leið:
Sæþór EA-101.
Góð rækju-
veiði fyrir
Norðurlandi
Mjög góð úthafsrækjuveiði hefur
verið að undanfömu fyrir Norður-
landi, aðallega út af Öxarfirði, á
Sléttugrunni og Rifsbanka, en þar
vom 6 skip á veiðum, m.a. Sæþór
EA-101 en þar um borð töldu menn
rækjuna þó óþarflega smáa, en það
er hún oft á þessum tíma þegar
hún er nýbúin að hrygna. Einnig
hefur orðiö vart ágætrar rækju
norður af Grímsey, og virðist ná-
vist borgarísjaka engin áhrif hafa
á það, jafnvel aðeins til góðs. Afl-
inn hefur verið frá 10 til 12 tonn á
sólarhring.
Með minnkandi þorskgengd viö
landið, og þar með minni ásókn
þorskstofnsins i rækjuna, eykst
veiðin. -GG
Hundur bett bam i
Hi'.WJrtw Uit hant A
►Þ.-tntntim ú Viö'viaúni.ilrt i H-íik*- j
Jlrrt [ *au >f uu»viC*r-« tr
v«u viniwii* á fvifi i»AI
bnrs ne á’tí ftnmn bundtmr. Kwir ]
aö b'Jtvlumtu tiírt bitið bnm nrAui'i J
vart iA w»tk<»8ti«n j
þ«tna i nuili s* tes mktvnt utrtt |
buhúiMi ttl iftrjLrtiui te itfitfe hattti I
l'ié vw ®;»C «tKöwtíttþtrttti ( 1
HdnmnríiwtBuíuttjrinuvaritibtónd. 3
uAlkVlí. «R W
Lítil frétt
um stóran atburö.
DV-MYND HARI
Móðir og dóttir eftir þjóðhátíðarskemmtun
Fjóla Þorleifsdóttir og Margrét Vala dóttir hennar í gær. 17. júní hátíðahöldin í
Hafnarfirði hverfa þeim seint úr minni.
„Ég fékk áfall og samdráttar- sem lýsir atburðarásinni svona:
verki og varð verulega skelkuð. „Ég var þarna með Margréti Völu
Þetta var hryllilegt," sagði Fjóla dóttur minni og öðru barni þegar
að kemur fólk með tvo hunda. Ann-
ar hundurinn virtist óvenju æstur
í mannfjöldanum en samt fóru
börnin að klappa þeim eins og ger-
ist. Þegar hundurinn svo glefsaði
til annars barnsins leist mér ekki á
blikuna en Margrét Vala dóttir mín
gekk hins vegar yfir til hans og ætl-
aði að gæla við hann. Skipti þá eng-
um togum að hundurinn stökk upp
og beit hana í kinnina. Ég hef séð
fátt skelfilegra."
Farið var með Margréti Völu á
slysadeild sem fyrr sagði og hund-
inum lógað. Hann var alinn upp í
Los Angeles og hefur bersýnilega
aldrei náð sér eftir ferðalagið hing-
að til lands eða þá tveggja mánaða
vist í einangrunarstöðinni í Hrís-
ey.
„Mér líður betur núna. Sam-
dráttarverkirnir eru horfnir og
vonandi nær litla dóttir mín sér
fullkomlega,“ sagði Fjóla Þorleifs-
dóttir sem er þeirrar skoðunar að
þjóðhátíðarskemmtanir eigi að
vera fyrir fólk en ekki hunda.
-EIR
Akureyrarbær og Hrafnistuheimilin hyggja á samstarf:
Hrafnista vill
byggja á Akureyri
Akureyrarbær og Hrafhistuheimilin
kanna nú möguleika á samstarfl við
uppbyggingu nýs húsnæðis fyrir aldr-
aða á Akureyri. Um er að ræða 90
rýma hjúkrunarheimili sem yrði tilbú-
ið eigi síðar en árið 2005. Einnig hafa
verið ræddir möguleikar á samstarfí
um öldrunarþjónustu. Markmiðið með
samstarfmu er að leita leiða til þess að
nýta þekkingu og reynslu beggja aðOa
tO aukinnar hagkvæmni í rekstri og
veita öldruðum betri og fjölbreyttari
þjónustu. Sérstök þróunamefnd verð-
ur sett á laggimar sem m.a. mun
kanna húsnæðisþörfma.
Hrafnista hefúr verið með heimOi í
Reykjavík og Hafnarfirði og nú kann
Akureyri að bætast í þann hóp. Tæp-
lega 700 hennilismenn em á Hrafnistu
og um 440 stöðugOdi en á Akureyri á
Hlið, Kjamalundi og i sambýli fatlaðra
í Bakkahlíð em 175 vistmenn og um
225 starfsmenn. -GG
Undirritun samstarfsyfirlýsingar
Guðmundur Hallvarðsson, þingmaður og formaður Sjómannadagsráðs, og
Kristján Þór Júiíusson, bæjarstjóri á Akureyri, undirrita í Minjasafninu á Akur-
eyri samstarfsyfirlýsingu um að kannaðir verði möguleikar á uppbyggingu nýs
húsnæöis fyrir aidraða á Akureyri.
Laugavegur:
Hægðir í
blómabeði
Síðdegis á laugardag barst lög-
reglu tilkynning þess efnis að mað-
ur nokkur gengi upp Laugaveginn
og hefði kynfæri sín sýnileg vegfar-
endum. Stuttu síðar barst lögreglu
önnur tOkynning um að sami mað-
ur hefði gert hægðir sínar í blóma-
beð við Laugaveginn. Lögregla
handsamaði manninn sem var lát-
inn hreinsa upp eftir sig og síðan
fluttur í skjól. -aþ
Aðalstræti:
Flugeldar inn
um glugga
Lögregla varð að hafa afskipti af
fólki aðfaranótt laugardagsins þar
sem það var að skjóta flugeldum í
Aðalstræti. Meðal annars hafði flug-
eldum verið kastað inn um glugga
gistiheimilis og valdið þar skemmd-
um. Rúmlega tvítugur karlmaður
var handtekinn vegna málsins. -aþ
Sundiaugin á Dalvík.
Framhaldsskóli
við utanverðan
Eyjafjörð
Menntamálaráðuneytið hefur haf-
ið viðræður við Dalvíkurbyggð og
Ólafsfjörð um stofnun framhalds-
skóla við utanverðan Eyjafjörð sem
líklega yrði á Dalvík. Þingmenn
Norðurlandskjördæmis eystra tóku
þátt í óformlegum viðræðum um
málið á föstudag þar sem rætt var
við sveitarstjórnarmenn í viðkom-
andi sveitarfélögum.
Á fundinum var kynnt skýrsla,
unnin af Hermanni Tómassyni,
kennara við Verkmenntaskólann á
Akureyri, fyrir sveitarstjómirnar.
Hermann leggur til að settur verði á
stofn skóli haustið 2002 sem bjóði
framhaldsnám á tveimur fyrstu
námsárunum eftir grunnskólanám.
Gert er ráð fyrir að við skólann
starfi allt að 10 kennarar og nem-
endur verði 70. -GG
Veöriö i kvöld
Skúraveöur
Austlæg átt, víða 10-15 m/s og rigning í
fyrstu, síöan norðlæg átt, 5-8 og skúrir. Skúrir
á Noröurlandi, en léttir heldur til um landiö
sunnan- og vestanvert. Hiti yfirleitt á bilinu 5
til 12 stig.
Solargangur og sjavarföll
REYKJAViK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 00.06
Sólarupprás á morgun 02.52
Siódegjsflóó 17.02
Árdegisflóó á morgun 05.20
00.080
02.50
21.35
09.53
Skýrlngar á veöuriáknum
i^VINDÁTT 10V-HITI
-io°
SVINDSTYRKUR Vcnncr HEIÐSKÍRT
5 metrum á sekúndu ^rnUbt
* 0 D -o
IETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAO
Q : nv 'Ws’" má : Vti;4 ; Q
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA
“h =
ÉUAGANGUR Í>RUMU- VEDUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Viða unnið að vegagerð
Fært er um Uxahryggi og Kaldadal,
Þorskafjarðarheiöi og Tröllatunguheiöi
en á þeirri síöastnefndu er 2 tonna
ásþungi. Þá er fært um Hólssand.
Hálendisvegir eru almennt lokaðir. Þó
er fært um Kjöl og í Landmannalaugar
um Sigöldu og Dómadal. Einnig í Laka
og um Arnarvatnsheiöi. Víöa er unnið
aö vegagerö og eru vegfarendur beönir
aö sýna tillitssemi.
Ástand fjallvega
vm '
Vofllr á Bkyggöum »v»6um
oru lokaðlr þar III annað
varftur auglýat
www.vagag.la/faMd
Léttir til sunnanlands
Spáö er norðvestan 5-13 m/s í nótt og á morgun. Hvassast verður
suðvestanlands og á annesjum noröaustanlands. Léttir heldur til
sunnanlands. Hiti á bilinu 6-12 stig.
Finiintudi
Vindur:
8-13 m/s
Hiti 8“ tii 13° W
Vindur: V s-'
8-13 ^ ^ \ J
Hiti 8° til 13”
LiHigiird
Vindur: \
8-13 m/* > . J
Hiti 8“ tii 13” WW
Sunnan 8-13 m/s á
norðvesturhornlnu og
skúrlr, en hægarl annars
staöar og víöa léttskýjaö
um landlö austanvert. Hltl
8 tll 18 stlg.
Sunnan 8-13 m/s á
Norövesturland! og skúrlr,
en hægarl annars staöar.
Viöa léttskýjaö um landlö
austanvert. Hltl 8 tll 18
stlg, hlýjast noröaustan tll.
Suöaustan 8-13 m/s
suðvestan- og vestanlands
og rlgnlng meö köflum, en
talsvert hægarl á Norður-
og Austurlandl, og áfram
fremur hlýtt og bjart veöur.
Veðrið ki.
AKUREYRI
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK
EGILSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKL.
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
REYKJAVÍK
STÓRHÖFÐI
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLÍN
CHICAGO
DUBLIN
HALIFAX
FRANKFURT
HAMBORG
JAN MAYEN
LONDON
LÚXEMBORG
MALLORCA
MONTREAL
NARSSARSSUAQ
NEW YORK
ORLANDO
PARÍS
VÍN
WASHINGTON
WINNIPEG
rigning
rigning
alskýjaö
rigning
úrkoma í gr.
rigning
alskýjaö
rigning
skýjaö
léttskýjaö
rigning
rigning
léttskýjaö
heiöskírt
léttskýjað
heiöskírt
skýjaö
léttskýjaö
alskýjaö
léttskýjaö
skýjaö
skýjaö
rigning
hálfskýjaö
léttskýjaö
heiöskírt
skýjaö
alskýjaö
heiöskírt
alskýjaö
léttskýjaö
skýjaö
léttskýjaö
8
8
9
5
9
8
9
14
14
16
13
8
12
23
12
17
12
27
16
15
13
13
3
13
9
17
20
5
23
22
13
15
19
10