Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 I>V Norðurland 7 Skólameistari MA boðar sameiginlegt átak menntastofnana á Akureyri: Landsbyggðin hjálpi sér sjálf RENAULT KANG00 VSK, 06/00, HVlTUR, 5 GlRA, EK. 32 Þ. KM. AUKAHLUTIR. ÚTV/KAS. SAMLÆS/ÞJÓFAV. Verð. 1.190.000. - byggðavandinn „móðuharðindi af mannavöldum“ DV-MYND BRINK Útskrift Tryggvi Gíslason afhendir nýstúdent prófskírteini sitt. Tryggvi Gíslason, skólameistari í Menntaskólanum á Akureyri, gerði byggðamálin m.a. að umtalsefni í skólaslitaræðu sinni að morgni 17. júní. Tryggvi rifjaði upp orðtakið um að guð hjálpaði þeim sem hjálpuðu sér sjálfir og að guð væri þvi ávallt á bandi hins sterka. Síðan sagði Tryggvi: „En því nefni ég þetta að landsbyggðarmenn, olnbogabörn sam- félagsins, veröa að hjálpa sér sjálfir. í þessum tilgangi hefur samvinna tek- ist með skólunum þremur hér á Akur- eyri: Háskólanum, Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum sem undir- búa sameiginlega kynningu skólanna þar sem kynnt verður námsframboð, aðstaða og umhverfl skólanna og standa vonir til þess að kynningin verði unnin í samvinnu við Akureyr- arbæ. Með þvi að vinna saman og hjálpa sér sjálflr, bíða ekki eftir því að upphefðin komi að sunnan, er unnt að efla Akureyri enn sem skólabæ og sem barna- og fjölskylduvænan bæ þar sem gott er að búa.“ Tryggvi sagði að það hefði alltaf þurft nokkra hugdirfsku tif þess að berjast fyrir Akureyri sem skólabæ, því að Reykjavíkurvaldið - hvar í flokki sem það væri að finna - hefði ávallt sýnt umbótum og framfórum úti á landi tómlæti. „Síðasta dæmið um sjálfumgleði Reykjavíkurvaldsins er afstaðan í flugvallarmálinu, sem svo var nefnt, en þar kom fram að valdhafar borgarinnar líta ekki á Reykjavík sem höfuðborg allra lands- manna heldur sjálfstætt borgríki sem beri að huga að og berjast fyrir sínu og telur sig ekki hafa neinum skyld- um að gegna við landsbyggðina, ef svo býður við að horfa,“ sagði hann. Tryggvi sagði engar náttúruham- farir í sögu landsins hafa haft viðlíka áhrif á efnahag manna og afkomu og búseturöskunin undanfarinn áratug, sem margir litu á sem náttúrulögmál en væri í reynd „móðuharðindi af mannavöldum". Auðvitað væri ekki unnt að halda öllu landinu í byggð, en ef 90 af hundraði landsmanna byggi á höfuðborgarsvæðinu eftir einn mannsaldur, eins og allt stefndi í, væri fátækt íslands orðin meiri en hún hefði nokkru sinni verið. Skólameistari benti þó á að lands- byggðarfólk væri nú að snúa vörn í sókn og hann sagði tíma til kominn fyrir landsbyggðina að hjálpa sér sjálf. „Þá hjálpa guðirnir - fyrir sunn- an - okkur,“ sagði Tryggvi Gíslason. -BG Byggðastofnun semur við Skrín - um að sjá um tölvuþjónustu stofnunarinnar Skrifað undir samning um þjónustu Skríns við Byggðastofnun á Sauðárkróki Frá vinstri: Friöþjófur Max Karlsson, forstööumaöur rekstrarsviðs Byggöa- stofnunar, Rögnvaldur Guömundsson, framkvæmdastjórí Skríns, og Theódór Agnar Bjarnason, forstjóri Byggöastofnunar. Hvanneyri: Stefán og Skúli „butlerkóngar“ Stefán Stefánsson og Skufl Skúia- son, báðir frá Akureyri, stóðu sig best allra þeirra para sen kepptu á kjör- dæmamótinu í bridge sem fram fór á Hvanneyri fyrir skemmstu. í svoköll- uðum „butler“-útreikningi eftir mótið reyndust Stefán og Skúli hafa skorað 1,63 impa að meðaltali í spili og annað akureyrskt par kom á hæla þeim í öðru sæti. Það voru Sveinn Pálsson og Jónas Róbertsson sem skoruðu 1,35. í þriðja sæti urðu Ragnar Magnússon - Sigtryggur Sigurðsson með 0,92 í leik. Reyndar urðu aðrir Norðlendingar stigahæstir, Norðvestlendingarnir Jón Örn Berndsen og Ásgrímur Sigur- björnsson. Þeir spiluðu hins vegar ekki nógu mörg spil til að teljast sig- urvegarar. Úrslit í kjördæmamótinu er að flnna á www.islandia.is/svenni. -BÞ Lífeyrissjóöur Norðurlands nýtur mikils trausts Samkvæmt könnun sem Gallup vann fyrir Lífeyrissjóð Norðurlands í mars og apríl nýtur sjóðurinn mikils trausts meðal Norðlendinga. Könnun Gallup náði til 1500 Norðlendinga, svarhlutfall var 70,5% eða 1000 manns og er könnunin því mjög marktæk. Spurt var: „Finnst þér Lífeyrissjóður Norðurlands traustur eða ótraustur aðili?" Svörin skiptust þannig að 86,0% töldu sjóðinn traustan, 10,5% svöruðu hvorki né og aðeins 3,5% töldu hann ótraustan. Þetta hlýtur að teljast afar jákvæð niðurstaða i ljósi þeirra umbrota sem verið hafa á fjár- málamörkuðumi. Ef aðeins er tekið tilliti til þeirra sem afstöðu tóku telja 96,1% svarenda Lífeyrissjóð Norður- lands traustan aðila. -GG Forsvarsmenn tölvufyrirtækisins Skríns ehf. á Akureyri og Byggða- stofnunar á Sauðárkróki hafa skrifað undir samning um að samhliða ílutn- ingi Byggðastofnunar til Sauðárkróks ílytjist öll tölvuþjónusta stofnunarinn- ar til Skríns. Byggðastofnun mun þannig hætta rekstri sérstakrar tölvu- deildar en njóta þess í stað þjónustu frá Skríni ehf. hvað varðar innra tölvukerfi, internetþjónustu og við- netsþjónustu, þ.e. tengingar við banka og stofnanir. Rögnvaldur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Skríns, segir að nú hafi öllum miðlægum tölvubúnaði fyrir Byggðastofnun verið komið fyrir í sér- útbúnum tölvusal Skríns við Glerár- götu á Akureyri og við tölvuverið tengjast siðan rösklega 20 vinnustöðv- ar starfsmanna Byggðastofnunar á Sauðárkróki. í gegnum kerfisveitu Skríns hafa allir starfsmenn aðgang að forritum og upplýsingakerfum stofnunarinnar. „Samningurinn við Byggðastofnun er einn sá stærsti sem Skrín hefur gert um þjónustu af þessu tagi. Skrín fagnar einmitt þessa dagana eins árs afmæli en fyrirtækið var stofnað þann Hin árlega handverkshátíð að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit verður haldin dagana 9.-12. ágúst nk. Hand- verk 2001 er sölusýning handverks- fólks sem haldin er á vegum Eyja- fjarðarsveitar og hefur þessi sam- koma handverksfólks nú fest sig í sessi sem árviss viðburður í sveitarfé- laginu. Framkvæmdaraðili sýningar- innar er Vín ehf. og framkvæmda- stjóri er Björk Sigurðardóttir. 16. júní í fyrra og hefur sérhæft sig í rekstri upplýsingaveitna. Eftirspurn eftir þjónustunni er sífeilt að aukast enda vilja fyrirtæki og stofnanir frek- ar einbeita sér að eigin starfsemi en láta öðrum eftir sérhæfða vinnu við keyrslu upplýsingakerfa. Okkur er fagnaðarefni að takast á við slíkt verkefni fyrir Byggðastofnun og fylgja eftir þeirri uppbyggingu sem stofnun- in verður með á Sauðárkróki i fram- tíðinni," segir Rögnvaldur. Friðþjófur Max Karlsson, forstöðu- Þetta er i níunda sinn sem hand- verkshátiðin að Hrafnagili er haldin. Mikil þróun hefur átt sér stað á þess- um árum í gæðum og fjölbreytni handverks og hefur sýningin vaxiö mjög að umfangi með ári hverju. Sýn- ingarsvæðið er í íþróttahúsi Hrafna- gilsskóla svo og í kennsluhúsnæði. Markaður verður við útitorg og verða iðnaður og afurðir heimilanna uppi- staða hans. maður rekstrarsviðs Byggðastofnun- ar, segir kerflsveitu Skríns hafa orðið fyrir valinu að undangenginni ítar- legri úttekt á þjónustu tölvufyrir- tækja. í þeirri vinnu hafi verið gerðar miklar kröfur um gæði þjónustu og öryggi í rekstri tölvukerfa. Hjá Skríni ehf. eru nú sjö starfs- menn í fullu starfi. Helstu samstarfs- aðilar Skríns eru Skýrr hf., LínaNet hf. og Element hf. Þema sýningarinnar að þessu sinni er „Sauðkindin" og verður leitast við að móta umgjörð sýningarinnar með þemað í huga. Á sýninguna koma tveir listamenn, Svíinn Knut Östgárd og Daninn Tom- as Norgaard. Námskeið verða haldin þar sem vinnubrögð þeirra verða m.a. kennd. -BÞ Handverk 2001 að Hrafnagili DODGE DAK0TA SLT CLUB CAB, 03/00, VRAUÐ. SSK, EK. 43 Þ.KM. AUKHLUTIR 0G BÚNAÐUR:ÚTV/KASS/CD. 30' DEKK.ÁLF. CRUISE.ALLT RAFDR. Verð. 2.690.000 -100% BlLALÁN. JEEP GRAND CHER0KEE LTD, V-8, '95, BRÚNN, SSK., EK. 92 Þ. KM.AUKAHLUTIR 0G BÚNAÐUR:CD. ALLT RAFDR. ABS. DRKRÖKUR. LEÐURSÆTI. ÞJÓFAV/SAMLÆS. T0PPLÚGA. Verð. 1.750.000. VW G0LF C0MF0RTL., 1600,07/98. RAUÐUR, SSK„ EK. 32 Þ. KM.AUKAHLUTIR 0G BÚNAÐUR: ÚTV/KAS.RAFDR. RÚÐ/SPEGL. ABS. ÞJÖFAV. SPOILER. Verð 1.250.000. M.BENZ E 240 AVANTGARDE '98, BLÁR, SSK., EK. 76 Þ. KM.AUKAHLUTIR 0G BÚNAÐUR: CD. ALLT RAFDR. ABS. ÁLF. LEÐURSÆTI. AIRBAG. AIRC0NTI0N. Verð 3.290.000. KIA CLARUS GLX 2000, STW00. BLÁR, SSK, EK. 10 Þ. KM. AUKAHLUTIR 0G BUNAÐUR. CD. ALLT RAFDR. ABS. ÞJÓFAV/SAMLÆS. ÁLF. UPPHÆKKAÐUR. Verð.1.590.000. F0RD KA '98, BLÁR, 5 GlRA, EK. 25 Þ. KM. AUKAHLUTIR 0G BÚNAÐUR: CD. ÁLF. RAFDR. RÚÐ. SAMLÆS. SUMAR- 0G VETRARDEKK. BlLALÁN KR 500.000,18 Þ. A MÁN. KJÖR: BiLALAN + KR 100.000 ÚTB0RGUN. Verð. 720.000. BMW 318IS '93, RAUÐUR, 5 GlRA, EK. 174 Þ. KM. AUKAHLUTIR 0G BÚNAÐUR: CD. RAFDR. RÚÐ. ÁLF. T0PPLÚGA SAMLÆS. Verð. 950.000. Greiðslukjör, Visa/Euro raðgreiðslur.skuldabréf, öll skipti möguleg, ódýrari. Komdu með bílinn, skráð'ann og við auglýsum hann frítt á Netinu með mynd. m BÍLASALAN <SS> SKEIFAN • BILDSHOFÐA 10 • S: 577 2800 / 587 1000 Akureyri: Bilasalan Os - Hjalteyrargötu 10 - Simi 462 1430

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.