Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Qupperneq 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 DV Notuðu lögreglutalstöð Svo viröist vera sem óeirðimar í Gautaborg í síðustu viku hafi verið skipulagðari en margir héldu. í grein í Aftonbladet er greint frá því að lögreglan hafi ráðist til inngöngu í hús sem notað var til að skipuleggja óeirðirnar. Þar fann lögreglan sams konar talstöð og hún notar. Það þykir sannað að fylgst hafi verið með ferðum lögreglunnar og þeir sem úti á götunum voru verið látnir vita hvar hún væri og hvaða skipanir hún hefði fengið. Enn fremur er talið að óeirðarseggirnir hafi tekið upp á segulband samtöl lögreglunnar og notað upptökurnar til að vilia um fyrir lögreglunni sjálfri. Á einni uptökunni er gefm skipun um að aðhafast ekkert og leikur grunur á að sú upptaka hafi verið notuð þegar óeirðarseggir létu sem verst til að rugla lögregluna í ríminu. Tólf manns voru handteknir í stjórnstöðinni. Allt er fólkið danskir ríkisborgarar, búsett í Svíðþjóð. Að minnsta kosti einn af þessum tólf hefur komið við sögu lögreglunnar í Svíþjóð vegna óláta. Hong Kong: Bíða úrskurðar um brottflutning 5000 íbúar í Hong Kong bíða nú úrskurðar dómstóls um hvort þeir verða fluttir nauðugir aftur á meg- inlandið, þar sem þeir bjuggu áður en Kínverjar fengu eyjuna afhenta frá Bretum. Þing Kína komst að þeirri niðurstöðu að flytja bæri fólk- ið burt, en allt á það að minnsta kosti eitt foreldri í borginni. Fólkið vill vera áfram hjá fjölskyldum sín- um og áfrýjaði niðurstöðu Kína- þings til æðsta dómstóls Hong Kong. Eftir að breska nýlendan fyrrver- andi komst i hendur Kínverja úr- skurðaði Kínaþing að fólkið hefði rétt til að búa hjá fjölskyldum sin- um. Þeim úrskurði hefur þingið hins vegar snúið við, eins og áður segir. Hundrað foreldrar fóru í hungur- verkfall fyrir utan dómstólinn og bíða þess nú í örvæntingu, ásamt af- kvæmum sínum, að endanleg niður- staða fáist í málinu. Enn og aftur klikkar það Þaö viröist ekki eiga aö liggja fyrir Steve Fosset aö komast hringinn í kringum jöröina í loftbelg, ekki í þessu lífi alla vega. Enn ein tilraun hans fór í handaskolum um helgina og í þetta sinn komst hann ekki einu sinni á loft. Hér sjást aöstoöarmenn Fossets taka saman punkteraöan loftbelginn í Ástralíu í dag. Þaulsklpulagðar óeirðir Svo viröist sem óeiröirnar í Gautaborg hafi veriö vel skipulagöar. NATO býður aðstoð við afvopnun Alríkið aflífar öðru sinni á vikutíma Viðræður milli stjórnmálaflokka albanska minnihlutans og slavneskra flokka í Makedóníu standa í stað. Ástæðan eru kröfur albönsku flokkanna. Ofan á kröfur um að gerðar verði þó nokkrar breytingar á 10 ára gamalli stjórnaskrá landsins fara fulltrúar Albana fram á að búinn verði til staða varaforseta fyrir þá. Auk þess vilja þeir að allar ákvarðanir sem varða stjórn landsins verði að fá samþykki albanska minnihlutans áður en þeim er hrint í framkvæmd. Fulltrúar annarra stjórnmála- flokka eru sagðir geta sætt sig að einhverju leyti við breytingar á stjórnarskránni þar sem réttur makedónskra Albana yrði tryggður. Það myndi þýða að málstaður skæruliða Albana yrði að engu og þeir neyddust til að láta af baráttu sinni ellegar missa trú annarra á Oröið verst úti Óbreyttir borgarar af albönskum uppruna hafa oröiö verst úti í átökum undanfarinna vikna. baráttu sinni. Hins vegar geta samningsaðilar ekki sæst á aðrar kröfur. Það hefur hjálpað verulega til að NATO hefur boðið samningsaðilum hjálp við afvopnun skæruliða og friðargæslu í einhvern tíma eftir það. NATO hefur hins vegar sett timamörk til miðvikudags fyrir aðila að komast að samkomulagi. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, gagnrýndi á sunnudaginn stefnu vestrænna ríkja sem sáttasemjara í deilu þjóðarbrotanna tveggja. Hann sagði að NATO hefði mistekist að stöðva ferðir albanskra byssumanna frá Kosovo. Hann sagði enn fremur að í stað þess að taka á því máli væru vestrænu ríkin nú að neyða makedónsk stjórnvöld til að ganga að skilmálum skæruliðanna. Ákvörðun bandarískra dómstóla um að hinn Mexíkóættaði morð- ingi, Juan Raul Garza, yrði tekinn af lífi var ekki breytt af George W. Bush Bandaríkjaforseta þegar þess var leitað í gær. Samkvæmt skipu- lagi átti að taka Garza af lífi í bæn- um Terre Heute í Indiana á hádegi í dag. Þetta er í annað skipti á ein- ungis einni viku sem bandaríska alríkið stendur fyrir aftöku. 38 ára hlé á aftökum alríkisins var rofið á mánudaginn þegar Oklahoma- sprengjumaðurinn Timothy McVeigh var sprautaður eitri i sama stól og óla átti Garza við og lífláta á hádegi. Síðasta von Garza var að Bush forseti myndi taka vel i bréf sem lögfræðingar hans sendu, þar sem beðið var um að dauðadómnum yrði breytt í lífstíð- arfangelsi. Ekki varð úr því. And- stæðingar dauöarefsinga skipu- lögðu mótmælagöngu í tilefni af- tökunnar. George W. Bush Synjaöi beiöni um aö breyta dauöa- dómi í lífstíöarfangelsi. STYRANLEGUR - BOR BORARALLTAÐ 300metra 150 til 450mm ^ OFNASMIÐJA REYKJAVÍKUR HF iiiiiii' Ljósmynduðu Díönu iátna Tveir ljósmynd- arar, sem tóku myndir af vettvangi dauðaslyss Díönu prinsessu í París fyrir fjórum árum, eru nú viðfangsefni opinberrar rann- sóknar. Þeir þykja hafa rofið einkalíf. Rekinn vegna tölvukláms Yfirmaður í kanadíska sjóhern- um hefur verið leystur frá störfum fyrir þær sakir að hafa skoðað eró- tískar netsíður með hjálp tölvu i eign hersins. Aftur með hníf á leikskóla Japönsk kona vopnuð hnífi særði fóstru á leikskóla í Tokyo í gær. Fyrir tveimur vikum voru 8 leik- skólabörn myrt af hnífamanni í Jap- an. Taílenskur leiðtogi grætur Forsætisráðherra Taílands grét í gær fyrir dómstóli sem rannsakar meint fjármálamisferli hans. Hann segist ekki hafa talið fram eignir sínar vegna hreinna mistaka. Stjórnmálaskýrendur segja málið prófstein á taílenskt lýðræði. Tekinn út af takó 17 ára gamall Texasbúi reyndi í gær að ræna skyndibitastað með leikfangabyssu. Hann bað um pen- ing og takósamloku, sem hann þurfti að biða svo lengi eftir að lög- reglan náði honum. Arafat í Madríd Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, kom til Ma- drídar til viðræðna við spænska forsæt- isráðherrann Jose Maria Aznar. Nú er róið lífróðri að því að halda brothættu vopnahléi i Mið-Austurlöndum. Mótmælendur skotnir 13 mótmælendur voru skotnir til bana af lögreglu í Manipur-héraði á Indlandi í gær. Mikil læti voru í lýðnum, sem mótmælti framleng- ingu vopnahlés við skæruliða á svæðinu. Mál Pinochets fyrir rétt Dómstóll í Chile hóf í gær réttarhöld í máli Augustos Pinochets hershöfð- ingja, sem sakaður er um að hafa stað- ið að morðum á fjölda pólitískra andstæðinga sinna. Hann stjórnaði landinu í 17 ár, eftir að hafa varpað sósíalískri stjórn af stóli með fulltingi Bandaríkja- manna árið 1973. Mótmæli bönnuð í Alsír Stjórnvöld í Alsír bönnuðu í gær mótmæli í höfuðborginni Algeirs- borg. Óeirðir hafa þar verið daglegt brauð upp á síðkastið. Schröder styður Pólverja Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, sagðist í gær vona að Pólverjar fengju inngöngu í ESB strax árið 2004, þrátt fyrir deilur um höft á flæði vinnuafls frá nýjum að- ildarlöndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.