Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Side 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001_________________________________________________________________________________________________ ÐV Útlönd Hluthafafundur 2001 Tekinn frá hundunum Eftir tvö ár hefur chileskur drengur verið hirtur frá hundafjöiskyldu sinni. Hundadrengur finnst í Chile 10 ára drengur fannst I helli í Chile í fyrradag, en hann hafði lifað þar meðal flökkuhunda í 2 ár. Drengurinn var yfirgefinn af íjöl- skyldu sinni 5 ára gamall og hann flúði af vistheimili fyrir börn þrem- ur árum síðar. Þá gekk hand til liðs við hjörð 15 hunda. Allar götur síðan hefur hann þvælst um með hundunum og rótað eftir mat í ruslatunnum. Jafnvel er talið að hann hafi verið á spena hjá þeim. Komið var auga á drenginn á sunnudag og var hann eltur af lög- reglu. Eltingaleikurinn náði há- marki þegar hann stökk út í Kyrra- hafið og var í kjölfarið bjargað af lögregluþjóni. Honum hefur verið skilað á vistheimilið. Hann ber merki þunglyndis og talar litið sem ekkert. Læknar blekkja dauðvona Ný rannsókn á viðbrögðum lækna við spurningum dauðvona krabbameinssjúklinga um lífslíkur leiða i ljós að oftar en ekki eru sjúk- lingar vísvitandi blekktir um þann tíma sem þeir eiga eftir ólifaðan. Á þriðja hundrað læknar í Chicago- borg voru spurðir hvemig þeir svöruðu umræddum spurningum. 40 prósent sögðust vísvitandi segja sjúklingunum að þeir ættu lengra eftir ólifað. 23 prósent sögðust ekki myndu svara þeim. 27 júní kl. 17.00 í íslandsbanka á Kirkjusandi, 5. hæð. Dagskrá: Tillaga um samruna félagsins við Fjárfestingarfélagið Straum hf. Hægt er að nálgast samrunagögn hjá Islandsbanka - Eignastýringu á Kirkjusandi, 4. hæð. Sharon ákærður fyrir stríðsglæpi Eftirlifendur fjöldamorða á hundruðum palestinskra flótta- manna í Líbanon árið 1982 hafa lagt fram ákæru á hendur Ariel Sharon þar sem hann er sakaður um stríðs- glæpi. Kæran er lögð fram í Belgíu þar sem hægt er að kæra fólk fyrir stríðsglæpi hvar sem það er statt í heiminum. Árið 1982 var Sharon varnarmála- ráðherra í ísrael og yfir israelska hemum. Herinn hleypti vopnuðum hópum kristinna falangista inn í búðir palestínskra flóttamanna í Lí- banon í leit að vopnuðum skærulið- um. Falangistarnir enduðu með að taka af lífi hundruð manna, auk þess að nauðga konum. Nefnd á vegum ísraelskra stjórn- valda komst á sínum tíma að þeirri niðurstöðu að Sharon væri óbeint sekur í málinu þar sem hann hefði leyft að falangistunum yrði hleypt inn án þess þó að gera sér grein fyr- . Er hann sekur eður ei? Ariel Sharon, sem hér sést ræða við Shaul Mofaz, yfirmann ísraelska hersins, var talinn eiga óbeina sök á fjötdamorðunum í Libanon af nefnd á vegum ísraelskra stjórnvatda. ir afleiðingunum. Á meðal þeirra sem standa að ákærunni er Souad Srour al- Mere’eh sem mætti sjálf til að leggja fram ákæruna. í yfirlýsingu minnt- ist hún þess hvernig byssumenn hefðu skotið til bana stærstan hluta fjölskyldu sinnar og því næst nauðg- að sér í hópum. Lögfræðingar hóps- ins segjast vona að málið verði tek- ið fyrir og Sharon þurfi að svara til saka. Þeir eru aftur á móti ekki bjartsýnir á að hægt verði að fá Sharon til að mæta fyrir rétt án þess þó að viðurkenna að ákærurn- ar hefðu aðeins táknrænt gildi. í sjónvarpsþætti sem sýndur var á BBC-sjónvarpstöðinni var spum- ingum hvort Sharon hefði borið ábyrgð á fjöldamorðunum velt upp. Þátturinn hefur vakið hörð við- brögð ráðamanna í ísrael og sagði Shimon Peres utanríksráðherra hann vera hneyksli. Kirkjusandi ■ Sími 560 8900 • Fax 560 8910 Pútín með sendiherra Lesotho Vladimir Pútín Rússlandsforseti slappaði af og skálaði með nýskipuðum sendiherra Lesotho í Rússlandi eftir vel heppnaðan fund með George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, um heigina. Pútín sagði að Bush hefði komið sér á óvart með samræðuhæfileikum sínum og sjarma og lýsti því yfir að öll vandamál mætti leysa með viðræðum. Vill enga aðals- tign í Kanada Jean Chretien, forsætisráðherra Kanada, hefur sent breskum starfs- bróður sínum, TonyBlair, bréf og hvatt hann til að láta ekki aðla fleiri Kanadamenn. Hann segir aðalstign- ina ekki samræmast kanadíska lýð- ræðinu og ber fram persónuleg mót- mæli sín þar um. Chretien er óá- nægður með að tveir Kanadamenn hafi verið aðlaðir á afmælisdegi El- ísabetar Bretadrottningar, sem er enn þjóðhöfðingi Kanadamanna. Hann hefði óskað þess að Bretar hefðu haft samráð við Kanadastjórn um málið og kynnt sér stefnu henn- ar í málum sem lúta að því að heiðra borgara landsins. Leiðtogi stjómarandstöðunnar í Kanada hefur lýst yfir furðu sinni með viðbrögð forsætisráðherrans. Býður andstæðingum hnattvæðingar ólífugrein Silvio Berlusconi, nýkjörinn for- sætisráðherra Ítalíu, hélt stefnu- ræðu sína í öldungadeild ítalska þingsins í gær. Það sem var hvað mest beðið eftir var hvað hann hefði um fund leiðtoga G-8 ríkjanna í næsta mánuði að segja. Fundurinn verður haldinn í ítölsku hafnar- borginni Genova. Berlusconi hefur rétt mótmæl- endum hnattvæðingar i viðskiptum svokallaða ólifugrein, tilboð um að koma á viðræðum milli mótmæl- enda og fundarmanna. Stórfelldar óeirðir fylgja samkom- um þjóðarleiðtoga þegar þeir ræða viðskiptamál heimsins um þessar mundir. Berlusconi sagði að hingað til hefði algjörlega vantað samskipta- leiðir milli leiðtoga og mótmælenda. Þessir hópar væru samt oftar en Berlusconi flytur stefnuræðu Hagsmunaárekstrar fyrirtækja- reksturs og ráðherradóms leystir. ekki að berjast fyrir sömu markmið- unum, s.s. niðurfellingu skulda þró- unarríkja. Hann bætti við að val á fundar- stað hefði verið slæmt, án þess þó að gefa í skyn að færa fundinn eða halda hann á skipi eins og hug- myndir hafa komið upp um. í stað- inn myndi lögregla reyna að ein- angra ofbeldisseggi áður en þeir hleyptu öllu í bál og brand. Berlusconi lýsti einnig yfir í stefnuræðu sinni einskærum vilja til að takast á við hagsmuna- árekstra sem fylgja fyrirtækjarekstri hans og setu i forsætisráðherrastól. Hann sagðist mundu kynna lagadrög fyrir þinginu áður en það færi í sum- arfrí. Berlusconi og fjölskylda hans eiga fjölmörg fyrirtæki á Ítalíu, þ. á m. stærsta einkarekna sjónvarpsfyr- irtækið, Mediaste. Hluthafar eru hvattir til að mæta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.