Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2001, Page 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001
Tilvera DV
lifift
Sungið og spilað
í Sigurjónssafni
Þær Gerður Bolladóttir
sópransöngkona og Júlíana Rún
Indriðadóttir píanóleikari koma
fram á tónleikum í listasafni
Sigurjóns Ólafssonar í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
á efnisskránni eru sex sönglög
eftir Jórunni Viðar og þrjú verk
eftir Samuel Barber.
Leikhús
■ PIKtÍSOGÚR Á STORA SVÍÐÍ
í tilefni dagsins verða Píkusögur eft-
ir Eve Ensler sýndar á Stóra sviði
Borgarleikhússins í kvöld klukkan
20. Leikstjóri er Sigrún Edda Björns-
dóttir en leikkonur eru þær Halldóra
Geirharösdóttir, Sóley Elíasdóttir og
Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Kynlífs-
spekúlantinn Ragnheiöur Eiriksdótt-
ir aö flytja erindi tengt Píkusögum
að sýningu lokinni. Orfá sæti laus.
■ EVA - BERSÖGULL SJÁLFS-
VARNAREINLEIKUR
I kvöld er aukasýning á Evu-bersögl-
um sjálfsvarnareinleik í Kaffileik-
húsinu kl. 21.00. Málsverður fyrir
alla kvöldviðburði.
Fundir
■ jARÐSKJÁLFtÁVIRkNIÍ .........
ELDSTODVUM
Bryndís Brandsdóttir
jarðeðlisfræðingur heldur fyrirlestur
á Jöklasýningunni á Höfn í
Hornafiröi í kvöld. Hún fjallar um
jarðskjálftavirkni í eldstöðvum
Vatnajökuls. Fyrirlesturinn er í
Sindrabæ og hefst kl. 20.
■ HOLLVINIR HJÚKRUNAR
Aöalfundur Hollvinafélags
hjúkrunarfræöideildar er í dag í
Eirbergi, Eiríksgötu 34. Hann hefst
kl. 16.30 og allir velunnarar
hjúkrunarfræðideildar eru velkomnir
á hann.
■ BÓKMENNTIR Á KANADÍSKU
SLETTUNUM Islensk-kanadíska
skáldið, rithöfundurinn,
háskólakennarinn og fræðimaöurinn
David Arnason flytur fyrirlestur um
kanadísk fræði í dag. Fyrirlesturinn
nefnir hann Canadian Prairie
Writing and the Tadical Tradition
eða Bókmenntaskrif á kanadísku
sléttunum og andófshefðin. Þar
fjallar hann um bókmenntir í
Manitoba, Saskatchewan og Alberta
á síðustu öld, og þá nýsköpun sem
sprottið hefur upp úr
Ijölmenningarlegri samsetningu
fylkjanna. Fyrirlesturinn er í stofu
101 í Odda og hefst kl. 17.15.
■ ÞROSKAÞJÁLFAR Á ÚTIFUNDI
Þroskaþjálfafélag Islands heldur
útifund í dag kl. 17.00 við
þvottalaugarnar í Laugardal.
Fjölmargir munu flytja ávörp.
Tónleikar
■ BACH í BREÍÐHÖLfSKIRKJU
Tónleikar verða í Breiöholtskirkju í
kvöld undir yfirskriftinni Bach í
Breiöholtskirkju. Þar leikur Jörg E.
Sondermann organisti nokkur valin
verk.
Sýningar
■ JÓN INGI Í EDEN
Jón Ingi Sigurmundsson sýnir olíu-,
pastel og vatnslitamyndir í Eden
þessa dagana. Myndirnar eru allar
málaöar á þessu ári og því síðasta.
■ SKÁLDAO í TRÉ
Þjóöminjasafn Isjands, Landsvirkjun
og Byggöasafn Árnesinga standa
aö sýningu í Ljósafossvirkjun við
Sog. Hún heitir Skáldaö í tré og
sýnir úrval útskorinna muna.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
Glatt á hjalla
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Helgi Hjörvar og Hrann-
ar B. Arnarsson, borgarfulltrúar meirihlutans, slá á létta strengi í veislunni.
Samherjar
Júlíus Vífill tekur á móti Árna Mathiesen, sjávarútvegsráðherra og samherja í
Sjálfstæöisflokknum.
Júlíus Vífill
fimmtugur
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisílokksins, óperu-
söngvari og bílasali með meiru,
fagnaði Fimmtugsafmæli sínu á
föstudaginn. Veislan fór fram í
húsakynnum fjölskyldufyrirtækis-
ins Bílheima og var þar margt
góðra gesta, meðal annars samherj-
ar Júlíusar og mótherjar í pólitík-
inni, fólk úr bílabransanum og aðr-
ir vinir og vandamenn.
Málin rædd
Sjálfstæöismennirnir Eyþór Arnalds, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Júlíus
Hafstein taka tal saman.
DV-MYNDIR EINAR J.
Á góöri stund
Afmælisbarniö ásamt eiginkonu sinni, Svanhildi Blöndal.
Bíógagnrýni
Mætti til aö samfagna Júlíusi Vífli
Inga Jóna Þóröardóttir, oddviti minnihluta Sjálfstæöisflokks
ins í borgarstjórn ásamt eiginmanni sínum, Geir H. Haar-
de fjármálaráöherra.
Háskölabíó - Some Voices ★ ★
Raunveruleiki og ímyndun
Hiimar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Það er ekki auðvelt fyrir leikara
að bregða sér i hlutverk geðveiks
manns, sem telur sjálfum sér trú
um að hann sé heilbrigður. I Some
Voices þarf Daniel Craig að glíma
við þetta verkefni og ferst það vel úr
hendi, er sannfærandi í hlutverki
hins rótlausa Ray sem nýsloppinn
er af geðveikrahæli. Craig fær góð-
an mótleik frá David Morrisey sem
leikur bróður hans, Pete, er telur
sig þurfa að bera ábyrgð á Ray.
Leikstjórinn Simon Cellan Jones
hefur það að leiðarljósi að koma
heimssýn Rays sem best til skila,
láta áhorfendur sjá veröldina með
augum Rays en ekki, eins og algeng-
ast er, að aörir séu að fylgjast með
því hvemig sá geðveiki hagar sér.
Some Voices er byggð á leikriti og
höfundur handritsins, Joe Penhall,
er einnig höfundur leikritsins svo
það má ekki búast við að mikið sé
breytt út frá upprunalegum texta.
Þetta bæði auðveldar leikstjóran-
um, þegar haft er i huga hversu
erfitt viðfangsefnið er, og bindur
einnig hendur hans eins og berlega
kemur í ljós. Það eru aðeins fjórar
persónur í myndinni sem eitthvað
skipta máli, bræðurnir Ray og Pete,
Laura (Kelly MacDonald), sem Ray
fellur fyrir, og Mandy (Julie Gra-
ham), þjónustustúlka á veitingastað
sem Pete á og rekur.
Með svo fáar persónur á Simon
Cellan Jones i nokkrum erfiðleikum
með að færa verkið úr leikhúsi yfir
í kvikmynd og nær myndinni aldrei
almennilega á flug, hún er þess
meiri vettvangur góðra leikara. Það
er aðeins í atriðinu þegar Ray fer
með Lauru í dagsferðalag að rammi
leikhússins er brotinn. Meira að
segja sýnir Rays og ofheyrn ná ekki
þeirri myndáherslu sem nauðsynleg
er til að auka áherslu á hvernig geð-
veiki Rays eykst þegar líður á
myndina.
Það sem virkar i Some Voices er
trúverðug frásögn á því hvernig
maður sem verið hefur inni á geð-
veikrahæli telur sér trú um að hann
sé heilbrigður og þurfl ekki á geð-
lyfjum að halda. Pete, sem sér í kjöl-
farið breytingar á atferli Rays, reyn-
ir að halda lyijunum að bróður sín-
um án árangurs. Hvorki Ray né
Laura, sem þekkir kannski minna
bakgrunninn í lífi Rays, gera sér
grein fyrir ástandinu fyrr en of
seint og sálarangist Rays er mikil
þegar hann flnnur að hann er á leið
í sama farið. Upp úr þvi fer að bera
á brengluðu veruleikamati hjá hon-
um.
Some Voices er áhrifamikil kvik-
mynd en um leið vantar festu í
hana. Átök persónanna sín á milli
eru sannfærandi en ná einhvem
veginn ekki að upphefla eitt atriði
fram yfir annað. Til að mynda upp-
gjör bræðaranna hefði átt að vera
áhrifameira en það í raun er.
Leikstjóri: Simon Cellan Jones. Handrit:
Joe Penhall. Kvikmyndataka: David Odd.
Tónlist: Adrian Johnston. Aóalleikarar:
Daniel Craig, David Morrissey, Kelly
MacDonald og Julie Graham.