Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 Fréttir I>V Orkuveitan kannar möguleika á járnbrautarlagningu: Við styðjum allar slíkar hugmyndir - hagkvæmniathugun liggur fyrir í haust, segir aðstoðarforstjóri Hugmynd Skúla Bjarnasonar, stjórn- arformanns Strætó bs., í DV í gær um járnbrautir á höfuð- borgarsvæðinu hafa vakið gríðarmikla athygli. Járnbraut- arlagning á íslandi virðist síður en svo fjarlægir draumórar og þegar er byrjað að vinna í fullri alvöru að athugunum i þá veru. „Orkuveita Reykjavíkur er spennt fyrir hvers konar hugmynd- um sem stuðlað geta að nýtingu inn- lendra orkugjafa á samgöngutæki,“ segir Ásgeir Margeirsson, aðstoðar- forstjóri Orkuveitunnar. Fyrirtækið efndi einmitt í samvinnu við emb- ætti borgarverkfræðings til úboðs í vor á Evrópska efnahagssvæðinu um gerð hagkvæmniathugunar á að koma upp rafknúinni járnbrautar- lest á milli Reykjavíkur og Keflavík- urflugvallar. Sú vinna er nú í full- um gangi í samvinnu innlendra og erlendra fyrirtækja og niðurstöður munu liggja fyrir í haust. „Það sem fyrir okkur vakir er að koma innlendri orku í notkun i samgöngum, það er vel hugsanlegt að það geti verið innan borgar- markanna eins og suður á Keflavík- urflugvöll. Þá er einhvers konar tenging við samgöngukerfi borgar- innar eitthvað sem menn vilja kanna. Hluti af því sem er verið að skoða í okkar vinnu eru einmitt lestir sem nánast geta keyrt inn á götur.“ Ásgeir segir menn hafi enn mjög óljósar hugmyndir um kostnað við hugsanlega járnbrautarlagningu. Þaö fari allt eftir því hvernig lestar- gerðir verið er að horfa á. Þvi verði ekki hægt að leggja fram neinar áreiðanlegar tölur fyrr en hag- kvæmniathugun liggur fyrir. „Við styðjum heils hugar allar hugmyndur um nýtingu á innlendri orku í samgöngum," segir Ásgeir en Orkuveitan er m.a. aðili að ís- lenskri nýorku sem vinnur að vetn- isvæðingu á íslandi. Þrír vetnisknúnir strætisvagnar eru iárnbrautarbyiting á höfuðborgarsvæðinu ♦'*» um* tam ***, *»n*u f -SiMáS! Frétt DV um hugmyndir Skúla Bjarna- sonar í gær. væntanlegir síðla næsta árs til Reykjavíkur sem hluti af þessum áætlunum í sam- vinnu við bílafram- leiðandann Daim- ler-Chrysler, Shell og Norsk Hydro. Áformað er að fram- leiða vetni fyrir þessa strætisvagna úr íslensku vatni og íslenskri raforku í nýrri vetnis- og bensínstöð sem reist verður af þessu til- efni. Þá hefur Orku- Léttbyggö járnbrautarlest Stjörnarformaöur Strætó bs. sér fyrir sér lest í líkingu viö þessa á höfuöborgarsvæöinu á næstu árum. Rafknúin járnbrautarlest í Portúgal Þessi lest á aö ná allt aö 220 km hraöa þegar framkvæmdum viö uppbygg- inguna lýkur, væntanlega á þessu ári. Hún gengur á milli bæjarins Porto og höfuöborgarinnar Lissabon í Portúgal. Ásgeir Margeirsson aöstoöarforstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. veitan einnig stutt tilraunir með nýtingu á metangasi á bíla af ösku- haugum höfuðborgarinnar í Álfs- nesi. Metan er mjög sterk gróður- húsalofttegund, margfalt hættulegri en koltvísýringur og er því mjög mikilvægt að brenna því áður en það fer út í loftið. Einnig hefur hún stutt tilraunir með notkun raf- magnsbíla. Ásgeir segir að þá sé nú á leiðinni til landsins vél sem brennir metangasi til að framleiða rafmagn. Sú vél á að framleiða eitt megavatt af rafmagni og verður væntanlega komin í gagnið í haust. „Við íslendingar erum mjög fram- arlega i nýtingu innlendra umhverf- isvænna orkugjafa, s.s. til raforku- vinnslu og húshitunar. Það sem eft- ir situr er eldsneyti á skip, báta og bíla og því viljum við breyta. Við getum gert þar stóra hluti og verið framarlega í þróuninni, þá t.d. með nýtingu vetnis eða rafmagni beint á skip, bila eða á járnbrautir," segir Ásgeir Margeirsson. -HKr. DV-MYND JÚLÍA IMSLAND Bedfordinn stendur fyrir sínu Baldur Pálsson, slökkviliösstjóri á Eg- ilsstöðum, fór suöur á dögunum og sótti gamlan Bedford-slökkvibíl. Aö sögn Baldurs er Bedfordinn í aldeilis frábæru standi, þrátt fyrir mjög háan aldur. Btlar af þessari gerö eru margir í notkun hjá slökkviliöum á lands- byggöinni og þykja afkastamiklir dælubílar. Réðst á móður sína: Gæsluvarðhald staöfest Hæstiréttur staðfesti í gær gæslu- varðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem réðst á móður sína með skær- um fyrr í mánuðinum og veitti henni 10 sentímetra langan skurð með skærum. Úrskurður héraðsdóms var á þá leið að hætta sé talin á að maöurinn haldi áfram líkamsárásum og ætt- ingjar óttist að hann leggi aftur til atlögu. Maðurinn hefur játað á sig verknaðinn og var þess vegna dæmdur í gæsluvarðhald á grund- velli þess að nauðsyn þyki að verja aðra fyrir árásum hans. Honum er gert að sæta rannsókn á andlegum og líkamlegum þroska. -aþ Kappakstri lauk með veltu Bill valt á Hafnarfjarðarveginum um ellefuleytið í gærkvöld. Orsök slyssins er sú að tveir bílar voru í kappakstri og varð sá fremri var við radarmælingar lögreglu á þessum slóðum. Hann negldi niður og bíll- inn fyrir aftan einnig en með þeim afleiðingum að hann fór eina veltu. Að sögn lögreglu voru báðir öku- mennirnir innan við tvitugt og ann- ar þeirra með nýtt ökuskírteini. Engin slys urðu á fólki en bíllinn sem valt skemmdist töluvert og var fluttur á brott með krana. -aþ Slagsmál á hóteli Slagsmál brutust út á Hótel Cabin um þrjúleytiö i nótt. Tveir aðkomu- menn áttu í átökum við tvo gesti. Þegar lögregla kom á vettvang voru árásarmennirnir á bak og burt. Hin- ir tveir slösuðust lítils háttar og var ekið af lögreglu á slysadeild Land- spítalans. Lögregla leitar nú tví- menninganna. -aþ Veðrið í kvöld M. •S- C8 .-r. 4- .# 1 (s Viða léttskýjað Fremur hæg norðvestlæg átt eða hafgola og víða léttskýjað en sums staðar síödegisskúrir í innsveitum. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast sunnan til. Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 23.30 23.49 Sólarupprás á morgun 03.38 02.43 Síðdegisflóð 23.59 16.08 Árdegisflóö á morgun 12.34 04.32 Skýringer á yeSnrléknum J^VINÐATT 10°*— HiTI ■10° '^VINDSTYRKUR ! mijfruin á tokúrxíu ^FROST HHOSKÍRT íD O. IÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ SKÝJAÐ V,*;* W/ w © Veðríð á morgun RIGNING SKÚRIR SLYÐDA SNJÓKOMA 1- X&9Í ** b? 4- Y ÉUAGANGUR RRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA Færð Enn ófært í Oskju Enn ein ferðahelgin er að bresta á. Full ástæða er til aö hvetja vegfarendur til að aka með gætni. Flestir vegir landsins eru færir, bæði í byggð og óbyggö. Þó er enn ófært um Dyngjufjalla- og Gæsavatnaleið og síöasta hluta leiöarinnar I Öskju. Hlýjast sunnan til Fremur hæg norðvestlæg átt eða hafgola og víöa léttskýjað en sums staðar síðdegisskúrir í innsveitum. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast sunnan til. Sunnud Manuda Vindur: 4—6 m/a Hiti 8° til 17' Vindur: 4-7 «V's Hiti 8° til 17° Þriðjud m Vindur: 5-7 m/s Hiti 8" til 17* Fremur hæg austlæg efta breytlleg átt og skýjað með köflum en dálitlar skúrlr i flestum landshlutum. Hltl 8 tll 17 stlg, hlýjast sunnan tll. Hæg austlæg eða breytlleg átt og skýjað með köflum en dálltlar skúrir í flestum landshlutum. Hltl 8 til 17 stig, hlýjast sunnan tll. Fremur hæg austlæg eða breytlleg átt og skýjað með köflum en dálitlar skúrlr í flestum landshlutum. Hltl 8 tll 17 stlg, hlýjast sunnan tll. Veðríð AKUREYRI skýjaö 6 BERGSSTAÐIR léttskýjaö 5 BOLUNGARVÍK skýjað 6 EGILSSTAÐIR 7 KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 8 KEFLAVÍK Skýjaö 9 RAUFARHÖFN léttskýjaö 9 REYKJAVÍK skýjaö 6 STÓRHÖFÐI skýjaö 9 BERGEN úrkoma I gr. 12 HELSINKI hálfskýjaö 18 IWtUPMANNAHÖFN skúr á SÍÖ. klst. 14 ÓSLÓ skýjaö 12 STOKKHÓLMUR 16 ÞÓRSHÖFN skúr 7 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 13 ALGARVE heiðskírt 27 AMSTERDAM skúr á SÍÖ. klst. 15 BARCELONA rhistur 21 BERLÍN skýjaö 15 CHICAGO mistur 16 DUBLIN rigning 10 HALIFAX þokumóöa 11 FRANKFURT skýjaö 15 HAMBORG skýjaö 13 JAN MAYEN léttskýjaö 2 LONDON skýjaö 13 LÚXEMBORG skýjaö 11 MALLORCA léttskýjaö 22 MONTREAL alskýjaö 16 NARSSARSSUAQ skýjaö 7 NEW YORK heiðskírt 20 ORLANDO skýjaö 25 PARÍS skýjaö 14 VÍN skúr 16 WASHINGTON léttskýjaö 16 WINNIPEG léttskýjaö 19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.