Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Side 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 DV Abdurrahman Wahid Indónesíuforseti viröist hafa lítinn stuöning í stjórnkerfi lands síns. Wahid í vand- ræðum Amien Rais, leiðtogi indónesíska þingsins, sagði við fjölmiðla í gær að þingið myndi birta ákæru gegn Abdurrahman Wahid, forseta Indónesíu, um spillingu ef hann leysir upp þingið og setur á neyðar- lög í landinu, eins og hann hefur hótað að gera 20. júlí. Rais sagði að yfirheyrslur og vitnaleiðslur vegna ákærunnar yrðu haldnar daginn eft- ir að Wahid setti neyðarlögin. Wahid gaf út handtökuskipun á yfirmann indónesísku lögreglunn- ar, Bimantoro Jakarta. Ástæðan er að lögreglustjórinn neitar að hlýða Wahid, sem hefur sagt honum upp störfum. Um leið og Wahid tilkynnti um handtökuskipunina þustu tveir skriðdrekar frá lögreglunni auk hundrað manna lögregluliðs aö heimili Jakarta og vörðu heimili hans. Wahid sá sig knúinn til að draga handtökuskipunina til baka. Hótun um neyðarlög stendur enn. Kyoto-samningur veldur sparnaði Kyoto-samningurinn gæti minnk- að útgjöld bandariskra neytenda um billjónir króna. Ef Bandaríkin myndu framfylgja samningnum, sem miðar að því að skera niður út- blástur gróðurhúsalofttegunda, myndu bandarískir neytendur spara 5000 milljarða króna í gas- og rafmagnsreikningum fyrir árið 2010, og 135 billjónir fyrir árið 2020. Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund gerðu rannsókn sem leiddi af sér þessar niðurstöður. George W. Bush forseti dró Bandaríkin út úr viðræðum um Kyoto-samninginn undir þeim for- merkjum að samningurinn gæti valdið efnahagslífinu miklum skakkaföllum. Fulltrúar 180 ríkja munu í næstu viku mæta á fund í Bonn í Þýska- landi þar sem reynt verður að ná málamiðlun um Kyoto-samninginn. 30 ríki hafa nú þegar staðfest samn- inginn en aðeins eitt þeirra, Rúmen- ía, hefur sett fram áætlun um að draga úr útblæstri gróðurhúsaloft- tegunda. Ef samningurinn á að taka gildi verða 55 þjóðir að staðfesta hann, sem standa fyrir að minnsta kosti 55 prósent af öllum útblæstrin- um. Örlög samningsins munu velta á þremur ríkjum, Japan, Rússlandi og Kanada. UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um, sem hér seglr Bakkagata 13, Kópaskeri, þingl. eig. Bjargvætturinn ehf., gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður, Landsbanki íslands hf., höfuðst., og Sýslumaðurinn á Húsavík, miðvikudaginn 18. júlí 2001 kl. 13.00.__________________ Bakkagata 8, Kópaskeri, þingl. eig. Guðbjörg Kristjánsdóttir, gerðarbeið- endur Byggðastofnun og Ferðamála- sjóður, miðvikudaginn 18. júlí 2001 kl. 13.30. SÝSLUMAÐURINN Á HÚSAVÍK, Lógregla berst við kaþólska óeirðaseggi Miklar óeirðir brutust út í Belfast i gær þegar ganga Óran- íureglu fóru fram hjá hinu kaþ- ólska Ardoyne-hverfi, sem oft hefur verið vettvangur átaka. Að sögn yfirlögreglustjóra norð- ur-írsku lögreglunnar, Ronnie Flanagan, særðust 113 lögreglu- menn í óeirðum sem kaþólskir óeirðaseggir hófu þegar Óraníu- gangan gekk fram hjá Ardoyne- hverfinu. Þar af þurftu nítján lögreglumenn að leita læknis- hjálpar, m.a. vegna beinbrota og brunasára. Einn lögreglu- maður slasaðist alvarlega en er ekki í lífshættu. Óeirðirnar hófust þegar lög- regla reyndi að leysa upp mót- mæli kaþólikka er gangan fór fram hjá. Við það virðast hlutir hafa farið úr böndunum. Hópur kaþólikka réðst á bensinstöð og kveikti í henni. Einnig hófu óeirðaseggir að fleygja bensín- og sýrusprengjum auk grjóts og öðru lauslegu að lögreglu. Lög- regla notaði vatnsþrýstibyssur og skaut plast- og gúmmíkúlum Ungir mótmælendur Taliö er aö um 200 kaþólikkar hafi ráöist aö lög- reglunni viö Ardoyne. að ólátaseggjunum til að dreifa mannfjöldanum. Lögreglan segir óeirðirnar skipulagðar. Einnig kom til átaka í mið- borg Belfast og í austurhluta borgarinnar. í miðborg þurfti lögregla að hafa afskipti af deilum tveggja hópa Óraníu- ganga. í austurhluta Belfast lenti síðan saman fylkingum mótmælenda og kaþólikka. Forsvarsmenn mótmælenda og kaþólikka hafa ásakað lögreglu um óþarfa hörku i aðgerðum sínum. Lögreglan lenti einnig í átökum við hóp mótmælenda á miðvikudagskvöldið. Hápunktur göngutíðar Óran- íumanna var í gær og fór að mestu friðsamlega fram þang- að til í gær. Göngurnar eru til minningar um sigur Vilhjálms af Óraníu á James II konungi árið 1690. Viðræður til bjargar friðar- samkomulagi, kennt við fóstu- daginn langa, halda áfram í dag. Þar hittast leiðtogar deiluaðila. Hundraö og þrettán lögreglumenn særöir Óeiröirnar í gær tóku á fyrir lögreglumenn á Noröur-írlandi. 113 þeirra meiddust í átökunum. Þar af þurftu 19 aö leita sér læknishjálpar á sjúkrahúsum vegna meiösla. Eitthvaö var um beinbrot og alla vega tveir brenndust þegar þeir fengu bensínsprengju í sig. Einn lögreglumaöur er alvarlega slasaöur en þó ekki í lífshættu. ísraelskur landnemi læt- ur l'rfið eftir skotárás ísraelskur landnemu lést í nótt af skotsárum er hann hlaut af hendi palestínskra byssumanna, auk þess sem annar særðist. Árásin átti sér stað í gær á milli Kiryat Arba land- nemaþorpsins og borgarinnar Hebr- on. Auk þess var skotið á landnema- hjón og barn þeirra þegar þau óku um í bíl sínum. Þau særðust öll. Harðir skotbardagar hófust við Hebron í kjölfar skotárásana og er talið að þeir séu þeir hörðustu frá því átök ísraela og Palestínumanna hófust fyrir níu mánuðum. Að sögn vitna þá lék borgin á reiðiskjálfi og sírenuvæl var það eina sem yfir- gnæfði skothvellina. Einn palest- ínskur lögreglumaður lést í skrið- drekaárás ísraelshers í gærdag sem gerð var í hefndarskyni fyrir skotárásina á landnemafjölskyld- una. Eftir að fréttir af dauða ísraels- Skoöa verksummerki ísraelskir landnemar skoöa hér bíl fjöiskyldunnar er skotiö var á. mannsins úr seinni skotárásinni bárust gerði ísraelsher aðra skrið- drekaárás á þrjár stöðvar úrvals- sveita palestínsku lögreglunnar. Samkvæmt fréttum særðust meira en 60 palestínskir borgarar sem búa í nágrenni lögreglustöðvanna. Óeirð- irnar í gær og nótt sýna að vopnahlé sem Bandaríkjastjórn kom á er svo gott sem liðið undir lok. Sharon, forsætisráðherra ísraels, er nú í heimsókn á Ítalíu til að afla málstaö ísraelsmanna stuðnings. Samkvæmt fréttum mun hann hafa sent son sinn til fundar við Arafat, leiðtoga Palestínumanna, til að reyna að finna lausn á harðnandi átökum. Haft var eftir Sharon að ísraelar muni halda uppi hörðum viðbrögðum við ofbeldi Palestínu- manna. Hann segist þó enn trúa á pólitíska lausn deilunnar. 900 milljóna bætur BLögregluyfirvöld í New York sam- þykktu i gær að borga innflytjanda frá Haítí, Abner Louma að nafni, 900 milljóna króna bæt- ur fyrir ofbeldi gegn honum. Hann var laminn í lögreglubíl og á lög- reglustöð. Innflytjendur flæða á land Um 300 innflytjendur æddu á land á Suður-Ítalíu í gær þegar 25 metra langur fiskibátur þeirra strandaði nokkra metra frá ströndinni. Flestir þeirra voru Kúrdar. Týndar löggur Yfirvöld í Nepal leita dyrum og dyngjum að 70 lögreglumönnum sem maóískir uppreisnarmenn tóku höndum i gær. Ólympiuborgin valin í dag Alþjóða Ólympiunefndin mun velja á milli fimm borga í dag sem vilja halda Ólympíuleikana árið 2008. Peking í Kína þykir sigur- stranglegust, enda hafa Kínverjar sýnt af sér fádæma blíðuhót í tengsl- um við leikana. Þeir hafa aldrei fengið að halda þá áður. Genamengið fjölbreytt Nákvæmasta rannsókn sem gerð hefur verið á mismun milli gena- mengis einstaklinga af mannkyni leiða í Ijós að genamengið sem sam- ræmd teikning af manninum er ekki raunin. Óvæntur mismunur reyndist á einstaklingum. Gaddafí Muammar Gadda- fi, leiðtoga Líbíu- manna, var fagnað af þúsundum manns þegar hann kom til Simbabwe í gær. Með honum í fór var 80 bíla lest og kvenkyns lífvarðar- sveit hans. SÞ neitar ásökunum íraka Sameinuðu þjóðirnar neita harð- lega ásökunum Iraka um að þær ! eyði meiru í sprengjuleitarhunda en j að fæða svelta iraska þjóð eftir 11 ára viðskiptabann. Irakar sögðu SÞ þurfa að útvega leitarhundunum tíkur til að seðja kynhneigðina. íburður hjá rn Gore í kosningabaráttu Demókratinn A1 Gore, sá er tapaði forsetakosningataln- ingunni í Bandaríkj- unum á síðasta ári, ætlar að taka þátt í kosningabaráttu frambjóðenda til þingsins. Hann hef- ur verið í sjálfskipaðri pólitískri út- legð frá því í desember. Skæruliðar skotnir Stjórnarherinn í Líberíu skaut 8 skæruliða til bana þegar þeir fóru yfir landamærin frá Gíneu í gær. Lí- bería segir Gíneu aðstoða skærulið- ana. Sprengjuhræðsla hjá Bush Hluti af Hvíta húsinu var rýmdur i gær þegar varðhundur taldi sig finna lykt af sprengju í bíl sem lagt var við húsið. Engin fannst sprengj- an. Bush þurfti ekki að fara út.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.