Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Page 22
26 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 75 ára___________________________________ Sveinn B. Ólafsson raf- virkjameistari, Rauöagerði 64, Reykjavík. Sveinn og eiginkona hans, Anna Þorgilsdóttir, veröa aö heiman á afmælisdag- inn. Ingibjörg Finnbogadóttir, Vallargötu 18, Þingeyri. Sigurður Sighvatsson, Engjavegi 7, Selfossi. 70 ára___________________________________ Rafn Franklín Olgeirsson, Þórsgötu 5, Reykjavík. Laufey Torfadóttir, Hjaltabakka 16, Reykjavík. Dýrunn Þorsteinsdóttir, Háaleiti la, Keflavík. 60 ára_____________________ Jóhanna Ragnarsdóttir, Heiðarseli 25, Reykjavík. Gylfi Jónsson, Fannafold 116, Reykjavlk. Arthur Knut Farestveit, Hvannalundi 19, Garöabæ. Ágústa B. Árnadóttir, Efstalundi 15, Garðabæ. Guðný Jónsdóttir, Garöabraut 21, Akranesi. 50 ára_____________________ Björn Kristjánsson, Austurbergi 20, Reykjavlk. Hlaðgerður Bjartmarsdóttir, Vættaborgum 38, Reykjavlk. Björn V. Þorleifsson, Heiöargili 6, Keflavík. Þóranna Þórarinsdóttir, Hjallavegi 15c, Njarövlk. Ásdís Baldvinsdóttir, Borgarvlk 2, Borgarnesi. Ragnar Þorsteinsson, Koltröö 17, Egilsstööum. Reynir Guðmundsson, Kirkjubraut 60, Höfn. 40-ára ______________________ Jón Viðar Óskarsson, Skúlagötu 44, Reykjavlk. Gunnhildur F. Theódórsdóttir, Ásgarði 15, Reykjavík. Bryndís Ingibjörg Jónsdóttir, Hvammsgeröi 7, Reykjavík. Þóra Pétursdóttir, Brúnastekk 8, Reykjavík. Jón Einarsson, Víkurströnd 3, Seltjarnarnesi. Sigurður Ingimarsson, Víöihvammi 14, Kópavogi. Þorsteinn Gestsson, Djúpavogi 22, Höfnum. Björn Erlingsson, Hamratanga 19, Mosfellsbæ. Sigríður Gerða Bjarnadóttir, Skólabraut 30, Akranesi. Daníel Rúnar Elíasson, Jörundarholti 15, Akranesi. Guömundur Jónsson, Erlurima 8, Selfossi. Halldóra Þorvaldsdóttir Halldóra Þorvaldsdóttir, fyrrver- andi stöðvarstjóri Póst og síma í Reykholti, verður áttræð þann 15. júlí næstkomandi. Af því tilefni taka hún og eiginmaður hennar, Jón Þórisson, fyrrverandi bóndi og kennari, á móti vinum og vanda- mönnum í túninu heima i Reyk- holti, laugardaginn 14. júlí næst- komandi. Vinsamlega klæðið ykkur eftir veðri. lát Árni Már Waage, Laufrima 12a, Reykja- vík, varö bráðkvaddur á Mallorka föstu- daginn 6. júlí. Sigurður Jónsson, Mýrargötu 20, Nes- kaupstað, lést á Fjórðungs-sjúkrahúsinu Neskaupstað þriöjudaginn 10. júlí. Gunnhildur Ósk Guðmundsdóttir, Sævangi 1, Hafnarfirði, lést mánudag- inn 9. júlí. Henny M. Frímannsson, andaðist I Kett- inge I Danmörku þriðjudaginn 10. júlí. Árni Sigurðsson, Vogatungu 25a, Kópa- vogi lést á Landspítala Landakoti miö- vikudaginn 27. júnl. Útförin hefur fariö fram I kyrrþey. FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 I>V Níræður Ásgrímur Hartmannsson fv. bæjarstjóri Ásgrímur Hartmannsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ólafsfirði, er níræður í dag. Starfsferill Ásgrímur fæddist á Kolkuós, Við- víkurhreppi, Skagafirðif og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Al- þýðuskólann á Eiðum, lauk gagn- fræðaprófi frá MA og stundaði sér- nám í bókfærslu. Á uppvaxtarárun- um vann hann landbúnaðarstörf, verlunarstörf og við árabátaútgerð sem faðir hans rak. Þá var hann eitt sumar hjá Mjólkurfélagi Reykjavík- ur. Ásgrímur flutti til Ólafsíjarðar 1935. Hann var kaupmaður i Ólafs- firði 1935-1963, bæjarstjóri þar 1946-1974 og framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. 1975-1983. Ásgrímur sat í hreppsnefnd Ólafs- fjarðar frá 1942 og siðar í bæjar- stjórn frá 1945, er Ólafsfjörður fékk bæjarréttindi, til 1978. Hann sat í stjórn Hraðfrystihúss Ólafsfjarðar hf. og var formaður stjórnar í fjölda ára, formaður fræðsluráðs Ólafs- fjarðar um tíma, formaður Ung- mennafélagsins Geisla í Skagafirði 1933-1934. Ásgrímur var virkur í Verkalýðsfélagi Ólafsfjarðar á fjórða áratugnum og í stjórn pönt- unarfélags þess, í stjóm iþrótta- félagsins Sameiningar í Ólafsfirði í nokkur ár, var einn af stofnendum Rótaryklúbbs Ólafsjarðar, formaður stjómar Tjarnarborgar í mörg ár. Hann var formaður stjórnar Fjórðungssambands Norðurlands og í stjórn Samtaka kaupstaða á Vestur-, Norður- og Austurlandi í alimörg ár. Hann sat i stjórnskipaðri nefnd til að gera tillögu um staðsetningu opinberra stofnana úti um land, var skipaður í fasteignamatsnefnd í Ólafsfirði 1962 og umboðsmaður skattstjóraNorðurlandsumdæmis eystra 1962. Ásgrímur var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar árið 1972 og er heiðursborgari Ólafsfjarðar frá árinu 1985. Fjölskylda Þann 23.5. 1937 giftist Ásgrímur Helgu Jónínu Sigurðardóttur hús- móður, f. 22.3.1917. Helga er fædd á Vatnsenda, Ólafsfirði. Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson og Sigriður Vilhjálmsdóttir, bæði ætt- uð úr Svarfaðardal. Þau bjuggu í Höfn í Ólafsfirði. Böm Ásgríms og Helgu eru: 1) Sigríður, f. 1938, gift Kristjáni Sæ- mundssyni, og eiga þau sex börn; 2) Kristín, f. 1941, gift Ólafi Sæmunds- syni og eiga þau fimm börn; 3) Þór- gunnur, f. 1946, gift Kristjáni Þór- hallssyni, og eiga þau tvö börn; 4) Ingibjörg, f. 1949, gift Þorsteini Ás- geirssyni og eiga þau þrjú börn; 5) Nanna, f. 1953, gift Guðmundi Haukssyni, þeirra böm eru fimm; 6) Hartmann, f. 1955, kvæntur Eddu Björk Hauksdóttur, þau eiga átta börn. Afkomendur Ásgríms og Helgu eru nú 75. Bræður Ásgríms voru Þorkell Bjöm, lést tvítugur, og Sigurmon, nú látinn. Fóstursystkin hans eru Ingibjörg Jósefsdóttir, nú látin; Guðrún Hartmannsdóttir lést á fimmta ári; Jónína Antonsdóttir, nú látin, og Hartmann Antonsson. Faðir Ásgríms var Hartmann Ás- grímsson, bóndi, kaupmaður og oddviti í Kolkuósi, og Kristín Sim- onardóttir, Kolkuós. Ætt Hartmann var sonur Ásgríms, b. í Hvammi, Hjaltadal, Gunnlaugsson- ar, og Guðrúnar Ólafsdóttur, fór til Vesturheims, b. á Reistará ytri, Jónssonar, og konu hans, Guðlaug- ar Ólafsdóttur. Kristín var dóttir Símonar, b. í Brimnesi í Viðvikurhreppi, Pálma- sonar, og Sigurlaugar Þorkelsdóttur frá Svaðastöðum. Ásgrímur dvelur nú á sjúkradeild Hornbrekku. Hann verður í faðmi fjölskyldunnar á afmælisdaginn. Fffll'WiHWHI Ragnar Þorsteinsson iðnverkamaður Ragnar Þorsteinsson iðnverka- maður, Koltröð 17, Egilsstöðum er fimmtugur í dag. Starfsferill Ragnar er fæddur og uppalinn á Þernunesi við Reyðartjörð. Hann lauk námi frá Alþýðuskólanum á Eiðum árið 1970, útskrifaðist sem bú- fræðingur frá Hvanneyri árið 1971. Fjölskylda Þann 17. júní 1973 giftist Ragnar, Ásdísi Jóhannsdóttur, húsmóður og bankaritara, f. 8.12. 1952. Foreldrar hennar eru Jóhann Valdórsson og Hulda Stefánsdóttir sem búsett eru á Þrándarstöðum, Eiðaþinghá. Börn Ragnars og Ásdisar eru: 1) Lovísa Herborg, f. 30.5. 1971, bóndi á Hemlu, sambýlismaður hennar er Vignir Siggeirsson, þau eiga tvo syni; 2) Þorsteinn Baldvin, f. 28.5. 1975, tæknifræðingur Ósló, sambýlis- kona hans er Merete Myrheim, þau eiga einn son; 3) Þorleifur Bóas, f. SMPii 31.5. 1988, nemi.; 4) Þorvaldur Björgvin, f. 3.7. 1990, nemi. Systkini Ragnars eru: 1) Björn, f. 22.9. 1937, bóndi Þernu- nesi; 2) Þorvaldur, f. 1.5. 1940, trésmiður, býr í Reykjavík; 3) Guðlaug, f. 23.8. 1941, húsmóðir, býr í Kópavogi; 4) Oddur, f. 15.10. 1942, vinnur hjá Landsvirkjun, býr á Eyr- arbakka; 5) Guðmundur, f. 9.6. 1947, kennari, býr 1 Kópavogi. 6) Jóhanna Guðrún, f. 28.7.1954, skrif- stofumaður, býr á Egils- stöðum. Foreldrar Ragnars voru Þorsteinn Kemp Björns- son, bóndi, f. 30.12.1909, d. 25.10. 1991 og Steinunn Lovísa Einarsdóttir, f. 7.9. 1911, d. 30.4. 1973. Þau voru búsett á Þernunesi við Reyðarfjörð. Merkir íslendingar Hákon Bjarnson skógræktarstjóri var fæddur þann 13. júlí 1907. Hann var sonur dr. Ágústs H. Bjarnasonar, heimspekings, prófessors og háskólarektors, og konu hans Sigríðar Jónsdóttur húsmóður. Hákon varð stúdent frá MR 1926 og lauk prófi í skógrækt frá Landbúnað- arháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1932 og stundaði síðan framhaldsnám í Englandi og í Svíþjóð. Enginn einn maður hefur unnið ís- lenskri skógrækt jafn mikið og Hákon gerði. Hann gegndi æðstu embættum er lúta að skógrækt hér á landi allan sinn starfsferil, var framkvæmdastjóri Skóg- ræktarfélags íslands 1933-1977 og skóg- ræktarstjóri ríksins 1935-1977. Fáir muna nú lengur að um miðja öldina átt Hakon Ujarnason skógræktarhugsjónin oft undir högg að sækja og átti sér harða andstæðinga hér á landi, ekki síst meðal hagsmunagæslu- manna hins hefðbundna landbúnaðar. Þá kom oftast til kasta Hákonar að verja hugsjón sína. Hann var fyrsti hámenntaði skóg- ræktarsinninn. Hákon benti á að ís- land væri í barrskógabeltinu og fann plöntur í Kanada of Alaska, s.s. ösp, lúpínu og sitkagreni, sem hafa þrift- ist mjög vel hér á landi. Hann var skapmikill og stjómsamur baráttu- maður. Þekking hans og vísindaleg vinnubrög urðu hins vegar til þess að hugsjónin varð á endanum ofan á. Hákon lést 16. apríl 1989. Friörik A. Jónsson, vélvirkjameistari, Háuhlíð 14, Sauðárkróki, verður jarö- sunginn frá Sauðárkrókskirkju á morgun kl. 14.00. Ólöf Vernharðsdóttir, fyrrv. hústjórnar- kennari, Eskihlíð 20, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju I dag kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Blindra- félagið. Svanhvít Jóhannesdóttir, Enni, Höföa- strönd, verður jarðsungin frá Hofsós- kirkju þriðjudaginn 17. júlí kl. 14.00. Markús Sigurjónsson, Reykjarhóli, Skagafirði, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju á morgun kl. 11.00. ^ $akiur Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér vinarþel á 100 ára afmæli mínu, 6. júlí sl., meö heimsóknum, gjöfum og heillaóskum. Verið öll Guöi falin. Kristín Eiríksína Ólafsdóttir Aðalstræti 32, Akureyri M^Smáauglýsingar byssur, ferðaiög, ferðaþjónusta, fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn, gisting, goifvörur, heilsa, hesta- mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt, safnarinn, sport, vetrarvörur, útilegubúnaður... tómstundir DV Skoðaðu smáugiýsingarnar á VÍSÍV.ÍS 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.