Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.2001, Blaðsíða 24
28
FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001
Tilvera I>V
lí f iö
Hedwig í
Loftkastalanum
Söngleikurinn Hedwig verður
sýndur í Loftkastalanum í kvöld
kl. 20.30. Þar er Björgvin Frans
Gíslason í aðalhlutverki og með
honum á sviðinu er söngkonan
góðkunna Ragnhildur
Gisladóttir. Verkið fjallar um
kynlausa veru sem fæddist sem
karlmaður.
Leikhús
■ UNGIR MENN A UPPLEIÐ. Teikrit
Stúdentaleikhússins, veröur sýnt
klukkan 20 í kvöld í Kaffileikhúsinu.
Miðaverö er 1.500 krónur en 2.800
krónur meö mat. Uppselt.
■ FRÖKEN JÚLÍA - ENN OG AFT-
UR ALVEG OP veröur sýnt I Smiðj-
unni við Sölvhólsgötu í kvöld klukk-
an 20.
Hátíðir
■ BOKMENNTAKVÖLD I DÉIGL-
UNNI
Nú stendur yfir Listasumar á Akur-
eyri og í kvöld verður haldiö Bók-
menntakvöld í Deiglunni undir yfir-
skriftinni Endir allra funda. Lesin
veröa kvæöi eftir Tómas Guðmunds-
son og Magnús Ásgeirsson. Sif
Ragnhildardóttir og Michael Jón Cl-
arke ætla aö syngja og Richard
Simm leikur undir. Aöganseyrir er
1000 krónur.
■ NORRÆNAR BALLÓÐUR j
BRÆÐSLUMINJASAFNINU
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði heldur
áfram. I Bræðsluminjasafninu Grána
veröa fluttar norrænar ballöður og
miðaldasöngvar í kvöld og hefst
dagskráin klukkan 21. Flytjendur eru
ALBA frá Danmörku.
Sýningar
j HÁDDA I SÁMLAGINU LISTHÚSÍ
Listakonan Hadda opnar sýningu
sína í Samlaginu listhúsi,
Listagilinu á Akureyri, í dag.
Sýningin, sem er í glugga
Samlagsins, samanstendur af
gluggamyndum sem Hadda hefur
safnað á undanförnum árum,
aöallega frá yfirgefnum húsum.
Fundir
■ manfred peter hépí j héhví-
SOKN
Þýska Ijóöskáldiö og þýðandinn
Manfred Peter Hein veröur í dag
gestur Þýðingaseturs Hugvísinda-
stofnunar. Hann mun lesa Ijóö og
texta eftir sig sem að hluta veröa
þýdd á íslensku. Lesturinn hefst
klukkan 15 í stofu 301 á þriðju hæö
í Nýja Garði viö Suðurgötu og eru
allir velkomnir aö hlýða og spjalla.
Feröir
■ JEPPÁFERÐ MEÐ ÚTIVIST
Klukkan 20 í kvöjd veröur lagt af
stað frá Esso á Ártúnshöfða í jeppa-
ferö yfir helgina á Vatnsnesfjall.
Báðar nætur verður gist á tjaldstæð-
inu í Kirkjuhvammi fyrir ofan bæinn.
Húnaþing vestra verður skoðað frá
sjónarhóli heimamanna. Gengiö
verður noröur Vatnsnesfjall með út-
sýni sunnan frá Eiríksjökli og noröur
á Strandir. Eknar veröa fáfarnar
jeppaslóöir meö viðkomu á sögu-
frægum stööum. Tilvalin
fjölskylduferö.
Sveitin
■ RUNAR ÞOR A KLAUSTRI Hann
Rúnar Þór ætlar að vera í stuði á
Kirkjubæjarklaustri í kvöld. ná-
kvæmlega.
■ SÓLDÖGG í HÚNAVERI Söldögg
veröur meö stórdansleik í Húnaveri í
kvöld.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Gönguleiðir
Spennandi gönguferð:
Á tindum Akraf jalls
Á Akrafjall eru mjög skemmti-
legar og þægilegar gönguleiðir.
DV gafst tækifæri á ganga á tvo
hæstu tinda þess, Háahnúk og
Geirmundartind, undir leiðsögn
Jóns Pétursson göngugarps og
listmanns. Hann þekkir Akrafjall
manna best. Fór 36 sinnum þang-
að upp á síðasta ári og hefur farið
25 sinnum á þessu ári. Jón hefur
komið fyrir kassa á báðum tind-
unum með gestabókum og í þær
hafa skrifað á fimmta þúsund
manns.
Á Háahnúk - Leið 1:
Háihnúkur er 555 metra á hæð
og tekur ganga upp á hann
klukkutíma og tuttugu mínútur ef
frekar rólega er farið. Best að
hefla gönguna á bílastæðinu við
vatnsból Skagamanna. Leiðin upp
á fjallið sést mjög vel þar sem bor-
ið hefur verið á göngustígana upp
á brúnina. Þegar að komið er upp
á fjallið er komið á götuslóða sem
heitir Gíslagata, gengið inn eftir
honum 30-40 metra en síðan er
stefnan tekin til suðurs, beint á
hallann. Komið er fram á brúnirn-
ar fyrir ofan bæinn Rein þar sem
Jón Hreggviðsson snæraþjófur bjó
á árum áður. Skarðið fyrir ofan
bæinn heitir Bæjarskarð. Þegar
komið er þar upp er farið með
brúnunum áleiðis að Hnúknum.
Næstu tvö skörð i fjallinu heita
Göngukvennaskörð.
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Kominn á toppinn einu sinni enn
Jón Pétursson, göngugarpur og listamaöur.
fyrir innan gljúfrin og vatnsgeym-
inn. Þegar upp á brúnirnar er
komið er best að halda sig með-
fram þeim upp á tindinn. Geir-
mundartindur er 642 metra á hæð
og tekur gangan þangað einn tima
og fjörtíu mínútur. Á miðri leið-
inni verður á vegi okkar kletta-
strýta sem heitir Guðfinna Þúfa.
Þar umhverfis er leiðin grófust en
þó ágæt yfirferðar. Frá Guðflnnu
Þúfu blasir við fegursta útsýni
vestur um allar Mýrar og á Snæ-
fellsnes. Aftur vil ég ráðleggja
fólki að halda sig sem næst brún-
unum á uppgöngunni því aðeins
inn á fjallinu er leiðin grýtt og erf-
iðari yfirferðar. Mjög víðsýnt er af
Geirmundartindi. Vel sést inn á
hálendið og til jöklanna að ekki sé
talað um Skarðsheiðina sem blas-
ir við rétt fyrir innan.
Kort
Leiö 1. Dökk græn lína ganga á Háahnúk Leiö 2. Rauö brún lína ganga á Geirmundartind Leiö 3. Græn lína
hringur um Akrafjall . 11 i:; .,: ;. u > i n i ,-,uí>
Hringur um Akrafjall -
Leið 3
Þeim sem að hafa góðan tima og
eru í sæmilegu formi er bent á að
fara hring um fjallið. Jón leið-
sögumaður álítur að betra sé að
fara frá Geirmundartindi að Háa-
hnúk því þegar fólk fer að lýjast
er hægara að ganga af Háahnúk
og niður. Þessi hringur tekur um
fimm tíma. Betra er að fara fyrir
ofan gilin og eru þá undir fótum
sléttar mosabreiður með melum á
milli. Gilin heita, frá Geirmundar-
tindi talin: Þvergil, Norðurgil,
Austurgil og Suðurgil. Best er að
fara fyrir sunnan Jókubungu en
svo heitir hæðin fyrir innan Háa-
hnúk. Þetta er mjög skemmtileg
gönguleið sem skilur mikið eftir.
Þegar komið er út á Háahnúk er
best að fara sömu leið niður og
gengin var upp. Þessi ganga svík-
ur engan og stutt er að fara frá
Reykjavík síðan Hvalfjarðargöng-
in k,orpu til sögupp^r., -DVÖ/J?
Útsýnið léttir fólki sporið
Þetta er þægilegt göngusvæði,
sléttar flatir á milli smá hæða.
Þegar þangað upp á Háahnúk er
komið blasir við mjög skemmti-
legt útsýni til Reykjavíkur og suð-
ur um allt Reykjanes. Eins sést vel
vestur að Jökli og Faxaflóinn
breiðir úr sér.
Þyngsti kafli leiðarinnar er nú
fyrir höndum (fótum) en útsýnið
léttir fólki sporið. Mjög vel mark-
aður slóði er kominn upp eftir
brúnunum, bæði eftir menn og
sauðfé, svo engum ætti að vera
skotaskuld úr því að rata upp á
Háahnúk. Þegar komið er lang-
leiðina upp er steindrangur
fremst í brúninni og heitir sá
Þumall. Hann er mjög sprunginn
og er mönnum ráðgáta hvernig
hann hefur staðið af sér jarð-
skjálfta. Sumir hafa í gamni kall-
að þennan drang frambjóðandann
enda virðist hann valtur í sessi.
Þegar upp á Háahnúk er komið
blasir um leið við fegursta útsýni
til allra átta - fyllilega erfiðisins
virði. Á Hnúknum er varða og
upp úr henni kassi sem geymir
gestabók. Þar skráir göngufólk
nöfn sín í.
Á Geirmundartind - Leiö 2
Þegar gengið er á Geirmundar-
tind er best að leggja bilunum upp
við gamlar rústir af bænum
Fossakoti sem stóð undir neðstu
hjöllunum fyrir norðan gljúfrin.
Þaðan er stefnan tekin upp Sel-
brekkuna en svo heitir brekkan