Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Síða 28
<§
Subaru Impreza
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Haflr þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gastt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001
Leigja sex
sláturhús
Statfshópur sem skipaður var af
landbúnaðarráðherra, Guðna
Ágústssyni, vegna rekstrarerfið-
leika sumra sláturleyfishafa í ná-
lægð sauðfjárslátrunar þann 1.
1 ~9‘ ágúst sL, hefur skilað sinni greinar-
gerð. Hópnum var falið að gera til-
lögur um fjármögnun birgða og
lækkun vaxtakostnaðar og tryggja
öllum framleiðendum slátrun fyrir
sitt fé og leita leiða til flutningsjöfn-
unar framleiðenda sem þurfa að
sækja slátrun um langan veg. Slát-
urleyfíshafar bíða einkum eftir til-
lögum starfshópsins um fjármögnun
á afurðagreiðslum til sauðfjár-
bænda.
Bændasamtökin leggjast ekki
gegn áframhaldandi greiðslustöðv-
un Kjötumboðsins (áður Goða), en
fyrirtækið hefur farið fram á
þriggja mánaða framlengingu.
Samningar hafa náðst viö Kjöt-
C* umboðið um leigu á sex sláturhús-
um, á Hvammstanga, Borgarnesi,
Búðardal, Breiðdalsvík, Hornafirði
og á Fossvöllum, til eins árs og
standa fjögur kaupfélög að þeim
samningi, þ.e. Kaupfélag Héraðs-
búa, Kaupfélag Austur-Skaftfell-
inga, Kaupfélag Vestur-Húnvetn-
inga og Kaupfélag Borgfirðinga.
Dalamönnum hefur verið boðin
þátttaka að samningnum á sömu
kjörum. Vonir standa til að með
samningnum sé þeirri óvissu sem
hefur ríkt um sauðfjárslátrun á
’ þessu hausti veriö eytt og hún geti
farið fram á eðlilegum tíma. -GG
Ábur ð arverksmið j an:
Reksturinn
stendur ekki
undir sér
„Það verður að grípa til aðgerða
eins og þessara vegna þess að rekst-
urinn stendur ekki undir sér,“ segir
Haraldur Haraldsson, stjórnarfor-
maður Áburðarverksmiðjunnar, um
uppsagnir tæplega 40 starfsmanna
verksmiðjunnar af um 60 sem þar
hafa stárfað að undanfómu. Til-
kynnt var um uppsagnimar í gær.
„Við forum úr einkoma fram-
leiðslu yfir í fjölkorna og því breyt-
ist ýmislegt, s.s. að rafmagnsnotkun
minnkar verulega. Reksturinn hef-
ur verið verulega erfiður en fram-
leiðslumagnið er allt of lítið til að
mæta öllum þeim kostnaði sem
framleiðslunni fylgir,“ segir Harald-
ur. Hann segir að efnaverksmiðja
fyrirtækisins verði lögð niður.
„Samkvæmt þeim áætlunum sem
við vinnum eftir á fyrirtækið að
komast á gott ról og það er um að
gera að grípa í taumana áður en það
er orðið of seint," segir Haraldur.
-gk
Njarövík:
Eldur í stór-
um togara
Lið Brunavama Suðurnesja var
kallað að Skipasmíðastöð Njarðvík-
ur klukkan 8.40 í morgun, en þar
hafði komið upp eldur í skuttogar-
anum Haraldi Böðvarssyni frá
Akranesi.
Togarinn var inni i stóru húsi
skipasmíðastöðvarinnar og þegar
slökkviliðið kom á vettvang var
mjög mikill reykur í húsinu, svo
mikill reykur að menn töluðu um
að rétt hefði sést í stefni skipsins.
Þegar DV fór í prentun var slökkvi-
starf að hefjast fyrir alvöru, en
reyndar ekki ljóst hvort um mikinn
eld var að ræða í skipinu. -gk
Glerklstan sligaöi dv-mynd einar j.
Byggingarkrani sem notaöur er viö byggingu húsnæöis Háskóians í Reykjavík gafst upp í gær þar sem veriö var aö
hífa upp glerkistu. Einn fótur kranans gaf sig og hann lagöist á húsiö meö þeim afleiöingum aö nokkrar skemmdir
uröu. Ekki veröa þó tafir viö skólabygginguna af þeim sökum.
Feðgar sem leitað var að á hálendinu fundust í morgunsárið:
Voru fegnir
að sjá okkur
- segir Hólmgeir Sigurgeirsson björgunarsveitarmaður sem fann mennina
Feðgar sem leitað hafði verið að
frá því síðari hluta dags í gær
fundust skömmu fyrir klukkan
fimm í morgun. Það var bíll frá
Hjálparsveit skáta í Reykjadal í S-
Þingeyjarsýslu sem keyrði fram á
bíl mannanna við kofann Slakka
við Hraunárdalsslakka sunnan
við Kiðagil, en mennimir höfðu
hafst við I skálanum í nokkurn
tíma þar sem jeppabíll þeirra var
orðinn olíulítill.
Mennimir, sem eru frá Húsa-
vík, virðast hafa farið nokkuð
víða í ferð sinni um austanvert
hálendið, en þeir ætluðu að vera
komnir heim til sín á sunnudags-
kvöld. Þegar það dróst að þeir
skiluðu sér var farið að grennslast
fyrir um ferðir þeirra og kom þá
m.a. í ljós að þeir höfðu verið í
Öskju og ætluðu sér að fara Gæsa-
vatnaleið.
Björgunarsveitarmenn úr Mý-
vatnssveit fóru að svipast um eft-
ir mönnunum siðari hluta dags í
gær og þá var einnig farið frá
bænum Svartárkoti í Bárðardal.
Um kvöldmatarleytið í gær fóru
fiórir menn úr Reykjadal tfi leitar
og það voru þeir sem fundu menn-
ina í morgunsárið.
„Við leituðum í alla nótt, keyrð-
um alla hugsanlega slóða sem
voru á okkar leið í myrkrinu en
það var farið að birta og við vor-
um eiginlega á heimleið þegar
okkur datt í hug að koma við i
þessum kofa sem mennirnir voru
í. Þeir urðu ansi fegnir, orðnir
svangir og olíulitlir. Við töppuð-
um olíu á bíl þeirra og þeir eru á
sínum bíl hérna fyrir aftan okkur
á heimleið,“ sagði Hólmgeir Sigur-
geirsson í samtali við DV snemma
í morgun, en von var á mönnun-
um til byggða um miðjan morgun-
inn. Feðganir sem um ræðir vildu
ekki ræða við DV, en þess má geta
að til stóð að hefja allsherjarleit
að þeim í morgunsárið. -gk
Vaxvél of-
hitnaði
Litlu munaði að eldur yrði laus í
Umbúðaverksmiöjunni við Héðins-
götu í Reykjavík í nótt þegar vaxvél
ofhitnaði, en eldur náði ekki að
brjótast út.
Vélin fer sjálfvirkt í gang á næt-
urnar og hitar vax sem notað er við
umbúðaframleiðsluna. Eitthvað fór
úrskeiðis og fylltist húsið af reyk,
og olía sem var nærri var orðin ansi
heit þegar slökkviliðið kom á vett-
vang og gerði þær ráðstafanir sem
gera þurfti til að koma málum í eðli-
legt horf. -gk
Samgönguráðherra:
Sorgleg viðbrögð
Sturla Böðvars-
son samgönguráð-
herra hafnaði al-
Sturla
Böðvarsson.
farið ásökunum
Friðriks Þórs Guð-
mundssonar í sam-
tali við DV í morg-
un.
„Þetta eru sorg-
leg viðbrögð. Ég
hef átt samtöl við
Friðrik Þór og Jón
Ólaf og tilgangur þeirra samtala
hefur verið að reyna að lægja öldur
sem af minni hálfu eru trúnaðar-
mál. Ég hlýt að vísa því alfarið á
bug sem þama er sagt og það hefur
aldrei hvarflað að mér að umræða
um þessi mál yrði þögguð niður. Ég
hef lýst mig reiðubúinn til að koma
til móts við þessa aðila og hef að
öðru leyti unnið að því að tryggja
sem vandaðasta efnismeðferð þessa
máls,“ sagði Sturla.
Ráðherra sagði að ásakanir um
að pólitík tengdist viðbrögðum hans
væru ekki svaraverðar. Hann harm-
aði einfaldlega viðbrögð Friðriks
Þórs við nýjustu aðgerðum ráðu-
neytisins. -BÞ
Friörik Þór, aðstandandi fórnarlambs úr Skerjafjaröarflugslysinu:
Ráðherra bauð mútur
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra og Jón Ólafur
Skarphéðinsson og Friðrik
Þór Guðmundsson hafa átt
fundi upp á síðkastið og í kjöl-
farið hefur ráðherra ritað
rannsóknarnefnd flugslysa
bréf og beðið hana að skoða
björgunarmál eftir flugslysið í
Skerjafirðinum betur auk þess
sem starfshópar hafa verið
skipaðir til frekari athugunar.
Friðrik segir að í síðustu viku hafi
ráðherra boðið að skipaður yrði
starfshópur til að skoða björgunar-
gífurleg vonbrigði
aðgerðimar og ráðherra hafi
einnig boðist til að taka þátt í
kostnaði viö rannsókn sem
Friðrik og Jón Ólafur em að
láta breska sérfræðinga gera á
málinu. „Hann vildi að öllu
öðru yröi hent út af borðinu
og menn myndu eftirleiðis
halda friðinn í fjölmiðlum.
Það átti sem sagt að dæla í
okkur peningi en bara skoða
björgunaraðgerðimar og svo
áttum við bara að þegja og vera góð-
ir,“ segir Friðrik Þór.
- Þið ætlið sem sagt ekki að þiggja
þann fjárstuöning sem ráðherra reif-
aði?
„Fémútur ráðherrans voru ein-
göngu settar fram til þess að aðeins
björgunaraðgerðirnar yrðu skoðaðar
og væntanlega hugsaði ráðherra til
þess að björgunaraðgerðirnar á papp-
ímum lúta ekki að Flugmálastjóm
heldur að slökkviliði sveitarfélaga -
þ.e.a.s. ekki aö hans „beibíum". Það
er ekki hægt að þiggja einhverja pen-
inga til að skoða björgunaraðgerðir
sem nota bene eru sennilega það eina
í málinu sem liggur nokkurn veginn á
hreinu." -BÞ
Friðrik Þór
Guðmundsson.
Heilsudýnur t sérýlokkil
Svefn&heilsa
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150