Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Síða 10
10
Utlönd
John Howard
Forsætisráöherra Ástralíu hefur ver-
iö harölega gagnrýndur fyrir afstööu
sína i garö fióttamannanna í norska
flugningaskipinu undan áströlsku
landi á Jólaeyju viö tndónesíu.
nægju sinni með áform Ástrala og
sögðu þau brjóta í bága viö alþjóða-
lög.
„Þessi tillaga minnir mig meira á
fangaflutninga,“ sagði Thorbjöm
Jagland, utanríkisráðherra Noregs,
í viðtali við norska Dagbladet í gær.
Lögmenn mannréttindasamtaka
hafa höföað mál á hendur áströlsk-
um yfirvöldum og krefjast þess að
flóttamennirnir fái að vera áfram í
Ástralíu. Búist er við að niðurstaða
fáist í málaferlin í dag.
Embættismaður frá Sameinuðú
þjóðunum, Richard Danziger, sagði
að flóttamennimir hefðú lýst yfir
ánægju sinni meö aö hreyfing væri
komin á mál þeirra.
„Þeir vilja komast burt úr skip-
inu sem fyrst," sagði Danziger.
Vel er komið fram við flóttamenn-
ina um borð í norska flutningaskip-
inu og að sögn Danzigers hafa þeir
ekki kvartað undan aðstæðunum
um borð.
Ekki hrifinn af NATO
Þessi maöur er ekki hrifinn af því aö
NATO skuli vera aö skipta sér af
átökunum í Makedóníu.
Þing Makedóníu
ræðir áfram um
réttindi Albana
Þing Makedóníu tekur í dag upp
þráðinn þar sem frá var horfið á
laugardag og heldur áfram umræð-
um um friðaráætlanir NATO sem
fela í sér aukin réttindi til handa al-
banska minnihlutanum í landinu.
Harölínumenn úr röðu þjóðernis-
sinna stöðvuðu umræöurnar á laug-
ardag, sem varð svo til þess að al-
banskir skæruliðar hótuðu að hætta
við að láta vopn sín af hendi.
Svo virðist sem harðlínumenn á
þingi hafi látið undan fortölum
Bandaríkjamanna, Evrópusam-
bandsins og NATO um að falla frá
óaðgengilegum kröfum sínum. Þjóð-
emissinnar vildu meðal annars að
makedónskir flóttamenn fengju að
snúa hið fyrsta aftur til síns heima
á svæði undir stjórn skæruliða.
Kofi Annan lýsir ánægju sinni með gang mála við Jólaeyju:
Flóttamennirnir í
ástralskt herskip
Þyrlur fluttu I gær mat og ábreið-
ur til á fimmta hundrað flótta-
manna sem hafa hafst viö um borð í
norsku flutningaskipi undan
áströlsku eyjunni Jólaeyju í eina
viku. Ástralskt herskip mun flytja
flóttamennina, sem flestir koma frá
Afganistan, til Papaúa Nýju-Gíneu í
dag þaðan sem flogið verður með þá
til Nýja-Sjálands og eyríkisins
Nauru.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær að
áætlanir Ástrala um flutning flótta-
mannanna væru ásættanlegar.
John Howard, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur þvertekið fyrir að
flóttamennimir fái að stíga fæti á
ástralska grund, þótt ekki væri
nema augnablik á Jólaeyju, skammt
frá þeim stað þar sem norska flutn-
ingaskipið er. Þessi afstaða Ástrala
hefur kallað yfir þá mikla reiði
þjóða heims.
Þegar flóttamennirnir koma tii
Nýja-Sjálands og Nauru verður far-
ið yfir umsóknir þeirra um pólitískt
hæli. Ef þeim verður veitt hæli sem
pólitískum flóttamönnum verða
þeir sendir til landa sem vilja við
þeim taka.
Norsk stjórnvöld lýstu í gær óá-
Háværar kröfur eru uppi í Þýska-
landi um að vamarmálaráðherra
landsins, Rudolf Scharping, segi af
sér embætti.
Myndir sem birtust í siöustu viku
af ráðherrann að leika sér með ást-
konu sinni í sundlaug á Mallorca
vöktu mikla reiði. Nú hefur hins
vegar komið á daginn að Scharping
hefur margsinnis notað flugvélar
hersins til að fara á fund ástkon-
unnar, greifynjunnar Kristinu
Pilati, til Mallorca.
Stjómarandstæðingar kalla ferða-
lög hans til Maliorca misnotkmun á
flugvélum hersins og peningum
skattborgara.
Scharping og ástkonan luku fríi
sínu um helgina og fóru heim til
Þýskalands frá Mallorca fyrir eigið
fé. Ráðherrann segir sjálfur að hann
hafi breytt rétt og að verið sé að
gera hann að blóraböggli.
Rudolf Scharping
Landvarnaráöherra Þýskalands legg-
ir á sig löng feröalög til aö eyöa nótt
meö ástkonunni í sumarleyfi, á
kostnaö skattborgaranna.
Síðasta skemmtunin
Dragdrottningar í New York fjölmenntu á árlega skemmtun viö höfnina á
laugardag. Allt bendir til aö skemmtun þessi, sem kölluö er Wigstock, veröi
ekki haldin framar vegna fjárhagsvandræöa. Skemmtunin um helgina var aö
minnsta kosti auglýst sem hin síöasta.
Ástsjúkur ráðherra
misnotar hervélar
Ausur til efnisflutninga
á vinnusvœðum
Symngartœki a staðnum
VELAVERf
Lagmuli 7 Rcykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is
mmnimt
Bové gefst ekki upp
Franski bænda-
leiðtoginn José
Bové lýsti því yfir f
blaðaviðtali í gær
að áfram yrði hald-
ið að eyðileggja
erfðabreyttar plönt-
ur þar tii í lok sept-
ember. Franska lög-
reglan greip í taumana í gær til að
koma í veg fyrir eyðileggingu erfða-
breyttra plantna. Bové er einn skel-
eggasti andstæðingur erfðabreyttra
matvæla og hnattvæðingarinnar.
Barnards minnst
Suður-Afríkubúar minntust í gær
hjartaskurðlæknisins Christians
Barnards sem lést úr hjartaslagi á
Kýpur, 78 ára að aldri. Barnard
varð fyrstur lækna til að skipta um
hjarta í manni áriö 1967 og varð fyr-
ir vikið heimsfrægur.
Jospin skrefinu nær
Lionel Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, þokaðist skreflnu nær
þvf að lýsa yfir framboði sínu í for-
setakosningunum á næsta ári þegar
hann lýsti f gær yfir vilja sínum til
að byggja upp „nýtt Frakkland“,
eins og hann kallaði það.
Danskir megar vera með
Þótt dönsk stjómvöld hafi ekki
tekið endanlega afstöðu til eld-
flaugavarnarkerfis Bandaríkjanna,
heimila þau dönskum fyrirtækjum
að taka þátt í verkefninu, svo fremi
þaö sé gert innan ramma gildandi
laga og reglugerða.
Pútín heimsækir Finniand
Vladímír Pútín
Rússlandsforseti
kom í tveggja daga
opinbera heimsókn
til Finnlands i gær.
Búist er við að við-
ræður hans við
finnska ráðamenn
snúist að miklu
leyti um fyrirhugaða stækkun Evr-
ópusambandsins og NATO til aust-
urs. Eiginkona Pútíns er með í for.
Klám betra en pillur
Fjölmörg dönsk hjúkrunarheimili
hafa tekið upp á því að sýna klám-
kvikmyndir þar sem þær rói sjúk-
dóma með elliglöp betur en piúur.
Myndirnar eru sýndar seint á
kvöldin og ráða sjúklingamir sjálfir
hvort þeir horfa á þær.
Drottningarmóöir skoðuð
Breska drottning-
armóðirin var flutt
til rannsóknar á
sjúkrahús í Aber-
deen í Skotlandi á
laugard. Drottning-
armóðirin var í fríi
með fjölskyldunni í
Balmoral höll í
Skotlandi þegar hún kenndi sér
meins. Hún komst þó í kirkju í gær.
Palestínumenn drepnir
ísraelskir hermenn drápu tvo
Palestínumenn í skotbardaga í Vest-
urbakkaborginni Hebron í gær.
Duldar auglýsingar
Danskir bOaynnflytjendur gefa
ráðuneytum mikinn afslátt af bilum
sem þau kaupa til opinberra nota
þar sem slít er talið vera góð auglýs-
ing. Þá fá Margrét Þórhildur drottn-
ing og Hinrik prins, eiginmaður
hennar, ókeypis bila frá Volvo.