Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.2001, Síða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Vill ekki fara til móðurfólksins í Avery:
Dauðhræddur
við að fara aftur
til Frakklands
- segir Sahari Jakobsson sem verður tíu ára í næsta mánuði
Sahari Jakobsson, sem veröur tíu
ára i næsta mánuði, segir í viötali
við DV að það sé rangur skilningur
að faðir hans, Jakob Páll Jóhanns-
son, hafi neitað að senda sig til móð-
ur sinnar í Frakklandi. „Það rétta
er að það var ég sem vildi ekki og
vil ekki fara þangað. Frekar vildi ég
deyja en fara aftur til Frakklands.
Það mundi algjörlega rústa hjarta
mitt og bemsku mína ef ég þyrfti að
fara til baka,“ sagði Sahari í gær-
kvöld og bætti við að á íslandi liði
sér vel. Hann sagði að hann vildi
gjarnan að þetta kæmi fram í um-
'fjöllun blaðsins i dag. Sahari sagði
að sér fyndist héraðsdómurinn
óréttlátur, honum hefði fundist að
ekki væri tekið tillit til aðstæðna
eins og þær væru.
Sahari sagði að lög væru oft
meira sniðin fyrir hina fullorðnu og
þá gengið á rétt barnanna. „Ég er
skíthræddur við að fara aftur til
Frakklands." Hann segir að í kjölfar
barsmiða hafi hann alloft þurft að
leita hjálpar geðlækna og sálfræð-
inga, bæði á íslandi og í Frakklandi.
Sahari hefur búið í Avery sem er 30
kílómetra suður af París.
„Ég á helling af vinum hérna á Is-
landi og vil búa hér og fara í ís-
lenskan skóla. Ég vil hvergi annars
staðar búa en á Islandi og sætti mig
DV-MYND ÞOK
Vill ekki fara
Sahari Jakobsson, níu ára gamall
þar til í næsta mánuöi, vill ekki yflr-
gefa Hafnarfjörö og segist hræddur
við aö fara aftur til Frakklands. Hér
er hann í Hafnarfiröi í gærkvöld.
alls ekki við að búa í Frakklandi. Ég
bið alla þjóðina að hjálpa mér,“
sagði Sahari Jakobsson í gærkvöld.
Hörður Felix Harðarson er lög-
maður Saharis. Hann sagði í gær-
kvöld að í dag, mánudag, yrði lögð
fram kæra til Hæstaréttar á úr-
skurð Héraðsdóms Reykjaness. Tal-
að er um kæru þegar úrskurður hef-
ur verið kveðinn upp eins og hér en
áfrýjun ef um er að ræða dóma. I að-
fararmálum frestar kæra til Hæsta-
réttar ekki aðfór. Svo kann því að
fara að aðíor verði gerð í vikunni.
„Það er til heimild fyrir dómara
að mæla fyrir um að kæra fresti
framkvæmdinni og þess var kraflst
af okkur I héraði að mælt yrði fyrir
um það. I greinargerð með því
ákvæði var mælt fyrir um að slík
frestun yrði veitt, meðal annars
með tilliti til hagsmuna barnsins,"
sagði Hörður Felix í gærkvöld.
Hann kvaðst ekki geta tjáð sig um
barsmiðar á barninu en fram hefur
komið að erlendir sérfræðingar
hafa bent á að það geti verið
drengnum skaðlegt að búa áfram
við sömu aðstæður.
„Það fer ekki milli mála að vilji
drengsins í þá átt að búa hér á landi
er mjög staðfastur. Það fer heldur
ekki milli mála að þetta er raun-
verulegur og einlægur vilji. Við telj-
um því að svigrúm sé fyrir íslenska
dómstóla að synja um afhendingu.
Það sé svigrúm bæði í Evrópusamn-
ingnum og Haagsamningnum sem
gilda um mál af þessu tagi, fyrir ís-
lenska dómstóla að meta þetta sjálf-
stætt, með hagsmuni barnsins í
huga,“ sagði Hörður Felix.
Á Netinu mun mál Saharis Jak-
obssonar verða kynnt á slóðinni
barnaland.is og þar getur fólk veitt
drengnum stuðning frá og með deg-
inum í dag. -JBP
A181 km
hraða í Fló-
anum
Ungur ökumaður var stöðvaður í
ofsaakstri í Flóanum fyrir austan
Selfoss aðfaranótt laugardags en
lögreglan mældi hraða bifreiðar
hans 181 km.
Maðurinn gaf lögreglu þá skýr-
ingu á ofsaakstri sínum að hann
hefði „gleymt sér við að hlusta á út-
[ varpið". Hann var sviptur ökuleyfi
sínu á staðnum og missir það vænt-
anlega í 3 mánuði, auk þess sem
hann þarf að greiða 70-80 þúsund
króna sekt. -gk
Selfossprestakall:
Sr. Gunnar leysir
af 1 vetur
Séra Gunnar Björnsson,
áður prestur á Holti í Önund-
arfirði, mun gegna embætti
sóknarprests á Selfossi í vet-
ur. Sr. Þórir Jökull Þorsteins-
son, starfandi sóknarprestur,
hefur sótt um níu mánaða
námsleyfi og fengið. Að sögn
Eysteins Jónassonar sóknar-
nefndarformanns er hann í
sumarleyfi í september en
heldur síðan utan til Dan-
Sr. Gunnar
Björnsson.
merkur þar sem hann verður
í námi næstu níu mánuðina.
Eysteinn sagði að biskups-
embættið hefði sétt sr. Gunn-
ar í að leysa sr. Þóri Jökul af.
Glúmur Gylfason organisti
yrði áfram með stjórn
kirkjukórsins og yngri hóp-
inn i unglingakórnum. Þá
væri Margrét Bóasdóttir með
eldri hópinn í unglingakóm-
um. -JSS
MANUDAGUR 3. SEPTEMBER 2001
DV-MYND ÞOK
Glæstur sigur íslendinga
ísienska landsliöið vann glæstan sigur á Tékkum í riölakeppmi fyrir HM. Á
myndinni fagnar Andri Sigþórsson fyrra marki Eyjólfs Sverrissonar.
Jarðskjálfti und-
ir Mýrdalsjökli
haustskjálftar, telur jarðfræðingur
DV. SELFOSSI:
Jarðskjálfti upp á 2,6 stig á
Richterkvarða varð í Mýrdalsjökli
undir kvöld í gær. Þórunn Skafta-
dóttir á jarðeðlisdeild Veðurstof-
unnar segir að rólegt hafi verið
undanfarið undir Mýrdalsjökli;
þessi skjálfti nú sé einstakur at-
burður og ekki í tengslum við neitt
undanfarna mánuði.
Þórunn segir að nú megi fara að
vænta haustskjálfta undir Mýr-
dalsjökli, þessi skjálfti geti allt eins
verið upphafið að hausthrinunni.
Undanfarið hefur fólk kvartað
yflr mikilli brennisteinslykt úr ám
sem renna frá Mýrdalsjökli. Ekki
hefur mælst aukin leiðni í ám frá
jöklinum. Katla hefur ekki gosið
alvörugosi frá árinu 1918. Smágos
varð undir jöklinum 1952 og hlaup
með liklegu gosi fyrir tveim árum.
-NH
ÞAÐ ER FJOR
í FLÓANUM!
Lúsafaraldur á Selfossi:
Lúsin viðvarandi árið um kring
„Lúsin er ekki lengur bundin vetr-
inum, það hefur verið viðvarandi lús
hér á Selfossi í allt sumar. Fram kom
í einu héraðsfréttablaðanna nýlega
að sala á lúsameðali hefði verið
meiri í sumar en áður hefur verið,"
sagði Guðmundur Ó. Ásmundsson,
skólastjóri Sólvallaskóla á Selfossi.
Börn í leikskólum og grunnskólum á
Selfossi hafa verið send heim með
leiðbeiningar Landlæknisembættis
um viðbrögð við lús og hvernig eigi
að leita hennar nú á fyrstu vikum
skólans.
Guömundur segir að lúsin hafi
verið að stinga sér niður meira og
minna á Selfossi allan fyrravetur
DV-MYND NJORÐUR HELGASON
Leitaö lúsa
Nauösynlegt er aö allir bregöist
strax viö og leiti í hári barnanna þeg-
ar boö koma frá skólum og leikskól-
um um lús. Hér kannar móöir
ástandiö hjá dóttur sinni.
með tilheyrandi óþægindum og að-
gerðum til að halda faraldrinum
niðri. „Það þurfa allir að vera sam-
stiga við að berjast gegn lúsinni. Það
tekur langan tíma að vinna á henni.
Ef einhver einn tekur ekki þátt í að
leita og bregðast við á réttan hátt ef
lús finnst þá er allt ónýtt hjá þeim
sem hafa staðið vel sig í leitinni. Fólk
var farið að vera órótt yfir þvi að
þurfa ítrekað að leita í fyrravetur.
Þetta er fyrst og fremst mál foreldr-
anna. Nauðsynlegt er að allir bregð-
ist strax rétt við þegar beiðni frá
skólanum berst inn á heimili með
bömum úr skóla og leikskóla," sagði
Guðmundur Ó. Ásmundsson. -NH
brother P-touch 1250
Lítil en STÓRmerkileq merkivél
5 leturstærðir
9 leturstillingar
prentar (2 ifnur
borði 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af rómmum
Rafport
Nýbýlavegi 14 Simi 554 4443
Veffang: www.if.is/raJfporj______
Útiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
/
/
/
/
/
/
/
I