Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2001, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2001, Side 28
28 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 Helgarblað DV Sumir menn eru þannig gerðir að þeir hætta aldrei við hálfn- að verk heldur fylgja hverju máli fast til enda. Þetta eru gjarnan menn sem þekkja viðfangsefni sin út í hörgul og kunna á þeim betri skil en flestir aðrir. Fyrir þeim er ekki nóg að vita hluta einhvers máls. Þeir vilja vita og þekkja allt og gefast aldrei upp. Hörður Geirsson rafvirki, ljós- myndari, safnvörður og flugsögu- grúskari er einn þessara manna. Hörður hefur eftirminnilega kom- ið nafni sínu á spjöld sögunnar á sínu áhugasviði en hann leitaði um 20 ára skeið að breskri herflugvél með fjórum mönnum innanborðs sem fórst á hálendinu milli Öxna- dals og Eyjafjaröar 26. maí 1941 á leið frá Akureyri til Kaldaðarness. Hörður gafst aldrei upp og fann að lokum það sem hann leitaði að. DV MYNDIR GVA Hörður ies fréttir Höröur hefur lagt mikiö á sig viö aö ieysa verkefniö og eins og sést á myndinni hefur árangurinn vakiö at- hygli úti um allan heim. Hann hand- leikur möppu meö 250 fréttum úr víðri veröld af fundi vétarinnar. Hönd í hanska Gerð var leit að vélinni á sínum tíma og hermenn sem komu að flak- inu mátu það svo að engin leið væri að bjarga því eða líkamsleifum flug- mannanna ofan af fjallinu enda flak- ið á kafi i snjó. Síðan liðu nærri 60 ár og eini maðurinn sem kom á staðinn á þeim tíma var ungur smalamaður, Gísli Ingólfsson sem gekk fram á staðinn í smalamennsku. Hann sá glitta í skammbyssu við fætur sér og sá svo dökkan hanska standa upp úr snjónum og datt í hug að taka hann með sér til minja. Hann togaði í en þegar honum varð ljóst að köld hönd var í hanskanum setti að hon- um óhug og hann hljóp í burtu. Hörður ákvað 1980 að hefja leit að umræddri flugvél. Fyrsti leiðangur- inn stóð í eina viku og í það skipti segist Hörður örugglega hafa gengið yfir staðinn þar sem flugvélin leyndist. 13 leiðangrar á 20 árum „Þetta var í rauninni nokkurs konar manndómsvígsla fyrir mér að geta legið einn úti og bjargað mér. Ég notaði í rauninni leitina að flug- vélinni sem nokkurs konar afsök- un,“ segir Hörður og vill ekki gera mikið úr þrautseigju sinni við leit- ina. „Ég fór með margra ára millibili. Ég fór allt í 13 leiðangra á nærri 20 árum og gekk meðal annars fimm sinnum á Gloppufjall sem lengi var haldið að væri vettvangur slyssins. Ég haföi alltaf meiri áhuga á þýskri flugsögu en þetta var óleysta gátan um týndu vélina og gaman að koma að þessu aftur og aftur.“ Fyrir fáum árum urðu þáttaskil i leitinni þegar Hörður kom höndum Jökullinn skilar sínu Jökullinn þar sem flugvélin leyndist hefur lækkaö um 3,5 metra á tveimur sumrum síöan vélin fannst. Eins og sjá má á þessari mynd, sem Höröur Geirsson tók, hefur flugvélin sundrast í litla parta viö brotiendinguna. yfir leitarskýrslur frá breska hern- um frá þeim tíma sem slysið gerð- ist. Þegar það var fundið var hægt að bera það saman við nútíma kort og allt í einu var kominn kross á kortið þar sem flugvélin leyndist. „Það var Friðþór Eydal, blaðafull- trúi Varnarliðsins, sem fann þessar skýrslur í London og í þeim reynd- ust vera hnit af staðnum. Ég fékk þau, fann svo kort úr eigu breska hersins frá Landsbókasafni og þá loksins gat ég sett hinn langþráða kross á kortið." Loksins, loksins Það var síðan 21 ágúst 1999 sem Hörður loksins fann flakið á litlum jökli í um 1100 metra hæð í hálend- inu milli Eyjafjarðar og Öxnadals. Hann hefur því trúlega verið fyrsti maðurinn sem leit það augum síðan smalamaðurinn gekk fram á það. Með honum í þessum fyrsta leið- angri voru Örn Arnarson sem fyrst- ur fann brak úr flakinu, Skúli Árna- son og Arnar Össur, sonur Harðar. Mikið af alls kyns braki og mun- um hefur síðan fundist á svæðinu en jökullinn er að þiðna allhratt og mun að sögn jöklafræðinga hverfa alveg með tímanum. Líkamsleifar þeirra fjögurra sem fórust með vél- inni hafa fundist að hluta og hafa varðveist ótrúlega vel sem staðfestir að snjó hefur ekki tekið af flakinu síðan það fórst. Á þeim tveimur sumrum sem liðin eru síðan flakið birtist undan ísnum hefur jökulinn þynnst um þrjá og hálfan metra og mikið magn af braki og leifum kom- ið í ljós. Líkamsleifarnar voru jarðsettar með viðhöfn í Fossvogi sumarið 2000 að viðstöddum fulltrúum breska flughersins en einnig komu ættingjar nokkurra hinna látnu hingað til lands af þessu tilefni. Hörður segir að Björgunarsveitin Súlur á Akureyri hafi unnið gríðar- legt starf við aö safna saman leifum og braki og taka þátt í og aðstoða við þá fjölmörgu leiðangra sem fam- ir hafa verið á fjallið síðan. í miklum leiðangri sem farinn var sumarið 2000 komu sex sérsveit- armenn frá breska flughernum frá Skotlandi til Islands til að taka þátt í leiðangrinum og Hörður segist aldrei hafa kynnst öðrum eins harð- jöxlum sem féllu afar vel inn í hóp íslenskra björgunarsveitarmanna og fjallamanna sem komu að þessu verkefni. Sérstök sýning á munum og minj- um sem tengjast þessum sérstæða atburði sem jökullinn geymdi í nærri sextíu ár hefur verið höfð uppi á Minjasafninu á Akureyri og þar sýnir Hörður þeim sem áhuga h ,riL Flugmaöur Höröur fór 13 le tók Skúli Arna. se. í fyrra lífi Hörður Geirsson á Akureyri segir frá leitinni sem stóð í 20 ár, endurminningum úr fyrri lífum og sorginni sem knúði dyra á heimili hans um líkt leyti og sigurinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.