Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2001, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.2001, Side 50
58 LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 Tilvera DV 1 í f i Kabarett í kjallaranum Þórunn Lárusdóttur veröur 1 Leikhúskjallaranum í kvöld og flytur lög úr hinum ýmsu söng- leikjum. Skemmtunin hefst kl. 20 fyrir matargesti en kl. 22 fyr- ir aðra. Að kabarettinum lokn- um munu Hringir og Magga Stína leika fyrir dansi. Leikhús ■ HÁFNARFJÁRÐÁRLElkHUSIÐ Leikritið Englabörn verður sýnt í Hafnarfjaröarleikhúsinu í kvöld kl. 20. Sýningin er bönnuð börnum. ■ HVER ER HRÆDDUR VH) VIRG- INIU WOLF? Hver er hræddur vlö Virginíu Wolf? eftir Edward Albee veröur sýnt í kvöld í Þjóðleikhúsinu, á litla sviðinu. ■ IIRO Í LOFTKASTALANUM Ofur huginn og galdramaðurinn liro verð- ur meö aukasýningu í kvöld kl. 20 í Loftkastalanum. ■ MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI Leikritið Nleð fulla vasa af grjóti verður sýnt í kvöld á stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 20. ■ MEÐ VÍFH) í LÚKUNUM I kvöld verður leikritið Með vífiö í lúkunum eftir Ray Cooney sýnt á stóra svið- inu í Borgarleikhúsinu kl. 20. ■ VIUI EMMU I kvöld verður leikrit- ið VIIJI Emmu eftir David Hare sýnt á Smíöaverkstæöi Þjóöleikhússins og hefst sýningin kl. 20. Opnanir ■ HARPA ARNA I ASI Harpa Arnadóttir sýnir málverk sem unnin eru sem teikningar í, Ás- mundarsal Listasafns ASÍ. ■ LISTAMAÐURINN Á HORNINU í dag klukkan 15 veröur afhjúpaö verk viö Kermóa í Elliöaárdal (Breiö- holtsmegin). Um er aö ræða vett- vangsverk í seríunni Listamaðurinn á horninu eftir listamanninn Ing- arafn Stelnarsson. ■ SARI MAARIT CEDERGREN í ASI Finnskættaða myndlistarkonan Sari Maarit Cedergren opnar sýn- inguna Veðrabrigöi í Gryfju lista- safns ASÍ í dag kl. 14. ■ MARISA NAVARRO ARASON í STRAUMI Marisa Navarro Arason Ijósmyndari opnar í dag sýningu í Listamiöstöðinni Straumi. ■ HRÖNN EGGERTS j SAFNAHÚS- INU A HUSAVIK Hrönn Eggerts- dóttir, myndlistarmaður frá Akra- nesi, opnar málverkasýningu ! Safnahúsinu á Húsavík í dag kl. 16. Klassík ■ SONGDAGSKRA A HUSAVIK Hólmfríður Benediktsdóttir sópransöngkona flytur fjölbreytta söngdagskrá í Borgarskóla, Húsavík, á morgun kl. 17. Henni til fulltingis er Anadár Rácz píanóleikari. ■ UÓÐAGANGA í VAÐLASKÓGI Hin árlega Ijóöaganga Gilfélagsins og Skógræktarfélags Eyfirðinga veröur farin í Vaölaskógi í dag. Farið verður frá Deiglunni kl. 13.30 og kostar fariö 500 kr. Gengiö verður um Vaölaskóg, undir leiösögn Hallgríms Indriöasonar og Aðalsteins Svans Sigfússonar. Áð verður á nokkrum stoðun, lesin upp Ijóö og hlýtt á tónlist, auk þess sem boðið verður upp á ketilkaffi að hætti skógarmanna. SJá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vfsi.is DV-MYND HARI Skagamenn, Skagamenn skoruöu mörkin! Hjónin Siguröur Sigursteinsson og Margrét Ákadóttir meö soninn Arnór. Hjónin íslandsmeistarar, hvort með sínu liði: Erfiðið gleymist þegar uppskeran er góð Hjónin Margrét Ákadóttir og Sig- urður Sigursteinsson eiga mikilli vel- gengi að fagna í fótboltanum þetta árið, því bæði urðu íslandsmeistarar, hvort með sínu liði. Margrét með Breiðabliki og Sigurður með ÍA. Þau tóku því með varúð þegar hringt var að falast eftir viðtali, voru ekki alveg viss um hvort hugur fylgdi máli. „Við erum búin að fá svo mörg atsímtöl upp á síðkastið frá kunningjum, þar sem verið er að bjóða 1 okkur og ann- að þessháttar." segja þau til skýring- ar. En þegar bíU, merktur DV í bak og fyrir, var mættur á hlaðinu þá efuðust þau ekki lengur. Tveggja ára glókollur Margrét og Sigurður búa í fallegu húsi við Hjarðarholt á Akranesi og morgunfrúin breiðir úr sér í garðin- um. Þau segjast bæði vera Akurnes- ingar í húð og hár og þótt þau hafi búið annars staðar, bæði hérlendis og erlendis um skeið hafi það verið létt ákvörðun að snúa aftur heim. „Þegar erfingi var í vændum ákváðum við að setjast að hér því við vildum ala barn- ið upp utan við borgarysinn. Við höf- um líka stundum þurft að leita til fólksins okkar með pössun fyrir son- inn þegar ég er í æfingastússinu með Blikastelpunum," segir Margrét. Það er glókollurinn Arnór sem um er rætt. Hann er tveggja ára og takka- skórnir eflaust ekki langt undan! Vissu alltaf hvort af öðru Þótt þau hjón séu kornung segjast þau hafa verið saman síðan ‘89. „Við vorum bara á 16. og 18. ári,“ rifjar Sig- urður upp. Þá liggur beinast við að spyrja hvor þau hafi kynnst á Skaga- vellinum. „Já, við vorum auðvitað alltaf á sama svæði og vissum hvort af öðru,“ viðurkennir Margrét „en við byrjuðum nú samt saman á balli, eins og mörg önnur pör.“ Hún segir yngri systur þeirra hafa verið miklar vin- konur og því hafi verið samgangur milli heimila þeirra. „Foreldrar okkar þekktust ágætlega, þannig að þetta var þægilegt," segir hún glaðlega. Margrét er umsjónarkennari í 7 ára bekk og kennir dönsku í 7. bekk i Grundaskóla. Sigurður er iðjuþjálfl í ársleyfi frá Reykjalundi og starfar nú á sjúkrahúsi Akraness. Kostaöi margar ferðir undir fjörðinn En hvernig stóð á því að Margrét gekk til liðs við Breiðablik. „Kvenna- boltinn var með miklum blóma hér á Skaga og við náðum mörgum titlum á árunum kring um ‘90 en nú er hér enginn meistaraflokkur. Ég varð því annaö hvort að leggja skóna á hilluna eða fara í eitthvert annað lið, þótt það kostaði margar ferðir undir Hvalflörð- inn. Ég vissi að Blikastelpumar stóðu vel og fyrst þær sóttust eftir að fá mig þá sló ég til,“ segir hún. „Hvorugt okkar þekkir nokkuð annað en að vera í fótbolta. Við höfum verið í þessu síðustu 14-15 árin, alltaf í meist- araflokkum." segir Sigurður. Sjálfur kveðst hann hafa spilað með Fylki síð- ustu þrjú árin en nú hafl þetta snúist við og Margrét sé farin að keyra á milli. „Það venst ágætlega og maður hefur þarna smá tíma með sjálfum sér,“ segir hún jákvæð. Æfa sex sinnum í viku Áhuginn á fótbolta gengur í erfðir á Akranesi. Þannig er það í Sigurðar ætt og hann segir miklu máli skipta fyrir plássið að það séu Skagahjörtu sem slái innan undir peysunum. En óneitanlega fari mikill timi í æfmgar. „Menn eru að æfa sex sinnum í viku frá 1. nóvember til septemberloka. Þótt þetta sé áhugamannalið þá er þetta gífurleg vinna. Það gleymist samt þegar uppskeran er góð.“ -Gun. Þjóöminjasafn íslands tengist stórri styrkumsókn: Landnám á Norður- Atlantshafssvæðinu Þjóðminjasafn íslands er þátttak- andi í þverfaglegu rannsóknarverk- efni sem Leverhulme Trust í Englandi hefur veitt 1,25 milljónum sterlingspunda. Dr. Guðrún Svein- bjarnardóttir, yerkefnisstjóri hjá Þjóðminjasafni íslands, á aðild að umsókninni. Styrkurinn er veittur til þess að rannsaka vistfræðilegar afleiðingar landnáms á Norður-Atl- antshafssvæðinu, í Færeyjum, á ís- landi og í Grænlandi. Rannsaka langtímaáhrif bú- setu Guðrún segir að styrkurinn verði notaður til að rannsaka hvað gerist þegar fólk sest að á landi þar sem ekki hefur verið búið áður. „Með þvi að nota steingerðar leifar og túlka þær með aðstoð ritheimilda gefst tækifæri til að rannsaka lang- tímaáhrif búsetu á landsvæði þar sem vistkerfið er viðkvæmt." Rannsóknir munu m.a. nýtast í svonefndu Reykholtsverkefni sem Þjóðminjasafnið á aðild að ásamt Sagnfræðistofnun, Raunvísinda- stofnun við Háskóla íslands, Nátt- úrufræðistofnun og Snorrastofu í Reykholti. „Markmið verkefnisins er að varpa ljósi á valdasamþjöppun á þjóðveldistímanum, tilurð póli- tískra og kirkjulegra miðstöðva og tengsl þeirra við landnytjar, byggða- þróun og bókmenntasköpun. Reyk- holt í tíð Snorra Sturlusonar er kjaminn í þeirri rannsókn." Fimm ára verkefni Leverhulme verkefnið hefst árið 2002 og mun standa í 5 ár. Að rann- sókninni standa auk Guðrúnar, sem er fulltrúi Þjóðminjasafns tslands og University College í London, pró- fessor Kevin Edwards við Háskól- ann í Aberdeen, en hann er stjórn- andi rannsóknarinnar, prófessor Paul Buckland við Háskólann í Sheffleld, dr Ian Simpson við Há- skólann í Stirling, dr Andrew Dug- more við Háskólann í Edinborg og prófessor Thomas McGovern við City University í New York. Verk- Þverfagleg rannsóknarvinna Dr. Guörún Sveinbjarnardóttir segir aö með því aö nota steingeröar leif- ar og túlka þær með aöstoö ritheim- ilda gefist tækifæri til að rannsaka langtímaáhrif búsetu. efnið mun fela í sér rannsóknar- vinnu á 12 fagsviðum í 10 löndum. -Klp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.