Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2001, Síða 22
... ( Bláa lónið
Veturinn er að skella á með öllu sem því
fylgir. Þar sem veturinn er leiðinlegur er um að
gera að beita öllum ráðum til að flýja hann og
hvað er betra en að skella sér þangað sem alltaf
er sumarstemning. Bláa lónið er frábrugðið
sundlaugunum að því leyti að maður verður
varla var við kuldann. Bláa lónið er málið.
Hljómalind slær enn í gegn með frábærri
tónleikadagskrá. Nú er það Vetrardagskrá eins
og flestir ættu að vera farnir að vita og hún er
ekki af verri endanum. Fyrst eru það Trans Am
og Fucking Champs sem sparka við landanum
og í næstu viku tekur Dismemberment Plan
við. Gott mál.
... f Smáralind
Það er fátt eins fyndið og geðveiki íslend-
inga þegar kemur að nýjungum. Búast má við
stöðugum straumi í nýjustu miðstöðina og er
ekkert nema gott um það að segja. Skclltu þér
á staðinn og taktu þátt í geðveikinni. Þetta
getur jú varla verið annað en góð verslunar-
miðstöð.
... Á The Tailor of Panama
Pierce Brosnan virðist harðákveðinn í því
að festast ekki í hlutverki Bonds. Þessi ræma
hefur upp á ýmislegt að bjóða og Brosnan fer
bókstaflega á kostum. Þarna er hann á stöðugu
kvennafari eins og í Bond-myndunum en
krimmaeðlið kemur skemmtilega á óvart.
Það er blómleg plötuútgáfa á íslandi og fólk orðið óhrætt við að
setja tónlist eftir sig á stafræna diska til að leyfa öðrum að njóta.
Hljómsveitin Tvö dónaleg haust er þar engin undantekning, hún
heldur veglega útgáfuhátíð í Tjarnarblói á morgun, laugardag, sem
hefst stundvíslega kl. 21.
Texti um ömmudrap
ekki dökkur
„Þetta eru ekki útgáfutónleikar heldur fjölmenningar-
leg útgáfuhátíð þar sem fólk getur hlýtt á tónlist og ljóða-
lestur, horft á leikrit og skoðað málverk," segir Guðmund-
uri lngi Þorvaldsson, söngvari og aðallagahöfundur
hljómsveitarinnar Tvö dónaleg haust, sem var að gefa út
diskinn Mjög fræg geislaplata í síðustu viku. Félagarnir í
sveitinni ætla sér greinilega að skera sig út úr þessu koma-
fá-frían-bjór-og-hlusta-á'lögin-af'nýja-disknum útgáfu-
tónleika sem íslenskar sveitir eru yfirleitt þekktar fyrir.
Spila fyrir ánæcjuna
Það hefur svo sem ekki farið mikið fyrir drengjunum í
Tveim dónalegum haustum. Þeir hafa þó, að sögn
Gumma, verið þónokkuð iðnir við að spila. Reyndar hef-
ur hljómsveitin verið til síðan um 1992 þar sem hún var
stofnuð af Gumma og vinum hans í Menntaskólanum á
Akureyri. Þá voru þeir mun fleiri í bandinu en hópurinn
hefur þynnst þar sem menn hafa flutt utan og eru upp-
teknir við annað í lífinu. I dag eru þeir fjórir og tveir
brassblásarar detta inn þegar mikið liggur við. Gummi
segir að allt spilirí af þeirra hálfu miðist við að þeir hafi
gaman af því.
Smá boðskapur, ekki of
Þeir sem hafa lagt leið sína inn á heimasíðu Tveggja dón-
legra hausta, www.tdh.is, hafa kannski litið yfir texta þriggja
laga eftir sveitina. Það er ekki hægt annað en láta sér bregða
smá þegar maður les um mann sem ætlar að drepa ömmu sína
fyrir arfinn, krakkaperra og illskeyttan prakkara.
Gummi er ekki sammála því að hér sé um neitt sérstaklega
dökka lífssýn að ræða. „Við vildum bara gera eitthvað annað
en að skrifa svona vera-góðir-við-alla-texta. Eins og með
textann við lagið Heimsókn á elliheimilið þá erum við bara að
reyna að benda á hversu óþolinmótt og gráðugt margt fólk er
orðið. Görnlu fólki er holað á elliheimili meðan þeir yngri eru
að flýta sér að eignast jeppa og flott föt.“ Gummi bendir þó á
að Tvö dónaleg haust séu ekki í neinni krossferð. „Við erum
ekkert að kæfa fólk f boðskap heldur einbeitum við okkur frek-
ar að því að vera með fyndna og létta texta og komum skoðun-
um okkar temmilega á framfæri þegar það á við.“
Framtíðin hjá Tveim dónalegum haustum er björt ef marka
má Gummi. Hann segir að steíhan sé að spila áfram þegar færi
gefist og meðan þeir hata gaman af því. Svo er ætlunin að hefj-
ast handa við að leggja drög að nýrri plötu enda eigi þeir efni
tilbúið á eina ef ekki tvær plötur.
■
erjir \erða hvar?
DVD OC TÓNLEIKAR
Eg held ég haldi mig til
hlés í kvöld og geri ekkert
villtara en hrynja út í
sjoppu, leigja mér DVD og
eyða síðan kvöldinu ( ró-
legheitum fyrir framan
kassann. En á laugardag-
inn ætla ég að skella mér í
partí þar sem stemningin
verður hituð upp áður en
við í hljómsveitinni spil-
um á tónleikum á Gauki á
Stöng seinna um kvöldið.
Auglýsist það hér með.
Hrafnkell Pálmarsson,
gítarleikari „I svörtum föt-
um“.
Tónlistarmyndband og bíó
Dagurinn í dag verður undir-
lagður af vinnu hjá mér. Ég er að
fara að leika í tónlistarmynd-
bandi og verð stödd úti á landi
allan daginn á meðan á því
stendur. A laugardaginn er ég
hins vegar hvergi búin að skuld-
binda mig þannig að ég gæti
jafnvel hugsað mér að kíkja eitt-
hvað út með vinkonum mínum.
Á sunnudaginn ætla ég svo að
kíkja í bíó með kærastanunt mín-
um
Rakel Karlsdóttir fyrirsæta.
Tónleikar oc myndband
I dag ætla ég að halda tón-
leika í Smáralind klukkan
19.30 þar sem ég mun kynna
nýtt efni af plötu sem ég er að
vinna um þessar mundir ásamt
ýmsum aðilum. Helgin fer síð-
an í massfva undirbúnings-
vinnu fyrir myndband sem
verður tekið upp á næstunni
við annað lag sem er enn óút-
komið.
Védís Hervör Amodóttir söng-
og leikkona.
www.astro.is