Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 Fréttir I>V ^ Fjársöfnun fyrir íbúa Afganistans hófst í gær: Astandið er að verða óheyrilega sárt - segir Þórir Guömundsson hjá Rauða krossinum Hjálparstarf kirkjunnar og Rauði kross íslands hófu í gær sameiginlega íjársöfnun fyrir nauðstadda íbúa Afganistans. Að sögn Þóris Guðmundssonar hjá Rauða krossinum er fjöldi íbúanna á flótta frá heimkynnum sínum og eru þeir illa undir veturinn búnir. „Neyðin var fyrir hendi áður en árásimar á landið hófust en í kjöl- far þeirra er hún orðin sárari og mun erfiðara er að veita aöstoð," segir Þórir. Síðastliðinn þrjú ár hafi verið þurrkaár og miklir upp- skerubrestir orðið. Hann segir að mjög brýnt sé að ná til fólks áður en vetur gengur i garð því þá verða aðflutningar miklu erfiðari. „Við höfum ekki nema nokkrar vikur upp á að hlaupa þannig að þetta er kapphlaup við tímann," segir Þórir. Flóttafólkið þarfnast allra nauðsynja, það líður hungur og býr í tjöldum í miklum kulda. Meðal þess sem gert sé til að að- stoða það sé að koma upp tjöldum og útvega mat, vatn og læknisað- stoð. „Ástandið er að verða óheyri- Nauðstaddlr íbúar Afganistans Flóttamenn frá Afganistan skjálfandi af kulda í flóttamannabúðum viö landa- mæri írans. lega sárt,“ segir Þórir og bætir við að þegar hungrið sverfi að hjá flóttamönnunum komi einnig upp ýmsir heilsufarskvillar. Bömin verði verst fyrir barðinu á þessum erfiðu aðstæðum því þau séu veik- ust fyrir. Af þeim ástæðum sé bamadauði mikill í Afganistan og fimmta hvert barn deyi áður en það nær fimm ára aldri. Fólk sem vill styðja söfnunina getur hringt í sima í 907 2003 og gefið þannig 1.000 krónur sem leggjast á næsta sím- reikning. Það fé sem safnast meðal al- mennings bætist við 10 milljóna króna framlag sem utanríkisráðuneytið hefur tiikynnt að verði veittar til félaganna til aðstoðar í Afganistan. Sjá erlendar fréttir á bls. 10 -MA Maður sem hlaut einn þyngsta sifjaspellsdóm hér á landi árið 1996 ákærður aftur: Staða tilsjónarmanns í kynferðismáli leiddi til sýknu Maður, sem er á eins og hálfs árs skilorði eftir einn þyngsta sifjaspells- dóm sem kveðinn hefur verið upp hér á landi, var í gær sýknaður af ákæru um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Héraðsdómur Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að aðkoma tiisjón- armanns sem skipaður var til að hafa eftirlit með heimili mannsins, með hliðsjón af sakaferli hans, var til þess fallin að rýra sönnunargildi framburð- ar stjúpdótturinnar. Einnig telur dóm- urinn óviðeigandi að tilsjónarmaður- inn skuli vera tengdur fyrrum eigin- konu ákærða - móður dótturinnar sem maðurinn var dæmdur fyrir að mis- nota oft og ítrekað á margra ára tíma- bili. Dómurinn taldi það ekki síst óvið- eigandi í ljósi þess að fyrrum eiginkon- an ber mikið hatur til ákærða vegna kynferðisbrota sem hann gerðist sekur um gagnvart dóttur þeirra. Maðurinn hlaut 7 ára fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni árið 1996. Hæstiréttur lækkaði þá refs- ingu niður í fjögur og hálft ár, ekki síst i Ijósi þess að maðurinn hafði af sjálfs- dáðum sótt hjálp til geðlæknis i því skyni að ráða bót á tilhneigingum sín- um. Þá þótti Hæstarétti það koma til refsilækkunar að maðurinn hafði afsal- að sér eignarhlut sínum í ibúð til dótt- urinnar, Maðurinn kom úr afplánun árið 1999 eftir að hafa tekið tvo þriðju refsingar- innar út. Hann fékk þvi reynslulausn á eftirstöðvum eins og hálfs árs refsing- ar. Áður en maðurinn fór í fangelsi hafði hann stofnað til sambúðar við nú- verandi konu. Eftir að hann losnaði út skipuðu félagsmálayfirvöld tilsjónar- mann með heimilinu, ekki síst vegna sakaferils mannsins. Það var síðan í febrúar síðastliðnum sem tilsjónarmað- urinn greindi yfirfélagsráðgjafa frá samtali sínu við stjúpdóttur mannsins þar sem fram hafði komið að maðurinn hefði snert stúlkuna á stöðum „þar sem pabbar ættu ekki að koma við“. Dómurinn telur að við rannsókn og fyrir dómi hafi gætt misræmis í fram- burði tilsjónarmannsins. Þannig hafi hann sagt hjá lögreglu að hann hefði „spurt“ stúlkuna hvort ákærði kæmi inn til hennar er hún færi að sofa en sagt fyrir dómi að stúikan hefði haft orð á þessu að fyrra bragði. Þannig var niðurstaða dómsins að tilsjónarmaður- inn hefði beint leiðandi spumingum til stúlkunnar. -Ótt Ný samtök: Vinir bílsins Samtökin „Vinir bílsins“ voru stofnuð með formlegum hætti í Nor- ræna húsinu i gær. Þau eru regn- hlífarsamtök nokkurra hagsmuna- aðila sem hafa tekið sig saman um að rétta stöðu bílsins í umræðunni. Markmiðið er að sýna mikilvægi bílsins fyrir samfélagið og stöðu hans í samgönguþróuninni. Jafn- framt er það ætlun Vina bílsins að skapa umræðu um eðlilega endur- nýjun bílaflotans. Vinir bílsins eru Bílgreinasambandið, bílaumboðin, tryggingafélögin og lánafyrirtækin. Forráðamenn samtakanna, sem Erna Gísladóttir hjá B&L leiðir, nefna að þegar fjölmiðlar fjalli um viðskiptahallann birti þeir oftar en ekki myndir af fjölda nýrra bíla á hafnarbakkanum. Sömu myndirnar sjáist svo þegar talað sé um of- þenslu. í opinberri umræðu setji menn upp áhyggjusvip og bendi á kostnað og landrými til að þjóna þörfum bílsins. Bílnum sé gjarnan hallmælt í nafni umhverfisverndar og almannaheilla. Að mati Vina bílsins á bíllinn á þetta ekki skilið og margt af því sem sagt er bílnum til hnjóðs sé byggt á misskilningi og draumsýn. -NG Rauðvínssendingin: Kallað eftir upplýsingum Rannveig Gunnarsdóttir. Rannveig Gunn- arsdóttir, forstjóri Lyfjaskoðunar, seg- ist hafa kallað eftir upplýsingum frá Pharmaco vegna rauðvínssendingar til lækna. Ekki er búið að svara erind- inu og segist Rann- veig aðallega hafa fylgst með málinu í blöðum. „Okkar hlutverk er að afla upp- lýsinga um svona mál. Óveruleg verðmæti mega fylgja kynningum en slíkt hlýtur alltaf að vera túlkun- aratriði. Spurningin snýst líka um vín eða ekki vín. Engar beinar regl- ur virðast banna þetta en við viljum gjarnan vita hvernig var staðið að þessu, hvað fylgdi með rauðvíns- flöskunni og svo framvegis," segir Rannveig. -BÞ Veöriö i fcvöld | | Sölargangur og sjávarföll yíz V?- 10, REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 17.54 17.36 Sólarupprás á morgun 08.33 08.25 Síödeglsflóð 20.03 12.17 Árdeglsflóó á morgun 08.26 00.36 Skýriisgair á ve&uirtáknunt . 15 NVINDSTYRKUR í nnrtnnn ú &3'Ktiwíu -10: Hlýjast sunnan til Hæg breytileg átt og dálítil súld eða rigning með köflum á Suöausturlandi en annars víða léttskýjað í dag. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast sunnan til. LÉÍTSKYJAÐ V HALF- SKÝJAÐ SKÚRIR Nfrost heí0SKÍRT o SKYJAÐ ALSKYjAÐ Ígí* SLYDDA SNJÓKOMA w ÉUAGANGUR ÞRUÍVJU- VEÐUR 5KAF- RENNÍNGUR ÞÖKA Víöast léttskýjað NA 5-8 m/s og lítils háttar skúrir á austanverðu landinu og allra nyrst en víða léttskýjað annars staöar. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast á Suðurlandi. Siinniidn Jffl Vindun 5-8 m/s Hiti 5° til 11° Austlæg átt, 5-8 m/s. Súld eða rigning víóa austan tll. Á vestanveröu landlnu veröur skýjaö og rlgnlng af og tll suövestan- lands. Hltl 5 tll 11 stlg. Mánudaj Hiti 5° til ll° •V.V.V Austlæg átt, 5-8 m/s. Súld eöa rigning víða austan tll. Á vestanveröu landinu veröur skýjaö og rigning af og tll suövestan- lands. Hitl 5 til 11 stig. Þríöjud sm Vindun , 5—8 tn/s Hiti 5° tii 11° ^'W‘5* Austlæg átt, 5-8 m/s. Súld eöa rignlng víða austan tll. Á vestanverðu landinu veröur skýjaö og rignlng af og tll suövestan- lands. Hlti 5 tll 11 stlg. 15 AKUREYRI heiðskirt 2 BERGSSTAÐIR þoka í gr. -2 BOLUNGARVÍK heiðskírt 2 EGILSSTAÐIR þokumóöa 5 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 8 KEFLAVÍK lágþoka 6 RAUFARHÖFN heiöskírt 5 REYKJAVÍK þokumóöa 8 STÓRHÖFÐI alskýjaö 8 BERGEN hálfskýjaö 6 HELSINKI skýjaö 6 KAUPMANNAHÖFN skýjað 11 ÓSLÓ léttskýjað 4 STOKKHÓLMUR 7 ÞÓRSHÖFN þoka 10 ÞRÁNDHEIMUR hrímþoka -1 ALGARVE alskýjaö 18 AMSTERDAM þokuröuningur 15 BARCELONA léttskýjað 14 BERLÍN þokumóöa 11 CHICAGO alskýjaö 12 DUBLIN skýjaö 13 HALIFAX léttskýjaö 5 FRANKFURT þokumóða 9 HAMBORG þokumóða 10 JAN MAYEN skýjaö 3 LONDON skýjaö 12 LÚXEMBORG þokumóöa 12 MALLORCA skýjaö 16 MONTREAL heiöskírt 4 NARSSARSSUAQ léttskýjaö -1 NEW YORK heiðskírt 10 ORLANDO skýjaö 21 PARÍS þokumóöa 13 VÍN súld 12 WASHINGTON heiöskírt 3 WINNIPEG skýjaö 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.