Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Page 15
14 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001 19 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjórar: Jðnas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjóri: Birgir Guömundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverhoiti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.netheimar.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö: Isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2200 kr. m. vsk. Lausasöluverö 200 kr. m. vsk., Helgarblað 300 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Tjón ferðaþjónustunnar Hryðjuverkamönnum hefur tekist það ætlunarverk sitt að skapa ótta í vestrænum samfélögum. Eðlilega er ástand- ið verst í Bandaríkjunum enda hafa þegnar þeirra orðið fyrir beinum árásum, fyrst með mannskæðum árásum í New York og Washington og í seinni tíð með miltisbrands- plágunni sem heldur áfram að breiðast út í landinu. Þar beina óþokkarnir spjótum sínum einkum að fjölmiðla- og stjórnmálamönnum. Þar er vegið beint að því helgasta í vestrænni samfélagsgerð, lýðræði, mál- og prentfrelsi. Afleiðingar hryðjuverkanna eru þegar alvarlegar og ótti almennur vegna líklegrar stigmögnunar átaka og óútreikn- anlegra aðgerða ósýnilegra fjandmanna vestrænna gilda. Efnahagslegur samdráttur fylgir í kjölfar þess áfalls sem flugfélög urðu fyrir þegar fullhlöðnum farþegavélum var beitt sem sprengiflaugum á skotmörk í miðjum stórborg- um. Farþegaflug dróst stórlega saman vegna þess að al- mennir borgarar telja betur heima setið en af stað farið á viðsjárverðum tímum. Flugsamdrátturinn hefur síðan keðjuverkandi áhrif á ýmis svið hinna opnu vestrænu sam- félaga. Flug innan Bandaríkjanna hefur dregist saman svo nemur tugum prósenta sem og flug til og frá Bandaríkjun- um. Þá halda margir þegnar Evrópuríkjanna að sér hönd- um og viðsjár í flugi eru víðar í heiminum. Þótt íslendingar telji sig fjarri heimsins vígaslóð hefur þessi þróun þegar haft áhrif á samfélag okkar. Við vitum af ógn hryðjuverkanna, þar sem enginn er í raun óhultur, þótt mikilvægt sé að óttinn nái ekki tökum á okkur. Efna- hagslegar afleiðingar blasa hins vegar við í þeirri atvinnu- grein sem finnur mest fyrir afleiðingum hryðjuverkanna, ferðaþjónustunni. Flugfélög víða um heim standa höllum fæti og Flugleiðir fara ekki varhluta af ástandinu. Félagið hefur því brugðist við með fækkun ferða, uppsögnum starfsfólks og nýtir rétt sinn til þess að skila flugvélum sem það hafði á leigu. Ferðaþjónustan er sú atvinnugrein sem verið hefur í mestum uppgangi hér á landi. Hún hefur velt á milli 50 og 60 milljörðum á ári og erlendum ferðamönnum hefur fjölg- að ár frá ári. Ferðaþjónustan gengur næst sjávarútvegi í öflun gjaldeyris í þjóðarbúið enda ötullega unnið að kynn- ingu landsins sem ferðamannalands. Fram kom hjá Magn- úsi Oddssyni ferðamálastjóra í DV í gær að velta vegna er- lendra ferðamanna hefði að óbreyttu orðið um 36 milljarð- ar króna. Ferðamálastjóri segir ljóst að talsvert slái á það vegna þess stríðsástands sem nú ríkir. Líkur séu því á að þeir veikustu í greininni muni eiga erfitt með að standast áfallið. Ferðamálastjóri telur skaða ferðaþjónustunnar þegar orðinn gífurlegan. Hann fullyrðir að menn hafi aldrei stað- ið frammi fyrir jafn mikilli óvissu um þróun ferðaþjónustu í heiminum frá síðustu heimsstyrjöld. Ekki sjái fyrir end- ann á þeirri þróun sem hafin er en ljóst að afleiðingar hryðjuverkanna haldi áfram að hafa áhrif. Því verði ferða- þjónustan að meta hvaða möguleikar séu til viðbragða. Þetta gildir jafnt hér á landi sem annars staðar enda er ástandið nú annað meginviðfangsefni ferðamálaráðstefnu sem hófst á Hvolsvelli í gær. Þá ráðstefnu sitja um 200 manns víðs vegar af landinu. Þar verður leitað leiða til við- bragða við því alvarlega ástandi sem hefur skapast og snertir fjölmarga ferðaþjónustuaðila um allt land, flugfélög, hótel- og gististaði, veitingastaði, bílaleigur, hópferðafyrir- tæki og aðra þá sem byggt hafa upp þjónustu við ferða- menn. Tjón þessarar mikilvægu atvinnugreinar þarf að tak- marka svo sem mögulegt er. Jónas Haraldsson tsKHETPDI TRORO ySV± ? RLCT í EXNtJ - \ TJð, NíhINRSTSEM HENDI \ s/ÆRl V'EIPRD- ER F-trNKl UTsKLTFfDl VRLDBRÆ'N- IN6I 06 EINfceÐIBHERKB i ORÍ>INN EINKHVINGR \ OCt NHNR9TJ BRNDR- j \ MR9UR VOLDUáRSTð / LÝ©RÆ€)I2.í?ÍKrS \ VERHLDRR? . ÖbS'JÖ ERO T KlNl/fRJitR Vlð FlRP WKCMRSTÍ DýR- V LIMófmSLö > Spurt og svarað Á að leyfa hœgri beygju á móti rauðu Ijósi? Skoðun I>V Breytingar á mjólkuriðnaði á Norðausturlandi: £ Frumvarp þessa efnis til breytinga á umferöarlögum hefur veriö lagt fram á Alþlngi. Hjálmar Árnason er fyrsti flutningsmaöur þess. Oddur Olafsson s krifar: seu meðan kristnin var enn undir- staða hugmyndaheims lýðræð- isþjóða Norðurálfu. Veirutilbúningur Svona er flest með ólíkind- um á nýrri þúsöld. Það sem enginn reiknaði með að gæti gerst gerist og atburði ber að með svo óvæntum hætti að tækni og hugbúnaður má sín litils hinu óvænta. Verkfræð- ingar og eðlisfræðingar stað- ■ hæfa að ofnar kjarnorkuvera öruggari og hættuminni en brauðristir og geti ekki brætt úr sér, en samt gera þeir það. Atómkafbátar geta ekki sokkið og miðunargræjur flugskeyta senda þau alltaf beint í mark. Eða hvað? Einn skarpgáfaðasti vísindamað- ur nútímans, Stehpen Hawking ráð- leggur nú mannkyninu að koma sprota af sjálfu sér fyrir á annarri plánetu þvi þaö muni meö nokkurri vissu deyja út á Jörðinni innan þús- und ára. Ekki þarf margbrotin tæki, mikið fé né yfirburðaþekkingu til að breyta litningum, enda er það gert í stórum og smáum rannsóknarstof- um um allan heim. Stæðfræðingur- inn mikli staðhæfir að vegna slysni eða af öðrum ástæðum verði búin til veira sem tortimir mannskepnunni. Útkoma líkindareiknings segir hon- um það. Aldrei var til svo fá- ránleg líkindaformúla að tölfræðilegur mögu- leiki væri á að tvær far- þegaflugvélar lentu sín á hvorum heimsverslun- artuminum á Manhatt- an með 18 mínútna millibili. Enginn reikn- aði með að bráðnun styrktarsúlna á efstu hæðum orsakaði hrun 104 hæða húsa á örfáum sekúndum. Að óvopnuð farþegaflugvél gæti grandað höfuð- vígi Bandarikjahers var útilokað dæmi í öllum varnaráætlunum. Úkraínski herinn barði höfðinu við steininn í nokkra daga og sagði úti- lokað að flugskeyti frá honum hefði lent á farþegaflugvél yfir Svartahafi og bandaríski flotinn staðhæfði að óhugsandi væri að skeyti frá honum hefði lent á birgðageymslu Rauða krossins í Afganistan, þar til annað kom í ljós. Framkvæmdastjóri Almanna- varna og landlæknir segja að það sé fullkomlega öruggt að miltisbrandur berist ekki til Natóríkisins íslands eftir svipuðum leiðum og bandarískt fjölmiölafólk er að fá í pósti. Um heim allan keppast stjórnmálamenn og embættismenn galopnu þjóðfélag- anna við að hughreysta fólk með því að vamir gegn hugsanlegum hryðju- verkum séu i finasta lagi. Baráttan gegn hry ðj u verkamönn- um gengur takk- bærilega, enda eru þar aðeins örfáir villutrúarmenn sem stjórnað er af einum manni sem liggur við i gilskorningum upp til fjalla með riffil að vopni. Þegar búið verður að kasta meira sprengju- magni á furtinn en brúkað var i stríðum síðustu aldar kemst aftur ró á hlutabréfa- markaðinn og kristnir kirkjuhöfð- ingjar gera Kóran- inn að sínu nýjasta testamenti enda eru þeir komnir að , þeirri niðurstöðu að I þúsundum rannsóknarstofa er verið að rannsaka og breyta litning- Krists1 og^Múhameðs um> sums staðar af nœsta lítilli þekkingu á því til hvers breyting- sé einn og hinn arnar leiða. Hlutabréfabrask og gróðasjónarmið einstaklinga ráða farsbreytingu hhefðí starísemmm ems °8 flestu öðru sem við kemur lífríkinu og inngrip- enginn trúað á um í núttúrulega þróun. Það er allt metið til fjár í kauphöllum. í þúsundum rannsóknarstofa er verið að rannsaka og breyta litning- um, sums staðar af næsta lítilli þekk- ingu á því til hvers breytingarnar leiða. Hlutabréfabrask og gróðasjón- armið einstaklinga ráða starfsem- inni eins og flestu öðru sem við kem- ur lífríkinu og inngripum í núttúru- lega þróun. Þaö er allt metið til fjár í kauphöllum. Hiö óhugsanlega Eitt af dularfyllstu fyrirbærum nútímans eru friðarferlin sem póli- tíkusar og handbendi þeirra í fjöl- miðlaheiminum finna upp. Hver valdsmaðurinn af öðrum gerir sig að friðarhöfðingja með því að fá ein- hvern leiðtoga ísraels og áhanganda spámannsins til að takast i hendur á tröppum Hvíta hússins og endumýja friðarferli sem logið er að grunn- hyggnu fólki að sé í gangi. Árangur- inn er svipaður og af fiskverndinni á íslandsmiðum. Líkindin til þess að ísraelar og Palestínumenn sameinist um frið- samlega sambúð i einu ríki eru álíka mikil og að hermdarverkum linni ef sameiginlegum herafla Bandaríkja- manna og Breta tekst að bombardera Osama karlinn í fjöllunum. Annars má treysta því að það er með ólík- indum hve oft það hendir sem alls ekki á að geta átt sér stað. Við það verðum við að lifa þangað til.... 11. október sl. birti Þorkefl Björnsson mjólkurfræðingur grein í DV sem fjaflaði á þann hátt um mjólkuriðnað á Norðausturlandi að óhjá- kvæmilegt er að draga fram nokkrar staðreyndir er mál- ið varða. Þorkell verður að horfast í augu við að Kaupfélag Þing- eyinga var því miður raun- verulega gjaldþrota og vant- ar á annað hundrað mifljón- ir á að lánardrottnar þess fái inneignir sínar greiddar. Þaö er auðvelt að segja að hrægammar hafi hirt eigur félagsins fyrir fáeinar krónur. Staðreynd málsins er hins vegar sú að við sölu eignanna eru þær ekki meira virði en einhverjir fást til að greiða fyrir þær og hefur raunar gengið bæði seint og illa að selja margar þeirra. Hverjir stóöu gegn? Þorkell talar um að þingeyskir bændur hafi ekki borið gæfu til að standa sama um mjólkurvinnsluna. Hann ætti að líta sér nær. Mjólkursamlagið á Húsa- vík var öflugt fyrirtæki með yfir 200 milljón kr. eigið fé samkv. efnahags- reikningi 1998. Þingeyskir bændur höfðu þá staðið saman um það í mörg ár að vilja aðskilja að fullu rekstur KÞ og mjólkur- samlagsins og var oft fjall- að um það í sameiginlegri stjórn fyrirtækjanna með- an við Þorkell sátum þar báðir. Þorkell (og raunar fleiri) mættu íhuga hver væri staða mjólkurvinnslu á Húsavík nú ef sanngjamar kröfur bænda um að- skilnað fyrirtækjanna hefðu náð fram að ganga. Hann ætti einnig að velta fyrir sér hverjir stóðu gegn þeim kröfum. Erfiö fjárhagsstaða Vegna taps alls eiginfjár mjólkur- samlagsins á Húsavik og af fleiri ástæðum er eigið fé Norðurmjólkur hlutfallslega mun minna en eigið fé Ari Teitsson er fyrrum stjórnarmab- ur KÞ og Ms KÞ. Þorkell œtti því fremur að spyrja hverjir komu Norður- mjólk í þessa stöðu en gagnrýna þá sem reyna að vinna úr henni. mjólkurvinnslunnar á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt ársreikn- ingum mjólkurbúanna árið 2000 er fjármagnskostnaður Norðurmjólkur yflr 4 krónur á hvern unninn lítra meðan búin á Suöur- og Vesturlandi eru með fjármagnstekjur umfram gjöld. í þessari erfiðu stöðu verður Norðurmjólk að leita allra leiða til sparnaðar, eigi það að halda velli og fá mjólk til vinnslu. Þorkell ætti því fremur að spyrja hverjir komu Norð- urmjólk í þessa stöðu en gagnrýna þá sem reyna að vinna úr henni. í grein sinni gefur Þorkell i skyn að brátt verði hætt að sækja mjólk til þeirra framleiðenda sem fjærst liggja búinu en flarlægð tfl þeirra er um 120 km. Ljóst má þó vera að Norður- mjólk er mikilvægt að fá til sín alla þá mjólk sem greiðslumark er fyrir á svæðinu. Til samanburðar má nefna að Mjólkurbú Flóamanna Selfossi tel- ur sér hagkvæmt að sækja mjólk austur í Hornafjörð í um 400 km fjar- lægð frá búinu. Það mun hins vegar valda röskun í mjóikurframleiðslu á jaðarsvæðum ef ekki tekst að ná viðunandi rekstr- arárangri hjá Norðurmjólk svo unnt sé að greiða sambærilegt hráefnis- verð og hjá öðrum búum því þá mun mjólkurframleiðsla flytjast þangað sem betur er borgað fyrir mjólkina og þá ekki síst frá jaðarsvæðunum. Hugmyndir Þorkels um að reka á Húsavík ostabú með vöruþróun í ost- um og framleiðslu sérosta að mark- miði eru allrar athygli verð en það bú verður þá að reka á ábyrgð mjólkuriðnaðgrins í heild. Skuldug- asta mjólkurbú landsins getur ekki eitt staðið að slíkum rekstri. Ari Teitsson Lýðræðið leiti upprunans „Kosningar á Net- inu í kjölfar upplýs- inga- og tæknibylt- inganna eru að verða að veruleika og brýnt að kanna þegar í stað kosti þeirra og galla ... Kominn er tími til að lýðræðið leiti upprunans en í stað handauppréttinganna á Agora- torginu í Aþenu á guflöld Grikkja rétta menn nú upp hönd á Netinu þess í stað. Fulltrúalýðræði hins illa upplýsta og fátæka almennings hef- ur runnið sitt skeið á enda og næsta framfaraskeið mannkynsins þarf að eiga sér stað á stjórnmálasviðinu með milliliðalausu lýðræði og notk- un Netsins við að koma því á.“ Björgvin G. Sigurösson í grein í Mbl. í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi: Gengur greitt í Bandaríkjunum „Mér finnst skorta rök fyrir því hvers vegna menn mega ekki beygja til hægri á rauðu ljósi ef engin er umferðin. Sjálfur hef ég reynt svona akstur úti í Bandaríkjunum - og þar fannst mér þetta ganga mjög greiðlega upp og hvers vegna ætti raunin þá ekki aö vera sú sama hér á landi? Aðreinar eru góður kostur á gatnamótum en dýrt er að byggja þær og þeim er ekki heldur alls staðar hægt að koma fyrir. Því eigum við í þessum efnum að taka þá leið sem er einföld og góð. Hins vegar óttast ég að menn beri ekki gæfu til þess að samþykkja þessa lagabreytingu eins og svo margt annað gott.“ Senusjúkir eða valdasjúkir „Það má að minu mati skipta stjórn- málamönnum í tvo hópa. Annars vegar eru þeir sem eru senusjúkir og gera allt tfl að baða sig í sviðsljósinu og hins vegar eru þeir sem eru valdasjúkir og vilja öllu ráða. í stjórnmálunum í dag eru þeir senusjúku að mestu ráðandi og fáir sem halda fast við sömu viðhorf frá degi til dags. Ég fell í valdasjúku deildina og hefði því fallið illa í hópinn. Ég hefði ekki verið góður maður í stjórnmálum. Stjórnmálin mega vera fegin að losna við mig og ég er feginn að vera laus við þau.“ Ásmundur Stefánsson í viötali viö Ský. Kristinn Snœland, leigubílstjóri í Reykjavík: Umferðarljós ekki vitrari en menn „Gatnamálastjóri er blindur á stöðu mála. Það sést best á því að ekki má aka af Sæbraut inn á Skúla- götu nema fá grænt ljós, en inn á þessa hraðbraut máttu aftur aka af Skúlagötu án umferðarljósa. Stund- um verð ég í borgarumferðinni óskaplega þreyttur á umferðarljósunum en hugga mig þá við að þau verði svo sem aldrei vitrari en mennimir sem hafa stjórnað upþsetningu þeirra. Ég vonast til þess að í umfjöllun á Alþingi á næstunni beri menn gæfu til þess að breyta lögunum svo taka megi hægri beygju á móti rauðu ljósi, en slíkt held ég að myndi greiða stórlega fyrir um- ferðinni. Mestu máli myndi þó skipta að umferðarstýr- ing, miðað við álag, yrði meira notuð en nú er gert.“ Eldflaugar og tjöld Árásin á Afganistan er vafalítið óhjákvæmilegt framhald á undan- fömum atburðum, hryöjuverkunum 11. september og stríðsyfirlýsingu gegn hryðjuverkamönnum. Rann- sóknir Bandaríkjamanna benda til að net hryðjuverkasamtaka bin Ladens nái til 40-50 landa og séu um- fangsmeiri og öflugri en menn hafði áður grunað. Að sjálfsögðu geta þjóð- ir heims ekki unað því að ríki veiti hryðjuverkasamtökum sem hafa það opinberlega á baráttuskrá sinni að valda skaða og manntjóni í öðrum ríkjum landvist. Ríki sem það gera bera stóran hluta ábyrgðarinnar og við eigum ekkert val, það verður að freista þess að uppræta slík samtök. Nú hefur náðst víðtækari samstaða meðal þjóða heims um slíkar aðgerð- ir en dæmi eru til um áður. Enginn veit hvenær slík samtök gætu beitt sýklahernaði, efnahernaði eða jafn- vel kjamorkuvopnum. í framhaldi af yfirlýsingu sinni um stríð gegn hryðjuverkamönnum og skilyrðum sem hann hefur sett tali- bönum og þeir ekki orð- ið við er ljóst að Bush hefði ekki getað haldið trúverðugleika sínum né áhrifamætti orða sinna nema bregðast við. Hitt er annað og e.t.v. aðalatriði málsins að innrás öflugasta stór- veldis jarðarinnar í eitt fátækasta ríki jarðar- kringlunnar mun ekki leysa málið. Guðm. G. Þórarinsson verkfræöingur. Hvað vinnst? Afganska þjóðin er stríðs- hrjáð. Styrjöld Rússa stóð þarna í 12 ár og síðan hefur staðið yfir borgarastyrjöld. Nær aflt er í rúst. Þar er ekki margt bitastætt að eyðileggja með stórvirkum sprengjum. Hryðjuverkahópar halda sig i búðum upp til fjafla, líklega mest tjaldbúðum. Samhengið milli skeyta og skotspóna er ekki mikið þegar skotið er á 10 dollara tjald með 2 m dollara Tomahawk stýriflaug. Ódýrt er að endurnýja slíkar búöir. Flóttamannastraumurinn til nærliggjandi landa getur rask- að því viðkvæma jafnvægi sem á svæðinu ríkir. Gríðarleg átök eru í Pakistan og ef illa tekst til gæti þar farið aflt í bál . og brand. Bandaríkin verða að Hitt er annað og ef til vill aðalatriði malsins að innras öflug- takast á við fióttamannavanda- asta stórveldis jarðarinnar í eitt fátœkasta riki jarðarkringl- °g, fæðuvandamáiið. J J j o Takist aö hafa hendur 1 han bin Ladens er eins víst aö unnar mun ekki leysa málið. hann verði píslarvottur, nokk- urs konar hjáguð og hundruð ungra bin Laden komi fram á sjónarsviðið. Takist að koma talibönum frá völdum er ekki víst að Norðurbandalagið sé í hæsta gæðaflokki stjórnvalda. Jafnframt eru ríkin fleiri sem hýsa hryðjuverkamenn. Hvað þýðir stríð gegn hryðjuverka- mönnum nákvæmiega? Innrás í hlutlaus og vinveitt ríki ef þar starfa slíkir hópar? Ind- verjar telja að Pakistan sé i hópi slíkra ríkja. Sjálfs- morðsárásir eru nýr flokkur hryðju- verka. Við sjáum þær í Kasmír, á Sri Lanka, í ísrael og e.t.v. víðar. Hvað með írak? Á skal að ósi stemma Jafnhliða aðgerðum sínum verða Bandaríkin að endurskoða stefnu sína í Mið-Austurlöndum. Alþjóða- samfélagið verður að beita sér fyrir friði milli ísraels og Palestínuaraba. Ella alast upp kynslóðir ungs fólks sem ekkert þekkir nema hatur, ör- væntingu og vanmátt. Það getur tek- ið margar aldir að uppræta það hat- ur sem nú er sáð til. Mikið er gert úr þætti bin Ladens en vel má vera að í samtökunum séu margir mun öfl- ugri menn en hann. Þegar hópur manna er tilbúinn að fórna lífi sínu fyrir málstaðinn þarf að huga að mörgu. Herir duga ekki gegn hug- sjónum. Tilfinningin bíður aldrei ósigur eins og vitið þegar það skilur ekki eða viljinn þegar hann getur ekki. Guðm. G. Þórarinsson Bjöm Snorrason, lögregluvarðstjóri á Akureyri: Gœti ruglað fólk í ríminu „Hægri beygja á móti rauðu ljósi er leyfð sums staðar, svo sem í Bandaríkjunum. í mörgum tilvikum hér heima gæti það greitt fyrir umferð ef þetta væri leyft en gæti aftur á móti oft ruglað fólk ofurlítiö i ríminu. Að það fari - jafnvel í hugsunarleysi - að taka einhverja áhættu á með- an ljósið logar enn þá rautt. Því held ég að við ættum að halda okkur við núgildandi lög um þetta efni. Ég tel aðrar breytingar á umferðarlög- unum heldur ekki timabærar. Hækkun leyfilegs hámarkshraða þykir mér varla koma til greina, enda hefur reynslan sýnt að afar mörg umferðar- slys verða einmitt vegna þess að of hratt er ekið.“ Ragnheiður Davíðsdóttir, forvamarfuUtrúi VÍS: Eru þingmenn aðgerðalausir? „Hafa menn ekkert betra að gera í þinginu en koma með svona tillögur? Þetta minnir mig óþægilega á frumvarp um hækkun há- markshraða sem nokkrir þingmenn lögðu fram á Alþingi fyrir nokkrum árum en náði aldrei fram að ganga. Mér finnst aldrei rétt að aka á móti rauðu ljósi, það býður heim engu nema hættunni. Frekar hefði ég viljað að þingmenn berðust í sameiningu, hvar sem því væri við komið, fyrir fjölgun lögreglumanna svo hægt sé að halda uppi öflugri umferðarlöggæslu í land- inu. Á að hún sé mannsæmandi þykir mér mik- ið skorta.“ Með ólíkindum Orsakir og afleiðingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.