Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 24
28
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2001
!>V
* Tilvera
lí f iö
Afmælissýning
Sneglu-listhúss
Sýning á verkum þeirra kvenna
sem standa aö Sneglu-Iisthúsi
verður opnuð í dag, kl. 18. Hún
er haldin i tilefni af tíu ára
afmæli hússins. Snegla-listhús er
á horni Klapparstígs og
Grettisgötu. Það er opið virka
daga frá 12-18 og á laugardögum
frá 11-15. Listakonurnar starfa
sjálfar í húsinu.
Leikhús
■ KRISTNIHALD Leikrit Halldórs
Laxness, Kristnihald undir Jökli,
verður sýnt í kvöld kl. 20. Meö aöal-
hlutverk fara Árni Tryggvason og
Gísli Örn Garðarsson en tónlist er
eftir Sölva Blöndal.
■ LEIKFÉLAG MOSFELLSSVEITAR
í kvöld frumsýnir Leikfélag Mosfelis-
sveitar leikritiö Brúðkaup Tony og
Tínu í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ
og hefst sýningin kl. 20.
■ PÍKUSÖGUR Kl. 20 í kvöld sýnir
Borgarleikhúsið á þriöju hæöinni
leikritiö Píkusögur eftir Evu Ensler.
■ SKUGGALEIKUR Barnaleikritiö
Skuggaleikur eftir Guörúnu Helga-
dóttur verður sýnt í dag kl. 11 á veg-
um Möguleikhússins, en það er til
húsa á Laugavegi 105.
■ SYNGJANDI í RIGNINGUNNI
Leikverkiö margfræga, Syngjandi í
rigningunni, veröur sýnt í kvöld í
Þjóðleikhúsinu. Sýningin fer fram á
stóra sviöinu og hefst hún kl. 20.
■ LEIKFÉLAG AKUREYRAR ! kvöld
frumsýnir Leikfélag Akureyrar leikrit-
iö Blessað barnalán eftir Kjartan
Ragnarsson. Sýningin hefst kl. 20.
Tónleikar
■ HORÐUR TORFA A ISAFIRÐI
Hörður Torfa heldur tónleika í Sjall-
anum á ísafirði þar sem hann kynnir
m.a. efni af nýjum diski sínum Lauf.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Hátíð
■ LISTAHATH) UNGS FOLKS
Listahátíð ungs fólks verður sett viö
hátíölega athófn í Ráöhúsi
Reykjavíkur kl. 20.00 í kvöld.
Oagskráin er svona: Bóas
Hallgrímsson setur hátíðina,
nemendur úr Hönnunardeild
lönskólans í Reykjavík opna sýningu.
Anonymous, Tónaflokkurinn,
Dagskrárbrot frá væntanlegum
viöburðum unglistar og
götuleikhúsiö með atriöi. Hátíðin
stendur til 27. okt.
Popp
■ AIRWAVES A GAUKNUM Þaö er
rokk og aftur rokk á Gauki á Stöng í
boði Airwaves-tónleikahátíðarinnar.
Þar sþila Svanur, Eliza, Silt aka
Botnleðja, Laces, Tweeterfriendly
Music, Ný dönsk, Tvö dónaleg
haust og Sóldögg.
■ AIRWAVES Á SPOTLIGHT Af-
kvæmi guðanna, Kritikal Mazz,
Battery, Antlew & Maximum
X Rotweiler, Tommi White og Gus
Gus Dj.-settlð hipphoppast á
Spotlight.
■ AIRWAVES Á THOMSEN Prince
Valium, The Worm Is Green, Ampop
og Skurken blása lífi í Kaffi Thom-
sen frá 21 til miðnættis. Eftir þaö
taka Dj. Grétar, Dj Balli og Jamie
Crulsey & Alex Knight frá Fat Cat
Records við.
■ INGIMAR Á PUSSABAR
Gleöigjafinn Ingimar spilar á
harmoníku á Dussabar, Borgarnesi,
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Náttúrulækningafélag íslands í Hverageröi:
Flottasta baðhús lands-
ins á teikniborðinu
- að ungverskri fyrirmynd, segir forseti NLFÍ
Bíógagnrýni
Háskólabíö - Beautiful Creatures: ★ ★
Rennur blóð eftir slóð
Náttúrulækningafé-
lag íslands ætlar í stór-
framkvæmdir á næst-
unni þvi þar á bæ er
stefnt að því að reisa
stærsta baðhús landsins
við heilsuhælið í Hvera-
gerði.
Að sögn Gunnlaugs
K. Jónssonar, forseta
NLFÍ, hefur hugmyndin
verið í vinnslu í tvö ár
og verða teikningar
lagðar fyrir landsþing
samtakanna á morgun.
Glæsilegasta bað-
hús landsins
„Síðastliðin tvö ár
höfum við verið að
hanna nýtt baðhús sem
er gert að ungverskri
fyrirmynd. Við ætlum
að leggja teikningarnar
fyrir landsþing Náttúru-
lækningafélags Islands
um helgina og kynna
þær. Líka er í gangi
vinna til að tryggja fjár-
mögnun og við vonumst
til að það mál liggi einnig
Ijóst fyrir á þinginu.“
Gunnlaugur segir að
löngu sé orðið tímabært
og brýn nauðsyn að endurnýja
húsakost félagsins og í tengslum
við það eigi að brydda upp á ýms-
um nýjungum.
„Eigum við ekki að segja að
þetta gæti orðið stærsta og glæsi-
legasta baðhús landsins ef það fær
að líta dagsins ljós?“
Óhefðbundin úrræði
Að sögn Gunnlaugs er ljóst að
fjármögnun af þessari stærð-
argráðu sé ekki framkvæmanleg
nema í samráöi og samvinnu við
ríkið.
Innisundlaug, gufuböð og pottar
Fjármögnun af þessari stæröargráðu er ekki framkvæmanleg nema í samráöi og samvinnu viö ríkiö.
„NLFÍ hefur
lengi boðið upp á
leirböð og ýmis
óhefðbundin úr-
ræði á heilsuhæl-
inu í Hveragerði.
Böðin og matar-
æðið hafa verið
eins konar tákn
félagsins. Bað-
húsið kemur til
með að breyta
þessu. Við ætlum
að halda leirböðunum áfram en
stórbæta alla aðstöðu. I baðhúsinu
verður stór innisundlaug og vað-
Gunnlaugur K.
Jónsson, for-
seti NLFÍ.
laugar með heitu og köldu vatni.
Þar verða gufuböð og heitir pottar
bæði úti og inni og i framtíðinni
ætlum við að byggja 25 metra úti-
laug sem verður samtengd
innilauginni."
Hryggsúlan toguð niður
Gunnlaugur segist reikna með
að það meðferðarform sem nefnist
„underwater traction“ eigi eftir að
vekja mikla athygli. „Fyrirbærið,
sem er þekkt víða í Ungverjalandi
og Þýskalandi, lítur voðalega
skuggcdega út. Þeir sem fara í
þetta eru settir upp á hálfgerðan
kross sem er niðri í vatnsgryfju.
Menn eru síðan reistir upp og
látnir hanga með hendurnar beint
út frá öxlunum og líkamsþyngdin
togar þá niður í vatninu. Meðferð-
in felst síðan í þvi aö þyngja menn
með lóðum og toga hryggsúluna
niður. Þetta er náttúrlega allt gert
undir handleiðslu fagfólks. Þessi
meðferð er mjög vinsæl í dag með-
al fólks sem vinnur við tölvur. Ég
er búinn að prófa þetta sjálfur og
meðferðin er hreint ótrúleg."
-Kip
Fyrir nokkrum árum fannst mér
eins og flestallar myndir sem kæmu
frá Bretlandi gerðust i kringum
aldamótin 1900 - ef ekki fyrr - og
fjölluðu nánast undantekningar-
laust um ástir og örlög aðalsfólks.
Nú er öldin önnur (í bókstaflegri
merkingu). Kvikmyndirnar sem
koma frá fyrrum heimsveldinu ger-
ast núna meðal lágstéttarfólks, oft
atvinnulauss - ef ekki stéttlausra
glæpamanna og dópista. Beautiful
creatures eða Fallegar verur til-
heyra þessum seinni hópi. Titillinn
er tekinn úr myndinni, önnur aðal-
persónan er trekk í trekk kölluð fal-
legasta vera í heimi af alls kyns
karlmönnum rétt áður en þeir
reyna að berja hana eða nauðga
henni - nú, eða drepa hana sem er
líka til í dæminu.
BC hefst á samtali milli karls og
konu. Samtaliö byrjar huggulega
með ástarjátningum en fer fljótt úr
huggulegheitunum yfir i andstyggi-
legheit þegar karlinn hótar konunni
lifláti fyrir að hafa týnt golfsettinu
sínu.
Parið eru Dorothy (Susan Lynch)
og kærastinn hennar, Tony (Iain
Glen). Þau rífast, hann málar hund-
inn hennar rauðan og hún flýr -
með hundinn. Á meðan Dorothy
bíður eftir strætó heyrir hún angist-
aróp frá konu sem maður er að mis-
þyrma og grípur til þess ráðs að
berja manninn í höfuðið með járn-
röri. Sú misþyrmda heitir Petula
(Rachel Weisz) og drösla þær rotuö-
um manninum heim til Dorothy. Sá
rotaði drepst síðan í baðkari og eft-
ir að hundurinn gerir hann fingrin-
um styttri byrjar mikill löggu- og
bófahasar þar sem lík hrannast upp
og peningafúlgur skipta um eigend-
ur. Hljómar kunnuglega.
í BC er lamið til hægri og vinstri,
svívirt og skotið. Það rennur aldeil-
is blóð eftir slóð þessara tveggja
óhappakvenna - og ég segi óhappa
því allt gerist þetta einhvern veginn
óvart, þær ætluðu í raun og veru
ekki að meiða neinn - þetta varðaði
bara svona, eins og fræg söguper-
sóna sagði einu sinni. Og það er ef
til vill vandamálið við BC. í kvik-
myndum eins og Lock Stock and
Two Smoking Barrels eftir Guy
Ritchie, sem leikstjórinn er greini-
lega að stæla, eru aðalpersónurnar
mun klárari en hér. Þar eru menn í
vandræðum en taka málin í sínar
eigin hendur - gera hluti frekar en
lenda í þeim. Þar eru líka samtöl
hnyttnari og persónusköpun í tvílit
en ekki grátónum eins og hér. Svo
vantar ákveðinn hraöa og markviss-
ari klippingar og þótt snúningar í
söguþræðinum séu ótalmargir og
mikið sé verið að reyna að koma
áhorfandanum á óvart þá er endir-
inn fyrirsjáanlegur.
Annars standa þær sig prýðilega
Lynch (Waking up Ned) og Weisz
(The Mummie), sérstaklega Weisz
sem er nánast óþekkjanleg með of-
boðslega aflitað hár, en þær líða
báðar fyrir illa skrifuð samtöl. Karl-
mennirnir skila líka sínum skít-
hælshlutverkum ágætlega en þaö er
langt siðan ég hef farið á kvikmynd
þar sem eina almennilega karlkyns
„persónan" er hundur - allir hinir
þvilíkir óþokkar að þeir virkilega
eiga sín maklegu málagjöld skilin.
Leikstjóri: Bill Eagles. Handrit: Simon
Donald. Kvikmyndataka: James Welland.
Aöalleikarar: Rachel Weisz, Susan
Lynch, lain Glen, Maurice Roéves, Alex
Norton og Tom Mannion.