Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 Fréttir r>V Skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins um gagnrýni á fjárlagafrumvarpið: Erum ósammála Standard & Poor’s - en sérfræðingar þess spá fjárlagahalla upp á 1,8% af landsframleiðslu Fjármálafyrirtækið Standard & Poor’s, sem er eitt þriggja alþjóð- legra fyrirtækja sem metur láns- hæfi íslendinga, telur að fjárlaga- hallinn á næsta ári muni verða 1,8% af landsframleiðslu, sem er þveröfugt við það sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu þar sem talaö er um 1,8% afgang. Fram kemur að sérfræðingar S&P telja líkur á að innbyggð framúrkeyrsla í ríkisfjármálunum muni veröa með svipuðu móti á næsta ári og hún var í ár. Þá gerir S&P ráð fyr- ir að skuldir ríkisins sem hlutfall af landsframleiðslu muni aukast, bæði í ár og á næsta ári. Þetta skuldahlutfall verði í ár 48,8% og á næsta ári verði þetta komið í 51,7% samhliða því að landsfram- leiöslan dregst saman. Eins og fram kom í DV í gær er það skoö- un fyrirtækisins að fjárlagafrum- varpið sé byggt á of bjartsýnum forsendum og I greinargerðinni sem liggur að baki fréttatil- kynningu fyrir- tækisins er einmitt dregið fram að fjár- málaráðuneytið hafi ekki notað þjóðhagsáætlun Þjóðhagsstofnunar við gerð fjárlaganna. Fram kemur einnig í greinargerð S&P að fyrirtækið telur að veikleik- ar séu í íslenska fjármálakerfinu og benda á eftirspurn sem byggist á lánsfé, hækkun fasteignaverðs og viðskiptahalla við útlönd. Er jafnvel talið að til þess gæti komið að út- lánatöp yrðu til þess að ríkisvaldið yröi að koma bankakerfinu til hjálp- ar og leggja því til fé. Bolli Þór Bollason, skrifstofu- stjóri í fjármálaráðuneytinu, segir ráðuneytið einfaldlega ósammála þeirri niðurstöðu sem þarna kem- ur fram varðandi fjárlagahalla á næsta ári og segir þá grundvallar- forsendu ranga að framúrkeyrslan á næsta ári verði eins og hún var í ár. í ár segir Bolli að til hafi kom- ið sérstakar aðstæður sem skýri framúrkeyrsluna, s.s. kjarasamn- ingar og gengislækkun. „Hann (sérfræðingur S&P) er ekki að gera ráð fyrir að kjarasamningum verði sagt upp og hann er ekki að gera ráð fyrir áframhaldandi gengis- lækkun þannig að þá er forsendan fyrir einhverri svona framúr- keyrslu brostin og þetta er það at- riði sem við eru ósammála," segir Bolli Þór. Varðandi ólíkar forsend- ur um hagvöxtinn þar sem hið er- lenda fyrirtæki telur að hér muni verða samdráttur en fjármálaráöu- neytið gerir ráð fyrir 1% hagvexti í fjárlagafrumvarpinu, segir Bolli ráðuneytið einfaldlega ósammála og telji aö Standard & Poor’s of- meti samdráttinn. Aðspurður hvort S&P sé ekki einfaldlega sam- mála Þjóðhagsstofnun, sem spáir 0,3% samdrætti, sagði Bolli að fyr- irtækið hefði í raun engar forsend- ur fyrir sínum spám aðrar en sam- drátt í alþjóðlegu efnahagslífi. „Það sem kannski skilur okkur að er aö hann gerir heldur ekki ráð fyrir neinum áhrifum af þeim skattkerfisbreytingum sem eru á dagskrá," segir Bolli. -BG Útvarpsstjóri og deildarstjórar svæðisstöðvar RÚV funda um flutning: Dagskrárstjóri yrði á Akureyri - styttra svæðisútvarp en aukin aðkoma landsbyggðar að Rás 2 Svo virðist sem flutningur Rásar 2 til Akureyrar þar sem hún yrði gerð að „miðstöð svæðisútvarpa" gæti falist í því að skipulagi Rásar- innar yrði breytt og sérstakur dag- skrárstjóri yrði á Akureyri, ef til- lögur sem forstöðumenn svæðis- stöðvanna hafa sett fram ná fram að ganga. Uppbygging dagskrár- innar yröi síðan þannig að hún yrði i ríkari mæli en verið hefur unnin úti á landi en dagskrárgerð- in yrði samvinnuverkefni svæðis- stöðvanna og starfsmanna í Reykjavík þannig að framlág svæð- isstöðvanna yrði mun meira en verið hefur. Deildarstjórar svæðis- útvarpanna hafa fundað um þessi mál með Markúsi Erni Antonssyni og viröast menn nokkuð sammála um hvaða meginstefnu rétt sé að taka. „Þegar menn eru að tala um hugsanlegan flutning Rásar 2 eru Markús Örn Björn Antonsson. Bjarnason. menn ekki að tala um að loka hana niöri í einhverri kistu norður í landi heldur að það verði áfram samspil milli starfsstöðva, milli Akureyrar og Reykjavikur og hinna svæðisstöðvanna líka. Hér yröi áfram spiluð tónlist og þetta yrði til að þjappa fólki saman hvar á landinu sem það er,“ segir Mark- ús örn Antonsson. Málið var m.a. tekið fyrir i út- varpsráði í gær og þar var form- lega kynnt bréf Björns Bjarnason- ar menntamálaráðherra um málið og hefur útvarpsstjóri einnig lagt fram greinargerð um málið. Eins og áöur segir hafa deildarstjórar svæðisútvarpanna gert ákveðnar tillögur að skipulagsbreytingum og því hvemig breyta m^tti dag- skráruppbyggingunni þannig að framlag svæðisútvarpanna flyttist meira inn á landsrás Rásar 2 en sérstakar svæðisbundnar útsend- ingar myndu að sama skapi stytt- ast. Þannig er í þessum tillögum t.d. einungis gert ráð fyrir 15 mín- útna sérstöku svæðisútvarpi frá kl. 17.45-18.00 á virkum dögum þar sem sagðar yrðu fréttir og tilkynn- ingar af staðbundnum viðburðum. í þessu hólfi skapaðist þá jafn- framt tækifæri til að hafa svæðis- bundið efni af höfuðborgarsvæð- inu sem sent yrði út frá Efstaleiti. Önnur dagskrá yrði þá send út á landsrás Rásar 2 og yrði það gert sameiginlega úr hljóöverum í Reykjavík og á landsbyggðinni. Að sögn Markúsar Arnar eru þessar hugmyndir deildarstjóranna mjög í þeim anda sem hann getur hugs- að sér aö breytingin feli í sér. „Ég tel t.d. að dagskrárstýring á svona uppleggi eins og hér er lagt til myndi mjög vel eiga heima á Ak- ureyri. Við myndum frekar ná markmiðum okkar um virka aðild svæðisstöðvanna að þessu sam- spili öllu með því að hafa mann fyrir norðan sem væri þá dag- skrárstjóri, eða forráðamaður þessarar dagskráruppstillingar, en ef sú stýring færi fram í Reykja- vík,“ segir Markús Örn Antons- son. -BG Syngjandi í rigningu: Leikarar fengu tiltal Leikaramir Rúnar Freyr Gíslason, Selma Björnsdóttir og Stefán Karl Stefánsson, sem öll leika í Syngjandi i rigningu, fengu tiltal hjá þjóðleik- hússtjóra vegna þess að þau fluttu valin atriði úr sýningu Þjóðleikhúss- ins í fimmtugsafmæli Kjartans Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, í Perlunni í síðustu viku. Ástæðan var sú að fólkið kom fram í búningum leikhússins. Stefán Baldursson þjóðleikhús- stjóri staðfesti í samtali við DV að hann hafi rætt við fólkið. „Ég talaði við þessa krakka vegna málsins. Þau vissu ekki betur en þetta væri í lagi. Þeim er frjálst að syngja lög úr sýningunni og taka greiðslu fyrir en þau mega ekki taka þetta í gervum og búningum eins og atriöi úr okkar sýningu," segir þjóð- leikhússtjóri sem hefur fyrirgefið leikurum sínum frumhlaupið. „Þetta eru ungir krakkar sem vissu ekki bet- ur. Ég útskýrði þetta og málið er úr sögunni," segir Stefán. -rt Söfnun fyrir Afgana: Framlag þjóðar- innar 20 milljónir Alls söfnuðust 4,5 milljónir króna i söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða kross íslands vegna Afganistans. Því til viðbótar hefur ríkisstjórn íslands lagt fram 10 milljónir króna, Hjálparstarf kirkj- unnar eina milljón og deildir Rauða kross íslands eru að senda inn fram- lög þessa dagana. Gera má ráð fyrir að í heild muni aðstoðin nálgast 20 milljónir króna þegar allt er talið. „Ástandið í Afganistan er skelfi- legt og við þurfum að aðstoða bæði þá sem eru hjálparþurfi í landinu og þá sem hafa komist yfir til grann- ríkja og eru þar sem ílóttamenn," segir Sigrún Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands. Flóttamönnum íjölgar og töluverður hluti söfnunarfjár verður notaður til að reisa ílóttamannabúðir og mæta þörfum fólks þar fyrir vatn, mat, skjól og læknisaðstoð. Féð verður notað til þess að aðstoða fjöl- | skyldur í Afganistan sem líða sára neyð vegna þurrka og ófriðar und- anfarin ár. -aþ Veðríö í kvöíd Bjart sunnanlands Fremur hæg norðlæg átt í dag. Súld eða rigning austan til, smáskúrir á Norðurlandi en víða bjart veöur sunnanlands. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Suðurlandi. Sóiargangur og sjávarföil REYKJAVIK AKUREVRI Sólarlag í kvöld 17.37 17.16 Sólarupprás á morgun 08.49 08.40 Síödegisflóö 24.45 16.41 Ardegisflóö á morgun 00.45 05.18 Skýringar á voðurtáknum J*"* VINDATT — HITI .10» \ VINDSTYRKUR \ á 6ci<ún<lu *'nfrost HEIOSKÍRT O O LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ : w O? Ö Ö1 RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA w © =S| ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNfNGUR POKA Þjóðvegir landsins eru allir greiðfærir eins og á sumardegi, enda hitastigiö ótrúlega hátt miðað viö árstíma, eins og sjá má annars staöar á síðunni. I GREIDFÆRT HÁLT ■FUNGFÆRT I ÓFÆRT BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VEGAGERÐ RIKISINS Vabrib á morgun Súld eða rigning NA 8-13 m/s norövestan til en annars hægari. Dálítil súld eöa rigning norðan- og austan til en úrkomulítiö suðvestan til. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast á Suðurlandi. FóMud Vindur: , 10-15 m/, Hiti 0° til6° ***** Noröaustan 10-15 m/s og él á Noröurlandi, dðlítil rigning eöa slydda austanlands en heldur hægarl sunnan til og skýjaö meö köflum. Hltl 0 til 6 stlg Laugard ZM Vindur: C 5—10 nvs\ HitiO” til 5° Norölæg átt, 5-10 m/s. Skýjaö með köflum og úrkomul'itlö. Hltl 0 til 5 stig aö deginum. Sunmirl Vindúr; 2—8 Hiti 2° tii8° * * * Suölæg átt og víöa rignlng. Hitl 2 tll 8 stig. mmm AKUREYRI alskýjaö 5 BERGSSTAÐIR alskýjaö 6 BOLUNGARVÍK rigning 7 EGILSSTAÐIR skýjaö 5 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 9 KEFLAVÍK skýjaö 8 RAUFARHÖFN alskýjaö 5 REYKJAVÍK skýjaö 7 STÓRHÖFÐI alskýjaö 8 BERGEN rigning 8 HELSINKI léttskýjaö -6 KAUPMANNAHÓFN ÓSLÓ léttskýjaö 0 STOKKHÓLMUR -2 ÞÓRSHÖFN þoka á síö. kl. 10 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjað -3 ALGARVE heiöskírt 17 AMSTERDAM þokumóöa 12 BARCELONA skýjaö 13 BERLlN léttskýjaö 5 CHICAGO þrumuveöur 16 DUBLIN léttskýjaö 10 HAUFAX skúr 10 FRANKFURT þoka i gr. 12 HAMBORG skýjað 8 JAN MAYEN þoka í grennd 3 LONDON þrumuveöur 13 LÚXEMBORG þokumóöa 11 MALLORCA léttskýjaö 12 MONTREAL 16 NARSSARSSUAQ skýjaö 1 NEW YORK þokumóða 18 ORLANDO heiöskírt 22 PARÍS alskýjaö 12 VÍN alskýjaö 8 WASHINGTON hálfskýjaö 19 WINNIPEG alskýjað -1 UíTaTTTlJi 14 s l í í ftl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.