Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
I>V
5
Fréttir
Þórshafnarhreppur á barmi gjaldþrots:
Félagslega húsnæðis-
kerfið leikur okkur illa
- segir Henry Ásgrímsson oddviti sem segir uppgjöf þó ekki til í röðum heimamanna
íþróttamiöstööin á Þórshöfn
Mörgum fannst þeir vera fullflottir á því aö byggja 250 milljóna króna íþróttamiðstöð í ekki stærra sveitarfélagi.
Fjárhagsvandræði Þórshafnar-
hrepps á Langanesi eru geysilega mik-
il og ekki í fljótu bragði hægt að sjá
hvemig heimamenn eiga að geta leyst
úr þeim vanda. Sem dæmi má nefna að
skuldir sveitarfélagsins nema 557 þús-
und krónum á hvem íbúa þar sem
landsmeðaltal er 200 þúsund krónur og
rekstur málaflokka tekur allar skatt-
tekjur sveitarfélagsins. Það þýðir að
Þórshafnarhreppur verður að taka lán
fyrir öllum afborgunum sínum og
vöxtum, og öllu reyndar sem ekki fell-
ur undir daglegan rekstur. „Þórshafh-
arhreppur er ekki gjaldþrota, a.m.k.
ekki á meðan hreppurinn hefur eitt-
hvert lánstraust en þetta lítur ekki vel
út,“ sagði einn viðmælandi DV sem
þekkir vel til málsins.
„Félagslega húsnæðiskerflð hér hefur
leikið okkur vægast sagt illa og það er
langstærsti hluturinn þegar litið er á
skuldir okkar, þær skuldir einar og sér
nema a.m.k. 200 mflljónum. Þetta kerfi
er alveg rosalega þungt viðureignar en
samkvæmt okkar bókum þá skuldar fé-
lagslega kerflð okkur 25-30 milljónir
króna ef allt væri eðlilegt. Við höfum
verið að borga með þessu kerfl í gegn-
um tíðina en kaupskyldan og neikvæð-
ur rekstur auk viðhalds þessara íbúða,
sem em 35-40 talsins, fer mjög iila með
okkur,“ segir Henry Ásgrímsson, odd-
viti Þórshafnarhrepps.
Henry segir að auk þessa skuldi
hreppurinn fjárhæðir vegna byggingar
íþróttamiðstöðvarinnar sem byggð var
fyrir nokkrum árum, en sú bygging
kostaði a.m.k. 250 milljónir að sögn
Henrys sem er um helmingi hærri
upphæð en lagt var upp með. Hreppur-
inn sem þá var stærsti eignaraðilinn 1
Hraðfrystistöð Þórshafnar seldi 17% í
því fyrirtæki vegna byggingar íþrótta-
miðstöðvarinnar en á þar í dag 5-6%
hlutafjár.
„Daglegur rekstur okkar er mjög
erfiður og alveg í jámum. Við fengum
mikið kjaftshögg á okkur við síðustu
samninga, t.d. samninga kennara og
þá hefur orðið til aukinn rekstrar-
kostnaður m.a. vegna íþróttahússins.
En þótt þetta sé erfitt þá er engin upp-
gjöf meðal okkar. Það sem þarf áð ger-
ast er að fá fram leiðréttingu hjá hinu
opinbera t.d. vegna kennarasamning-
anna og við þurfum að fá leiðréttingu
vegna félagslega kerfisins. Svo þurfúm
við meiri umsvif og meiri tekjur. Við
höfum nokkurn veginn haldið í horf-
inu hvað varðar íbúaflölda og það er
ekki uppi á borðinu hjá okkur að
leggja upp laupana," segir Henry.
■gk
Drukkinn á
hjóli meö
farþega
Tveir Dalvíkingar umwítugt hafa í
Héraðsdómi Norðurlands eystra verið
dæmdir í fésektir vegna reiðhjólastuld-
ar og fleiri saka, en mennirnir stálu
reiðhjóli við verslunina Dallas á Dalvík
nótt eina í maí sl.
Mennirnir tveir tvímenntu á hjólinu
um götur bæjarins og reiddi annar hinn
í barnastóli sem var á hjólinu. Lögreglu-
maður sá til ferða þeirra og stöðvaði
aksturinn og i ljós kom að sá sem
hjólaði reyndist vera undir áhrifum
áfengis.
Mennimir játuðu allt sem á þá var
borið og greiddu auk þess skaðabætur
til eiganda hjólsins en þeir skemmdu
hjólið talsvert. Dómurinn gerði þeim að
auki að greiða sekt til ríkissjóðs, þeim
sem hjólaði og réöi for 35 þúsund krón-
ur og þeim sem sat í bamastólnum 25
þúsund krónur. -gk
Sæmundur
sérleyfishafi
kaupir Helga P.
Sérleyfisbílar Helga Péturssonar
hafa hætt áætlunarakstri á Snæfells-
nes og Sæmundur Sigmundsson í
Borgeumesi tekið við sérleyfinu í Dali
og á Snæfellsnes. Sæmundur keypti
einnig sex af áætlunarbUum Helga Pét-
urssonar. Að sögn Sæmundar er ætlun-
in að gera einhveijar breytingar á áætl-
un sem felast meðal annars í flölgun
ferða en þær breytingar eru ekki full-
mótaðar og verða auglýstar síðar. Hóp-
ferðafyrirtæki Sæmundar er með leiða-
kerfi sem nær um ailt Vesturland svo að
með þessum breytingum verður þægi-
legra fyrir þá sem þurfa t.d. að komast á
Akranes að notfæra sér rútur í stað þess
að aka einir á einkabfl. -DVÓ/JÓ
MEIRIHATTAR MIÐVIKUDAGAR
Magnaðar fréttaskýringar, alls konar 20.00
fólk í beinni útsendingu, Amy dómari 2i!so
og auðvitað Jay Leno. 22.00
48 Hours
Fólk með Sirrý
Fréttir og Máíið
Judging Amy
Jay Leno
;'
& MALIÐ
MEÐ SIRRY
SKJAREINN