Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 6
6 MIDVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 JCW Fréttir Sala Landssímans í uppnámi, Verðbréfaþing krefst skýringa: Ekkert tilboð komið frá kjölfestufjárfestum - munum ekki upplýsa neitt, segir aðstoðarmaður ráðherra Leit að kjölfestufjárfestum í Landssímann hf. virðist ekki ætla að ganga áfallalaust. Engin tilboð höfu borist þegar skilafrestur gagna rann út á mánudag og að mati verðbréfamiðlara þýðir slíkt að útboðið sé mikilli óvissu. Verð- bréfaþing íslands hafði engar upp- lýsingar fengið um tilboðsgjafa um miðjan dag í gær þegar DV leitaði þar fregna. Krafði VÞÍ Landsímann því skýringa á málinu enda fyrirtæk- inu skylt að tilkynna VÞÍ um öll slík tilboð. Að sögn starfsmanns VÞÍ var beðið eftir yfirlýsingu frá Landsímanum en engin tilkynning hafði borist þegar markaður lok- aði klukkan hálffimm í gær. Er málið í miklu uppnámi, m.a. vegna átaka um hvaða fyrirtæki falli undir skilyrði um að teljast hæf til að taka þátt í útboðinu. Hart hefur verið deilt um málið og stíft fundaö með fulltrúum sam- gönguráðuneytisins, einkavæðing- arnefnd og ráðgjafarfyrirtækinu PricewaterHouseCoopers í London. Guðríður Ásgeirsdóttir hjá við- skipta- og skráningasviði VÞÍ sagði í samtali við DV að þegar óvissa skapaðist væri skráðum fyrirtækjum skylt að tilkynna um slíkt til Verðbréfaþingsins. Slík óvissa hefði einmitt skapast í gær vegna fréttar í DV um stöðu mála vegna sölu Landssímans. Auk þess var frestur tilboðsgjafa í útboði fyrirtækisins runninn út. Því var óskað eftir upplýsingum frá Landsímanum eftir að DV fór að spyrjast fyrir um málið. Beðið var eftir upp- lýsingum fram eftir degi í gær en þær höfðu ekki borist þegar markaði var lokað. Landsíminn til sölu Búiö að selja hús en sala fyrirtækisins er í mikilli óvissu. Utboöiö í óvissu Frestur hugsanlegra kjölfestufjárfesta til að skila inn gögnum átti að renna út á mánudag, 22. október, en fyrir helgina var þess krafist sam- kvæmt heimildum DV að frestur- inn yrði framlengdur til 26. októ- ber. Opinberlega vildi þó enginn kannast við slíkan frest og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var hreinlega ekki viss um það í gær hvort slíkur frestur hefði ver- iö gefinn. Eigi að síður er það lyk- ilatriði varðandi útboðið. Fyrir- tækið er skráð á markaði, þar með er væntanlega skylt að tilkynna það inn til Verðbréfaþings íslands hverjir hafi sent inn tilboð. Þó eru uppi nokkrar efasemdir um þá skyldu í þesu tilfelli þar sem um óskuldbindandi tilboð er að ræða. Þær efasemdir munu þó fyrst og fremst snúast um hvort skylt sé að upplýsa opinberlega um nöfn til- boðsgjafa. Hafi engin tilkynning borist þegar frestur til að skila inn gögnum rennur út þýðir það venjulega aö enginn hafi tekið þátt í útboðinu. Þar með er væntanlega komin upp óvissa um framhald útboðsins. Munum ekki upplýsa neitt Jakob Falur Garðarsson, aðstoð- armaður samgönguráðherra, vissi ekki fremur en ráðherrann í gær hvort frestur hefði verið framlend- ur eða ekki. Aðspurður hvort til- boð hefði borist sagði hann orð- rétt: „Ég get ekkert sagt um málið. Það verður ekkert sagt um það að svo stöddu. Við munum ekki upp- lýsa neitt um málið. Einkavæðing- arferlið er þó í mjög góðum gír,“ sagði Jakob Falur. ■'V' Hreinn Loftsson. Ekki náðist í Hrein Loftsson, for- mann einkavæðing- arnefndar, sem lika var í London. Ráðgjafinn í for- stjórastól Á ýmsu hefur gengið varðandi sölu Landssímans og skemmst er að minnast brotthvarfs Þórarins V. Þórarinssonar úr stóli forstjóra tímabundið eða þar til kynnt hefur verið við hvern einka- væðingarnefnd hefur ákveðið að semja á grundvelli bindandi kauptilboðs. Er þetta gert m.a. vegna tengsla Þórarins við Opin kerfí. Það fyrirtæki haföi einmitt sýnt áhuga á að koma inn sem kjölfestufjárfestir. Samkvæmt upp- lýsingum fyrirtækisins á þessi ráðstöfun að tryggja hlutlægni í vali á kjölfestufjárfesti í félaginu. Stjórn Landssíma Islands hf. fór þess síðan á leit við PwC að Óskar Jósefsson, sviðsstjóri rekstrarráð- gjafar fyrirtækisins, tæki sæti Þór- arins. Óskar hafði einmitt stýrt mati og söluferli á Landssíma Is- lands hf. Mun hann gegna stöð- unni tímabundið. Frestur t Landssinsaútboöi runninn út; Norðurljós hótal að fara í mál Sturla Böðvarsson. Hafa menn í fram- haldi af þessu velt upp spurningum um hvort það ekki sé i hæsta máta óeðlilegt að fulltrúi ráð- gjafans, sem á að miðla upplýsingum til óskildra tilboös- gjafa, stjórni nú hagsmunagæslu Landssímans sem forstjóri. Þórarinn V. Þórarinsson. allra leiða til að sætta sjón- armið. Líklegt er talið að breyta verði skilyrðum útboðsins en það gæti hugsanlega þýtt að bjóða þyrfti út að nýju. Þar með yrðu allar tímaá- ætlanir ríkisstjórnarinnar um söluna einnig í uppnámi en sala ríkiseigna er m.a. liður í fjárlögum fyrir næsta ár. Haröur slagur Samkvæmt heimildum DV hefur verið hart tekist á um málið á bak viö tjöldin og var m.a. fundað með ráðgjafarfyrirtækinu í London í Hörður Kristjánsson blaöamaöur E2L •| ->ísuS»jsiadílM» 1 t oWU M-í» ( í r ias% u» », *« 7 -ms ÖV • ; feAítir l m | vfcvÍMt vV. ew. ■*» I kth. •*»T;i» áfc. «^ta tPirfui: jþw-j wi« . K'm t ttndurt j •tss vr t**TA r;áK> j.5 |wi vtt 11311 IM l>."tta :SrT'3«r> J Jfttui. t vir |t» r'-rit.tttaA iwMift öl-.sr ».in* 11 Tjf.li rit «< -fctt «• »«ai*.-r J.ii.>Hiirfjns*. *e*jr •** íurft ■*: KK! '0»V eSrkKICKÍ, «*. Húfl? ■'!»> -iS- vrW, »> «cinurfei n>xst: •íUii f ic* t ttiÁ úaiií f Ot Min •Hnflrwu’jir I *rKl 1« -m l fcolö riH irS 1 —r—Tnrnwi Frétt DV í gær Fréttir um deilurnar valda óvissu um stööu fyrirtækisins sem því er skylt aö upplýsa um til Veröbréfaþings. Þangaö hefur engin tilkynning borist. gær. Tekist er á um skilyrði út- boðsins sem talin eru útiloka m.a. þátttöku Norðurljósa, fyrirtækis Jóns Ólafssonar, frá því að taka þátt í útboðinu. Er þaö vegna skil- yrða um að tengsl megi ekki vera við önnur íslensk símafyrirtæki en Norðurljós eiga stóran hlut í Tali hf. Jón er hins vegar mjög ósáttur við slíka skilgreiningu. Bendir hann á að Opin kerfi eigi m.a. hlut í SKÝRR og Línu.Neti sem bæöi starfa í þessum geira og hótar hann málaferlum ef þetta verði látið ganga eftir. Bent er á reglur EES um útboðsmál í þessu sambandi. Fleiri hugsanlegir til- boðsgjafar hafa líka bent á það at- riði. Ef bæði Opin kerfi og Norður- ljós reynast vanhæf samkvæmt út- boðsreglum eru tveir líklegir ís- lenskir aðilar dottnir út. Þar með er útboðið I raun í algjöru upp- námi. Þykir máliö allt hið vand- ræðalegasta og mun verða leitað Mörg álitamál Fulltrúar einkavæðingarnefnd- ar, með formanninn, Hrein Lofts- son, i fararbroddi, hélt til London vegna málsins. Þar voru einnig fulltrúar PricewaterHouseCoopers sem hafa haft veg og vanda af út- boðinu. Fjölmargir þættir í framkvæmd útboðsins þykja orka tvímælis. Heimildarmaður DV, sem þekkir mjög vel til verðbréfaviðskipta er- lendis, segir t.d. algjörlega óraun- hæft að ætla að erlend stórfyrir- tæki á þessu sviði taki sér ekki nema fáar vikur til að skoða hugs- anleg kaup á stóru fyrirtæki eins og Landsímanum. Fjölmarga þætti í rekstrinum þurfi að skoða. Þar komi m.a. til álita sala Landsím- ans á húsi sínu við Austurvöll sem reiknað er inn í afkomutölur. Það skekki mjög útreikninga varðandi raunveruiega afkomu og verðmæti fyrirtækisins. Ekki síst ef kaup- verðið er að verulegum hluta greitt af Landssímanum sjálfum með leigu á hluta hússins undir simstöð. Þá muni fjárfestar einnig skoða vel helstu tekjulind fyrir- tækisins sem eru símagjöldin. Þar geti verið mörg álitamál. Allt þetta þurfi að skoða vandlega, hvað þá að hægt sé að ganga frá slíkri sölu nú fyrir áramót. Þá sé líka mjög óraunhæft að ætla að stór símafyr- irtæki skrifi undir óskuldbindandi tilboð eins og þarna er óskað eftir. Bara það eitt segi mönnum að þarna sé um platútboð að ræða sem þýði að samið verði um verð- ið eftir á. Alvöru stórfyrirtæki úti í heimi muni seint leggja nafn sitt við slíkt. Umsjón: Birgir Guðtnundsson netfang: birgir@dv.is Lítil endurnýjun? Eins og fyrri daginn ríkir gríðar- legur spenningur í heita pottinum fyrir framboðsmálum Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Þar er nú mik- ið rætt um endur- nýjunina á listan- um en ekki er útlit fyrir að hún verði mjög mikil. Fullyrt er að borgarstjórn- arílokkurinn hafi fundað i Keflavík um helgina og þar hafi komið fram að flestir núverandi borgarfulltrúar hafi talað um að þeir hefðu áhuga á að halda áfram sem borgarfulltrúar. Óliklegt er þó talið að flokksmenn utan borgarstjórnar- flokksins séu sammála þessu og heyrist að listi sem ekki vann kosn- ingarnar síðast sé ekkert líklegri til að gera það núna. Að vísu liggur fyr- ir að oddvitinn verður annar en þá - hvort sem það nú verður Inga Jóna Þórðardóttir eða einhver annar - en engu að síður virðast menn telja að frekari breytinga sé þörf ef björn- inn á að vinnast!... Eldri borgara framboð Nokkuð hefur borið á fréttum um að eldri borgarar séu að íhuga að fara fram með sérstakt framboð í borgarstjórnarkosningunum næstu. Hefur komið fram að slikt framboð nyti talsverðs vel- vilja hjá þjóðinni samkvæmt könnun PriceWaterhouse- Coopers og hefur Ólafur Ólafsson, fyrrverandi land- læknir, jafnan verið í forsvari fyrir þeim sem velta þessum möguleika fyrir sér. I pottinum er fullyrt að sterk öfl innan raða samtaka eldri borgara beiti sér gegn öllum fram- boðshugmyndum og séu þetta yfir- leitt aðilar sem tengjast Sjálfstæðis- flokknum. Þar í flokki er starfandi hreyfmg eldri borgara sem telur sig ágætan farveg fyrir þá óánægju sem uppi er og telja ýmsir þeir sem þar starfa að sérstakt framboð í höfuð- borginni myndi einungis skaða Sjálfstæðisflokkinn umfram Reykja- víkurlistann ... Formönnum fjölgar Framsóknarmenn í Reykjavík hafa verið að ráða ráðum sínum upp á síðkastið og skipuleggja sig eftir kjördæmamörkum. I samræmi við það hafa verið stofnuð tvö félög í Reykjavík í staðinn fyrir að áður var þar aðeins eitt félag fullorðinna og nú hafa líka verið stofnuð tvö ungliðafélög í stað eins áður. Hins vegar var kvenfélagið lagt niður sem sérstakt félag og þyk- ir það tímanna tákn. Mörg ný nöfn eru að skjóta upp koOinum hjá Framsókn í Reykjavík en kosturinn við þessa fjölgun félaga er að hún kallar á fleiri formenn! Formenn í framsóknarfélögunum tveimur eru þau Gestur Kr. Gestsson, sem er einn af ritstjórum hriflu.is, og Sig- rún Jónsdóttir. Formenn ungliða- samtakanna eru hins vegar Haukur Logi Karlsson (suður) og Hallur Hallsson (norður). Vigdís heit Og talandi um framsóknarmenn í Reykjavík þá liggur fyrir að borgar- fulltrúar flokksins á Reykjavíkurlist- anum, þau Alfreð Þorsteinsson og Sigrún Magnús- dóttir, munu fá mótframboð þegar kemur að því að flokkurinn velur fuUtrúa á listann. Þannig hefur Anna Kristinsdóttir (Finnbogasonar) þegar lýst yflr áhuga sínum á að kom- ast i öruggt sæti á listanum og í pott- inum er fuUyrt að Vigdís Hauksdótt- ir, varaþingmaður flokksins í Reykja- vík, hafi einnig áhuga á að láta að sér kveða á þessum vettvangi...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.