Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 Fréttir 7 Réttarhöldin endurtekin vegna vanhæfni dómara - í ljós kom eftir aðalmeðferð að sami dómari hafði úrskurðað gæsluvarðhald Sú óvenjulega staða hefur komið upp að héraðsdómari i ííkninefna- máli þar sem sakir varða við 10 ára fangelsi hefur úrskurðað sig vanhæfan. Sakamálið varðar inn- flutning á einu mesta magni flkni- efna sem lagt hefur verið hald á í einu lagi - tæplega 17 þúsund e- töflur, 8 kíló af hassi og 200 grömm af amfetamíni. Það sem er sérstakast er að rétt- arhöldin, það er aðalmeðferð, var öll afstaðin og málið tekið til dóms að undangengnum málflutningi þegar dómarinn uppgötvaði að hann væri í raun lögum sam- kvæmt vanhæfur. Ástæðan er sú að á fyrri stigum málsins hafði sami dómari úrskurðað sakborn- inginn í áframhaldandi gæsluvarð- hald á grundvelli 2. mgr. 103. grein- ar hegningarlaganna - ákvæði þar sem dómari er í raun að taka af- stöðu til sektar. Þegar fyrri af- skipti dómarans uppgötvuðust voru verjandi og sækjandi látnir vita og málið sent dómstjóra Hér- aðsdóms Reykjavíkur. Nýr dómari verður skipaður í vikunni. Þetta þýðir að endurtaka þarf réttarhöldin, dómsyflrheyrslur og vitnaleiðslur, málflutning og svo framvegis. Málið þykir hins vegar ekki mjög flókið þannig að ekki er útlit fyrir að það taki langan tíma. Engu að síður, nýr dómari þarf að setja sig inn í gögn og málsmeð- ferð, dómari sem ekki hefur fjallað á fyrri stigum um mál sakborn- ingsins sem er á fertugsaldri og var að koma frá Amsterdam þegar hann var handtekinn með öll efn- in. -Ótt Valgeröur Sverrisdóttir. Byggðakort ESA: Hefði mátt upplýsa betur ESA, Eftirlitsstofnun EFTA er nú að fara yfir svör iðnaðarráðuneytis og tillögur að byggðakorti fyrir landið, en heimil- idr til ríkis- styrkja til at- vinnurekstrar miðast við þessi byggðakort. í lokatillöguinni sem ráðuneytið hefur sent ESA er ekki gert ráð fyrir því að Suð- urnes séu inni á kortinu og þar með ekki inni á þeim svæðum sem heimilt er að að veita ríkis- styrki. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra á þó ekki von á að þessi breyting muni hafa mikil áhrif á atvinnustarfsemi á svæðinu og muni t.d. ekki koma niður á framlögum eða samskiptum Byggðastofnunar við atvinnuþróun- arfélög eða Eignarhaldsfélag Suður- nesja. Hún hefur þó þann fyrirvara að enn er ekki ljóst að hver við- brögð ESA verða við byggðakortinu. Þessar upplýsingar komu fram sem svar við fyrirspurn frá Kristjáni Pálssyni þingmanni á Alþingi í gær, en Kristján gagnrýndi mjög þá málsmeðferð sem viðhöfð var í þessu máli, þar sem Suðurnesja- menn hafi lesið um þetta mál í blöð- um og ekkert samráð verið haft við þá. Iðnaðarráðherra svaraði því til að e.t.v. hafi mátt standa betur að upplýsingaþætti þessa máls en hins vegar hafi ráðuneytið gert hvað það gat til að halda Suðurnesjum inni á byggðakortinu, en slíkt hafi einfald- lega ekki samþykkt af ESA. -BG Kristján Pálsson. DV-MYND GVA Indíánasumri aö Ijúka Hitamælarnir í borginni eru að ærast afgleði þessa dagana - október bráðum að baki og enn er brakandi sumar- blíða. Issalar fagna ekki síður þessu sumri að hausti, sem einu sinni var kallað indíánasumar, enda finnur fólk þörf fyrir svalann meðan lægðir sunnan frá Afríku ylja okkur. En nú sér fyrir endann á blíðunni í bili. „Það fer að kólna smátt og smátt, gott í dag og á morgun, en síðan fer hann í norðlæga átt og má þá búast við éljum fyrir norðan undir vikulokin, “ segir Þorsteinn Jðnsson veðurfræðingur. Vinkonurnar þrjár á myndinni voru að gæða sér á rjómaís á Aust- urvelli, ungar og fallegar mæður sem hefur fjölgað skemmtitega í henni Reykjavík. ^ Þingsályktun um áfallahjálp: Afallahjálp í hvert sveitarfélag - komi saman strax og áfall dynur yfir ram er komin á Alþingi þingsá- lyktunartillaga um að ríkisstjómin, í samstarfl við sveitarfélög, komi á skipulagðri áfallahjálp innan sveitar- félaga til að bregðast við þegar alvar- leg og mannskæð slys ber að hönd- um. Fyrsti flutningsmaður tillögunn- ar er Hjálmar Ámason en með hon- um flytja hana Magnús Stefánsson, Ámi Steinar Jóhannsson, Guðrún Ögmundsdóttir og Katrín Fjeldsted. Fram kemur í greinargerð að flutningsmenn telja að á meðan björgunaraðilar standi sig jafnan með miklum ágætum i björgunar- störfum sé áfallahjálp til handa fóm- arlömbum sjald- an til staðar með kerfísbundnum hætti. „í tillög- unni er gert ráð fyrir því að í hverju sveitarfé- lagi eða í sam- starfl nærliggj- andi sveitarfélaga sé komið á mark- vissri stjóm áfallahjálpar. Slikri stjórn er ætlað að bregðast við kerfisbundið þegar ósköp dynja yfir. Stjórnunamefndinni er ætlað að taka frumkvæði í að veita þeim fag- lega áfallahjálp sem hinir válegu at- burðir snerta mest. Má þar benda á þá sem lifa af atburðina og fjölskyld- ur þeirra, ættingja þeirra sem kunna að hafa farist, vinnufélaga fómar- lamba, björgunarfólk og aðra sem tengjast hinum válegu atburðum náið. Mikilvægt er að slík stjórnun- amefnd-sé skipuð formlega með aðal- og varamönnum þannig að þegar hörmungar dynja yfir komi nefndin strax saman, skilgreini aðstæður, bregðist markvisst við og af fag- mennsku," segir í greinargerðinni. Ekki er óeðlilegt að í hverri stjóm- unamefnd áfaHahjálpar sveitarfélaga sitji fulltrúar heilsugæslu, prestar, lögreglumenn, björgunarsveitarfólk, fulltrúar peningastofnunar, trygg- ingafélags, skóla og atvinnulífs. Þá telja flutningsmenn eðlilegt að skipuð verði yfirstjóm áfallahjálpar fyrir landið allt til þess að veita stað- bundnum stjómum áfallahjálpar fag- lega ráðgjöf, sem og til að fylgjast með skipan og fyrirkomulagi áfalla- hjálpar á hverjum stað. Gildi fræðslu fyrir einstaklinga í slíkum stjórnum, á vinnustöðum og heimilum, sé ómetanlegt. -BG Hjálmar Árnason. Notaðir bíiar hjá Suzuki bílum hf. Opel Astra Station, ssk. Skr. 3/98, ek. 33 þús. Verð kr. 1130 þús. TILBOÐ kr. 950 þús. Daihatsu Terios, bsk. Skr. 10/99, ek. 35 þús. Verð kr. 1020 þús. TILBOÐ kr. 950 þús. Suzuki Baleno GLX, 4dr., bsk. Skr. 4/97, ek. 46 þús. Verð kr. 830 þús. Suzuki Baleno Wagon, ssk. Skr. 6/99, ek. 26 þús. Verð kr. 1270 þús. Sjáöu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI ---M.....—.....-. SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100 323F, 5dr., ssk. 12/99, ek. 23 þús. Verð kr. 1270 þús. Land Rover Freelander, bsk. Skr. 6/99, ek. 39 þús. Verð kr. 1790 þús. Suzuki Vitara JLX, 5dr., ssk. Skr. 9/95, ek. 105 þús. Verð kr. 990 þús. Suzuki Baleno GLX, 4dr., 4x4. Skr. 6/96, ek. 102 þús. Verð kr. 680 þús. Daewoo Lanos, 4dr., ssk. Skr. 11/99, ek. 45 þús. Verð kr. 990 þús. Daihatsu Charade SR, bsk. Skr. 6/97, ek. 64 þús. Verð kr. 590 þús.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.