Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
DV
9
Fréttir
Heildsöludreifing: Reemax ehf. sími 588 2179.
Dyttað að í Firðinum
Þessir herramenn voru eflaust ánægöir meö aö geta unniö utandyra í veöurblíöunni sem veriö hefur á suövesturhorn-
inu. Þeir notuöu aö minnsta kosti tækifæri til aö dytta aö bát einum í slippnum í Hafnarfiröi.
Nýr bæklingur Ferðamálaráðs prentaður í Slóveníu:
Framkvæmd opinbers
útboðs mótmælt
- íslensk fyrirtæki þurftu að láta þýða útboðsgögn á eigið tungumál
Sumir stjórnarþingmenn sammála stjórnarandstöðufrumvarpi um fiskveiðar en munu ekki styðja það:
Smábátalöggjöfin
gríðarleg mistök
- segir Einar
„Ég hef ekki skipt um skoðun á
því að kvótasetning smábáta hafi
verið gríðarleg mistök. Ég mun hins
vegar styðja frumvarp ríkisstjórnar-
innar þrátt fyrir deilur um þetta,“
segir Einar Oddur Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins á
Vestfjörðum.
Stjórnarandstaðan hefur lagt
fram nýtt frumvarp þar sem segir
að smábátar eigi að vera undan-
þegnir kvóta ef undan er skilinn
þorskur. Sumir stjórnarþingmenn,
s.s. Einar Oddur, eru sammála
stjórnarandstöðunni en eigi að síð-
ur mun hann styðja frumvarp rikis-
stjórnarinnar um hið gagnstæða.
Ástæðan er að sögn Einars sú að
tekist hafi að ná fram allmiklum
breytingum sem gætu orðið til þess
Oddur - ýsukvótinn verður stóraukinn frá fyrri áætlunum
Kristinn H.
Gunnarsson.
Einar Oddur
Kristjánsson.
að hægt sé í megindráttum að lifa
við frumvarpið. „Það er ekkert
leyndarmál að það á að auka veru-
lega ýsukvótann sem kemur til með
að hjálpa. Efnislega hef ég þó ekki
skipt um skoðun. Ég tel að við séum
meira og minna á villigötum með
þessa stjórn og ég mun fara ræki-
lega yfir þessi mál i umræðunum á
þingi,“ segir Einar Oddur.
Hann telur með öðrum orðum
engar líkur á að stjórnarandstöðu-
frumvarpið verði samþykkt og á
sömu skoðun er Kristinn H. Gunn-
arsson, þingtlokksformaður Fram-
sóknartlokksins. Kristinn hefur
barist einna harðast gegn kvóta-
setningu smábáta og er ósammála
sjávarútvegsráðherra um að gamla
kerfið stangist á við stjórnarskrána.
„Ég geng samt ekki svo langt að
styðja frumvarp stjórnarandstöðu.
Ég stend með stjórnarliðinu og leiði
mál til lykta þar,“ segir Kristinn.
í greinargerð með frumvarpinu
segir að óeðlilegt sé að kvótasetja
smábátana. Það þjóni ekki hags-
munum þjóðarinnar og stuðli að
byggðaröskun. Kristinn tekur undir
með að þetta sé augljóst mál og
varla þrætuepli. Mjög hafi hallað
undan fæti frá því að kvótinn var
settur á bátana. Verulegur sam-
dráttur sé sérstaklega á Vestfjörð-
um og eins á Snæfellsnesi, Suður-
nesjum, Norðurlandi og Austur-
landi.
„Ég sagði það strax í vor að ég
gæti ekki gengið að því sem þá var
uppi og þess vegna eru menn í
þeirri stöðu nú að reyna að ná fram
breytingum. Menn minnast þess
sem Davíð Oddsson sagði, að ég
hefði stoppað málið. Síðar hefur
komið fram meira I frumvarpinu.
Það eru t.d. pottar um byggðakvóta
fyrir smábátakerfið sem gætu dreg-
ið úr samdrættinum en eftir sem
áður verður hann verulegur,“ segir
Kristinn.
Þeir sem lagt hafa fram stjórnar-
andstöðufrumvarpið eru Guðjón A.
Kristjánsson, Karl V. Matthíasson
og Ámi Steinar Jóhannsson. -BÞ
Athygli vekur að hækling-
ur Ferðamálaráðs íslands
skuli ekki prentaður hérlend-
is á tímum samdráttar í
prentiðnaði. Haraldur Dean
Nelson, upplýsingastjóri
Samtaka iðnaðarins, segist
hafa gert athugasemd við
framkvæmd útboðsins til
Ríkiskaupa í byrjun júlí en
því hafi ekki enn verið svar-
að. Hann sagðist hafa gagn-
rýnt að útboðsgögnin væru öll á
ensku en ekki íslensku. Þar með
væri verið að torvelda íslenskum
fyrirtækjum að bjóða i verkið. „Það
er í hæsta máta óeðlilegt að íslensk
fyrirtæki þurfi að láta þýða útboðs-
gögn á vegum íslenska ríkisins yflr
á sitt eigið tungumál.“ Haraldur
segist þó að öðru leyti ekki gera at-
hugasemd við að slík verk séu boð-
in út víðar en á íslandi.
Magnús Oddsson ferða-
málastjóri segist ekki kom-
ast undan því að stór
prentverk á vegum opin-
berra aðila séu boðin út
samkvæmt milliríkjasam-
ingum íslands og Evrópu-
landa. Þetta er verk upp á
níu til tíu milljónir króna
en bæklingurinn er prent-
aður á tíu tungumálum.
„Aftur á móti létum við
vinna alla þá vinnu hérlendis sem
mögulegt var án útboðs. Þar er um
að ræða textagerð, ljósmyndun, um-
brot, litgreiningu og filmuvinnu
sem unnið var af verktökum á ís-
landi. Síðan var prentunin boðin út.
Þar átti prentsmiðja í Slóveníu hag-
stæðasta tilboðið samkvæmt mati
Ríkiskaupa. Bæklingurinn var því
þetta árið prentaður í Slóveníu. í
síðasta útboði lenti hann hjá inn-
Magnús
Oddsson.
lendum aðila,“ sagði Magnús. Sjálf
prentun bæklingsins lætur nærri að
vera um helmingur kostnaðarins
við bæklingsgerðina. Að sögn
Magnúsar mun kostnaðurinn í
heild, með dreifingu og öðru, vera
nálægt 20 milljónum króna. -HKr.
y.
NISSAN PATROL TURBO DISIL
árg 1996, ekinn 195.000 km, 5 gíra, 7 manna
rafdr. rúður, samlæsingar, topplúga, álfelgur.
35“ breyting, er á 33“ dekkjum.
Eigum marga bíla með háum lánum, dæmi
Golf ‘96, Peugeot 30G ‘99, Avensis ‘99
Baleno ‘98, Octavin ‘00, Primern ‘98.
Til sölu á JR Bílasölu, Bíldshöfða 3,
sími 567-0333
J. R. BILASALAN
www.jrbilar.is
Vísa/Euro raðgreiðslur
a OKU
/TVSjKOMNN
^/IMJODD
Þarabakka 3,109 Reykjavík
Aukin ökuréttifidij
Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga (áfangakerfí).
Kennt er á leigu-, vöru- og hópbifreið, einnig eftirvagn.
Endurbætt kennsluaðstaða
og sérhæfðir kennarar.
Námsgögn verða eign nemenda.
Námslok nemenda tryggð.
Góðir kennslubílar. Greiðsluskilmálar við allra hæfi.
Hringið eða komið og fáið nánari upplýsingar.
Sími 567-0300
E-mail okusk.mjodd@simnet.is
Súlan ein í
loðnuleit
„Súlan fór til
loðnuleitar t sið-
ustu viku og hef-
ur verið að leita
síðan en án ár-
angurs enn þá,“
segir Sverrir Le-
ósson, útgerðar-
maður nótaveiði-
skipsins Súlunn-
ar EA frá Akur-
eyri sem leitað
hefur loðnu undanfarna daga, víða
úti fyrir Norðurlandi og m.a. við
Kolbeinsey.
Sverrir er mjög ósáttur við eig-
endur annarra loðnuskipa fyrir að
slást ekki í hópinn og leita uppi
loðnuna. „Nú er engin síldveiði og
ég velti fyrir mér hvað menn eru að
gera með nótaskipin.
Okkur liggur á að finna loðnuna,
Hafró talar um að svo mikið sé til af
loðnu að hugsanlegt sé að metvertíð
geti orðið, en við verðum þá að fara
að finna loðnuna og fara að hefja
veiðarnar, við náum ekki nema
ákveðnu magni ef veiðarnar hefjast
ekki af krafti fyrr en í janúar.
Við stöndum ekki í því einir lengi
að vera að leita að loðnu. Mér finnst
ekkert athugavert við það að stóru
útgerðirnar sem eru jafnvel með
mörg skip fari að taka þátt í þessu
með okkur, þetta er dýrt fyrir litla
útgerð eins og þá sem við Bjarni
Bjarnason, skipstjóri á Súlunni,
rekum" segir Sverrir. -gk
Sverrir
Leósson.