Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Síða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 r>v Beöiö hjálpar Faöir og dóttir bíða þess sem veröa vill viö landamæri Pakistans. SÞ gagnrýnir stað- setningu nýrra flóttamannabúða Stjórnvöld í Pakistan eru nú í sara- vinnu við talibanastjórnina í Afganistan að koma upp nýjum flótta- mannabúðum innan landamæra Afganistans og er ætlunin að senda þangað hluta þeirra flóttamanna sem þegar eru komnir yfir landamærin til Pakistans, en allt að fimmtán þúsund manns eru nú í reiðileysi við land- mæri ríkjanna í einskismannslandi og hafa sér ekkert til viðurværis. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóð- anna hefur gagnrýnt þessa ákvörðun stjórnvalda og segir það alvarlegt mál að senda fólkið aftur til baka, því erfitt gæti reynst að tryggja öryggi þess og veita því hjálp. Nýr menntamála- ráðherra Noregs biðst afsökunar Strax á fyrstu starfsdögum nýrrar ríkisstjórnar í Noregi er farið að blása verulega frá sumum ráðuneytunum og er menntamálaráðherrann, Kristin Klement, sá sem mestu fárinu hefur valdið til þessa. Um helgina lýsti ráð- herrann því yfir að hún vildi reka alla þá kennara sem ekki stæðu undir væntingum, bæði hvað varðar aga í kennslustundum og aðra kennslu- hætti og bætti því við að margir þeirra væru svo illa að sér að þeir gætu ekki einu sinni skrifað skamm- lausa norsku. Hún sagði að lélegir kennarar stæðu skólastarfinu fyrir þrifum og þess vegna þyrfti að losna við þá sem fyrst. Ummæli fóru að von- um illa í kennara, sem tóku þau sem stríðsyfirlýsingu og sögðu hana tæp- lega hafa haft tíma, á þeim klukkutím- um sem hún hefði setið í embætti, til að setja sig nægjanlega vel inn í mál- efni skólanna til að bera slíkar full- yrðingar á borð. í gær baðst ráðherr- ann síðan afsökunar á ummælum sín- um og viðurkenndi að hún heföi tekið fulldjúpt í árinni. REUTER-MYND Gaddafí vill skilgreiningu Muammar Gaddafí Líbýuleiötogi vill skilgreina hryöjuverk og berjast svo. Gaddafí á móti hryðjuverkum Muammar Gaddafí Líbýuleiðtogi sagði í gær að hryðjuverkaárásim- ar á Bandaríkin í síðasta mánuði hefðu verið hræðilegar. Hann hvatti til að haldin yrði alþjóðleg ráðstefna til að skilgreina hryöjuverk og síð- an yrði barist gegn þeim. Bandarísk stjórnvöld hafa lengi haldið því fram að Gaddafi styðji við bakið á hryðjuverkamönnum. Gaddafi sagði í viðtali við arab- ísku sjónvarpsstööina al-Jazeera að efnahagslegar refsiaðgerðir sem valda dauða saklauss fólks yrðu að teljast til hryðjuverka. Talsmenn SÞ staðfeststa að hersjúkrahús hafi verið lagt í rúst: Bandaríkjamenn viður- kenna sprengjumistök Bandarísk hernaðaryfirvöld hafa viðurkennt að þrjár öflugar sprengjur hafi misst marks i loftárásum helgar- innar, en hafa þó ekki fengist til að við- urkenna að ein þeirra hafi lent á sjúkrahúsi í borginni Herat í vestur- hluta Afganistans. Victoria Clark, að- stoðarvamarmálaráðherra Bandaríkj- anna, sagði við fréttamenn í gær að tvær 500 punda sprengjur hefðu af slysni lent á íbúðabyggð í norðvest- urhluta Kabúl á laugardaginn og á sunnudag hefði 1000 punda sprengja lent á akri nálægt elliheimili í borg- inni Herat. Hún sagði þó að talibanar hefðu tilhneigingu til að ýkja afleiðing- ar sprengjuárásanna og fara ranglega með tölur fallinna, þannig að litið væri að marka fullyrðingar þeirra. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa staðfest fréttir talibanastjórnarinnar um að hersjúkrahús í Herat hafi verið lagt í rúst, en þar hafi verið sjúkrarúm fyrir um hundrað manns. Fullyrðing talsmanna talibanastjórnarinnar um að hundrað manns, bæði sjúklingar og Fórnarlamb loftárásanna Þessi 16 ára afganski íssölumaöur missti vinstri fót og tvo fingur í loft- árásum Bandaríkjamanna á höfuöborgina Kabúl í fyrradag. hjúkrunarlið, hafi farist í ásrásinni fengust ekki staðfestar, þó líkur bendi til þess aö mannfall hafi verið verulegt. Clark viðurkenndi einnig að þyrla, sem tekið hefði þátt í aðgerðum nálægt Kandahar, hafi orðið fyrir árás og við það misst hluta af hjólabúnaði, en þó komist heilu og höldnu aftur til bæki- stöðva sinna. Á sama tima lýsti Geoff Hoon, varn- armálaráðherra Bretlands, því yfir á fundi í London að öllum níu bæki- stöðvum al-Qaeta-samtaka Osama bin Ladens í Afganistan hefði verið eytt og einnig hafi níu flugvellir verið eyði- lagðir og harðar árásir gerðar á einar 24 liðssveitir talibanastjórnarinnar. Fréttir herma að hermenn talibana séu nú farnir að dyljast meðal óbreyttra borgara og sagði talsmaður herstjórnarinnar í Pentagon í morgun að það kallaði á breyttar áherslur. „Við munum alls ekki beina árásum gegn óbreyttum borgurum til að ná til þeirra heldur beita öðrum aðferðum við það,“ sagði talsmaðurinn. REUTER-MYND Gelmvíslndamenn fagna merkum áfanga Dave Spencer (t.h.), sem stjórnar för geimfarsins Odyssey til reikistjörnunnar Mars, fagnar merkum áfanga meö sam- starfsmanni sínum, Jim McClure. Geimfarið fór á sporbaug um Mars í gærkvöld eftir 200 daga feröalag. Miltisbrandur varð tveimur póstmönnum að bana: Eitur fannst í flokkunar- stöð bréfa til forsetans Gró miltisbrandsbakteríunnar fundust í gær í afskekktri herstöð þar sem póstur til Hvíta hússins er flokkaður. Þá var staðfest að tveir starfsmenn póstflokkunarstöðvar í Washington hefðu látist af miltis- brandi, eins og grunur lék á. „Við urðum varir við smá miltis- brand í afskekktri stöð í dag. Og rétt eins og í þinginu voru stjórnvöld fljót að grípa til aðgerða," sagði Ge- orge W. Bush forseti við fréttamenn í fundarherbergi ríkisstjórnarinnar í Hvíta húsinu. „Ég er ekki með miltisbrand," sagði forsetinn enn fremur en neit- aði að tjá sig um hvort hann hefði farið í skoðun. Hann sagðist ekki óttast um öryggi sitt þegar hann kæmi til vinnu. REUTER-MYND Miltlsbrandur nálgast forsetann Ari Fleischer, talsmaöur Hvíta húss- ins, greinir frá miltisbrandi í flokkun- arstöö bréfa til forsetaembættisins. Embættismenn vestra eru í aukn- um mæli famir að viðra þær skoð- anir sínar að miltisbrandstilfellin í Bandaríkjunum að undanförnu tengist hryðjuverkaárásunum í síð- asta mánuði. „Það leikur grunur á aö þetta tengist alþjóðlegum hryðjuverka- mönnum," sagði Ari Fleischer, tals- maður Hvíta hússins, á fundi með fréttamönnum. Embættismaður sagði óljóst hvort miltisbrandurinn sem fannst 1 her- stöðinni hafi verið bein árás á Hvíta húsið éða hvort hann hafi borist þangað með pósti sem hafði farið í gegnum flokkunarstöð í Was- hington þar sem bakterían hafði fundist. Hann sagði að verið væri að rannsaka málið. Túlkurinn Egypti Dagblað í eigu Sádi-Araba greindi frá því í morgun að eineygði túlkurinn fyrir sendiherra talibana í Pakistan væri egypskur harðlínumaður, Abdel Aziz Moussa al-Jamal. Hann er fyrrum yfirmað- ur i egypska hernum og nú liðsmað- ur í samtökum harðlínumúslima. Fjöldamorð í Nígeríu Hermenn í Nígeríu skutu rúm- lega tvö hundruð þorpsbúa í mið- hluta landsins' til bana á mánudag, að því er sjónarvottar greindu frá í gær. Hermennirnir stráfelldu íbúa fjögurra þorpa. Þing til starfa á ný Bandarískir þingmenn ákváðu í gær að opna eina byggingu þingsins þar sem enginn miltisbrandur hefði fundist þar. Fjórar byggingar eru hins vegar enn lokaðar. Bosníu-Króatar sýknaðir Þrír Bosníu-Króatar, sem stríðs- glæpadómstóllinn í Haag hafði fundið seka um grimmilega árás á þorp múslíma 1993, voru sýknaðir í gær af áfrýjunardómstól SÞ og leyst- ir úr haldi. ETA fari að dæmi IRA Spænsk stjórnvöld hvöttu skæru- liðasamtök Baska, ETA, í gær til að fara að dæmi írska lýðveldishersins og afvopnast. Meira mannfall heima Dick Cheney, varaforseti Banda- ríkjanna, sagði í gær að stríðið gegn hry ðj u verkamönn- um myndi líklega krefjast fleiri mannslífa heima en meðal bandarískra hermanna á erlendri grundu. Chen- ey hvatti landsmenn um leið til aö halda vöku sinni. Áhyggjur af aðstoðinni Evrópusambandið lýsti í gær áhyggjum sínum vegna fyrirhugaðr- ar aðstoðar svissneskra stjórnvalda við flugfélagið Swissair sem rambar á barmi gjaldþrots. Osama lifir enn Sendiherra tali- bana í Pakistan lýsti því yfir í gær að bæði hryðju- verkamaðurinn Osama bin Laden og Mohammad Om- ar, andlegur leið- togi talibana, væru á lífi. Talibanar eiga von á löngu stríði við Bandaríkjamenn. Khatami sendir tóninn Hinn umbótasinnaði forseti írans, Mohammad Khatami, hvatti dómstóla landsins í gær til að virða stjórnarskrárbundin réttindi borg- aranna á sama tíma og ráðist er gegn tjáningarfrelsinu i íran. Fóru um borð í Kúrsk Rannsóknarmenn fóru í gær um Iborð í rússneska kjarnorkukafbát- inn Kúrsk, í fyrsta skipti frá því hann sökk með manni og mús í fyrra. Ekki ríkir bjartsýni um að ástæður slyssins finnist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.