Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Side 14
14 Menrúng Frá Vesturheimi Símon Símonarson og Valdís Guömundsdóttir, kona hans Meöal efnis í bókinni eru ævisögubrot Simonar sem fór ásamt konu sinni og tveimur börnum tii Ameríku 1874. Á íslandi höfðu þau síðast búiö í Heiðarseli. Á undanfömum áram hef- ur glæðst almennur áhugi á vesturfórum og Vestur- heimsferðum. Allmörg fræðirit, bækur og tímarits- greinar, hafa komið út um efnið, en að öðrum ritum ólöstuöum eiga líklega skáld- sögur Böðvars Guðmunds- sonar, Lífsins tré og Híbýli vindanna, hvað drýgstan þátt í þessum áhuga. Burt - og meir en bæjarleið er fimmta bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenn- ingar. Þar er að fmna brot úr skrifum íslenskra vesturfara, ferðalýsingar, sjálfsævisögur og minningar í bland við dagbækur og bréf. Um- sjónarmenn útgáfunnar, Davíð Ólafsson og Sig- urður Gylfi Magnússon, fylgja skrifum vestur- faranna úr hlaði með tveimur ítarlegum inn- gangsritgerðum. í ritgerð Sigurðar Gylfa er fjall- að um hugmyndafræði útgáfunnar, en í ritgerð Davíðs er gerð grein fyrir textunum sem eru í bókinni og höfundum þeirra. Margt fróðlegt kemur fram í báðum ritgerð- unum, til dæmis er vel til fundið hjá Sigurði Gylfa að minna á þá staðreynd að ferðalög voru forfeðrum okkar ekkert nýnæmi, hvorki árs- tíðabundin ferðalög né búferlaflutningar, stund- um um langan veg. Vesturheimsferðir hafa því kannski ekki verið þeim jafn ógnvænlegt fyrir- tæki og nútímamenn kynnu að ætla. Hins vegar er ofuráhersla Sigurðar Gylfa í öllum skrifum sínum á ágæti og yfirburði einsöguaðferðarinn- ar að verða leiðigjörn. Hann er satt að segja far- inn að minna á Cato hinn gamla. Einsagan er búin að vinna sér sess í islenskri sagnfræði sem einn af þeim þáttum sem mynda skilning okkar á fortíðinni, en hún er ekki alfa og omega sagn- fræðinnar og verður það seint. Fyrir fróðleiksfúsa lesendur í formála bókarinnar gera ritstjórar ritraðar- innar, þeir Sigurður Gylfi og Kári Bjamason, grein fyrir markmiðum hennar og ritstjómar- stefnu. Þar kemur fram að tilgangurinn er tví- þættur: að gefa almenningi kost á að kynnast textum skrifuðum af alþýðufólki en jafnframt að gera fræðimönnum kleift að vinna með þá. Reynt er að byggja brú milli þessara tveggja markmiða og sú leið valin að hafa engar neðanmálsgreinar með textunum en rita þess i stað itarlega inn- ganga. Með því að hafa textann sem ómengaðast- an af fræðilegum hjálpartækjum vilja ritstjórar gefa lesendum tækifæri til að „setjast í stól fræði- mannsins", eins og það er orðað. Einhvern veginn læðist að manni sá grunur að þeir séu fáir almennu lesendumir sem glugga í Sýnisbækur íslenskrar al- þýðumenningar með þessu hugarfari. Hinir eru áreiðanlega mun íleiri sem lesa þær af almennri fróðleiksfýsn. Gagnvart slíkum lesendum eru neðan- málsgreinar mun hentugri framsetn- ingarmáti. Hvað annan frágang textans varðar verður ekki betur séð en hann dugi prýðilega jafnt fyrir fræðimenn sem almenning. Það er hins vegar slæmur ljóður á ritröðinni að ekki skuli vera í bókunum nafna- og atriðis- orðaskrá og þvi nýtast þær ekki sem skyldi. Endalaust er hægt að deila um hvaða texta á að birta í riti sem þessu, en yfirleitt er þó hægt að vera sáttur við val umsjónarmanna á þeim. Hvað hinn almenna lesanda varðar hefðu sumir dagbókakaflarnir gjarnan mátt vera styttri og birta þá í staðinn dæmi frá fleiri höfundum eða fleiri bréf eins og gert er síðast í bókinni. Því miður eru dagbókarfærslumar þess eðlis að fáir endast til að lesa þær í gegn nema í ákveðnum rannsóknartilgangi, og ef sá er tilgangurinn með lestrinum er líklegt að farið sé í handritið sjálft til að kanna textann í heild sinni. Fyrir hinn almenna lesanda geta stutt vel valin dagbókarbrot frá mörgum höf- undum hins vegar verið mjög áhuga- verð. Að lokum vil ég geta þess að bráð- skemmtilegt er að kafa ofan í málfar vesturfaranna og skoða hvernig þeir aðlaga íslenskuna nýjum aðstæðum, taka upp ensk orð yfir hugtök og verk sem þeir þekkja ekki að heiman og splæsa við þau mishugvitsamlegum ís- lenskum viðskeytum. Ekki er mér kunnugt um hvort einhverjar rann- sóknir hafa verið gerðar á málfari vest- urfara en það kæmi mér ekki á óvart þó þarna væri óplægður akur fyrir út- sjónarsama málvísindamenn. Guðmundur J. Guðmundsson Burt - og meir en bæjarleið. Dagbækur og persónuleg skrif Vesturheimsfara á síöari hluta 19. aldar. Davíö Ólafsson og Sigurður Gylfi Magnússon tóku saman. Háskólaútgáfan 2001. Kvótinn hennar ömmu Marsibil á heima í Reykjavík hjá pabba sín- um. Á sumrin og um jólin dveljast feðginin hjá ömmu og alnöfnu Marsibilar vestur á Qörðum. Árið sem Marsibil verður tólf ára reynist viðburðarikt og hún öðlast skilning á heimi hinna fullorðnu og því góða og slæma sem fylgir honum. Marsibil er um margt óvenjuleg bók. Sjaldn- ast er fjallað um „fullorðinsvandamál“ eins og kvótakerfið í barnabókum en Helgi Guð- mundsson sýnir hér fram á að slík mál eiga ekki aðeins heima í bókum fyrir fullorðna. Börn heyra talað um kvótann eins og eitthvert fyrirbæri og það er gaman að lesa um skilning Marsibilar á kvótanum en amma hennar út- skýrir hann svona: „Líklega er hann eins og terta sem allir keppast um að boröa. Þeir sem eiga stærstu tertuspaðana eru fljótastir og fá mest. Ef tertan er étin upp má enginn fara á sjó.“ (24) Kvótakerfið er þó ekki aðalefni bókarinnar heldur er lif fjölskyldunnar sett í almennt samfélagslegt samhengi. Snjóflóð fellur á kauptún ömmu Marsibilar, pabbi hennar byrjar með pólskri fiskverka- konu eftir erfiðan skilnað við móður- ina. Ástin kviknar hjá móöursystur Marsibilar og leiðir til framhjáhalds, og síðast en ekki síst tengjast ýmis vandamál Dóra, besta vini Marsibil- ar, sem er ofvirkur. Þessi vandamál eru rædd í bókinni og amman útskýrir margt fyr- ir Marsibil, t.d. af hyerju svo margir útlend- ingar vinna í fiski á íslandi. Marsibil er sögumaður og þar sem hún seg- ir einkum frá öðrum verður persóna hennar ögn litlaus. Aðalpersónan er í raun amma hennar og alnafna sem virðist í fyrstu vera hin hefðbundna barnabóka-amma, sífellt að baka pönnukökur, steikja kleinur og elda kjöt- súpu, en reynist þegar betur er að gáð vera trúlaus og moldrík athafnakona. Amman er sterk persóna og skyggir jafnvel á sumar aðrar persónur. Ýmsar aukapersónur eru þó áhugaverðar eins og Stína, mamma Dóra, afskaplega stressuð kona sem reynir að sinna starfi sínu í Háskólanum en líka syni sínum. Dóri sjálfur er einnig trúverðug per- sóna, en kannski ekki sérlega geðfelldur. Aftast í bókinni er svokölluð Orðabók ömmu. Þar eru ýmis orð skýrð sem ungir les- endur gætu átt erfitt með að skilja og er það vel. Sagan sjálf er viðburðarík og sérstæö en helsti kostur hennar er umræðan um öll möguleg samfélagsmál sem börn lesa sjaldnast um nema í dagblöðum. Katrín Jakobsdóttir Helgi Guömundsson: Marsibil - Skáldsaga um gott fólk og óvenjulegt. Mál og menning 2001. Myndlist____________ Myndlistarþing í Hafnarhúsi Myndlistarþing verður haldið í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi á fóstudaginn, 26. október, og verður það sett kl. 9.30 um morgun- inn. Ávörp við setningu ílytja Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Pétur Stefánsson, formaður Sambands islenskra myndlistar- manna. Þingið er í þremur hlutum og verða fyrir- spurnir leyföar á eftir hverjum hluta og stund- um milli atriða líka. Fyrsti hluti þingsins nefnist Myndlist í upp- lýsingasamfélagi og talar þar fyrst Katrín Guð- mundsdóttir um upplýsingamiðstöð myndlistar. Ásamt henni flytja erindi fyrir hádegi Guð- mundur Oddur Magnússon sem talar um mynd- list í auglýsingum (rán eða hagnýting), Hlynur Helgason um myndlist á Intemeti og Hannes Lárasson sem talar um einangrun íslenska myndlistarheimsins, orsakir, afleiðingar og úr- bætur. Eftir hádegishlé eða kl. 13.30 ávarpar mennta- málaráðherra, Bjöm Bjarnason, þingið. Þá tala Þorbjörg Gunnarsdóttir frá Listasafni Reykja- víkur og Nathalie Jacqueminet frá Listasafni ís- lands um listasöfn, gagnabanka og Internet. Annar hluti þingsins hefst um 13.50 og nefn- ist Höfundaréttur - gagnabankar og Inter- net. Þar talar Þórunn Hafstein um alþjóðlegar reglur og íslenskt lagaumhverfi. Síðasti hluti þingsins hefst kl. 14.20 og ber yf- irskriftina Myndlistarmarkaður á íslandi. Þar tala fyrst Tryggvi P. Friðriksson um gallerí og uppboð og Guðbjörg Kristjánsdóttir um gall- erí og sýningar. Því næst tala Ólafur Ingi Jóns- son og Halldór Bjöm Runólfsson um mál- verkafalsanir og eigendasögu og á eftir þeim verða panelumræður undir stjóm Eiríks Þor- lákssonar. Þátttakendur auk hans eru Guðný Magnúsdóttir, Kristján Steingrímur Jónsson, Ragnar Th. Sigurðsson og Ósk Vilhjálmsdóttir. Kl. 17 verður myndlistarþingi slitið en á eftir verður móttaka í nýju húsnæði Sambands ís- lenskra myndlistarmanna, Hafnarstræti 16, og mun Ingibjörg Sólrún Gisladóttir borgarstjóri afhenda formanni SÍM húsið formlega. Þinggjald er 1000 kr. og er þá innifalið morg- unkaffi, hádegisverður (súpa og brauð) og síð- degiskaffi ásamt meðlæti. MIDVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 DV Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Nútíminn í Skugga Skuggasýning verður í Gallerí Skugga, Hverfisgötu 39, annað kvöld kl. 20.30. Þá verður sýnd hin sígilda kvikmynd Charles Chaplin, Modern Times (Nútíminn), baka til í galleríinu. Bjöm Þór Vilhjálmsson bókmenntafræðingur flytur stutt spjall þar sem hann veitir innsýn í ýmsa þætti kvik- myndarinnar. Húsið verður opnað kl. 20 og gefst gestum þá kostur á að skoða mynd- listarsýninguna „Hver með sínu nefi“ en hluti hennar er til umfjöllunar í viðtalinu við Ásmund hér á opnunni. (Um)heimur Miðausturlanda Magnús Þorkell Bernharösson, lektor í miðausturlandafræðum við Hofstra-háskól- ann í New York, verður gestur á rabbfundi Sagnfræðingafélags íslands í kvöld kl. 20.30. Fundurinn er haldinn i samvinnu við ReykjavíkurAkademíuna og fer fram í aðalfundarsal hennar á fjórðu hæð í JL- húsinu, Hringbraut 121. Magnús ræöir stöðu miðausturlanda- fræða í fræðaheiminum, bakgrunn fræði- manna, fræðilegan og pólitískan, aðstöðu til rannsókna, aðgang að heimildum og eig- in rannsóknir sem hafa einkum beinst að þjóðemi og þjóðemishreyfingum i þessum heimshluta. I lokin mun hann fjalla um þróun mála í Miðausturlöndum á undan- förnum árum, einnig í Ijósi nýliðinna at- burða. Kaldalónstónleikar Ámi Sighvatsson barítonsöngvari og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja sönglög Sigvalda Kaldalóns í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi annað kvöld. kl. 20. Á síð- asta ári kom út geisladiskur þeirra félaga, Úr söngvasafni Kaldalóns, og hafa þeir sið- an einbeitt sér að því að kynna hann. Mál og mannlíf á Ítalíu Kynnist ítölsku þjóðlífi og lærið ítölsku á líflegu námskeiði sem hefst hjá Endurmennt- un Háskóla Islands 29. október. Fjallað verð- ur í máli og myndum um menningu á Ítalíu fyrr og nú og ljósi varpað á helstu verk í ital- skri bókmenntasögu. Námskeiðið miðast við að þátttakendur skilji ítölsku ef hún er töluð hægt og skýrt og verður lögð megináhersla á að þjálfa talmál. Kennari er Mauro Barindi. Nánari upplýsingar á slóðinni www.endur- menntun.is og i sima 525 4444. Hriflur á Kistunni Hið óþreytandi vefrit Kistan (www.kist- an.is) hyggst blanda sér í hóp miðla sem fialla um nýjar bækur fyrir jólin. Þar hefur lið hörkupenna verið ráðið til að skrifa umsagnir, svokallaðar hriflur, þar sem þeir lýsa fyrstu áhrifum sínum af viðkom- andi verki. „Hrifluhöfundarnir" eru Eirík- ur Guðmundsson, Þröstur Helgason, Bima Bjarnadóttir, Matthías Viðar Sæmundsson, Geir Svansson, Hermann Stefánsson, Jón Ólafsson, Steinunn Ólafsdóttir og Viðar Hreinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.