Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Page 23
31 MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001 Tilvera DV Afmælishátíð Málbjargar, félags um stam: Stamið kemur í köstum - segja börnin Natan Freyr og Þórunn Jóna ur hérna og dagskráin sem við framleiðum, sem ég tel að þjóðin sé þokkalega sátt við,“ segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2. Sem kunnugt er kynnti Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra þá hugmynd á dögunum að leggja nið- ur starfsemi Rásar 2 i núverandi mynd, flytja rásina til Akureyrar og gera að miðstöð svæðisstöðva Ríkis- útvarpsins, sem eru á Akureyri, ísa- firði og Egilsstöðum. Ólafur Páll segir það athyglisvert að á sama tíma og fjárhagsvandi Ríkisútvarpsins sé mál málanna og gripið sé til víðtækrar sparnaðar- ráðstafana sé rætt um flutning Rás- ar 2 til Akureyrar. Slíkur flutningur sé dýr og muni ekki skila betri af- komu Ríkisútvarpinu. Raunar sé þetta sú einasta eining í rekstri stofnunarinnar sem sé sjálfbær rekstrarlega, en styrkurinn felist að miklu leyti í því að hún er hluti af Ríkisútvarpinu. „Því held ég að þessi Akureyrarhugmynd sé ekki annað en pólískt plott hjá ráðherr- anum,“ segir Ólafur Páll. Hann seg- ist vona að Rás 2 fái áfram að vera til og halda áfram að sinna sínu hlutverki sem frétta-, dægurmála-, íþrótta- og tónlistarútvarp, DV-MYND HILMAR Rússíbanarnir Þriöja plata þeirra komin út. Rússíbanarnir: Gull- regnið Hljómsveitin Rússíbanar er uað gefa út sína þriðju geislaplötu um þessar mundir og heitir hún Gull- regnið. Hljómsveitin er skipuð Ein- ari Kristjáni Einarssyni, sem spilar á gítar, Matthíasi M.D. Hemstock, á slagverk, Guðna Franssyni, sem leikur á klarinet, Tatu Kantomaa á harmoníku og Jóni Skugga á bassa. Rússíbanarnir voru með blaða- mannafundi þar sem þeir kynntu lög af nýja diskinum og lofaði það mjög góðu. Kiðlingarnir: Krakkar sem vita hvað þeir syngja Krakkasveitin Kiölingamir hefur nú sent frá sér tólf laga geislaplötu með nýju efni. í lögunum er fjallað um ýmsa hiuti eins og þeir koma bömum fyrir sjónir en umgjörðin er rokk, á köflum í suðrænum anda. Sveitina skipa Ómar Öm Ómarsson, 11 ára, Óskar Steinn Ómarsson, 7 ára, Hrefna Þórarinsdóttir, 12 ára og Þóranna Þórarinsdóttir, 12 ára. Kiðlingamir em, auk þess að vera önnum kafnir grunnskólanemar og íþróttafólk, öll að stúdera hljóðfæraleik, söng og leiklist en hafa þóÝí þetta sinn fengið til liðs við sig sér reyndari menn til að sjá um undirleik. Hljómsveitin hóf feril sinn fyrir um tveimur ámm með því að syngja fyrir svokallaða „eldri borgara", en það fólk reyndist svo glað- ir áheyrendur að hinir ungu listakrakk- ar færðust allir í aukana og hafa síðan sungið sig inn í hjörtu margra t.d. á Ing- ólfstorgi, Amarhóli, Galtalæk, Stöð 2, og Skjá einum. Kiölingarnir Krakkar sem kunna að rokka. uiarur paii uunnarsson Akureyrarhugmyndin pólitískt plott. ómissandi þáttur í tilveru Qölda fólks um land allt. „Ef menn komast að því að Rás 2 sé útvarpsstöð sem sé að engu leyti frábrugðin Bylgjunni eða FM957 þá vil ég að þeir hvorki selji Rásina eða flyti hana norður til Akureyrar, heldur einfaldlega hendi henni. Rás- in flytur dægurefni sem ekki heyr- ist á öðrum útvarpsstöðum og stendur þeim framar í öllu tilliti, en auðvitað er alltaf hægt að gera bet- ur,“ segir Ólafur Páll. Ekki náðist í Markús Örn Ant- onsson útvarpsstjóra vegna þessa máls. -sbs „Ég skal vera fremur fáoröur en ég lofa ekki að vera fljótur!“ Ein- hvern veginn svona hóf Benedikt Benediktsson ávarp sitt í tíu ára af- mælisfagnaði Málbjargar, félags um stam. Fagnaðurinn var haldinn í Iðnó á mánudagskvöld og þar var glaðværð ríkjandi og góður andi. Benedikt var einn aðalhvatamaður að stofnun Málbjargar og fyrsti for- maður. í ávarpi sínu rifjaði hann upp hvað fólkinu sem að félagsstofn- uninni vann hafi gengið illa að koma öllum formsatriðum á kopp- inn, svo mörgu hafi það þurft að deila hvert með öðru, af sameigin- legri reynslu sinni. Rás 2 til Akureyrar: Hugmyndin ekki hugsuð til enda - segir Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður í Rokklandi „Ég held að hvorki ráðherranum né Markúsi Erni gangi neitt slæmt til með þessum hugmyndum sínum um að flytja Rás 2 norður til Akur- eyrar. En aftur á móti hefur þessi hugmynd ekki verið hugsuð til enda því hvað á eiginlega að flytja. Rásin er ekkert annað en fólkið sem vinn- ------------mm------------ Hafið þið áður afrekað það að standa upp fyrir framan ókunnugt fólk og tala? „Nei, aldrei," segja þau bæði. - Er það satt að þeim sem stama gangi betur að syngja en tala? Segjast svo fölsk að þau geti ekki sungið Flestum finnst það mikið mál að standa fyrir framan fjölda fólks og tala, jafnvel þótt þeir teljist ekki eiga við málörðugleika að stríða. Þau Natan Freyr, 12 ára, og Þórunn Jóna, 14 ára, sem bæði stama mikið, létu sig samt ekki muna um það í af- mælisveislunni að stíga fram á svið og segja frá ferð sem þau fóru að Bakkaflöt í Skagafirði á síðastliðnu sumri. Greinilegt var að þau höfðu notið þess ferðalags í botn, enda voru þau í hópi annarra barna úr félaginu sem þeim þótti gaman að kynnast. Að dagskránni lokinni voru þau Þórunn Jóna og Natan Freyr króuð af og spurð nokkurra spurninga. DV-MYNDIR GUN. Sýndu hugrekki á hátíðinni Natan Freyr og Þórunn Jóna iétu stamiö ekki hindra sig í aö standa upp og tala fyrir framan fjöida fólks. Hlýtt á nýjan félagssöng Meöal gesta í afmæli Málbjargar var forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Grimsson. Honum á hægri hönd standa þeir Garöar Sverrisson og Arnþór Helgason, en Arnþór á heiöurinn að nafni féiagsins. Nær á myndinni er formaöur félagsins, Björn Tryggvason. „Já, það er alveg satt en ég er bara svo falskur að ég get ekki sung- ið,“ segir Natan Freyr og hlær. Þór- unn Jóna tekur í sama streng og segist líka vera fólsk. En hvort skyldi vera hægara fyrir fólk sem stamar að lesa upp af blaði eða tala blaðalaust? Þórunn Jóna: „Fyrir mig skiptir það engu máli.“ Natan Freyr: „Það er eiginlega al- veg eins.“ Sumir reyna að flýta fyrir Bæði segjast þau Þórunn Jóna og Natan Freyr hafa stamað frá þriggja ára aldri og muna ekki hvernig það er að vera laus við stam. Þeim ber saman um að stamið komi í köstum. Stundum sé það mjög slæmt, liggi svo næstum niðri í nokkrar vikur og versni svo aftur. „Einu sinni stamaði ég lítið í þrjá mánuði," segir Natan Freyr. Tengist það einhverju sérstöku í ykkar lífi þegar ykkur versnar aftur - prófum í skólanum eða öðru álagi? Natan Freyr: „Já, stundum." -Finnst ykkur gaman að hitta krakka sem stama líka? Þórunn Jóna: „Já, mjög. Þau skilja mann svo vel.“ Börnin ganga bæði í Heiðaskóla í Keflavík og eru hvort um sig ein um það í sínum bekk að stama. Þórunn Jóna segir að stundum hafi henni verið strítt. Erfiðast sé þó að kynn- ast ókunnugum. -Er þér strítt, Natan Freyr? „Ekki lengur en mér var strítt." Þau eru bæði í talþjálfun í Reykjavfk hjá Jóhönnu Einarsdótt- ur talmeinafræðingi. Þórunn Jóna notar tölvu við sína þjálfun en Nat- an Freyr hefur lítið gert af því, þó aðeins prófað. Natan Freyr kveðst ekki vera feiminn en það segist Þórunn Jóna vera. „Ég þori ekki nærri alltaf að tala þótt mig langi eitthvað að segja,“ segir hún. Bæði verða þau vör við að fólki finnist óþægilegt að heyra þau tala, þegar þeim gengur illa að koma orðunum út úr sér. Sumir reyni að flýta fyrir þeim og giska á hvað þau séu að segja. Það finnist þeim hins vegar óþægilegt. -Gun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.