Dagblaðið Vísir - DV - 24.10.2001, Qupperneq 24
32
Tilvera
MIÐVIKUDAGUR 24. OKTÓBER 2001
E»V
Carey reynir
fyrir sér í tívíi
Söngkonan Mariah Carey er ekk-
ert á því að gefast upp þótt móti
blási. Úr því fyrsta kvikmyndin sem
hún lék í, Glitter, var afspyrnuléleg,
er ekki um annað að ræða en reyna
aftur fyrir sér í leiklistinni. Núna
ætlar Mariah að gera betur i gesta-
hlutverki í hinni vinsælu sjónvarps-
syrpu um Ally McBeal.
í þættinum sem verður sýndur í
Bandaríkjunum í janúarbyrjun á
næsta ári mun söngkonan leika
konu eina sem er miðpunktur mála-
ferla gegn hjúskaparmiðlun. Annar
frægur söngvari, Jon Bon Jovi,
kemur fram i sama þætti.
Dylan skrifar
sjálfsævisöguna
1
Rokkraularinn Bob Dylan hefur
gert samning um að skrifa sjálfs-
ævisögu sína í mörgum bindum fyr-
ir bókaforlagið Simon og Schuster.
Dylan, sem varð sextugur í maí síð-
astliðnum, hefur sjálfsagt átt við-
burðaríkari ævi en flestir jafnaldrar
hans og því ætti hann ekki að vera
í vandræðum með að fylla nokkur
bindi af skemmtilegum frásögnum
og hugleiðingum. Ekki spillir fyrir
að maðurinn er afskaplega ritfær,
að minnsta kosti ef eitthvað er að
marka ódauðlega textana sem hann
hefur samið.
Britney hræöir
þýsk villisvín
Bændur í Þýskalandi hafa uppgötv-
að að tónlist táningastjörnunnar Brit-
ney Spears getur nýst þeim í barátt-
unni við óboðin villisvín á ökrum
þeirra. í ljós hefur sem sé komið að
tónlist stúlkunnar skelfir villigeltina
og gylturnar svo mjög að dýrin hafa
sig á brott um leið og hún heyrist.
„Madonna gagnaði ekkert, Robbie
Williams var ónothæfur en villisvínin
þola Britney Spears alls ekki,“ segir
þýski bóndinn Hermann-Josef Becker
í viötali við skoska blaðið Daily
Record. Bannað er að skjóta dýrin.
íslandsmeistaramótið í Galaxy Fitness:
Þetta var erfitt, strákarnir
eru að verða rosalega öflugir
- segir Kristján Ársælsson sem sigraði nokkuð örugglega í karlaflokki
Kaöall
Kaöallinn í tímabrautinni reyndist
mörgum keppandanum erfiður enda
oft lítil orka eftir í lok brautarinnar.
„Þetta var erfitt í lokin, ég var
orðinn svo þreyttur. Ég key.rði mig
alveg út í þrautabrautinni," sagði
Kristján Ársælsson sem sigraði
nokkuð örugglega í karlaflokki
Galaxy Fitness-keppninnar sem fór
fram í íþróttahöllinni í Keflavík síð-
astliðin laugardag. íþróttahöllin var
troðfull af fólki sem fylgdist af
áhuga með harðri og spennandi
keppni.
Kristján hafði töluverða yfirburði
í keppninni en hann sigraði í svo til
öllum greinunum.
í upphífingum og dýfum tók hann
samanlagt 105 en ívar Guðmunds-
son, sem kom næstur honum, tók
83. í tímabrautinni náði Kristján
besta tímanum en hann fór braut-
ina á 66,46 sekúndum. ívar, sem
kom á hæla honum, fór brautina á
78,49 sek. í samanburðinum varð
Kristján að deila fyrsta sætinu með
Benedikt Þorgrímssyni og er þetta í
fyrsta sinn sem Kristján hefur ekki
haft hreina yfirburði i fitness-
keppni.
„Ég varð að leggja mig allan í
þetta því samkeppnin er að harðna
svo mikið. Strákarnir eru að
verða rosalega öflugir. Ég var
sérstaklega ánægður með
Smára Harðarson sem er
einungis 17 ára, yngstur
allra keppendanna. Hann
er búinn að vera í þjálfun
hjá mér og komst upp í 10.
sæti, það er glæsi-
legt,“ sagði
Kristján.
„Við
þessa
V,
Steinatak
Ein þrautanna
sem kariarnir
þurftu að leysa í
tímabrautinni var
að færa þennan
90 kg stein í
stall. Því fylgdu
mikil átök en
allir komu
steininum
upp.
Sigurvegarar
Sigurlína og Kristján voru að vonum ánægð með sigurinn eftir harða
og jafna keppni.
I í flottu formi
„Þetta var
bara ljúft
og gott, en
maður
þarf
keppni fannst mér undirbúningur-
inn erfiðastur. Keppnin er bara
keppni og hún var allt í lagi. Ég
fékk reyndar harða samkeppni í
samanburðinum, við vorum jafnir
ég og Benedikt. Hann er þræl-
flottur, strákurinn. Ég hef
yfirleitt verið „dom-
inerandi" í samanburð-
inum en þeir eru
greinilega farnir að
ýta við mér þar. Ég hef
oftast fengið fullt hús
stiga en þarna var tekið
af mér hálft stig. Kannski
er ég að verða gamall, eða
hinir að veröa betri,“
sagði Kristján að
lokum.
alltaf að hafa smávegis fyrir þessu,“
sagði Sigurlína Guðjónsdóttir úr
Vestmannaeyjum eftir að hafa sigr-
DV-MYNDIR JAK
Pósur
Sigurlína Guöjónsdóttir (til vinstri) inn-
siglaði sigur sinn í samanburðinum en
dómurunum þótti hún flottust.
Karlar pósa
Strákarnir eru sumir hverjir farnir að
veita Kristjáni Ársælssyni harða
samkeppni í samanburðinum og að
þessu sinni þurfti Kristján að deila
1. sætinu með Benedikt
Þorgrímssyni.
að í kvennaflokknum. Sigurlína
Guðjónsdóttir sigraði þar eftir
harða baráttu við Lilju Kjalarsdótt-
ur og Aðalheiði Jensen. Sigurlínu
gekk misvel í greinunum og náði
t.d. einungis fjórða sætinu í 1. grein
mótsins, armréttunum, en bætti það
upp í tímabrautinni þar sem hún
náði besta tímanum. Sigurlína inn-
siglaði síðan sigurinn í samanburð-
inum en þar þótti hún glæsilegust.
„Samkeppnin er alveg frábær. Það
er bara meiri háttar hvað stelpurna
eru flottar og í góðu formi,“ sagði
Sigurlína. Kaðallinn stressaði mig
svolítið mikið fyrir keppnina en ég
er búin að fara oft í gegnum braut-
ina og komin með reynslu sem nýtt-
ist mér vel, þetta var fínt,“ sagði
Sigurlína að endingu.
-JAK
Karlaflokkur
Sæti Nafn Stig alls
1. Kristján Þ Ársælsson 12,75
2. ívar Guðmundsson 10,75
3. Jósep Valur Guðlaugsson 10,5
4. Benedikt Þorgrímsson 9,75
5. Sævar Ingi Borgarsson 7,75
6. Orri Pétursson 7,75
7. Freyr Bragason 6,25
8. Jóhann Ingi Stefánsson 5,25
9. Garðar Sigvaldason 5,125
10. Bjarni Bærings 5
11. Smári Valgarðsson 4,25
12. Trausti Ómarsson 3,375
13. Tómas Guðmundsson 2,5
Kvennaflokkur
Sæti Nafn Stig alls
1. Sigurlína Guðjónsdóttir 11,4
2. Lilja Kjalarsdóttir 9,3
3. Aðalheiður Jensen 8,8
4. Sunneva Sigurðardóttir 7,4
5. Nancy Lun Jóhannsdóttir 6,6
6. Þórunn Helga Kristjánsdóttir 6,5
7. Katrín Karen Þorbjörnsdóttir 6,2
8. Valdís Sigurþórsdóttir 5,6
9. íris Reynisdóttir 5
10. Inga Jóna Ingimundardóttir 4,9
11. Bjarney Bjarnadóttir 4,1
12. Svava Steina Rafnsdóttir 2,2
Skólakeppni Tónabæjar:
Álftamýr-
arskóli
sigraði
Álftamýrarskóli sigraði í hinni
árlegu skólakeppni Tónabæjar sem
fram fór í síðustu viku. Það voru
fjórir skólar í hverfinu sem æsku-
lýðsstarfsemi Tónabæjar nær yfir
sem tóku þátt í keppninni. Hlíða-
skóli hafnaði í öðru sæti og Austur-
bæjarskóli í því þriðja. Verðlauna-
afhendingin fór fram í Tónabæ á
föstudagskvöld og hlutu sigurvegar-
ar farandbikarinn sem fylgir þess-
ari keppni. Þetta er í ellefta skiptið
sem keppni þessi er haldin. Keppt
var í þremur greinum; spurninga-
keppni, fótbolta og „actionary", þar
sem reyndi á ólíka hæfileika og
samstöðu innan hvers skóla. Hlíða-
skóli fékk verðlaun fyrir að vera
með besta stuðningsliðið.
Stúlkurnar í Alftamýrarskóla fögnuðu að vonum vel og lengi þegar í Ijós kom að þær höföu sigrað.